Þjóðviljinn - 06.01.1965, Qupperneq 2
2 SÍÐA
ÞIÓÐVILJINN
Miðvilcuda^ur 6. janúar 1965
Ljóðakveðja í tilefni myndbirtingar
★ Steingrímur í Nesi hefur sent ljóðakveðju til Þjóðviljans
út af mynd í jólablaðinu af fjórum þingeyskum hagyrðingum
en hún var tekin á sólbjörtum sumardegi að Laugum í Þing-
eyjarsýslu.
★ Við birtum hér aftur umrædda mynd af fjórmenningunum
og eru þeir taldir frá vinstri: Baldur á Ófeigsstöðum, Karl á
Húsavík, Steingrímur í Nesi og Egill á Húsavík. v,
Svo gefum við Steingrími í Nesi orðið:
„Mistök verða í mörgum greinum.
Myndásmiðum stundum fatast:
Heilabúið hefur af einum
hagyrðingnum alveg glatazt.
Ljóssins töfrar löngum blekkja
lýð, sem nægir yfirborðið,
en vitrir kjarnann vilja þekkja.
Veitum myndasmiðnum orðið:
„Upptök strauma úr andans lindum
enginn séð né myndað getur,
en jarðneskt efni, saurgað syndum,
sýnir filman öllu betur.”
★ Það liggur ekki ljóst fyrir um hlutdeild prentmyucjasmiðs,
prentara og myndasmiðs, en benda má á þá staðreynd, að þeir
eru allir Þingeyingar. Tveir þeir fyrmefndu Suður-Þingeying-
ar og myndasmiöurinn Norður-Þingeyingur í læri hjá suður-
þingeyskum myndasmið.
Kannski hafa einhver dularfull öfl tekið völdin i atburða-
rásinni og kveðjum við með vísu:
Hjá myndasmiðum mistök verða oft,
en myndin þín hún engu við það tapar,
þótt heilabúið leysist upp í loft,
því loft er það sem Þingeyinginn skapar.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Hver er hræddur vfö Virginíu Woolí?
Æfingar sanda nú yfir í
Þjóðleikhúsinu á leikritinu
„Hver er hræddur við Virginíu
Woolf?“ eftir Edward Albee.
Leikstjóri er Baldvin Halldórs-
son og leikarar aðeins fjórir,
þau Helga Valtýsdóttir, Róbert
Arnfinnsson, Gísli Alfreðsson
og Anna Herskind. Þýðandi
leiksins er Jónas Kristjánsson,
en leiktjöldin gerði Þorgrímur
Einarsson. Leikurinn mun
verða frúmsýndur um miðjan
mánuðinn.
Kunnur fyrir
einþáttunga sína
Um þetta leikrit hefur verið
mikið rætt og ritað, og er það
af mörgum talið eitt mark-
verðasta leikrit, sem frumflutt
hefur verið hin síðari ár. Höf-
undurinn, Edward Albee, er
jBandaríkjamaður, fæddur í
Washington 12. , marz 1928.
Hann stundaði nám í Colum-
bia háskólanum og byrjaði
kornungur að semja leikrit.
Albee segist hafa skrijað
fyrsta leíkritið þegár hánn vár
11 ára, en segir jafnframt að'
þau hafi flest hafnað í rusla-
körfunni. Fyrstu leikrit hans,
sem athygli vöktu, voru ein-
þáttungar. „Saga úr dýragarði"
var það fyrsta, sem sýnt var
eftir hann, en það hlaut ekki
náð fyrir augum amerískra
leikhúsmanna. Það var frum-
flutt í Vestur-Berlín í sept-
ember 1959. Nokkrum mánuð-
um síðar var það sýnt í Banda-
ríkjunum og þá var hinu unga
leikskáldi fagnað. Næstu ein-
þéttungar hans voru: „Ðauði
Bessie Smith“, „Sandkassinn"
og „Ámeríski draumurinn“.
Öll þessi verk hafa verið sýnd
í leikhúsum bæði í Bandaríkj-
unum og í Bvrópu og þótt
merkur leikhúsviðburður.
f fremstu röð leikskálda
Edward Albee skrifaði „Hver
er hræddur við Virginíu
Woolf?“ árið 1961 og 'það var
frumsýnt á Broadway árið eft-
ir. Þetta var fyrsta þriggja
Edward Albee
þátta leikritið, sem Albee
samdi og hlaut hann mikið lof
allra gagnrýnenda fyrir þenn-
an leik. Leíkritaskáldið Tenn-
essee Williams kvað hafa sagt,
að Albee væri búinn að „slá
öllum leikritahöfundum Banda-
ríkjanna við“ með þessu verki
sínu.
Eftir frumsýninguna á Broad-
way hefur leikrit þetta fárið
sigurför um allan heim. í því
sambandi er rétf að geta þess
að er sænski leikstjórinn Ing-
mar Bergman tók að sér að
vera leikhússtjóri í þjóðleik-
húsi Svíþjóðar, þá var „Hver
er hræddur við Virginíu
Woolf?“ fyrsta verkið á sýn-
ingarskrá í því fræga leikhúsi,
þar sem hann var sjálfur leik-
stjóri.
Sagt er að Albee hafi orðið
fyrir djúpstæðum áhrifum af
Eugene O’Neil og Strindberg.
Lýsir það sér bezt í persónu-
sköpun Albee og hve vægðar-
laust hann afhjúpar lífslygina,
unz persónur hans standa ber-
skjaldaðar á sviðinu fyrir
framan augu leikhúsgesta.
Hvers
vegna ?
Oft hefur Morgunblaðið
skrifað fjálglega um nauðsyn
þess að Sjálfstæðisflokks-
menn veljist til forustu i
verklýðsfélögum. Þar séu leið-
togar sem ekki lúti stjórr
Rússa og hins alþjóðlega
kommúnisma, þeir egni ékki
fólk til pólitískrá verkfalla,
heldur séu þeir þjóðhollir
menn og vilji leysa hvem
vanda með sámningum og
skilningi. Þeir beiti sér fyrir
því að tryggja launþegum
raunhæfar kjarabætur og
kjarabætur án verkfalla og
nái með þvílíkum vinnu-
brögðum miklu meiri árangri
en þeir vondu kommúnistar
sem einvörðungu hafi hug á
því að steypa þjóðfélaginu í
glötun. Þannig geti Sjálfstæð-
isflokksmenn leyst hvern
vanda með gagnkvæmri góð-
vild og skilningi, því at-
vinnurekendur muni leggja
sig alla fram af rausn
og gjafmildi þegar þeir hafi
rétta viðsemjendur. Ef Sjállf-
stæðisflokkurinn fái að ráða
muni lömbin leika sér með
ljónum í þeirri paradís sem
ber einkunnarorðin stétt með
stétt.
Þótt orýðin séu til alls fyrst
kemur loks að því að menn
verða að sýna trú sína í
verki. Og nú að undanförnu
hefur verið einstaklega hag-
kvæmt tækifæri fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn að sanna
kenningu sína. Bátasjómenn
hafa borið fram kröfur um
bætt kjör og meðal þeirra
sem mælir fyrir þeim er verk-
lýðsleiðtoginn Pétur Sigurðs-
son, en f honum hefur stefna
Sjálfstæðisflokksins verið tal-
in birtast holdi klædd. Varla
dregur Morgunblaðið i efa að
kröfugerð Péturs Sigurðsson-
ar sé ýtrasta sanngirni og
réttsýni, vottur um þjóðholl-
ústu og skilning. En hvers
vegna er þá látið koma til
verkfalls? Hversvegna koma
útgerðarmennimir — flokks-
bræður Péturs — ekki hlaup-
andi með kjarabætur án
verkfalla á silfurbakka?
Eða Sva<éar Gests, hinn
landskunni forustumaður
Sjálfstæðisflokksins. Hvers
vegna verður hann að leiða
lið sitt út í erfitt verkfall
þegar hann þráir það eitt að
fá raunhæfar kjarabætur í
sátt og samlyndi og myndi
vera fús til að leika ókeypis
undir sameiginlegum dansi
Ijóna og lamba í paradís
Sjálfstæðisflokksins?
— Austri
Þjóðviljann vantar nú þegar blaðbera í
eftirtalin hverfi:
VESTURBÆR:
Seltjarnarnes 2.
Skjólin
Tjamargata.
AUSTURBÆR:
Laufásvegur
Þórsgata
Njálsgata
Bergþórugata
Meðalholt
Skúlagata
H;;fðihverfi
Langahlíð
Mávahlíð ,
Múlahverfi.
KÓPAVOGUR:
Holtagerði
Hófgerði
Kársnesbraut.
Umboðsmaður:
Ásbraut 19,
Sími 40319.
Sími 17-500.
* BILLINN
Rent an Icecar
Sími 1 8 8 3 3
Jólatrésskemmtun
Glímufélagsins Ármanns verður haldin í Sjálf-
stæðishúsinu fimmtudaginn 7. ’jan. kl- 3.45 s.d.
Aðgöngumiðar eru seldir í bókabúðum Lárusar
Blöndals, Vesturveri og Skólavörðustíg 2, Sport-
vöruverzluninni Hellas og Verzluninni Vogaver og
við innganginn.
Glímufélagið Ármann.
Tilkynning frá landssímanum
Drengi eða stúlkur vantar við skeytaútburð á rit-
símastöðina í Reykjavík. Vinnutími kl. 9—12 eða
13—17. — Nánari upplýsingar í síma 2-20-79.
KaHmannaföt
Verð frá kr. 1.998,00.
TERYLENEBUXUR
Verð kr. 698,00.
Klæðaverzlunin
Klapparstíg 40 — Sími 14415.