Þjóðviljinn - 13.11.1965, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 13.11.1965, Qupperneq 12
Jón Engilberfs opnar sýningu Þareru demónarnir komnir á kreik' svo í Gefjunarglugganum, svo sem til hrellingar og viðvörunar. En Freymóð og aðra setti hann í annan stað fólki til uppeldis. Þetta hafði hann lært af Hitler. □ Já það var allt gert til að sverta mann hér áður fyrr og þessvegna hef ég getað málað. Ég held það sé ekkert listamanni eins hættu- legt og vinsældir — nema hann sé dægurlagasöngvari. Ég hef líka reynt það alla æfi að vera ekki popúler. — Hefur það gengið vel? — Varla nógu vel. Mér þykir hart að fá ekki á mig nema eitt mál fyrir jafn. góða bók og „Hús málarans“. Ég verð að herða mig upp fyrir næstu bók . .. Þar með slitnaði þráður og stór mynd féll á gólfið og rakst utan í litla mynd í fall- inu: hún snerist settlega tvo hringi og hafnaði síðan á gólfinu líka. — Sko til, bar eru demón- amir komnir á kreik í kring- um mig. Alltaf skal það fara svona, það gerist eitthvað, einhver umsvif og gaura'gang- ur, einhver vill helzt drepa sig, eða öðrum líður furðu- lega vel. Síðangengur Jón um salinn nokkra hríð og bendir á myndir sínar með myndug- leik eins og Bogensen potaði í sína saltfiska. Danir voru að horfa á sumar þeirra fyr- ir skömmu. Engelstoft sagði í Politiken: „Magie d‘Islande“ lýsir á magnaðan hátt fögn- uði þessa rómantíska lista- manns andspæn.is skærgló- andi litum og ólgandi lit- brigðum. Það er langt síðan Jón Engilberts hefur birtzt okkur á jafn þróttmikinn hátt,“ Wilman talar í Aktu- elt um „ærandi litahljóma hinnar íslenzku ótemju". — |kessa mynd kalla ég I. Jól. Það er nú fátt kristilegt við hana, 'ekkert frá kirkjunni. Þetta eru heiðin jól, endurkoma ljóssins. Ég Jón Engilberts Idag er Jón Engilberts að opna sýningu í Lista- mannaskálanum. A henni eru fimmtíu myndir en fjöldi mynda stendur frarnmi í gangi. Jón segir að þær séu fimmtíu og níu talsins, eig- inlega önnur sýning tilbúin. Og h'klegt að þar væri að finna margar hans skárstu mynda, hver veit. En ég hef legið hér á gólf- inu og sofið. segir Jón, með- an þeir Veturliði, Gunnar S. Magnússon og Sigurjón Eng- ilberts hafa verið að koma þessu fyrir. Ég sagði þeim að þeir ættu að gera það með því hugarfari, að ég lægi þar á gólfinu dauður og þeir væru að festa upp minn- ingarsýningu. Þegar ég reis upp frá dauðum höfðu þeir fest upp fjörutíu og níu myndir, en mér leizt ekkert á þá tölu og fékk að bæta einni við þama úti í horni. Hún heitir Lífsþorsti. Er langt síðan þú fórst að mála svona abstrakt? — Mér finnst þetta vera natúralismi ennþá, ég er svoddan tossi að ég kemst ekki neitt nær náttúrunni en þetta. Áður var ég skamm- aður fyrir að ég værx svo mikill klessumálari að ég væri ekki í húsum hæfur — þá hét það klessuverk sem nú heita abstrakt. Það var þá sem Jónas frá Hriflu hengdi upp myndir eftir mig og Þorvald Skúlason og fleiri, fyrst í Alþingishúsinu, og Eitt málverkanna á sýningunni. — (Ljósm. A.K.). gaf Gulldropanum mínum hana, hún sagði einmitt þegar hún sá hana: n.ú líkar mér við þig. Þá þóttist ég vita að svona ættu jólin að vera. Þessi mynd (hcldur hörku- legt andlit, eldrauð strik í öðru auga) kalla ég „Málar- inn“. Þetta er listamaðurinn að gjóta sínu illilega augna- ráði út í lífið. Og þessi stáss- lega mynd er gerð til heiðurs Delacroix: hann var svo mik- ill meistari. — Og þessa rauðlita-mynd þarna kalla ég Byltinguna (rauðar eldtungur, heimslogi og svartar skuggaflygsur)., — Mætti reyna að sýna hana Fúrtsevu menntamála- ráðherra? — Já, því ekki það. Annars hefur mig lengi langað til Rússlands að sjá ballet. Og reyndar heldur Grétar Fells því fram að í fyrra lífi hafi ég verið rússneskur fursti. Hann sá það svona allt í einu á konsert, hver ég hefði ver- ið. Ég sakna þá helzt allra þeirra kvenna, sem ég hlýt að hafa þekkt þá. Það er einhver munur eða núna, ég segi ekki margt. Já þetta er byltingin. Ég gerði talsvert af kröfugöngu- myndum hér áður fyrr, það var gaman að því í gamla || daga að búa til myndir af ” lífsbaráttu fjöldans. En nú er | ljósmyndavélin tekin við — ’ og kvikmyndirnar . .. Á. B. 8. aiþjóða heimildakvikmyndavikan hefst í Leipzig í dag „Surtur fer sunnan" enn til sýninga á alþjóðlegri hátíð ■ Meðal heimildarkvikmynda, sem sýndar verða á al- þjóðlegri kvikmyndahátíð í Leipzig í Austur-Þýzkalandi í næstu viku, verður mynd Ósvaldar Knudsens „Surtur fer sunnan“. Kvifemynd Ósvaldar hefur, ] fréttum, víða verið sýnd er- eins og fram hefur komig í I lendis á undanfömum mánuð- Annað Venusnrfar sent ó braut fró Sovétríkjunum Áskorun frá borgar- s-tjórn: Gætið varfærni í umferðinni Þjóðviljanum hefur borizt eft- irfarandj ályktun sem borgar- stjóm 'Reykj avíkur hefur gert; ,,Þar sem nú fer í hönd sá árstími, þegar hættan á umferð- arslysum er hvag mest bæði vegna hálku á götum. myrkurs og slæmra veðurskilyrða, telur borgarstjórnin sérstaka ástæðu til að beina þeim tilmælum til ökumanna jafnt sem gangandi vegfarenda að cæta ýtrustu var- kámi í umferðinni. Jafnframt beinir borgarstjójn þeim eindregnu tilmælum til foreldra og umráðamanna barna að brýna fyrir þeim að fara gætilega og sýna kurteisi i um- ferðinni, læra umferðarreglurn- ar vel og fara eftir þeim“. (Frá skrifstofu borgar- stjóra). Skarðið snjólaust Siglufirði, 10/11 — f leysing- unni miklu fyrir nokkrum dög- um leysti allan snjó af S>glu- fjarðarskarði og er það því jafn fært nú og um sumardag væri. Vegurinn er samt alltaf heldur illfær og nú er betra að hafa keðjur í lagi og meðferðis í bílnum. f haust hafa göturnar í Sigíufirði dregig dám af skarðinu, enda ekki meira um þær einnt en Skarðsvegirm. MOSKVU 12/11 — Sovézkir vís- indamenn sendu í dag á loft enn eitt geimfar sem ætlað er ad kanna eina nágrannaplánetu okkar. Geimfarið vegur því sem næst eina lest heitir „Venus 2“ og er ætlað, eins og nafnið bend- ir til, til að afla vitneskju um Venus. Það eru liðin tæp fimm ár síðan sovézkir vísindamenn reyndu að senda geimfar í könn- unarferð til Venusar 12. febrú- ar 1961), en þá tókst svo illa til að senditæki geimfarsins bil- uðu þótt það færi á rétta braut skammt frá plánetunni. Eins hefur farið fyrir sovézkum geim- förum sem send hafa verið til Marz. Bandaríska geimfarið „Marin- er 11“ komst leiðar sinnar til Venusar 1962 og sendi þaðan ýmsar upplýsingar sem hafa þó verig vefengdar. Á síðustu mán- uðum hafa þrjú sovézk geimför af gerðinni „Sond“ verið send frá Sovétríkjunum og hafa frá þeim borizt glögg radíóboð úr miklu meiri fjarlægð en skilja mun Venus og Jörðina eftir þann hálfan fjórða mánuð sem geim- farið verður á leiðinni. um. m.a. í Moskvu. á ftalíu, í Edinborg og víðar og hvarvetna hlotið mikla athygli og sum- staðar æðstu viðurkenningu, eins og t.d. á ítölsku kvikmynda- hátíðinni þar sem „Surtur fer sunnan“ hlaut gullverðlaun. Þag var fyrir áeggjan for- stöðumanna kvikmyndahátíðar- innar í Leipzig sem Ósvaldur Knudsen sendi Surtseyjarmynd sína til samikeppninnar þar og sýninga. en hátíð þessi þykir árlega einhver mesti viðburður í heimj á sviði heimildakvik- mynda og annarra styttri kvik- mynda. Þetta er í áttunda skiptið sem hátíðin er haldin í Leipzig og sækja hana kvikmyndagerðar- menn hvaðanæva úr heimi. í dómnefnd eiga sætj margir kurinir rnenn. svo sem Thordike- hjónin austur-þýzku, Jerzy Bos- sak Póllandi, Richard Leacock Bandaríkjunum, Theodor Christ- ensen Danmörku Ivor Monta- gue Bretlandi Marcel Martin Frakklandi, Eva Muranyj Ung- verjalandi og Vladimír Lissak- ovitsj Sovétríkjunum. Hátíðin í Leipzig hefst í dag. og stendur yfir næstu viku. . Nýtt verlbréfalán f maímánuði s.l. voru stað- fest lög. sem heimiluðu ríkis- stjórninni að taka innlent lán allt að 75 milj. kr. Notaði fjár- málaráðherra þessa heimild að hluta í maí meg útgáfu spari- skírteina, samtals að fjárhæð kr. 47 miljónir. Fjármálaráðherra hefur nú á- kveðið að nota eftirstöðvar nefndrar heimildar með útgáfu verðbréfaláns að fjánhæð kr. 28 miljónir, sem einkennt er 2. fl. 1965. Verða skuldabréf lánsins í formf spariskírteina með sama sniði og spariskírteini ríkis- sjóðs. sem gefin voni út fyrr á árinu. Hefst sala skírteinanna n.k. mánudag 15. þ.m. Seðlabankinn hefur með hönd- um umsjón með sölu og dreif- ingu skírteinanna, en þau verða fáanleg hjá bönkum. bankaúti- búum. sparisjóðum svo og nokkrum verðbréfasölum í Reykjavík. Helztu skilmálar hinna nýju skírteina eru þeir sömu og fyrri ispariskírteina rikissjóðs. Skír- teinin eru verðtryiggð þannig að við innlausn þeirra endurgrejð- ist höfuðstóllinn ásamt vöxtum og fullri visitöluuppbót, sem miðast við hækkun byggingar- vísitölu frá útgáfudegi til inn- lausnardags. Lánstíminn er 12 ár en hægt er að innleysa skírteinin eftir 3 ár, ef eigandinn óskar. S'kír- teinin eru og undanþegin öllum tekju- off eignasköttum, svo og framtalsskyldu. Skírteinin tvö- faldast að verðmæti á þessum 12 árum en það samsvarar 6% vöxtum allt lánstímabilið. Verð- bréfin eru í tveim. stærðum, 1000 króna og 10.000 króna. JJm nánari skilmála skíxriein- anna vísast til útboðsiauglýs- ingar sem birtist í sunnudags- blöðunum 14. þ.m, Sala skírteinanna hefst eins og áður segir n.k. mánudag og skal vakin athygli á því ag þau fást seld í afgreiðslu Seðla- bankans, Ingólfshvoli, Hafnar- stræti 14 Enginn sátta- fundur ennþá Enginn sáttafundur' hef- ur verið boðaður í deilu yfirmanna á togurum, — var síðasti sáttafiundur hald- inn á mánudagskvöld og stóð fram eftir nóttu og bar þá ennþá mikið á milli, — bæði um hæfckun kaups og önnur atriði. Framkvæmdastjóri fiski- marmasambandsins, Guð- mundur Jensson, er nú staddur á Alcureyri og hélt þar fund í gær með við- stöddum verkfallsmönnum, — þar hafa nú þrír togar- ar stöðvazt. Sex togarar hafa selt afla sinn í Þýzkalandi og Bretlandi í þessari viku og tveir munu sel.ja í dag. Eru nokkrir togara því á heimleið úr sölxxferðum. Þorkell og Paul Zukofsky á fundi með blaðamönnuxn í gærdag. 20. atdar tónfist túlkuð af bandarískum fíðlusnillingi ■ Musica Nova og Tón- listarfélagið hafa nú tekið saman höndum og hyggjast halda sameiginlega tónleika í framtíðinnt ef vel gefst með þann fyrsta sem hald- inn verður í Austurbæjar- bíói nk. þriðjudag kl. 7 sd. Hafa félögin fengið hingað góðan gest, kornungan banda- rískan fiðlúsnilling, Paul Zukof- sky, sem getið hefur sér mjög góðan orðstír bæði í heimalandi sínu og víðar. Munu hann og Þorkell Sigurbjörnsson leika saman nútíma tónlist á fiðlu og píanó. Leika þeir eingöngu 20. ‘ aldar verk eftir W. Riegger, Ch. Ives, G. Crumb D. Martino, A. Webern Penderckj os Leif Þórarinsson. | Paul Zukofsky er aðeins 22. ára að aldri og af rússneskum ættum, eins og nafnið bendir til. Hann byrjaði að læra á fiðlu fjögurra ára gamall og kom fyrst fram opinberlega tólf ára gamall. Hann þykir hafa glæsi- lega tækni, en um leið músí- kalskt innsæi og næmt hljóm- skyn. Þetta er J fimmta sinn sem Zukofsky kemur til Evrópu, héðan heldur hann til Finn- lands þar sem hann mun taka þátlj í Síbelíusarkeppninni i Helsinki í desember. Til að forða misskilningi er rétt að taka fram, að tónleik- arnir á þriðjudag eru ekki á- skrifendatónleikar og því ekki sérstaklega fyrir styrktarmeð- limi Tónlistai'félagsins eða Mus- ica Nova. en þess náttúrlega vænzt, að tónlistarunnendur bæjarins noti eitt af fáumtæki- færum til að hlýða á nútfma tónlist í hljómleikasal.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.