Þjóðviljinn - 07.05.1965, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 07.05.1965, Qupperneq 1
Föstudagur 7. maí 1965 — 30. árgangur — 101. tölublað. Engin sunnudagavinna við Reykjavíkurhöfn í sumar Hríðarspor, nýljáða- bókkom útígærdag ■ í gær kom út ný ljóðabók eftir Guðmund Böðvarsson skáld er hann nefnir Hríðarspor og er hún tileinkuð Sam- tökum hemámsandstæðinga. Er hún gefin út í 300 eintök- ^um tölusettum og árituðum. Kostar bókin 300 krónur og verður seld á skrifstofu Menningarvikunnar í Lindarbæ. I formálsorðum fyrir bókinni segir höfundur svo: „f þessu kveri eru samantek- in nokkur kvæði, hverra upp- runa mætti rekja til þeirrar löngunar, að Islendingar fengju að lifa og mótast sem vaxandi, sjálfstæð þjóð í sínu eigin landi, án þess að þurfa að deila því með herflokkum framandi þjóð- ar. Mörg þessara kvæða hafa áð- ur birzt í kvæðakverum, sem komið hafa út á undanfömum árum, sum eru tekin upp úr blöðum og tímaritum, en hafa ekki áður birzt á bókarsíðum, Framhald á 9. síðu. ■ Mikill meirihluti hafnarverkamanna í Reykja-4 vík hefur með undirskriftum ákveðið að vinna ekki á sunnudögum í sumar fram til 1. október. Samkvæmt þessari ákvörðun tilkynnir stjórn Verkamannafélagsins Dagsbrúnar í dag öllum hlutaðeigendum með auglýsingu að ekki verði unnið að skipaafgreiðslu í Reykjavíkurhöfn á sunnudögum í sumar, fram til 1. október 1965. Bryndís Schram átfarpar göngu- nenn við hliðið ★' Þátttakendur í Kefla- víkurgöngunni munu Ieggja af stað með bílum úr Rcykjavík kl. 1.45 á sunnu- dagsmorgun. ★ Menn eru beðnir að hafa samband við skrif- stofuna í Lindarbæ í dag og láta vita hvar þeir ætla að koma í bílana. Síminn er 20155. ★ Klukkan hálf tíu um morguninn áður en lagt verður af stað frá Kefla- víkurflugvelli verður hald- inn stuttur útifundur og mun frú Bryndís Schram ávarpa göngumenn. ★' Gangan verður á öskjuhlíð kl. 10 um kvöld- ið, en útifundurinn við Miðbæjarskólann hefst kl. 10.45. Ávörp flytja þeir Magnús Kjartansson rit- stjóri og Ingimar Erlend- ur Sigurðsson rithöfundur. .Tón Múli Arnason verður fundarstjóri á útifundinum. +’ MikiII kostnaður er við framkvæmd göngunn- ar og verða merki seld i göngunni og á útifundinum til að standa straum af kostnaði. Sjá 12. síðu Þjóðviljinn náði í gær tali af Guðmundi J. Guðmundssyni, varaformanni Dagsbrúnar, og bað hann að segja nokkru nánar af aðdraganda þessarar ákvörð- unar. Það sem gerzt hefur, er að fyr- ir liggja undirskriftir mikils meirihluta hafnarverkamanna þar sem þeir lýsa yfir að þeir vinni ekki sunnudagavinnu til 1. október, sagði Guðmundur. Orsökin er fyrst og fremst sú, að vinnutíminn við höfnina er orðinn hrein vitfirring. Þar er nú unnið alla daga frá kl. 8 til- kl. 7, og iðulega til kl. 8 á kvöldin, enda þótt tíminn milli kl. 7 og kl. 8 sé greiddur með fjórföfdu dagvinnukaupi. Seinni hlutann í vetur hefur verið unnið hvern einasta sunnu- dag við höfnina, almennt ;ð heita má, dálítið misjafnt þó. Hjá stærstu skipafélögunum hef- ur verið uhit'ið hvern einasta sunnudag og jafnvel öðrum dög- um fremur. Stundum er líka gefið nætur- vinnuleyfi, en leyfi Dagsbrúnar þarf til' þess að næturvinna sé unnin eftir kl. 8 að kvöldi. Það er nokkuð almennt veitt ef verið er að ljúka vinnu við skip, skip er að fara, vara liggur undir skemmdum, eða annað þess hátt- ar kemur til. Þó er samfelldur söngur um næturvinnuleyfi. Ef Dagsbrún héldi því ekki niðri, væri oftlega unnið langt fram á nætur. Föstu hafnarverkamönnunum, sem vinnan við höfnina byggist algerlega á, finnst það dálítið einkennilegar aðfarir, að hóa Framhald á 9. síðu. 4. , Miklar umræður í borgar- stjórn um virkjunarmálin ★ Fyrir fundi borgarstjórnar Reykjavikur í gærkvöld lá til staðfestingar samþykkt meirihluta borgarráðs frá 27. apríl sl. þar sem gert er ráð fyrir að Reykjavíkurborg verði í framhaldi af aðild sinni að Sogsvirkj- uninni aðili að virltjunarfyrirtæki, er taki viö eignum og skuldbindingum Sogsvirkjun- arinnar og reisi allt að 210 þús. kw raforkuver £ Þjórsá við Búrfell I meginatriðum £ sam- ræmi við frumvarp það til laga um lands- virkjun er nú liggur fyrir Alþingi. ★ Um þessi mál spunnust miklar og lang- ar umræður og fléttuðust þar inn i rökræður og deilur um undirbúningsrannsóknir í sambandi við Búrfellsvirkjun, misræmi i hagkvæmni við smærri virkjanir og stór- virkjanir, og ráðagerðir um stóriðju erlendra auðhringa á íslandi. ★ Fundurinn stóð langt fram eftir kvöldi og eru þvi ekki tök á þvi að greina nánar hér frá umræðum, en að þessu Ioknu var samþykkt meirihluta borgarráðs, sem fyrr var getið, staðfest af borgarstjórn. Síðasta dagskrá menningarvik- unnar í kvöld 1 KVÖLD lýkur dagskrá menn- ingarviku hernámsandstæð- inga með flutningi tveggja þátta á Litla sviffinu í Lind- arbæ og hefst hann kl. 20.30. FYRRI ÞATTURINN nefnist Svipmyndir úr sjálfstæðis- baráttu lslendinga á 19. öld, samfelld dagskrá tekin sam- an af Einari Laxness, en flytjendur auk hans eru Óskar Hallgrímsson, Gils Guðmundsson og Röngvald- ur Hannesson. SlÐARA ATRIÐIÐ nefnist Hér er gott aff dansa, samfelld dagskrá. Sverrir Hólmarsson flytur erindi um gömul danskvæði og söngmenn und- ir stjórn dr. Hallgríms Helga- sonar flétta inn í nokkrum tóndæmum. De Gaulle segir Bandaríkjamönnum ai draga þegar herlið sitt heim aftur — kveðst jafnvel viðurkenna stjórn Francesco Caamano PARÍS, WASHINGTON 6/5 — De Gaulle, Frakk landsforseti, lýsti því yfir á fimmtudag, að Banda- ríkin eigi þegar að kveðja her siinn heim frá Dóm- íníkan-lýðveldinu. Um leið gaf forsetinn það í skyn, að Frakkar myndu senn viðurkenna stjórn Franciscos Caamano. — Friðarnefnd OAS telur líkur á því að mynduð verði samsteypustjórín uppreisnarmanna í Dómíníkan-lýðveldinu og her- foringjastjórnarinnar sem áður fór með völd. De Gaulle birti þessar skoðan- ir sínar á ráðuneytisfundi þar sem hann var sjálfur í forsæti. Auk þessa máls ræddi forsetinn einnig Vietnam, en engin ný sjónarmið komu fram í þeim hluta ræðu hans. Á frétta- mannafundi eftir ráðuneytis- fundinn var svo frá skýrt, að de Gaulle hefði lýst sterkri and- stöðu sinni við íhlutun Banda- ríkjamanna og lýst þeirri von sinni jafnframt, að þeir dragi herlið sitt heim. Samsteypustjórn,? Fjórir meðlimir friðamefndar OAS eru nú komnir aftur til Washington til þess að gefa sam- tökunum skýrslu um gang mála í Dómíníkan-lýðveldinu. Ekki vildu fjórrmenningarnir neitt láta hafa eftir sér en það er þó haft eftir góðum heimildum, að friðarnefndin telji líkur á því að koma megi á samsteypustjórn uppreisnarmanna og herforingja- stjómarinnar. OAS hefur ákveð- ið að senda friðargæzlulið til Dómíníkan-lýðveldisins. Ekki er friður með öllu kominn á í San Domingo, í dag kom til vopna- viðskipta með ' uppreísnarmönn- um og Bandaríkjamönnum og féllu fjórir hinna fyrinefndu en einn Bandaríkjamaður. — Alls munu hátt í 2.000 mánns hafa látið líf sitt í átökunum í upp- ’’eisninni. ■Tuan Bosch, fyrrum forseti Dómínikan-lýðveldisrns og nú út- lagi á Puerto Rico, lýsti því yf- ir í dag í viðtali við fréttamann bandaríska blaðsins „New York Times“, að hann myndi ekki snúa heim aftur enda þótt hann styddi Francesco Caamano. — Minn tími er liðinn, sagði Bosch, ég er ekki rétti maður- inn til þess að bæta þann skaða, sem bandaríska innrásin hefur valdið, til þess vantar mig styrk. Ég get ekki staðið gegn þeim þúsundum og aftur þús- undum af ungum kommúnst- um, sem aðgerðir, Bandaríkja- manna skapa. Það er Lyndon B. Johnson, sem nú er forseti í Dómíníkan-lýðveldinu, hann er herra vor og meistari. — Frá Washington ■ berast þær fréttir, að öldungadeildin hafi í dag samþykkt með yfirgnæfandi meiri hluta atkvæða að veita Johnson forseta þær 700 milj- ónir dala, sem hann hefur farið fram á til að standa straum af bandarískum hemaði í Viet- nam og Dómíníkan-lýðveldinu- Þá hefur bandaríska stjómin látið frá sér fara skjöl, sem eiga að færa sönnur á það, að kommúnistar og Kastrósinnar hafi tekið þátt í uppreisninni. öryggisráðið Öryggisráð SÞ frestaði á fimmtudag atkvæðagreiðslu um ályktunartillögu Sovétstjómar- innar þess efniSj að ráðið for- dæmi vopnaða íhlutun Banda- ríkjamanna í Dómíníkan-lýð- veldinu. Var atkvæðagreiðslunni frestað að bæn fulltrúa Vene- zuela, sem vildi fá tima til þess að rannsaka nánar þá ákvörð- un OAS að senda sameiginlegt lið til Dómíníkan-lýðveldisins. — Framhald á 9. siðu. ÁSKORUN í þau 25 ár sem ísland hefur verið hernumið hafa sósíalistar í Reykjavík staðið í fararbroddi sem andstæðingar hernámsins, hvort sem vel eða illa hefur horft í baráttunni. Enn sem fyrr heitir Sósí- alistaiélagið á félagsmenn og fjölmarga stuðn- ingsmenn, karla sem konur, að taka þátt í Kefla- víkurgöngunni á sunnudaginn. Hraustmennin ganga alla leið en ekki er minna um hitt vert að aðrir sýni hug sinn með því að slást í förina lengri eða skemmri hluta leiðarinnar. Gerum sunnudaginn 9. maí að eftirminnilegum áfanga baráttu hernámsandstæðinga. Fjölmennið í gönguna og til móts við hana. Komið á útifund- inn í Reykjavík um kvöldið. Stjórn Sósíalistafélags Reykjavíkur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.