Þjóðviljinn - 26.03.1965, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 26.03.1965, Blaðsíða 1
dbhhhih Fostndagur 26. marz H965 — 30. árgangur — 71. tölublað. Hcrflsinn teppir siglingar norZur: 2 SKIP INNILOKUÐ Á NORÐURLANDSHÖFNUM □ Eins og frá var skýrt í blaðimi í gær eru siglingaleiðir nú algerlega lokaðar til Norðurlands, bæði fyrir Hom og Langanes. Eru tvö skip lokuð inni á höfnum fyrir norðan, Herðubreið á Húsavík og Stapafell á Siglufirði. Þá hafa nokkur skip sem áttu að fara með vörur á Norðurlandshafn- ir orðið frá að hverfa og verður að skipa vörunum upp ann- ars staðar og breyta áætlun þeirra. Þióðviljinn átti 1 gær tal við Guðjón Teitsson forstjóra Skipa- útgerðar ríkisins. Skýrði hann svo frá að Herðubreið hefði i fyrradag reynt að komast fyrir Langanes, en orðið að snúa við og komizt við illan leik til Húsa- víkur. Skjaldbreið er nú á Breiða- fjarðarhöfnum og Esja á Vest- fjörðum og áttu þær báðar að fara norður fyrir land næstu ferð samkvæmt áætlun. 1 þess stað verða þær báðar sendar austur fyrir. Tekur Skjaldbreið vörur á suðurhafnir Austfjarða en Esja mun fara eins langt norður og fært er. Blaðið átti einnig tal við Hjört Hjartar forstjóra Skipadeildar SÍS og sagði hann að Stapafell væri lokað inni á Sigiufirði. Þá eru tvö skip félagsins á Aust- fjörðum, pisarfell á Djúpavogi og leiguskipið Petrell á Fá- skrúðsfirði, og áttu þau bæði að fara norður fyrir land, en áætl- un þeirra verður að breyta vegna íssins og skipa vörunum á land annars staðar. Þá sendi Eimskipafélagið Þjóð- viljanum fréttatilkynningu í gær og segir þar m.a. svo: Bakkafoss fór frá Reykjavík um s.L hélgi austur um land með allmikið magn af vörum til hafna á Austur- og Norðurlandi. I skip- inu eru núna um 600 tonn af vamingi til Raufarhafnar, Akur- eyrar og Siglufjarðar og tekur það vörumagn upp nálega hehn- ing af lestarrými skipsins. Sökum þess að siglingaleið til Norðurlands er ófær og hætta er á því að firðir á Austurlandi fyllist af. ís, var ekki talið ráð- legt að Bakkafoss lægi á Aust- fjarðahöfnum, og þvl ákveðið í gærkvöld að taka í land á Reyð- arfirði þau stóru stykki, sem stóðu á þilfari skipsins og sigla Framhald á 9. síðu Rúistefna ASI um kjara- múlin hefst í dag kl. 2 Ráðstefna Alþýðusambandsins um kjaramál hefst í dag, kl. 2 e.h. í Lindarbæ, niðrí. Sækja ráðstefnuna um 70 fulltrúar launþegasamtaka innan Alþýðu- sambandsins, fulltrúar sérsambanda og fjórðungssambanda og ein- stakra félaga sem ekki eru í neinu sérsambandanna. Viðfangsefni ráðstefnunnar er viðhorfið í kjaramálum vegna samn- inganna sem framundan eru og þær breytingar sem verkalýðshreyf- ingin telur að gera þurfi á núgildandi samningum. Ennfremur mun rætt um hvernig skuli staðið að samningsgerðinnL í dag venður flutt framsaga um kjaramálin og að henni lokinni hefjast umræður um þau mál. Nefndir munu fjalla um einstök at- riði og mál milli umræðna. Ráðstefnan heldur svo áfram á morgun, laugardag, og er gert ráð fyrir að henni ljúki þann dag. Geir Gunnarsson gagnrýnir sinnuleysi stjórnarvaldanna r s Oréttlátt að ætla Kópavogi einum að greiða vegabætur yfir hálsinn ■ Við umræður í gær um vegaáætlun til ársins 1968 tók Geir Gunnarsson tíl máls og gerði grein fyrir afstöðu Alþýðubandalagsins í vegamálunum, en Al- þýðubandalagið stóð að minnihlutaáliti um málið ásamt Framsóknarfl. og er greint frá því annars staðar í blaðinu. í fyrstu ræddi Geir um kaupstaðinn suður í Hafnar- fjörð og á Suðumes, en sem kunnugt er er þar rík'jandi eitt hið mesta umferðaröng- þveiti, sem þekkist á landinu. fyrstu ræddi Geir um vegaáætlunina almennt en vék síðan að vegamálum Kópavogskaupstaðar, vegin- um yfir hálsinn í gegnum Geir Gunnarsson benti á það að með nýju vegalögunum hefði bæjarfélögunum verið ætlað að taka á sig framkvæmdir, sem áður heyrðu undir Vegagerð rík- isins. Jafnframt hefði frumvarp- ið til nýrra vegalaga gert ráð fyrir, að kaupstaðir og kauptún fengju 12% af tekjum vegasjóðs til framkvæmda við þjóðvegi, sem lægju í gegnum viðkomandi kauptún og kaupstaði, en þó skyldi 10% af þeirri upphæð haldið eftir til úthlutunar á- kveðinna brýnna verkefna við þjóðvegaspotta í einstökum sveitarfélögum, en sá böggull hefði fylgt skammrifi að sveit- arfélögin áttu ekki að fá slíkt aukaframlag nema á fimm ára fresti. Geir minntist síðan á ummæli sín við umræðurnar um vega- lögin, er hann hélt því fram, að með þessu væri vegagerðin í rauninni að velta af sér yfir á bæjarfélögin í landinu um- ferðaröngþveitinu og ætti þetta sérstaklega við um Kópavog, þar sem helmingur þeirra 15 þús. bíla, sem fara um Kópa- vogsháls á dag ætti ekki sér- stakt erindi í Kópavog. Frumvarpinu hefði hins veg- ar ekki verið breytt við með- ferð þingsins nema að því leyti, að hvert sveitarfélag gæti feng- ið aukaframlagið, þegar þess er talin þörf á hverjum stað. Málarafélag Reykjavík* ur segir upp samningum Kveður eftir 380 ferðir hingað frú stríðslokum Um hádegisbilið í gær sigldi ms. Dronning Alexandrine, það gamla og góða farþegaskip Sam- einaða gufuskipafélagsins danska, í síðasta skipti inn á Reykjavík- urhöfn, en skipið verður svo sem áður hefur verið sagt frá í frétt- um tekið úr notkun að Iokinni þessari síðustu ferð og nýrra og stærra skip sett til að annast Is- lands- og Færeyjaferðir félags- ’ns í framtíðinni, ms. Kronprins Olav. „Drottningin” hefur haldið uopi reglulegum ferðum milli '"''’nmerkur og Islands með við- komu l Færeyjum áratugum saman. Skipið kom í fyrsta skipti til Islands 26. júni 1927 og var síðan á annan áratug í áætlunar- ferðum þessum, kom ekki aðeins til Reykjavíkur heldur hafði og viðkomu á ýmsum höfnum úti á landi. I síðari heimsstyrjöldinni féllu ferðir „Drottningarinnar” hingað niður, en fljótlega eftir stríðslok voru Islands- og Færeyjaferðir hafnar að nýju. Kom skipið í fyrstu ferð sinni hingað eftir stríðið í nóvembermánuði 1945 og síðan eru Islandsferðimar orðnar um 380 talsins. Farþegar í þessari siðustu Is- landsferð „Drottningarinnar” voru ekki margir, um 25, en ut- an munu halda með skipinu milli 30 og 40 farþegar á mánu- daginn kemur. „Krónprinsinn”, arftaki „Drottningarinnar” er væntanlegur í fyrsta skipti til Reykjavíkur miðvikudaginn 14. apríl n.k. Hér dvelst skipið síð- an um kyrrt í fjóra daga, heldur utan til Færeyja og Danmerkur síðari hluta dags hins 17. apríl. Myndin var tekin í Reykjavík- urhöfn í gær, fimmtudag, er ms. Dronning Alexandrine kom til Islands í síðasta sinn. (Ljósm. Þjóðv. A. K.) ■ Á aðalfundi Málarafélags Reykj avíkur, sem haldinn var á þriðjudaginn, voru m. a. rædd kjaramálin og sam- þykkt að segja upp samningi félagsins við atvinnurekend- ur. FH íslands- meistari í handknattleik 1 gærkvöld voru háðir tveir leikir í handknattleiksmeistara- mótinu að Hálogalandi. Fyrri leikurinn var á milli Fram og KR og sigraði KR með 20 mörk- um gegn 15 og kom sá sigur mörgum á óvart. Með þessum úrslitum er FH orðinn sigurveg- ari mótsins og þar með íslands- meistarar og voru þeir óspart hylltir þegar þeir komu til leiks við Ármann f gœrkvöldi. Sá leikur endaði með sigri FH 33:19. Nánar verður sagt frá leikjun- um á íþróttasíðunni á morgun. Hér fer á eftir fréttatilkynning um fundinn frá Málarafélaginu: „Aðalfundur Málarafélags R- víkur var haldinn í Dindarbæ þriðjudaginn 23. marz sl. Skýrsla stjómar um starfsemi félagsins og reikningar félagsins voru lesnir upp og samþykktir. Tveir menn úr fráfarandi stjóm, sem lengi höfðu gegnt trúnaðarstörfum fyrir félagið, þeir Leifur Ölafsson varafor- maður og Magnús Stephensen gjaldkeri, báðust undan endur- kosningu. Stjórn- og trúnaðar- mannaráð 1 stjórn voru kjömir: Formaður: Sigursveinn H. Jó- hannesson, varaform: Jón D. Jónsson, ritari: Rúnar Ágústs- son, gjaldkeri: Símon Konráðs- son, ritari stjórnar: Kristjáni Magnússon. Varastjóm: Ein^r Kristjánsson og Róbert Gestsson. Trúnaðarmannaráð: Þorsteinn B. Jónsson, Guð- mundur Þ. Björasson, Laur? Henttinen, Jón I. Ragnarsson, Framhald á 9. síðu i,En þetta er algerlega ófull- nægjandi, sagði Geir, og ég taldi að lögin með þessari breyting- artillögu einni mundu stórtefja framgang á lausn umferðaröng- þveitisins í Kópavogi. En sam- göngumálaráðherra var ánægð- ur er hann sagði: Ég held að samgöngumálanefnd hafi hitt naglann á höfuðið og að það verði tæplega betur fyrir mál- um Kópavogskaupstaðar séð að sinni.“ „Afsökun þeirra sem þannig töluðu í fyrra, er sú, að þeir munu hafa trúað því að það Framhald á 9. síðu Leikhúsmenn á fundi á sunnudag Á morgun, laugardaginn 27. marz, verður alþjóðlega leikhúss- dagsins minnzt víða um heim. 1 tilefni dagsins hefur verið gefið út ávarp, sem Þjóðviljinn mun birta f heild á morgun, en annars er helzt að geta fundar sem nokkur hópur leikhúss- manna heldur á sunnudaginn til skrafs og ráðagerða. Auk leik- hússtjóra mæta á þeim fundi for- menn Bandalags íslenzkra leik- ara, Félags ísl. leikara, Félags leiklistargagnrýnenda, Félags leikara við Þjóðleikhúsið, og Félags leikritahöfunda og stjórn- armenn Leikfélags Reykjavíkur. Munu þeir ræða viðhorf í leik- listarmálum á Islandi á fundi sínum á sunnudaginn. VÍSITALA ÓBREYTT ★ Hagstofan hefur reiknað út vísitölu framfærslu- kostnaðar miðað við verðlag 1. marz sl. og reyndist hún óbreytt 168 stig. Eini vísitöluliður- inn sem hækkaði í fe- brúar var fatnaður og álnavara, úr 169 stigum í 170 stig en sú breyt- ing hefur ekki áhrif á meðalvísitöluna. ★ Eftir að vísitalan var reiknuð kom hins vegar til framkvæmda hækk- un á öllum landbúnað- arvörum sem mun koma fram í næsta útreikn- tngi. i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.