Þjóðviljinn - 10.04.1965, Qupperneq 3
Laugardagur 10. apríl 1965
HOÐVILIINN
SIÐA
Þegar geimfararnir komu til Moskvu
114.413 lestir framleiddar
af Kjarna á tæpum 11 árum
ijarnaáburði.
Þeir geimfararnir Alexei Leonof og Pavcl Bcljaéf eru löngu alþjóð kunmir. — Myndin hér að ofan,
er af því er samborgarar þeirra tóku á móti þeim í Moskvu.
Kekkonen kominn
til Svíþjéiar
— ræðir kjarnorkuvopn
STOKKHÓLMI 9?4 — Finn-
landsforseti, U. K. Kekkonen,
heimsótti í dag Gautaborg í
fylgd með Tage Erlander, for-
sætisráðherra Svía. Hér er um
að ræða fimm daga óopinbera
heimsókn Finnlandsforseta til
Svíþjóðar. Um helgina mun
Kekkonen dveljast á sveitasetri
Erlanders, búgarðinum Harp-
sund, sem er suðvestur af Stokk-
hólmi. Á föstudag skoðaði Finn-
landsforseti einnig Volvo-bíla-
smiðjumar, sem eru skammt
fyrir utan Gautaborg. Borgar-
Stjórn Gautaborgar bauð Finn-
landsforseta til miðdegisverðar.
Stjórnmálafréttaritarar í Sví-
þjóð búast við því, að Kekkon-
en muni nú nota tækifærið til
þess að skýra Eriandcr nánar
frá viðræðum þeim, er hann
átti við sovézka ráðamenn, er
hann kom við í Moskvu í fe-
brúarmánuði síðastliðnum á leið
sinni frá Indlandi. Það vakti þá
allnokkra athygli, er hann varp-
aði fram þeirri tillögu, að kjarn-
orkuvopn yrðu bönnuð í Norður-
Evrópu.
Njósnarar teknir
á Kúbu í gær
HAVANA 9/4 — Kúbustjóm til-
kynnti það í gær að lögreglan
hafi handtekið 53 menn sem
meðlimir séu í njósnarhring er
aflað hafi bandarísku leyniþjón-
ustunni hernaðarupplýsinga. Með-
al hinna handteknu er Baptista-
prestur einn, Herbert Caudill að
nafni og hefur hann verið á
Kúbu í meir en tvo áratugi. Hin-
ir handteknu em einnig sakaðir
um andbyltingaráróður og gjald-
eyrisbrask.
Þrjátíu farast í
miklu námuslysi
Frá þessu var skýrt á aðal-
undi Áburðarverksmiðjunnar
'f, sem haldinn var í Gufu-
•?si 7. apríl s.l.
Stjórnarformaður verksmiðj-
nnar, Pétur Gunnarsson deild-
'•stjóri setti fundinn, og var
íörinn fundarstjóri, en Halldór
T Jónsson arkitekt var tilnefnd-
*• fundarritari. Mættir voru
luthafar og umboðsmenn þeirra
•rir 92% hlutafjársins. Þá flutti
irmaður skýrslu stjómarinnar
u.m hag fyrirtækisins og rekstur
þess á árinu 1964.
214 lestir á 11 árum.
I árslok 1964 hafði fyrirtækið
starfað í tæp 11 ár og framleitt
alls frá upphafi 214.413 smá-
lestir af Kjarna.
Á árinu 1964 framleiddi verk-
smiðjan 20.853 smálestir Kjarna-
áburðar og var það 519 smálest-
um meira en framleitt var árið
áður.
Heildarorka notuð á árinu
nam 132,3 miljónum kílówattst,
er kostuðu alls 7,1 miljón kr.
Vinnulaunagreiðslur ársins
námu 20,4 miljónum króna.
Seldar vom á árinu 19.949
smálestir af kjarna að söluverð-
mæti 65 miljón króna, og var
það 10,5 miljónum meira en ár-
ið áður.
Reksturskostnaður fyrirtækis-
ins hafði hækkað um 6,7 miljón-
ir króna frá fyrra ári.
Afkoma ársins gerði unnt að
greiða til varasjóðs fullt framlag
að upphæð kr. 2.165.000,00 fyrir
TÖKlÖ 9/4 — Þrjátíu námu-
verkamenn létu líf sitt og 15
særðust, sumir alvarlega, er
sprenging varð í námugöngum,
4.300 metra inni í fjalli nokkru
í grennd við Nagasaki á föstu-
dag. 45 námuverkamenn voru
Úr kínverskum helli
mm i namunm er sprengingin
varð 33 þeirra sluppu út af eig-
in rammleik en af þeim dóu
18 fljótlega af áverkum þeim,
er þeir höfðu hlotið. Þúsund
manna björgunarlið var fram
eftir föstudegi önnum kafið við
að bjarga þeim, er eftir voru, 12
talsins. Þó var augljóst oi'ðið,
er líða tók á daginn að enginn
þeirra myndi lifa slysið af.
Sprengingin varð, er beðið var
eftir því að skipt yrði um vinnu-
flokk í námunni. Þeir, er leysa
skyldu af, voru rétt komnir inn
í námugöngin er sprengingin
varð.
Ekki er lengra um liðið en
frá 22. febrúar síðastliðinn, er
tilsvarandi slys varð í námu á
eynni Hokkaido. Sprenging sú
er hér um ræðir, varð á eynni
Kyushu.
árið 1964 og kr. 1.035.000,00 upp
í vangoldið framlag til vara-
sjóðs fyrir árið 1963.
Fullnýtt afköst verksmiðjunnar
Þá skýrði formaður frá því
að lokið væri uppsetningu 1000
lesta ammoníakgeymslu. Þetta
tryggði _ að með innflutningi
ammoníaks til viðbótar eigin
framleiðslu yrðu afköst verk-
smiðjunnar til Kjamaframleiðslu
fullnýtt, enda þótt sú raforka,
sem til vinnslunnar fengist færi
minnkandi með hverju ári sem
líður. Framleiðsla áburðar í
verksmiðjunni úr innfluttu amm-
oníaki eins og nú væri gert,
væri landinu hagkvæm miðað
við innflutning fullunnins köfn-
3 Á þeim tæpum ellefu árum, sem liðin eru
íðan Áburðarverksmiðjan hf. tók til starfa,
íefur verksmiðjan framleitt 214.413 lestir af unarefmsaburðar.
J Þa ræddi formaður um koma-
stækkun Kjama, sem unnið
hefði verið að á undanfömum
árum af fyrirtækinu Allis Chal-
mers og verkfræðingum verk-
smiðjunnar. Taldi formaður, að
eftir allt þetta, sem gert hefir
verið að undanfömu til að
korna áburðinn á viðhlýtandi
hátt, ríkti nú fullkomin óvissa
um hvort það mundi takast í
þeim tækjum, sem til þess voru
ætluð. Hins vegar tók hann
fram, að takist það ekki muni
kornastækkunarmálið leyst eftir
öðrum þekktum leiðum, í sam-
bandi við stækkun verksmiðj-
unnar.
Formaður gat þess að þetta
Framhald á 7. síðu.
Vestur-Þýzkaland:
Þingið samþykkir
fyrningarfrest
BONN 9/4 — Efri deild vestur-
þýzka þingsins, sem saman
stendur af fulltrúum frá fylkj-
um vestur-þýzka ríkisins, sam-
þykkti á föstudag, að leitin að
stríðsglæpamönnum nazista skuli
enn standa í fimm ár. Eins og
kunnugt er af fréttum, voru
stríðsglæpir fyrndir, samkvæmt
gildandi lagaákvæðum, þann 8.
maí næstkomandi.
Efri deildin féllst með þessn
á ákvörðun neðri deildar þings-
ins, sem tekin var fyrir nokkru.
Þá var ákvcðið, að fyrningar-
tíminn skyldi framlengdur til 31.
des. 1969. Það eitt sem þarf nú
til þess að þetta Iagafrumvarp
nái fram að ganga er það, að
forseíi Vestur-Þýzkalands, Hein-
rich Liibke, staðfesti það með
undirskrift sinni.
Sönmrarinn var
innbrotsbjófur
STOKKHÓLMI 9/4 — Sænska
lögreglan leitar nú dyrum og
dyngjum að hálfþrítugum dæg-
urlagasöngvara, sem ásamt
hljómsveit sinni hefur vakið
mikla hrifningu í Svíþjóð. Það
er nú komið í ljós, að þessi vin-
sæli söngvari er illræmdur inn-
brotsþjófur með peningaskápa
að „sérgrein”. Undanfarna mán-
uði hefur hann framið allmörg
„velheppnuð” innbrot.
Þessi mynd ber þess merki, að Kínverjar, eins og við dauðlegir
vesturlandabúar, eru vcikir fyrir hellum, eða heliirum eins og það
mun heita í gaggóum Reykjav.'kurborgar. Þessi mynd, sem okkur
cr sen,d frá Kína, segir það eitt um viðkomandi helli, að hann hafi
verkað forvitnilega á margan ferðamanninn.
Pillu-rannsókn
LONDON 9/4 — Hafin verður
í dag umfangsmikil rannsókn til
þess að komast að raun um það,
hvort skaðleg áhrif ha£i „pillur”
til frjóvgunarvarna. Einstaka at-
huganir benda til þess, að slíkar
pillur geti orsakað blóðt-ppa
með konum.
Höfum opnaö
Raftækjaverzlun
aö Ármúla 3
RAFBUÐ SÍS