Þjóðviljinn - 07.04.1966, Side 4

Þjóðviljinn - 07.04.1966, Side 4
4 SIÐA — ÞJÖÐVTLJTNN — Pimmtudagur 7. april 1966. Utgefandi: Sameiningarfloktour alþýðu — Sósíalistaflokk- urinn. Ritstjórar: Ivar H. .Tónsson (áb). Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundssoii. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Þorvaldur Jé'iannesson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust. 19. Síml 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 95.00 á mánuði. Að þvo hendur sínar ¥ yndon B. Johnson Bandaríkjaforseti er sem kunnugt er kristinn mjög á strætum og gatna- mótum og ákallar ósjaldan guð í stjórnmálaræð- um sínum. Eflaust ástundar "hann skipulegar kirkjuferðir nú í dymbilvikunni. Skrautklæddir klerkar í veglegum guðshúsum munu rifja upp fyrir Lonum hina fomu píslarsögu um örlög mannssonarins, þess sem handtekinn var fyrir byltingarkenningar og uppreisnarstarfsemi í her- numdu landi, dæmdur til dauða af erlendum og innlendum valdsmönnum, pyndaður og krossfestur. Og forsetinn mun kunna að sýna það með svip- brigðum sínum, langþjálfuðum frammi fyrir sjón- varpstökuvélum, af hversu innilegri samlíðan hann fylgist með örlögum hins snauða og hrjáða og myrta alþýðuleiðtoga; hann kann einnig flest- um öðrum betur þá list að tárast á almannafæri. ¥|ó munu kirkjuferðir Bandaríkjaforseta ekki , verða tímafrekari en svo að hann hefur tíma til þess að rækja inn á milli störf sín sem æðsti yfirmaður allra bandarískra herja. Hann mun fylgjast vandlega með því að ekkert lát verði á morðum í Víetnam, að sprengjum sé kastað yfir varnarlaust sveitafólk dag eftir dag, að benzín-. hlaup breyti mönnum í logandi eldstólpa, að stál- nálar sági fólk í sundur, að gas kæfi menn, að eiturefni spilli gróðri og uppskeru á stórum svæð- um svo að hungrið geti unnið á þeim sem kunna að sleppa undan annarri morðtækni hins kristna stórveldis. Hann mun fylgjast vandlega með því að áætlunin -um sívaxandi innrásarher sé tryggi- lega framkvæmd, svo að þeim miljónarfjórðurígi sem nú ástundar blóðverkin í Víetnam fjölgi upp í 400 þúsundir á þessu ári. Hann mun sjá til þess að alltaf sé tiltækt nægilegt auðmagn úr fjárhirzl- um stórveldisins til guðsþakkarverka; fjárfesting Bandaríkjanna í Víetnam er sem kunnugt er 17 miljónir króna á hvern myrtan mannsson. Hann mun íhuga tillögur um að loftárásir á Norður- Víetnam verði magnaðar stórlega og einnig láfnar ná til höfuðborgarinnar. Hann mun fjalla um þá hemaðaráætlurí að gera árásir á Kína. í dymbil- vikunni verður eins og aðra daga reynt að tryggja það að píslarsagan foma endurfaki sig á okkar dögum, margfölduð með miljón. ¥¥vers virði er kristin kenríing Lyndon B. John- son Bandaríkj aforseta, eða þeim jábræðrum hans íslenzkum, forsætisráðherranum, utanríkis- ráðherranum, kirkjumálaráðherranum, sem e’f- laust munu sækja ' hinar tízkuskrýddu kirkjur höfuðborgarinnar þessa dagana? Hún er andhverfa lifandi veruleika, hræsni og ýfirdrepskapur, það prjál sem nota má utan á kalkaðar grafir. Hpn gerir þeim sama gagn og vatríið sem Pontíuf Pílatus notaði þegar hann þó hendur sínar fyrir tæpum tutfugu öldum. — m. STERKA ÖLIÐ Mál ejtt mikig ber oft á góma þessa dagana. en þag er bjórfrumvarpið svokallaða. Ýmsir mœtir menn og merkir hafa tekið séj- penna í hönd. og xitað af vizku mikilli, ým- ist með eða á mót. Helztu rö-k þeirra,- sem fylgjandi eru bjórnum, eru þessi: 1. Vér íslendingar lifum í lýð- frj'áláu landi og eigum því ekki að Þ°la nein bönn eða höft. 2. Bjórinn komi því tii leið- ar að menn yrðu ekki eins út úr drukknir og af sterku áfengi. 3. Neyzla sterks vins mýndi minnka, þar sem menn myndu frekar kjósa sér ' bjór. 4. Nángrannaþjóðirnar hafa bjór, því þá ekki við? Svo sem sjá má á þessum þrem liðum, eru rök bjórmann- anha fremur innantóm og ekki þessleg að hafa áhrif á hugs- andi menn. Tökum til dæm- is fyrsta atriðið, þar sem öll- um bönnum og höftum er mót- mælt. Það er nú svo, að oft verður fuUorðna fólkið að hafa vit fyrir óvjtunum. Þannjg er það til dæmis með bjórmálið. Bjórinn er ' engum til góðs, neipa ef vera skyldi framleið- endunum og ber því eigj að leyfa sölu hans hér Einn er sá andskotinn, sem þeir bjór- menn viija, en það er að Þeir vilja bjór til reynslu vissan tíma. Ef þelta yrði leyft. er ' það eins víst og amen í kirkju að bjórfylgjendur yrðu fyrstir manna til að loka augunum fyrir afleiðingunum — og yrðu síðan fyrstir til að mótmæla. ef taka aetti bjórínn af þeim aftur. Það er nefnjlega þannig með þá, að ef þeim er rétt- ur litli fingur, vilja þeir alla: höndina. Hvernig myndi hin íslenzka æská taka bjórnum? Hún myndi að, sjálfsögðu segja: ■ i’.Komdu' -faírnandi — énginn verður fullur af einum bjór“, og liggja svo í þvj það sem eftir er ævinnar. Ýmsir munu að sjálfsögðu kalla þetta öfgar og tómt píp út í loftið. þar sem bjórinn skal einungis seldur í útsölum ÁTVR og þar getur enginn verzlað nema hann sé orðinn 21 árs.. Því fólki sem slíku heldur fram, vil é'g benda á ag fara á skemmtistað, þar sem opinber dansleikur er , haldinn fyrir unglinga. Þar ættu þeir að telja bindindismennina og spyrja síðan hina, hvar og hvernig þeir hafi komizt yfir áfengi, Þeir munu skipta um skoð- un. Eitt afbrot er það, sem myndj aukast að mun en það er ölvun við akstur. Þeir eru fáir. sem myndu hætta við að keyra bílinn heim, þó þeir fengju sér bjór. Einn er sá líkamlegi lýtir. sem fylgir bjómeyzlu og er algengur í þeim nágrannalönd- um ok'kar, sem bjór hafa. Það er hin svokallaða bjórvömb. Þetta fyrirbrigði myndi brátt skreyta margan íslendinginn Og yrði með tímanum dæmi- gert tákn fyrir fslendinga. Á meðan vér ekki leyfum bjór, stendur menning okkar íslendinga þrepi ofar en hjá n ágrannaþ j óðunum. Það eru furðuleg rök — ef rök skyldi kalla — að menn verði ekkj eins útúr fullir af bjór og af brenndum vínum. Heldur vilja bjórmenn að ís- lendingar ífái bjór og verði alltaf kenndir, en að þeir verði alltaf þurrir eðá svo til. Ég tel það mikinn dóm- greindarskort, að álíta að neyzla sterkra drykkja myndi minnka með tilkomu bjór- þambsins — og eins að álíta að bjórþambið sé til góðs. ■ Svo er þetta sífellda væl um að nágrannaþjóðirnar hafi bjór, en við ekki. Enn hef ég engan heyrt kvarta undan því að þessar þjóðir hafi nú gin- og klaufaveiki, en við ekki. Þetta er nefnilega nærtækt dæmi. Bjórinn er álíka plága fyri,.' mannkynið og gin- og klaufaveikin er fyrir skepn- umar, Takmarkið er: Brennið bjór- frumvarpið! Jóhann Garðar Larsen. Ferðamálaráðstefna ★ Ferðamálaráð hefur boðað til ferðamálaráðstefnu á Akur- eyri dagana 6. og 7. maí n.k. Fyrirkomulag ráðstefnunnar verður með svipuðu sniði og á ferðamálaráðstefnunni á Þing- völlum í fyrra. Dagskrármálin nú verða þáttur ferðamannsins í viðskiptalífi Akureyrar, Is- land ferðamannaland fyrr og nú. áhrif hækkaðs verðlags á mögu- leika Islands sem ferðamanna- lands, landkynningarmál, þrifn- aður og hollustuhættir í veit- inga- og gistihúsum og hrá- efnaöflun til gisti- og veitinga- húsa o.fl. STARFSFÓLK Vegna framkvæmda^ við Búrfellsvirkjun vilja verktakar ráða skrifstofufólk, verk- stjóra og iðnaðarmenn. Upplýsingar eru veittar á skrifsfofu AI- menna byggingafélagsins h.f., Suðurlands- braut 32, á venjulegum skrifstofutíma. •— Fyrirspurnum ekki svarað í síma. Svenska Enterprenad AB, SENTAB E. Pihl & S0n Almenna byggingafélagið hf. Skrifstofust/órí Viljum ráða mann til að veita forsföðu skrifstofu verktaka við Búrfell. Alhliða reynsla á viðskiptasviði og góð enskukunnátta er áskilin. Nánari upplýsingar veittar á skrifsfofu Almenna byggingafélagsins h.f., — Suður- landsbraut 32. Svenska Enterprenad AB, SENTAB E. Pihl & S0n Almenna byggingafélagið h.f. 3ja til 5 manna tjöld — Bakpokar — Svefn- pokar — Gastæki — Vindsængur — Ferða- töskur — Garðstólar og borð — Ullarteppi. FERÐAVÖRUDEILD II. hæð. LÍverpooriÍiiÍI Laugaveg 18 _____• éáBmm_____________

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.