Þjóðviljinn - 06.01.1965, Qupperneq 5
Miðvikudagur 6. janúar 1965
ÞIÓÐVILIINN
SIÐA 1}
011 kvennaliðin í eldinum,
Víkingur, FH og Valur unnu
Q Á mánudaginn fóru fram þrír leikir í kvenna-
flokki, og komu fram öll þau lið sem taka þátt
í mótinu í meistaraflokki. Sem sagt, þarna var
að sjá það bezta sem við eigum í kvenna-hand-
knattleik. Nokkuð voru liðin misjöfn að gæðum,
LEIKURINN HEFST MEÐ GÖLFÞVOTTI!
Þétta er algeng sjón í íþróttahúsinu að Hálogalandi: Einn leikniaður stendur í gólfþvotti áður en
leikur hefst — húsþakið heldur ckki úrkomunni og pollar myndast á gólfinu. Það er svo sannar-
lega þörf á að hinir ágætu íslenzku handknattleiksmenn — sem og aðrir íþróttamcnn — komist
hið fyrsta í viðunandi húsakynni. — Ljósm. Bjarnl.
en í heild virðist sem þau séu nú sízt lakari en
í fyrra og ætti sigur kvennanna í Norðurlanda-
meistaramótinu í sumar að hafa eggjað stúlkurn-
ar til að æf'a og bæta getu sína, og fyrir þær
yngri ætti sá sigur líka að vera örvun.
Vera má að hinn tiltölulega
ungi flokkur Fram hafi t.d.
orðið fyrir áhrifum, bví að sá
flokkur kemur sterkari og
fjörlegri nú en í fyrra.
Eftir frammistöðu liðanna í
þessum leikjum er erfitt að
spá með nokkurri vissu um
sigurmöguleika. Ekki er ótrú-
legt að Valur berjist hart um
að halda titlinum, og þá sér-
staklega við F.H. og Ármann.
Ekki er ósennilegt að þessi
þrjú félög berjist um sigurinn.
Breiðablik ógnaði Víking, en
skorti úthald og tapaði 14:10
Fyrsti leikur kvöldsins var
á milli Víkings og Breiðabliks,
og» leit lengi svo út sem leið
Víkingsstúlknanna til sigurs
ætlaði að verða erfið. Þó voru
þær fljótt á litið sigurstrang-
legri. Breiðablik byrjaði á því
að skora, en Víkingur jafnar
og aftur skorar Breiðablik og
enn jafna Víkingsstúlkurnar,
og taka forustuna, en Breiða-
blik jafnar 3:3. Næst komast
Víkingsstúlkurnar í 5:3 en í
hálfleik höfðu stúlkurnar úr
Breiðabliki jafnað 7:7. Enn
taka Vikingsstúlkurnar for-
ustu, en Breiðablik jafnar og
bætir tveim mörkum við og
standa nú leikar 10:8. En það
er eins og þær hafi 'eytt öllu
sínu púðri í þennan ágæta
sprett, en Víkingsstúlkurnar
skoruðu nú 6 mörk í röð án
þess að Breiðabliksstúlkunum
tækist að svara fyrir sig.
Vafalaust hefur yantað úthald
í lið Breiðabliks og svo kem-
ur einnig til minni leikreynsla.
Víkingsstúlkurnar voru mun
jafnari en mótherjar beirra, og
beztu leikmenn þeirra voru
Elin og Rannveig.
í liði Breiðabliks er það Sig-
rún sem svo að segja allt
stendur og fellur með; var hún
í sérflokki og sýndi mjög
skemmtilegan leik. "feð meiri
æfingu ætti þetta lið samt að
geta orðið gott, og með meiri
keppni og leikjum ætti það að
geta bitið frá sér.
Dómari var Páil Pétursson
og hefði mátt vera svolítið
strangari og taka á meiri leik-
brot.
•k Pólverjar sigruðu Norð-
menn í landskeppni í ísliokki
um síðustu helgi með 6:1.
Leikurinn fór fram i Varsjá.
-Ar Heimsmeistarakeppnin i
ísknattleik (hokkí) verður
háð í Finnlandi í marzmán-
uði n.k.
■Ar Norskir íþróttafréttaritar-
ar blaða kusu spjótkastar-
ann Terje Pedersen íþrótta-
mann ársins 1964 í Noregi.
Pedersen varð sem kunnugt
er fyrstur manna til að kasta
spjóti yfir 90 metra. Tvíveg-
is sl. sumar bætti hann
hcijnsmetið, en á olympíu-
leikjunum í Tokíó brást hann
algerlega vonum Norðmanna,
komst ekki í aðalkeppnina.
★ Per Ivar Moe setti nýtt
norskt met í 1500 metra
skautahlaupi á móti sem háð
var á Bislet-lefkvanginum i
Osló um helgina. Hann hljóp
vegalengdina á 2.08,6 mín.
★ Þrátt fyrir mjög erfið
keppnisskilyrði í Innsbruck í
Austurríki sl. sunnudag
sýndu norskir skíðastökk-
menn enn getu sína og sigr-
uðu, cn keppcndur voru 68
af fjórum þjóðernum. Sigur-
vegarinn varð Torgeir
Brandtsæg, en Björn Wirk-
ola varð annar í röðinni.
Handknattleiksmótið:
Matusevitsj bezti
Rússinn á skautum
Á skautamóti sem háð var
í Gjörvik í Noregi um helg-
ina var sovézki hlauparinn
Edvard Matusevitsj mjög
nærri því að slá heimsmet Sví-
ans Jonny Nilssons — 178.447
stig í samanlögðum keppnis-
greinum.
Edvard Matusevitsj er án
alls efa langbezti skautahlaup-
ari í Sovétríkjunum þessa
stimdina. Hann vann 1500
metra hlaupið í Gjörvik á
sunnudaginn og hljóp á bezta
tíma sem náðst hefur á þess-
ari vegalengd á árinu þrátt
fyrir heldur slæm skilýrði.
Tími hans var 2.07,3 mín.. en
helzti keppinautur hans. Ants
Antson, sem einni-g er frá
Sovétríkjunum hljóp á 2.08,4
mín.
10.000 metra hlaupið i Gjör- .
vik vann Rússinn Stanislav
Seljanin; hljóp hann þessa
vegalengd á 16.01,0 mín sem
er nýtt brautarmet og bezti
tími Rússa til þessa.
Evrópukeppnin í körfuknattleik:
ÍR 0G LY0N LEIKA HER
10.0G YTRA17. JANÚAR
■ ÍR-ingar, íslandsmeistaramir í körfuknattleik, munu
mæta frönsku ■meisturunum í Evrópubikarkeppninni án
bátltöku fyrirliða síns og eins bezta manns, Þorsteins
Hallgrímssonar.
Eins og kunnugt er sigruðu
ÍR-ingar norður-írsku meistar-
ana frá Belfast, Collegians,
með talsverðum yfirburðum i
báðum leikjum fyrstu umferð-
ar Evrópubikarkeppninnar.
Frönsku meistararnir frá Ly-
on unnu einnig báða sína leiki
í 1. umferðinni, en þá mættu
þeir ensku meisturunum.
Fyrri leikur Lyons og ÍR
fer fram í íþróttahúsi banda-
ríska hersins á Keflavíkurílug-
velli n.k. sunnudag, 10. janúar,
en síðari leikurinn verður svo
hácSur í Lyon viku síðar.
Gera má ráð fyrir að
franska meistaraliðið sé mjög
sterkt og leynist því ÍR-ing-
um þungt í skauti, ekki sízt
þegar fjarri pru sumir af
beztu leikmönnunum íslenzku.
Ármann „missti“ ielkinn
tapaði 8:7 móti FH
Það var tö’ „ vrei\, „ftirvæut-
ing um úrslit þessa leiks. því
að FH kom með nokkrar
stúlkur sem hafa litla ^evnslu,
en flestar stúlkur Ármanns
hafa mikla leikrevnslu að
baki sér. Til að byrja með
virtist sem FH-liðið hefði ekki
þann styrkleika —... oft áður,
og í rauninni var Sylvía ein
sem verulega sýndi fyrri til-
þrif. Ármann gekk á lagið og
náði yfirhöndinni í leiknum og
var um miðjan fyrri hálfleik
'kominn í 4:1, og eftir gangi
leiksins virtist sem Ármann
hefði náð þeim tökum sem
myndu duga til sigurs.
í hálfleik -.óðu leikar 6:4
fyrir Ármann. En svo skeður
það einkennilega að Ármanns-
stúlkurnar „missa“ leikinn út
úr höndunum á sér svo alvar-
lega að þær skora aðeins S1
mark í síðari hálfleik en FH-
stúlkurnar 4, og þá var það
Valgerður sem skoraði þrjú
Framhald á 9. síðu.
★
★ Mohamed Gamoudi frá
Túnis, sá sem hlaut silfur-
verðlaunin í lO.OOo' metra
hlaupinu á olympíuleikjunum
i Tokió vann 8000 metra
víðavangshlaup sem fram fór
í Túnis um helgina, Tíminn
var 23.41,2 mín. en Englend-
ingurinn Mel Batty, sem varð
annar i hlaupinu. hljóp
23.59.6 mín
Mohammed
Per Ivar Moe
Keppnin fór fram í Berg-Sel
brautinni, sömu stökkbraut
og notuð var á síðustu vetr-
arolympíuleikjum.
★
★ Norðmaðurinn Thor Hel-
land vann 3000 metra hlaup
á frjálsíþróttamóti sem fram
fór í Sao Paulo sl. laugardag.
Hljóp hann vegalengdina á
8.30,6 mín, en Svíinn Lars
Erik Gustafsson varð annar.
Á þessu sama íþróttamóti
sigi'aði Belgíumaðurinn Gast-
on Roelants í 10.090 metra
hlaupinu á 29.46,1 mín. Jap-
aninn Kokito Tsuburaya’varð
annar á 30.15,3 mín. og ítal-
unn Antonia Ambu þriðji á
30.32.4 mín. Sigurvegarinn
5000 metra hlaupi var Mono-
el de Oliveira frá Portúgal á
14.20.5 mín. en Englendingur-
inn Mike Aiggs sigraði í
1500 metra hlaupinu á 3.46.1
mín, Kipchoge Keino frá
Kenya varð annar á 3.48,8
mín.
utan úr
i
(
I
i