Þjóðviljinn - 26.03.1965, Síða 4
4 SIÐA
ÞJÖÐVILJINN
Föstudagur 26. marz 196S
Otgefandi: Sameíningarflokkur alþýöu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: tvar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Siguróur Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastjórl: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19.
Siml 17-500 (5 línur). A.skriftarverð kr 90.00 á mánuði.
Verkalýðshreyfíngin á leik
'J'rúnaðarmenn og fulltrúar launþegasamtakanna
innan Alþýðusambands íslands koma saman til
fundar í Reykjavík í dag, í Lindarbæ, húsi Dags-
brúnar og Sjómannafélags Reykjavíkur. Með þeim
ákvörðunum og ályktunum sem þessi ráðstefna
ASÍ um kjaramálin tekur, verður fylgzt af óvenju-
legri athygli, því það er verkefni hennar að ræða
viðhorfið í kjaramálum á þessu vori, meta s'töðu
launþega og aðstöðu verkalýðsfélaganna til bar-
áttu. Telja má líklegt að ráðstefnan móti í álykt-
un aðallínur þeirrar kröfu sem verkalýðshreyf-
ingin ber fram í vor um breytingar á kaup- og
kjarasamningum, og lögð verði á ráðin hvernig
að baráttunni skuli staðið.
Jjetta er ráðstefna verkalýðssam'taka innan Al-
þýðusambandsins og því eðlilegt að vitnað sé
til samþykkta Alþýðusambandsþings, en kjara-
málaályktun þess var samþykkt einróma. í þeirri
kjaraályktun var lögð á það megináherzla, að í
vor hlyti verkalýðshreyfingin að hafa að aðalþátt-
um í kröfugerð sinni þessi þrjú atriði:
1. Kaup verði hækkað allverulega, þannig að
hlutur verkafólks í þjóðartekjum verði leið-
réttur og stefnt að því að dagvinnutekjur
nægi meðalfjölskyldu til menningarlífs.
2. Vinnutími verði styttur án skerðingar á
heildartekjum.
ÞRENNIR TÓNLEIKAR
Peter Serkín
Serkín er eitt þeirra nafna,
sern fræg eru meðal tónlist-
arhlustenda, og Reykvíking-
um er það vel kunnugt, þar
sem píanóleikarinn Rudolf
Serkin hefur komið hingað
Demus.
oftar en einu sinni og leikið
fyrir þá. Fyrir skömmu kom
svo sonur Rudolfs, Peter
Serkín, hingað og hélt píanó-
tónleika á vegum Tónlistar-
félagsins. — Það má seg.ia,
að þeim manni sé ekki lítill
vandi í höndum, sem er son-
ur slíks manns sem Rudolfs
Serkíns og velur sér hið
sama starfssvið, hljómleika-
pallinn, og meira að segja
hið sama hljóðfæri. Það fer
ekki hjá því, að slík ættar-
tengsl freisti manna til sam-
anburðar og jafnvel kröfu-
gerðar, sem örðugt verður
að standast. En það er sann-
ast mála, að þó að Peter
Igor Buketoff stjómaði
síðustu tónleikum Sinfóníu-
sveitarinnar. Hljómsveit og
stjómandi náðu mjög góðum
tökum á sínum viðfangsefn-
um. Þar var fyrst .á efnis-
skrá hin „Klassíska sinfónía"
Prokofieffs, en hana hefur
hljómsveitin raunar flutt
einu sinni áður. Síðast á
efnisskránni var „Sinfónía í
D-dúr“ eftir ungan Spán-
verja, Arriaga. Tónskáld
þetta lézt aðeins tvítugt að
aldri, árið 1826. Þetta var
einn af sorgaratburðum tón-
listarsögunnar. Um það get-
ur manni ekki blandazt hug-
ur, er hann hlustar á þetta
tónverk, sem er svo fullt
af margvíslegum og skemmti-
legum hugmyndum, sem ýms-
ar eru furðlega frumlegar
þrátt fyrir ýmis augljós merki
um æsku höfundar.
Aðalviðburður þessara tón-
leika var flutningur sá á
píanókonsert í Es-dúr eftir
Serkín sé ekki nema 17 ára
að aldri, þá er hann þegar
orðinn sá píanóleikari, að
hann getur komið fram á
tónleikapalli hvar sem er í
heiminum án þess að kafna
undir sínu fræga nafni. —
Á efnisskránni voru fjórar
stefjur eftir Schumann, sjald-
flutt verk, sónata eftir Schu-
bert (G-dúr, op. 78) og
„Goldbergs-tilbrigði“ Bachs.
Listamaðurinn flutti allt
þetta á glæsilegan og til-
þrifamikinn hátt. Víða gætti
skaphita í leik hans, en á
stöku stað vottaði fyrir
nokkrum jafnvægisskorti,
sem eflaust á eftir að hverfa
með auknum aldri og þroska.
Er eigi að efa, að þessi ungi
maður muni eiga í vændum
glæstan listamannsferil.
Mozart (KV 482), sem var
einn þáttur þeirra. En ein-
leikari var Jörg Demus frá
Vínarborg. Hann mun mörg-
um hér á landi nokkuð kunn-
ur af ýmsu, sem hann hefur
leikið á hljómplötur, þó að
ekki hafi hann komið hing-
að til lands áður. Meðal ann-
ars hefur verið hljóðritað
mikið af ferhendum píanó-
verkum Schuberts, sem Dem-
us hefur leikið ásamt öðrum
ágætum píanósnillingi, Bad-
ura-Skoda, og eru þær
hljómplötur gersemar.
Píanókonsert Mozarts lék
Demus svo aðdáanlega vel,
að telja verður, að mjög hafi
nálgazt fullkomnun. Og hvað
er þá meira þar um að segja?
Það var því ánægjuefni að
eiga þess kost að hlýða á
sértónleika þessa snillings á
Buketofí.
eftir Beethoven (As-dúr, op.
110), tilbrigðaverk eftir Schu-
mann (Sinfónskar etýður, op.
13) og sónata eftir Schu-
bert (B-dúr, saman síðasta
árið, sem tónskáldið lifði).
Hvað var nú bezt leikið af
þessu? Ég held, að þeirri
spumingu verði ekki svarað
öðruvísi en svo, að þar hafi
allt tekizt jafnsnilldarlega.
Það sýnir bezt fjölhæfni
þessa frábæra píanóleikara,
að þetta skuli mega segja
um öll hin ólíku verkefni
þessará tónleika og sinfóníu-
tónleikanna, sem fyrr eru
nefndir, svo og aukalög þau,
er hann lék bæði í samkamu-
sal Háskólans og Austurbæj-
arbíói.
Göfugur tónlistarflutningur
af þessu tagi getur því að-
eins átt sér stað, að lista-
maður hafi á valdi sínu alla
kunnáttu ásamt hæfileika til
að beita henni í þágu háleitr-
ar listmætishugsjónar.
vegum Tónlistarfélagsins fá-
um dögum síðar. Þar var
mönnum boðin efnisskrá allt
annarrar tegundar: sónatá
B.F.
Jörg Demus hjá Sinfóniu-
sveit og Tónlistarfélagi
3. Orlof verði aukið.
jþað voru ennfremur einróma samþykkt í ályktun
Alþýðusambandsþings eftirfarandi fyrirmæli:
„Þingið leggur áherzlu á að áfram verði haldið
samningum um réttlátar ráðstafanir í húsnæðis-
májum almennings, um setningu laga um vinnu-
vemd og ýmis önnur réttinda- og hagsmunamál
Allmargir styrkir til háskólanáms
og rannsóknarstarfa erlendis
alþýðufólks“. Það er því ekki í anda kjaraálykt-
unar Alþýðusambandsþings, þegar Tíminn telur
það óráðlegt að láta slík mál einnig koma til greina
við samningatilraunirnar sem framundan eru,
Enda þarf vart um það að deila, að vissir þættir
þeirra mála, svo sem húsnæðismálin og skattamál-
in. eru stórmál varðandi afkomu hvers alþýðu-
heimilis.
r
J íhaldsblöðunum hefur orðið vart þeirrar fil-
hneigingar að líta á júnísamkomulagið í fyrra
sem einhvers konar fyrirheit um að verkalýðs-
hreyfingin hlyti að fara sér hægt með kröfur um
kauphækkun og kjarabætur Það er mikill mis-
skilningur. Á þessu vori eru þjóðhagsleg skilyrði
fyrir myndarlegri kauphækkun, aukningu kaup-
máttarins, fyrir verulegri styttingu vinnutímans
með óskertum heildartekjum. Verkalýðshreyfing-
in á nú leik. Sé þess kostur að semja við atvinnu-
rekendur og stjórnarvöld friðsamlega um veiga-
mikil atriði, styttingu vinnutíma, hækkun raun-
verulegs kaups og félagslegar umbætur, verður
það sjálfsagt gert, Hius vegar hlýtur verkalýðs-
hreyfingin að vera albúin til harðvítugrar baráttu
ef afturhaldið þrjózkast við réttmætum kröfum
launafólksins. — s.
Eins og að undanförnu hafa
allmargir Islendingar hlotið
styrki til háskólanáms og
rannsóknastarfa utanlands á
þessu námsári.
Fer hér á eftir yfirlit um
þær styrkveitingar, sem
menntamálaráðuneytið hefur
haf t einhvers konar milli-
göngu um, m.a. í sambandi
við auglýsing styrkjanna og
tillögur um val styrkþega..
Styrkimir hafa verið boðnir
fram af stjórnarvöldum við-
komandi landa, nema annars
sé getið.
Danmörk
Jóni Björnssyni og Ingolf
Jóns Petersen voru veittir
styrkir til að Ijúka síðari hluta
námi í lyfjafræði lyfsala við
Lyfjafræði-háskólann í 'Kaup-
mannahöfn.
Finnland
Hjalti Kristgeirsson nag-
fræðingur, hlaut styrk til að
leggja stund á finnska tungu.
bókmenntir og menningarsögu
við háskólann í Helsingfors.
Frakkland
Anna S. Ólafsdóttir nlau’
styrk til að nema franska
tungu ög bókmenntir við Par-
fsarháskóla og Huldar Smári
Ásmundsson til að nema sál-
arfræði (aukagr. heimspeki) víð
sama háskóla.
Italía
Eins og undanfarin ár voru
nokkrir styrkir veittir til að
sækja sUmamámskeið í ftalskri
tungu.
Noregur
Jóni Gunnarssyni var veitt-
ur styrkur til að leggja stund
á samanburðarmálfræði við
óslóarháskóla.
Ráðstjórnarríkin
Eyvindur Erlendsson hlaut
styrk til að halda áfram leik-
listamámi í Moskvu.
Sambandslýðveldíð
Þýzkaland
Arel Wilhelm Carlquist Theo-
dórs hlaut styrk til að leggja
stund á eðlisfræði við hóskól-
ann í Giessen, Helga Kress
til náms í þýzkum fræðum,
Hróbjartur Hróbjartsson til
náms í húsagerðarlist við
Tækniháskólann í Stuttgart,
öm Ólafsson til náms í þýzk-
um fræðum og Helga Ingólfs-
dóttir til tónlistamáms.
Auk þess fengu eftirtaldir
námsmenn framlengda fyrri
styrki: Davfð Atli Ásbergs,
Jónas Bjarnason, Guðmundur
Guðmundsson og Sverrir
Schopka f efnafræði, Gylfi
ísaksson. Pétur Stefánsson og
Guðjón Guðmundsson í bygg-
ingaverkfræði. Hörður Krist-
insson í grasafræði dr. Bjarki
Magnússon til framhaldsnáms
í meinafræði, Guðmundur
Ólafsson í rafmagnsverkfræði
og Jón Þórhallsson í eðlisfræði.
Jafnframt hlutu Bjöm Þ.
Jóhannesson, kennaraskóla
kennarij og Friðrik Þorvalds-
son, menntaskólakennari, styrki
til að sækja sumamámskeið
við háskóla í Þýzkalandi.
Sviss
Árni Ólafsson, læknir, hlaut
styrk til að halda áfram sér-
námi í barnasjúkdómum.
Svíþjóð
Valgarður Stefánsson, fil
kand., hlaut styrk til fram-
haldsnáms í eðlisfræði við
Stokkhólmssháskóla.
Stefán Guðjohnsen, sem
stundar nám í radiotæknifræði
og raftæknifræði við Oslo
tekniske skole hlaut ferða-
styrk, er dr. Bo Akerrén, hér-
aðslæknir f Visby á Gotlandi,
bauð fram og íslenzka mennta-
málaráðuneytið ráðstafaði.
Námsstyrkir þeir, sem get-
ið er hér að framan, eru yfir-
leitt veittir til eins skólaárs
og nemur fjárhæð þeirra
samanlagt um kr. 1 milj. Sum-
ir þeirra voru boðnir fram
gegn samskonar styrkveitingu
af hálfu íslands, og enn aðra
má telja endurgjald fyrir
styrki, er menntamálaráðuneyt-
ið hefur óður veitt námsmönn-
um frá viðkornandi löndum. Á
þessu skólaári hefur ráðuneytið
veitt eftirtöldum erlendum
námsmörmum styTk til náms
við Hóskóla íslands í íslenzkri
tungu, sögu Islands og bók-
menntum:
Frá Ástralíu: Philip E.
Niland. Frá Bandarikjum
Ameríku: Patricia Lee Conroy.
Frá Bretlandi: Rory McTurk.
Frá Danmörku: Lene Ravn.
Frá Finnlandi: Ingegerd Ný-
ström. Frá Noregi: Ame Torp.
Frá Sviss: Urs Wagner. Frá
Svíþjóð: Lennart Wallander.
Frá Tékkóslóvakíu: Hélena
Kadeckova.
Nema 9 framangreindir
styrkir samtals kr. 283.500.—.
Áður hefur verið birt frétta-
tilkynning um ráðstöfun vís-
indastyrkja Atlanzhafsbanda-
lagsins („Nato Science Fell-
owships"). Hlutu þá 8 menn,
og nam hver styrkur kr. 40
þúsundum.
Af því fé, sem menntamála-
ráðuneytið hafði til ráðstöfun-
ar á vegum Efnahags- og
framfarastofnunarinnar í París
fyrir vísinda- og tæknistofn-
anir til utanferða sérfræðinga,
hlaut dr. Sigurður Þórarinsson,
iarðfræðingur, styrk að fjár-
hæð kr. 82.572.00 til Japans-
farar í því skyni að kynna
sér eldfjalla- og jarðskjálfta-
rannsóknir Japana og flytja
fyrirlestra um eldfjallafræði
íslands.
(Frá merntamálaráðuneytínu).
V
V /
x