Þjóðviljinn - 07.04.1966, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 07.04.1966, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN •— Fimmtudagur 7. april 1966. ! Domby höfuðsmabur í vandræðum Það verður. æ meiri vandi að útvega hermenn í stríðið í Vietnam. Á her- skyldu.skrifstofum sitja menn með sveittan skallann og setja fram ýmsar hugmyndir um það, hvemig eigi aðfara að því að koma sem flestum ungum mönnum í hermanna- búning. En allar hugmyndir kalla því' miður fram alvar- leg mótmœli. — Við héldum að við hefð- um rekizt á góða hugmynd i Michigan, sagði Domby höf- uðsmaður ekki alls fyrir löngu, en hann er helztur hugmynda- smiður i þeirri stofnun sem velur úr herskylda menn. — En ríkisstjórnin hafnaði til- lögu okkar. Hann átti við kröfugöngu, sem stúdentar skipulögðu fyrir utan herkvaðningarstöð einaí Michigan. Eftir þessa kröfu- göngu lýstu opinberir aðilar því yfir, að hvem þann sem tekur þátt í einhverskonar mótmaelaáðgerðum gegn her- kvaðningu, megi svipta fresti þeim sem hann hefur gagn- várt herskyldu, setja hann i flokk A-1 og dubba hann upp í hermannabúning. Nokkrir slíkir kröfugöngumenn í Mic- higan verða nú settir í her- inn. Eftir RUSSEL BAKER En stjómin mótmælir samt þessari aðferð. Hún álítur, að slíkar nauðungaráðstafanir muni styrkja útlendinga í þeirri hugmynd, að styrjöld- in sé óvinsæl meðal banda- rískra æskumanna.. Samkvæmt annarri tillögu á ríkisstjómin að koma sér upp styrjaldarhetjum. „Þetta er fyrsta stríð okkar þarsem við höfum ekki neinar hetjur“, segir Domby höfuðsmaður. „En ef við eigum einhverja hetju, þá hafa strákarnir ein- hvern til að reyna að líkjast. Það er hægt að senda hetj- una á stúdentagarða, þar sem margir eru andvígir herkvaðn- ingu og láta hana fá þá óá- nægðu til að skammast sín. Þessvegna báðum við forset- ann að gera eitthvað til að auglýsa upp nokkrar hetjur frá Vietnam‘‘. Þessi tillaga kom svo til baka og var eftirfarandi úr- skurður yfir textanum: „Þessi hetjuhugmynd er afleit. Það fer alltaf svo fyrir þessum stríðshetjum að lokum, að þær beita sér gegn styrjöldum okkar og bjóða sig fram við forsetakjör“. v Þriðja hugmyndin var fólg- in, í því að flytja í flokk A-1 þá stúdenta, sem hafa dreg- izt afturúr félögum sínum í námi. En Domby höfuðsmaður er ekki alveg viss um að hún beri þann árangur sem skyldi.“ Þetta verður aðeins til þess, sagði hann, að strákamir reyna að komast á sem léleg- asta háskóla. Enginn sniðugur strákur fer í strangan skóla eins og Harwardháskólann, ef hann á það á hættu að verða kallaður í herinn — úr því það er enginn vandi fyrir hann að vera dúx í einhverjum búnaðarskóla‘‘. Domby höfuðsmaður hefur skrifað þekktustu söngiaga- smiðum landsins. Hvatti hann þá til að setja saman hressi- lega söngva, sem geti vakið með æskufólki lönggun til að ganga í herinn. Hann hefur enn ekki fengið neina söngva frá þeim, en einir sjö tón- smiðir hafa hringt til hans og spurt hvaða orð geti rímað á móti Vietnam. Enn önnur hugmynd gerði ráð fyrir því að nokkrir í- þróttameistarar yrðu kallaðir í herihn. „Þið skuluð kalla einhvern íþróttameistara í herinn og þúsundir aðdáenda hans munu keppast við að sýna að þeir passi í flokk A-1 engusíðurenhann“, sagði Domby höfuðsmaður. En þessari hugmynd var, einnig hafnað. Áhrifamaður úr Demó- krataflokknum lét svo um- mælt, að um leið og þeir í- þróttakappleikir sem sýndir eru í sjónvarpi fara versnandi vegna Vietnam, þá mtm all- ur almenningur áþreifanlega verða þess var, að það er ein- hversstaðar verið að stríða, og snúast gegn stjóminni 1 kosningum. „Ég hef,“ agði Domby höf- uðsmaður að lokum, ,hugmynd, sem kannske verður hleypt í gegn. Að taka Cassius Clay í herinn. Það mun sýna að í- þróttahetjur skipta ekki svo ýkjamiklu máli, og kvaðning þeirra í herinn kostar stjórn- ina ekki mjög mörg atkvæði. Með því að aðeins tvö prósept sportídjóta í landinu hafa til- nefnt box sem uppáhaldsí- þrótt sína, verða þeir mjög fáir sem hneykslast á því, að stríðið hefur spillt þeirra upp- áhaldsskemmtun.“ 15 lög afgreidd á Al- þingi síðan um áramót Siónvarpsmálið enn eklci tekið til umræðu Frá- áramótum til páskaleyfis þingmanna hefur alþingi sam- þykkt 15 frumvörp sem Iög, allt stjórnarfrumvörp, og fellt eitt frumvarp, frumvarpið um að sjúkrasamlögin skuli taka þátt í tannviðgerðarkostnaði, en þáð frumvarp var flutt af AI- freð Gíslasyni. Þessi frumvörp hafa verið samþykkt: Breyting á lögum um sinubrennur. um útflutn- ingsgjald af ■jávarafurðum, um Bjargráðasjóð, um eigna- og af- notarétt fasteigna um kosning- ar til alþingjs og br. á 1. um sveitastjómarkosningar. 1. um skrásetningu réttinda i lo.ft- förum, 1. um nauðungarupp- boð, br. á 1. um aðför. 1. um ráðstafanir vegna sjávarútvegs- ins, og loks hafa 5 frpmvörp verið samþykkt um sölu jarða. Þá .hafa tvær þingsályktunar- tillögur verið afgreiddar hin fyrri um markaðsrannsóknir í þágu útflutningsatvinnuveg- anna og sú síðarj um garð- yrkjuskóla á Akureyrj Fjöhnörg mál1 liggja í nefnd- um einkum frá stjómarand- stöðunni, en Iíka stjómarfmm- vörp, sem ríkisstjórnin mun ætla að afgreiða. — Meðal þeirra mála sem iiggja I ncfndum skulu þcssi nefnd: Frv. um að fella niður vlsi- tölukvöð i á Iánum Húsnæðis- málastofnunar ríkisins, frv. um Fiskiðjuver ríkisins, frv. um listamannalaun og Listasjóð, frv. um togarakaup ríkisins. Prv. um slysatryggingar í- þróttafólks, frv. um heildar- skipulag miðbæjarins í Reykja- vík. frv. um áætlunarráð rík- isins frv. um breyt. á I. um bann gegn botnvörpuveiðum, frv. um byggingu leiguhúsnæð- Is, frv. um aðstoð rikisins við rekstur og byggingu almennra baraaheimila og um fóstru- skóla, frv. um afnám banns við vcrkfalli opinberra starfs- manna o. fl., en þessi frum- vörp eru öll flutt af þing- mönnum Alþýðubandalagsins. Meðal þeirra tillagna til þings- ályktunar, sem enn hafa ekki hlotið afgreiðslu, eru þessar um athugun á rekstrargrund- vclli togaraflotans og endur- nýjun hans,1 um drcifingu framkvæmdavalds og eflingu á sjálfstjóm héraða, — um end- urskoðun á aðild Islands að Norður-Atlanzhafssamningi og Atlanzhafsbandalagi, — um embættisbústaði og um at- vinnuiýðræði. Hcr hafa þó að- eins verið talin þau mál, sem þingmenn Alþýðubandalagsins standa cinir að. ötalin er tillagan um tak- mörkun sendinga frá sjón- varpinu á Kefiavíkurflug- velli, scm Alþýðubandalagið • . og Framsóknarflokkurinn standa að. og kemur sú tll- laga væntaniega til unwæðu •fljótlega eftir páskana. Árekstrar Framhald af 3. síðu. munjr hans og hagsmunir öku- mannsins, sem á undan fer eða á eftjr í hvert sjnn, fari ekki saman. Lögreglan óskar eftir sam- vinnu við alla vegfarendur, til að koma í veg fyrir slys og ó- höpp í umferðinni. en þann þátt umferðarinnar, er hér um ræðir, er auðvelt að bæta. Reyn sla sýnir að bezta slysa- vörnin er að gera sér Ijóst að hætta er á ferðum. Þessu til sönnunar nægir a^ benda á að flestir árekstrar og slys verða Þar, sem akstursskilyrði eru góð, — þar er ekki sýnd nægileg aðgæzla. (Frá umferðarlögreglunni)'. Geta sparað mælgina Furðulegt er hvað menn geta lagzt lágt í málflutn- ingi sínum, þótt ekki sé nerria vegna þess hve sú aðferð ber vott um takmarkalausan skort • á sjálfsvirðingu, Til að mynda greina blöðjn frá því í gær að Gylfi Þ. Gíslason, fyrr- verandi prófessor við Háskóla íslands, hafi varið gerðar- dómsákvæðj alúmírísamning- anna með því að íslenzka ríkið hafi áður fallizt á á- kvæði um gerðardóm í hugs- anlegum deilumálum við önh- ur ríki, til að mynda við Sov- étríkin. Engjnn hefur vefengt að ríkj leysi oft deilumál sín með alþjóðlegum gerðar- dómum eða talið Þá aðferð óeðlilega. En svissneska auð- félagið er ekkert ríki. Og þaðan af síður verður lepp- félag það sem stofpa á hér- lendis og nefnist „íslenzka ál- félagið“ ríki að forminu til, heidur á það að heita íslenzkt hlutafélag og njóta allrar lagaverndar sem slíkum fé- lögum er veitt. Og ekkert fullvalda ríki í heimí telur sæmandi að fela erlendu dómsvaldi að útkljá deilu- mál sin við innlend fyrir- tæki Eigi að nota þá rök- semd Gýlfa Þ. Gíslasonar að alþjóðlegir" gerðardómar séu eðlilegjr í samskiptum ríkja verður að breyta alúm- ínsamningunum á þá leið að svæðið umhverfis Straum verði erlent borgriki. Og með því væri raunar aðeins verið að viðurkenna staðreyndir. Annar fyrrverandi prófess- or við Háskóla ‘fslands, Jó- hann Hafstein, hagaði mál- flutningi sínum á þessa leið að sögn Morgunblaðsins í gær: ,.í þessu landi eru starf- andi hundruð gerðardóma. Sumir eru stofnaðir með samningum milli einkaaðila eða til dæmis með samþykkt- um félaga. Áðrir eru beinlín- is stofnaðir með lögum, og eru þeir varla færri en hin- ir. í síðari flokknum er ein- mitt fjöldj gerðardóma, sem stofnaðir- hafa verið ril að fjalla um samskipti ríkisins og einkaaðila, og þá stund- um í hinum vandasömustu málum“. Allur minnir þessi málflutninguráprestsem hef- ur tekið með sér skakka ræðu, Hver hefur vefengt að til séu islenzkir gerðardómar? Enginn hefði haft neitt við það að atbuga- þótt einhver tiltekin atriði { samningum ríkisstjórnarinnar og' „fslénzka álfélagsins“ væru útkljáð af íslenzkum gerðardómum. Gagnrýnjn beinist að því að verið er að flytía dómsvald- ið út úr landinu í algeru trássi við ákvæði stjórnar- skrárinnar og íslenzka rétt- arhefð. Er ráðherann nú þeg- ar orðinn svo alúmíníséraður að hann sjái engan mun á íslenzkum dómum og erlend- um? Annars geta þessir ráðherr- ar og fyrrverandi prófessor- ar sparað sér mælgi sína. Sá hefur talað sem þeim er seðri, Emanuel Meyer aðalforstjóri Swiss Aluminium. Hann hef- ur lýst yfir því að Þessi á- kvæðj 'séu algert einsdæmi í öllum samskiptum hrin'gsins við fjölmörg þjóðríki um heim allan í nærfellt 80 ár. — Austri. Galls ' ' Allt ætlaði um koll að keyra á vestur-þýzka þinginu fyrir nokkru þegar rætt var um hinar svonefndu Starfighter-þotur sem vestur- þyzki herinn hefur keypt frá Bandaríkjunum fyrir gífurlegar upphæðir en reynzt hafa hinir mestu gallagripir. Undanfarið rúmt ár hefur varia liðið sú vika að ekki hafi þota af þessari gcrð farizt eða hlekkzt á og 35 flugmenn þeirra hafa beðið bana. Auk þess hafa þessar þotur reynzt ófærar að gegna þeim verkefnum sem þeim voru ætiuð. Stjórnarandstaðan hefur gert harða hrið að rikisstjórninni fyrir kaupin á þessum þotum, og krafizt þess að lýst yyrði ábyrgð á hendur þeim sem stóðu fyyrir kaupunum, að lýst yrði ábyrgð á hendur þeim sem stóðu fyrir kaupunum, en hciztur þeirra var Franz Josef Strauss, scm var iandvarna- r, ± * r^ðherra þegar kaupin voru gerð. — Myndin er af gallagripunum. FermlngarúríS I ár er ROAMER ROAMER herraúr frá kr. 1450,00. R O A M E R dömuúr frá kr. 1600,00. TVÍMÆLALAUST BEZTU ÚRIN MÍÐAÐ VIÐ VERÐ. ’ Sigurður Jónosson. úrsmiður Bergfstaðastræti — (Laugavegi 10).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.