Þjóðviljinn - 13.01.1966, Síða 8
3 SÍÐA — WðÐVBMISH —• KrftmtiriteSQ* IS. Jmðav Í968
: :
13.00 Eydís Eyþórsdóttir stjóm-
ar óskalagaþætti fyrir sjó-
mefrn.
14.40 Margrét Bjarnason talar
um Katrínu miklu.
15.00 Middegisútvarp. Sigurö-
ur Bjömsson syngur. N. Mil-
stein og sinfóníusveitin í
Fittsburg .leika konsert fyrir
fiðlu og hljómsveit eftir
Dvorák. M. Callas og G. di
Stefano syngja dúett úr
Tosca. eftir Puccini Hljóm-
sveit Wal-Berg leikur marz
úr Hnotubrjótnum, eftir Tjai-
kovskí og vals úr Coppeliu,
eftir Delibes.
16.00 Síödegisútv.. F. Hensdh,
C. Caiente, P. Alexander
o.fl. syngja og leika gömul
vinsæl lög. Mantovani og
hljómsveit leika lagasyrpu,
B. Streisand syngur, W.
Múller og hljómsveit og
Ritu-Williams kórinrf flytja
lagasyrpu, H. Zacharias og
hijómsveit leika rússnesik
bjóölög og Erna Skaug, Vík-
ingamir o.fl. syngja og leika
þjóðlög og dansa frá Noregi.
18.00 Sigríður Gunnlaugsdótt-
ir stjómar þætti fyrir yngstu
hlustenduma. 1 tímanum les
Stefán Sigurðsson fram-
haldssöguna Litli bróðir og
Stúfur.
18.30 Tónleikar.
20.00 Daglegt mál.
20.05 J. Katchen leikur verk
eftir Brahms. 1: Ballötur op.
10 nr. 2 og 3. 2: Valsa op. 39.
20.35 Séra Heigi Tryggvason
flytur erindi um almenna
safnaðarþjónusitu fyrir aldr-
að fólk; — fyrri hluti.
21,00 Sinfóníuhljómsveit ís-
lands heldur tónleika í Há-
skólabíói. Stjómandi: Dr. Ró-
bert A. Ottósson Einleikari
á fiðlu: Fredell Lach frá
Texas. a) Leikhússtjórinn.
óperuforleikur eftir Mozart.
b) Fiðlukonsert nr. 3 (K216)
eftir Mozart.
21.45 Sigurður Jónsson frá
Brún flytur ný frumort
kvæði.
22.35 Átta ár í Hvíta húsinu.
22.35 Dja&sþáttur: Brezkir
djassleikarar í Bandaríkjun-
um. Ólafur Stephensen hefur
umsjón á hendi.
23.05 Bridgeþáttur. Hjalti Elí-
asson og Stefán Guðjohnsen
ræðast við.
Jón H. Björnsson skrifar
mikið um Garðyrkjuskólann
um þessar mundir. í Þjóð-
viljanum hinn 5. janúar nægir
honum ekki að halda sér að
aðalefninu, heldur fær Skóg-
rækt ríkisins smákveðju frá
honum í þessu sambandi. Þar
sem greinarhöfundur fer með
algerlega staðlausa stafi í að-
dróttunum sínum, neyðist ég
til að ieiðrétta missagnir hans.
Jón segir m.a.: „Þannig get-
ur sú stofnun, sem átti að
ryðja atvinnuvegunum braut,
staðið þeim fyrir þrifum. Garð-
yrkjuskóli ríkisins er ekki eins-
dæmi um þetta hvað garðyrkj-
unni viðkemur, þar á einnig
Skógrækt ríkisins hlut að máli.
Með trjáplöntusölu sinni á
skrúðgarðsmarkaði hefur hún
e.t.v. bælt niður margan verð-
andi plöntuframleiðanda.“
Nú veit Jón H. Björnsson
það alveg eins vel og ég, að
Skógrækt ríkisins hefur um
mörg ár reynt að fá hingað til
• Minnispeningar
frá
ýmsum löndum
• Pétur Hóffmann Salómons.
son sagði ókkur þau tíðindi.
er hann hafði síðast við okkur
símasamband. að nú um sinn
’ legði hann einkum fyrir sig
kaup og sölu minnispeninga
hvaðanæva að úr löndúm.
— Nú hef ég til dæmis á
boðstólum peninga, sem slegn-
ir hafa verið og gefni,r út til
minningar um ýmsa þjóðar-
leiðtoga og þjóðhöfðingja svo
sem Winston Chúrchill hinn
brezka, Kennedy hinn banda-
ríska. konungshjónin af Grikk-
landi þau Önnu Maríu drottn-
ingu og Konstantin kóng einn.
ig Maríu Theresiu drottningu
af Ungverjalandi o. fl. Verð-
inu er þér að segja. mjög i
hóf stillt. ef miðað er við dýr-
tíðina.
Pétur bindur annars ekki
sin viðskipti eingöngu við
guil- og siifurdaii heldur legg-
ur hann einniir stund á sölu
fyrstadags-umslaga og hann
segir okkur að söluverðið hjá
sér sé enn hið sama og það
var á útkomudegi frímerkj-
anna —* og geri aðrir betur nú
í verðbólgunni.
Sveinn Halldórsson
Framhald af 2. siðu.
— það var enginn lestur, — mér
fannst klerkurinn frá Akur-
eyri kominn þar, gnæfandi
hátt, sem jötunn, og skuggar
risans flökta um loft og veggi,
tal hans eldur og logi, Þann-
ig verður skáldskapur lifandi.
Eldur sem öllu yljar, öllu lýs-
ir og öllu brennir.
Mér finnst, sem haldi ég (
tveim fagurskyggðum perlum
í sin hvorri hendi. er ég hugsa
um þessar tvær síðustu gjafir
hans til okkar hinna. Ég
kreppi hnefa og opna til skipt-
is, hrædd og forviða hvort
hverfa muni gersemarnar. En
djásnin eru þar og munu allt-
af verða. sem gjöf frá þér
Sveinn og eign okkar. dýrmæt
eign okkar, sem höfum séð þig
vera á sviðinu lifað bar og
starfað með þér o* við^segj-
um hafðu hjartans þökk.
Ekkisens fjandans bull er í
stelpunni. ætlar hún ekki að
hætta, nú er nóg komið, hugsar
hann Sveinn nú. En það er svo
að aldrei verður sögð öll sagan
af honum Sveini Halldórs-
syni Bæði er að afköst manns-
ins. persóna hans og líf allt er
svo viðamikið að meira þarf
en smágrein til að gera nokk-
ur skil. En lætur Sveinn penn-
ann hvissa hratt yfir ævibókina
og er alls ekki hættur. Þú hefur
reyndar oft sagt, að nú væri
þú hættur. en það verður ekki
og má ekki verða í bráð. Því
meðan sá eldurinn logar skær-
ast og brennur heitast, sem
lengst hefur brunnið. þá ber
honum að ylja og orna hinum,
sem ekkj var gefin slík gnægð.
Qg nú á 75 ára afmælinu þínu
ertu vestur ; Bolungarvík að
starfa og vera með Bolvíking-
um. Það íer svo vel á því, en
mikið fjandi öfunda ég þá. Ég
tala ekki um hvað ég öfunda
Þá af þvi að mega vera með
þér á morgun og eiga og
eyða deginum með Þér. Ég
vildi vera komin þangað óg
drekka súkkulaði, eins og Gest-
ur sagði í gríni og eins og
var svo gaman að gera þegar
þú varst sjötugur. Svo óska ég
þér til lukku með daginn og
Bolvíkinga og þeim með þig.
Farðu svo að koma suður, —
því við þolum ekki að eldurinn
sé frá oss svo lengi, — okkur
er kalt á klónum, og hana nú.
Gunnvör Braga.
lands fjölda trjátegunda frá
ýmsum stöðum heims, þar sem
aétla má að loftslag og gróð-
urskilyrði séu svipuð og hér.
Skógræktin hefur fyrst og
fremst flutt inn trjátegundir
til að gróðursetja í skóglendi,
en auðvitað hefur líka verið
seilzt eftir trjátegundum til að
auka fjölbreytni í görðum
manna, hvenær sem því varð
við komið. Allar þessar teg-
undir hafa auðvitað verið ald-
ar upp í gróðrarstöðvum skóg-
ræktarinnar til að byrja með.
Ennfremur er Jóni vel kunn-
ugt um, að um mörg ár hafa
hvaða garðyrkjumenn, sem
vildu, getað fengið keyptar
ungar trjáplöntur úr gróðrar-
stöðvum skógræktarinnar við
sanngjörnu verði til þess að
ala þær upp unz þær væru
hæfar til plöntunar í garða.
Ég veit ekki betur en að þetta
hafi gengið prýðilega hjá sinn-
ugum garðyrkjumönnum, enég
veit líka að þetta hefur fa.rið
úr reipunum hjá öðrum. þeim
til skaða °g sárrar raunar.
Ennfremur hafa garöyrkju-
menn ávallt átt kost á að
kaupa trjáfræ eftir þörfuro,
þegar það hefur verið á boð-
stólum. Loks má bæta því við,
að stefna skógrælctarinnar
var og er sú, að létta undir
mcð garðyrkjumönnum við
þessa ræktun til þess að hún
gæti eingöngu sinnt skógplöntu-
uppeldinu.
Þetta veit Jón H. Björnsson
mæta vel, þó að hann láti
liggja að öðru nú. Enda höf-
um við oft átt tal saman um
þetta áður fyrr.
Skógrækt ríkisins hefur reynt
að sneiða lijá uppeldi trjá-
plantna í skrúðgarða eftir
mætti, því að slíkt drepur
kröftunum á dreif í gróðrar-
stöðvunum. Hinsvegar varð
hún að sinna þessu nokkuð
áður fyrr, þegar engar gróðr-
arstöðvar voru til, sem gátu
alið upp trjáplöntur, og hún
hlýtur að sinna þessu lítils-
háttar enn, þar sem langt er
til garðyrkjustöðva.
Hinsvegar geta skógræktarfé-
lögin, bæði hér í Reykjavik
og á Akureyri. ekki komizt
hjá því að ala úpp trjáplöntur
til skrúðgarða. Þeim ber að
gera það samkvæmt lögum
þeirra og verkssviði. Mér er
þó fullkunnugt um, að Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur hefur
ekki lagt meira kapp á þetta
en svo, að það hefur um mörg
ár selt ótal garðyrkjumönnum
2—4 ára trjáplöntur til fram-
haldsrælctunar, svo að þær
væru hæfar fyrir skrúðgarða.
Norðanlands eiga menn varla
í annað hús að venda en til
gróðrarstöðvar Skógræktarfé-
lags Eyfirðinga við Akureyri
að því er garðþlöntur snertir,
því að þar hefur enginn garð-
yrkjumaður fengizt vfð þess-
konar plöntuuppeldi slðan Jón
Rögnvaldsson hætti því.
Ýmsu mætti bæta hér við,
en þetta er nóg til að sýna.
að Jón H. Björnsson fer með
algerlega staölausa stafi í aö-
dróttunum sínum um Skóg-
rækt ríkisins. Ef fleira er í
greinum hans á sömu lund,
getur verið varhugavert að
leggja of mikinn trúnað á þær.
En um það brestur mig kunn-
ugleika að dæma.
verið. í vor, sem leið var t.d.
eftirspurnin meiri en fram-
leiðslan.
Þeir garðyrkjumenn, sem öt-
ulastir hafa verið við upp-
eldi garðtrjáa á undanförnum
árum, verða nú að leggja nið-
ur stöðvar sínar innan skamms
sakir hins nýja bæjarskipulags.
Þótt yfirvöld borgarinnar létu
þeim aðra staði í té, er mér
til efs að þeir gætu þegið
það. Það tekur a.m.k. heilan
áratug að koma upp sæmilegri
gróðrarstöð, og auk þess bind-
ur það mikið fé og óhemju
vinnu um langan tíma áður
en tekjur koma í aðra hönd.
Ef þessir menn hætta uppeldi
garðtrjáa verður það aðeins
gróðrarstöð Skógræktarfélags-
ins í Fossvogi, sem getur hald-
ið þessu starfi áfram, og vafa-
samt er hvort hún ein mun
nægja til að sinna þessu verk-
efni.
Þess vegna vil ég benda
skipulagsmönnum bæjarins á
að hugsa sig tvisvar um áður
en þeir útrýma gróðrarstöðvum
garðyrkjumannanna úr Foss-
voginum. Með því koma þeir
í veg fyrir að bæjarbúar geti
fengið nægilegt magn trjá-
plantna í garöa sína um all
mörg ár. 1 þessu tilfelli er
ekki unnt að bæta trjáplöntu-
skortinn með innflutningi
plantna nema að óverulegu
leyti.
Hér er því vandamál á ferð-
um. sem hinum vísu feðrum
bæjarins hefur sést yfi,r. Það
er ekki nóg að leggja götur,
malbika þær og reisa síðan
grá og litlaus steinhús við þær.
Það er gróðurinn við húsin og
þá fyrst og fremst trén, sem
gera bæinn okkar vistlegan.
Hákon Bjamason.
• Gamanleikurinn JÁRNHAUSINN hefur nú verið sýndur 46
sinnum við mjög góða aðsókn og verður næsta sýning leiksins
á föstudag. Það eru aðeins eftir fáar sýningar á leiknum. —
Myndin er af Róbert Arnfinnssyni og Bessa Bjarnasyni i hlut-
verkum sínum.
Ei'ginmaður minn og faðir okkar
GÍSLI SIGURÐSSON( sérleyfishafl
Sigtúni; Skagafirði,
er lézt 2. janúar s.l. verður jarðsunginn frá Sauðárkróks-
kirkju laugardaginn . 15. janúar kl. 13.30.
F. h. vandamanna
Helga Magnúsdóttir og böm.
VINNINGSNÚMERIN BIRT:
□ 24. desember sl.
var dregið í Happ-
drætti Þjóðviljans
um tvær bifreiðir,
Skoda MB 1000.
Bifreiðirnar komu á
eftirtalin númer:
17277
18264
Hverjir
hlufu
bíiana?
□ Handhafar vinningsnúmeranna
geta vitjað vinninganna á skrif-
stofu Þjóðviljans á Skólavörðu-
stíg 19, sími 17500.
D Um leið og við birtum vinnings-
númerin viljum við færa þakkir
öllum þeim mörgu sem styrktu
blaðið með því að kaupa miða í
happdrættinu.
Happdrætti Þjóðviljans
En úr því að ég fór að
leiðrétta, mishermi Jóns finnst
mér ekki úr vegi að benda á
þá hættu, sem steðjar að
skrúðgarðsmálum höfuðstaðar-
ins innan skamms. Er það
fyrirsjáanlegur skortur á trjá-
plöntum í garðana.
Sakir hinna miklu bygginga
í Reykjavík og nágrenni á
síðari árum hlýtur eftirspum
eftir garðtrjám að margfald-
ast frá því, sem áður hefur
I
I
I
I
!
i
Í
útvarpið
Hákon Bjarnason:
A THUCASEMD VIÐ SKRIF
JÓNS H. BJÖRNSS0NAR
Fáar sýningar á Járnhausnum