Þjóðviljinn - 13.11.1965, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 13. nóvember 1965
—
Vinátta mun skapast milli
Islands og Madagaskár
Formanni framkvæmdanefndar Herferðar gegn hungri
barst fyrir skömmu eftirfarandi bréf:
„Ráðherra landbúnaðar, uppbyggingar sveita og matvæla-
framleiðslu; forseti Iandsnefndar Madagaskar um Herferð
gegn hungri,
til
hr. Sigurðar Guðmundssonar,
framkvæmdanefnd Herferðar gegn hungri
c/o Æskulýðssambands íslands,
Rcykjavík.
Herra formaður.
Ég sendi yður alúðarfyllstu þakkir í nafni íbúa Mada-
gaskar, sem og í mínu eigin, fyrir örlæti það, sem hin
íslenzka nefnd um Herferð gegn hungri hefur sýnt með
því að taka að sér þann hluta áætlunar um Herferð gegn
hungri, sem nefnist „MAD. 12“ og felst í uppbyggingu
fiskveiða við Alaotra-vatn, byggingu nýtízku báta, öflun
veiðarfaera og sköpun nýtízku veiðiaðferða.
Þér megið treysta því, að vinarbragð þetta mun sér-
staklega verða metið af fiskimönnum við Alaotra-vatnið,
sem búa við bág kjör, en munu nú geta útbúið sig veið-
arfærum og komið veiðiaðferðum sínum í nútímahorf, til
mikilla heilla fyrir Alaotra-héraðið.
Það er mér sérstök ánægja að hugsa til þess, að fiski-
mennirnir við Alaotra-vatn fá stuðning frá raunveruleg-
um „bræðrum", þar sem þjóð yðar hefur stundað fisk-
veiðar frá aldaöðli, og hin mikla fjarlægð, sem skilur oss
að, mun ekki koma í veg fyrir, að mikil vinátta skapist
milli þjóða vorra.
Ég endurtek þakklæti mitt og votta yður virðingu mína.
F.h. forseta Landsnefndar Madagaskar um HGH.
framkvæmdastjórinn,
Amiel.
Fsfer
ekki stáðizt
Þegar reynt er að verja
embættisveitinguna í Hafnar-
firði með þeim formlegu
1 rökum, sem ekki standast, að
þar hafi aðeins verið um að
ræða venjulega lausa stöðu,
verður engu að síður fyrir
óyfirstíganleg torfæra. Sam-
kvæmt formlegum rökum átti
Jóhann Gunnar Ólafsson þá
skýlausan rétt á embættinu.
Morgunblaðið og sjálfur
dómsmálaráðherrann hafa
reynt að komast framhjá tor-
færunni með þeirri kenningu
að Jóhann Gunnar sé svo
aldurhniginn að ekki hafi
verið unnt að veita honum
starfið af þeim sökum, en sú
málsvörn kemur ekki að
neinu gagni. Jóhann Gunnar
verður 63ja ára eftir nokkra
daga. Telji dómsmálaráðherra
að menn á þeim aldri séu
þess ekki umkomnir að gegna
sýslumannsembættum ber
honum að beita sér fyrir byí
að lögum um hámarksaldur
embættismanna verði breytt,
en meðan núgildandi ákvæði
eru í lögum verður dóms-
málaráðherrann að láta sér
lynda að hlíta þeim. Beri
hins vegar að líta á ummæli
dómsmálaráðherrans sem per-
sónulega árás á Jóhann
Gunnar Ólafsson, einhvern
traustasta og virtasta emb-
ættismann landsins, væri það
rökrétt áframhald að ráð-
herrann viki honum úr starfi
ef hann er ekki talinn rísa
undir verkefnum héraðsdóm-
ara. En það er ekki hægt að
gera hvort tveggja í senn,
beita formleeurn rökstuðningi
og hafna honum.
Fyr-
irhyggja
Guðmundur T. Guðmunds-
son, núveranrli n—> bassador í
Lundúnum, seldi húseign síría
i Hafnarfirðí ”-^mma á þessu
sumri. og b=* var að sjálf-
sögðu forsenda sölunnar að
Guðrhundur hætti í héraðs-
dómarastarfinu. En Guð-
mundur sagðí starfinu ekki
formlega upp fyrr en í haust.
Ekki var unnt að auglýsa
starfið fyrr en formleg upp-
sögn lá fyrir, og með því að
halda þannig á málum var
Guðmundur kominn af landi
brott þegar umsóknarfrestur
var liðinn og staðan veitt.
Hann þurfti ekki að standa
augliti til auglits við Björn
Sveinbjörnsson, staðgengil
sinn í tíu ár, þegar hann var
rekinn.
Guðmundur í. Guðmunds-
son hefur alltaf verið fyrir-
hyggjusamur maður og haft
vitneskju um óorðna hluti.
Og kannski var verðið á hús-
inu svona rausnarlegt vegna
þess að fleira f.ylgdi með í
kaupunum.
Á-
hrifaríkt
Mikið er ánægjulegt að sjá
Alþýðublaðið sem málsvara
réttlætis í stöðuveitingum á
íslandi. Blaðið hefur hrein-
lega farið á kostum undan-
farna daga; það er eins og
rithöfundar þess hafi losnað
úr læðingi og kunni sér ekki
læti af fögnuði frekar en kýr
sem sleppt er á vordegi út
úr daunillu og myrku fjósi.
Er það sannarlega mikill
fengur fyrir góðan málstað
að hreppa svo óvæntan liðs-
kost.
Hitt þarf ekki að vera neitt
undrunarefni þótt sumir Al-
þýðuflokksmenn hafi ekki
enn áttað sig á hinum nýju
viðhorfum. Til að mynda
sátu fulltrúar Alþýðuflokks-
ins hiá af gömlum vana þeg-
ar réttlætið bar á góma í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar
fyrir nokkrum dögum. En ef
vel er á haldið stendur þetta
allt til bóta. Það gæti til að
mvnda orðið mjög áhrifaríkt
að fá herhvöt i hinni nýju
siðgæðisbaráttu, í bundnu eða
óbundnu máli, frá Braga Sig-
urjónssyni bankastjóra á Ak-
ureyri. — Austri.
„Gjör rétt, þol ei órétt"
Yfirskriftin er einkunnarorð
stærsta starfandi stjórnmála-
flokksins hér á landi, Sjálf-
stæðisflokksins. Er í þeim að
finna harla háleitan siðgæðis-
boðskap. Búast verður við, að
flest fólk, sem fylgir ákveðn-
um stjórnmálaflokki geri til
forsvarsmanna hans og mál-
gagna ákveðnar lágmarkskröf-
ur. Ennfremur verður að gera
ráð fyrir, að langflestir kjós-
endur hafi í innsta hugskoii
sínu það ljós sjálfsvirðingar,
að þeir láti. ekki bjóða sér
hvað sem er á hinu hála leik-
sviði stjórnmálaflokkanna.
Ef við viljum að lýðræðis-
skipulag okkar haidi velli. að
mannréttindi séu hér meira en
orðin tóm og að siðleysið í
stjórnmálum verði ekki enn
verra en orðið er, hljóta allir
hugsandi menn að spyrja sjálf-
Tálfhundruð
mála meðal-
veiði á skip
Ágætt veður var á síldarmið-
unum fyrra sólarhring og var
enn í gærmorgun. Skipin voru
einkum að veiðum í Norðfjarð-
ardýpi 50 til 55 mílur nndan
Iandi. Samtals tilkynntu 58 skip
um afla alls 69.270 mál.
Dalatangi mál
Viðey RE 900
Sigfús Bergmann GK 950
Lómur KE 1300
Grótta RE 1300
Sig. Bjarnason EA 1250
Helga RE 1100
Akraborg EA 1500
Ólafur Magnússon EA 1200
Þórður Jónasson EA 1500'
F§Si“ GK ' ...............T300
Bjarmi II. EA 1300
Jón Kjartansson SU 1600
Elliði GK 1050
Þorleifur OF 850
Auðunn GK 1000
Bára SU 1300
Sveinbj. Jakobssop SH 800
Helgi Flóventsson ÞH 1300
Víðir II. GK 800
Sigurpáll GK 1100
Helga Guðmundsd. BA 1300
Björgvin EA 1300
Þorbjörn II. GK 900.
Gunnar SU 1300
Gullver NS 1600
Ól. Friðbertsson IS 900
Súían EA 1300
Oddgeir ÞH 700
Guðrún Guðleifsd. IS 1600
Hólmanes SU 700
Reykjanes GK 800
Amar RE 1200
Sólrún IS 1250
Þráinn NK ■ 1000
Óskar Halldórsson RE 1500
Hannes Hafstein EA 1200
Þorsteinn BB 1400
Sigurkarfi GK 1400
Guðrún Þorkelsdóttir SU 1250
Halkion VE 1500
Hrafn Sveinbjs. III. GK 1200
Dagfari ÞH 1500
Sigurborg SI 1450
Guðbjörg GK 1200
Höfrungur III. AK 1650
Höfrungur II. AK 1150
Bjartur NK 1400
Framnes IS 1000
Gullfaxi NK 1300
Sig. Jónsson SU 1000
Jörundur II. RE 1500
Guðm. Þórðarson RE 1000
Ingvar Guðjónsson GK 1800
Stapafell SH 700
Ásbjöm RE 800
Sæfugl SU 1100
Gísli lóðs GK 800
Sæfaxi NK (2 landanir) 1220
Orðsending
Orðsending frá Tennis- og
badmintonfélagi Reykjavikur.
• Sameiginlegir æfingatímar
fyrir félagsmenn verða í Vals-
húsinu á laugardögum sem hér
segir:
Klukkan 2.50—4 unglingar,
klukkan 4—5.30 nýliðar. kl.
5.30—7 meistara og fyrsti fl.
Stjómjn.
an sig þessa dagana: Er mæl-
irinn ekki orðinn fullur með
hinni hróplega ranglátu veit-
ingu bæjarfógetaembættisins í
Hafnarfirði? Er horfandi á
hinar kaldrifjuðu og algerlega
einstæðu aðfarir gagnvart á-
gætum bæjarfógeta okkar,
Birni Sveinbjömssyni, með
þögninni einni saman?
Fullyrða má, að allur þorri
Hafnfirðinga og annarra íbúa
Reykjanesumdæmis mótmælir
siðleysinu við embættisveiting-
una í Hafnarfirði. En mótmæl-
in ein duga lítið, ef þau birt-
ast ekki f verki og á því máli,
sem fremjendur ranglætisins
skilja.
Látum þá bæjarstjómarfull-
trúa í Hafnarfirði, sem í auð-
mýkt beygðu sig fyrir rang-
lætinu með því að hafna vít-
um á þau öfl, sem það frömdu,
eina um þann ódrengskap.
Greinarhöfundur, sem er ó-
háður, hafnfirzkur kjósandi,
og ekki bundinn neinum stjóm-
málaflokki, skrifar þetta ein-
göngu vegna þess, að hann. tel-
ur það vera hinn æskilegasta
hlut, að augljóst réttlæti sé
ekki fótum troðið.
Réttlætið á í harðri baráttu
við ráðamenn ákveðins stjórn-
málaflokks vegna mannrétt-
indamáls, sem hér um ræðir.
Dómsmálaráðherrann. sem
veitti embættið, er varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins, óg þeir
bæjarfulltrúar í Hafnarfirði,
sem töldu það sáluhjálparat-
riði sitt að standa með verk-
um hans, eru úr sama flokki,
en þeir hófu hendur hátt á loft
á bæjarstjómarfundi til að
hindra sjálfsagðar vítur á
embættisveitinguna.
1 öðrum þingræðislöndum
hefði ráðherra, sem ber hefði
orðið að þvílíku siðleysi og
valdaníðslu og umrædd embætt-
isveiting' er, orðið að segja af
sér vegna almenningsálitsins.
Það kann svo áð fara, að fólk-
ið í Reykjaneskjördæmj sjái
á réttum tfma, að það ræður
yfir því afli, sem úrslitumraeð-
ur, þannig að Jóhann Hafstein
ög hans vikapiltar eigi ekki
afturkvæmt í ráðherra-, þing-
eða bæjarstjórnarstóla.
Þú, lesandi góður, unnandi
kjörorðanna: „Gjör rétt, þol ei
órétt“ átt nú næsta leikinn,
Hann verður framvegis leiðar-
liós þeirra, sem siðleysið
frömdu. Réttlætið þarfnast
þinnar þjónustu.
Óháður kjósandi.
Hljómsveitin
hefur fengið
Steinwayflygil
Sinfóníuhljómsveit Is-
lands hefur nú eignazt nýtt
og gott hljóðfæri, Stein-
way flygil, og mun norski
píanöleikarinn Kjell
Bækkelund vígja hann á
tónleikum hljómsveitarinn-
ar í Háskólabioi í kvöld.
Steinway-flyglar eru tald-
ir þeir beztu sem vöL er
á í heiminum, en flygill-
inn sem hingað til hefur
verið notaður á tónleikum
í Háskólabíói hefur verið
heldur illa liðinn bæði af
píanóleikurum, sem á hann
hafa spilað og áheyrendum.
77/ sölu
kjallaraíbúð í Smáíbúða-
hverfi. — Félagsmenn
sem vilja nota forkaups-
rétt snúi sér til skrif-
stofunnar, Hverfisgötu
39 fyrir 18. nóvember
n.k. — Sími 23873.
B.S.S.R.
‘:ri9rtOfVT?.r>rr
Framleiðum ýmsar tegundír af leíkföngum úr
plasti og tré. Sterk, létt og þægíleg leikföng,
jafnt fyrir telpur og drengi. Fjölbreytt úrval
évallt fyrirliggjandí.
Stærsta leíkfangagerð landlsins.
Vínnutieímilíð að Reykjaluntii
Slmi um Brúarland
Aðalskrifstofa í Reykjavík
Bræðraborgarsfíg 9, Sími 22150
SEYXJAiUNÐUR
aL
Merkjasala Blindrafélagsins
Merkjaafgreiðslur verða á eftirtöldum stöðum í Reykjavík og ná-
grenni á sunnudag, frá kl. 10 f.h.
REYKJAVÍK: Blindrafélagið Hamrahlíð 17. — Austurbæjarskóla. —
Breiðagerðisskóla. — Landakotsskóla. — Miðbæjarskóla. —
Vogaskóla. — Holts Apóteki. — Álftamýrarskóla. — ísaks-
skóla. — Melaskóla. — Ves'furbæjarskóla.
HAFNARFIRÐI: Öldutúnsskóla. — Barnaskóla Hafnarfjarð-
ar. (Kjartan Ólafsson).
KÓPAVOGI: Bamaskóla Kópavogs. — Kársnesskóla. — Digranes-
skóla.
GARÐAHREPPI: Barnaskóla Garðahrepps.
SELTJARNARNESI: Mýrarhúsaskóla.
Sölubörn: Komið og seljið merki Blindrafélags’ns. — Góð
sölulaun!
— BLINDRAFÉLAGIÐ.