Þjóðviljinn - 06.09.1966, Síða 5

Þjóðviljinn - 06.09.1966, Síða 5
ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 6. september 1966 — SÍÐA fj Framarar leika í 1. deild næsta sumar □ Fram sigraði Breiðablik í Kópavogi 3:0 í einum dauflegasta úrslitaleik í 2. deild sem fram hefur farið. Leikur Fram því í 1. deild að nýju næsta ár, en félagið féll úr deildinni í fyrra. Sigurvegarar Frapi í 2. deild. Neðri röð frá vinstri: Erlendur Magnússon, Helgi Númason, Elmar Gcirsson, Hallkcll Þorkclsson, Einar Arnason, Baldur Scheving og Ölafur Ölafsson. Aftari röð: jKarl Guðmundsson, þjálfari, Asgeir Sigurðsson, Hrannar Haralds- son, Anton Bjarnason, Þorbergur Atlason, Sigurður Friðriksson, Hreinn EUiðason, Sigurður Einarsson, Jóhannes Atlason, fyrirliði, og Alfreð Þorsteinsson, formaður knattspyrnudeildar Fram. — (Ejósm. Bj. Bj.). Ingimar Jónsson skrifar um Áttnuda Evrópumeistara- mótið í frjálsum íþróttum □ Eftir hádegi í dag, 30. ágúst, var 8. Evrópu meistaramótið í ftjálsíþróttum sett á Alþýðuleik- vanginum hér í Budapest. Að venju fór fram opn- unarhátíð með svipuðu sniði og þegar Olympíu- leikar eru settir. Áður en þátttakendur gengu inn á leikvanginn undir þjóð- fánum sínum, mynduðu u ig- menni klædd hvítum og bláum búningi ártölin 1912 og 1966 og skammstöfun alþjóða frjáls- íþróttasambandsins IAAF en það var stofnað árið 1912. Að þessu sinni taka öll þau lönd í Evrópu sem tilheyra IAAF þátt í mótinu, en það héfur ekki komið fyrir áður. Hin nýju, sem nú í fyrsta sinn eru með, eru Malta og Gibralt- ar, en þau basði svo og Portúgal sénda einn keppanda hvert. íslendingar eiga því ekki minnsta hópinn að þessu sinni, því eins og kunnugt er taka þrír Islendingar þátt í þessu móti — Jón Þ. Ólafsson, Val- björn Þorláksson og Sigrún Sæ- mundsdóttir, en langt mun vera síðan íslénzk stúlka tók þátt í slíku móti. ■ □ Á fyrsta degi mótsins var keppt til úrslita í þremur grein- urp — 20 km göngu, 10 km hl. og. kuluvarpi kvenna. Göngumennirnir voru þeir fvrstu sem lögðu út í barátt- una um Evrópumeistaratitilinn í ár, eða strax og hinni hátíð- legu setpingarathöfn lauk. Stuttu síðar hófust svo undan- rásir í nokkrum greinum. Austur-Þjóðverjinn Lidner varð fyrstur til að vinna gull- vérðlaun á þessu móti en hann sigraði í göngunni eftir harða keppni við Golubnisy fró Sov- étrikjunum. Báðir fylgdust að mest af leiðinni og höfðu eftir 10 km náð nokkru fórskoti á Smaga (Soyctr.) og Sperling (A- Þ.). í lok göngunnar tókst (Lindner að hrista Golubnisy af sér og vinna gönguna með 150 metra forskoti. » □ Hápunktur dagsins í dag er 10 km hlaupið. Þar gerðu Ungverjar sér miklar vonir um ungverskan sigur og hvöttu því ákaft landa sinn Mecser. Auk þess var vitað fyrir fram að hlaupið yrði verulega spenn- andi eins og lfka kom á daginn. Hlaupið var frá upphafi til enda skemmtilegt þótt nokkur bið yrði á því að hinum sigur- stranglegustu tækist að losa sig úr tengslum við aðalhópinn og heyja síðan baráttu ínnbyrðis. Eftir 5000 m hafði þó myndazt forustuhópur og mátti þá sjá að úrslit.in yrðu á milli Ung- verjans Mecser, Austur-Þjóð- verjans Haase, Roelants frá Belgíu, Mikitenko frá Sovét- ríkjunum, Letzerich, V. Þýzkal. og Englendinganna Tulloh og Rushmer. Þessir nefndu hlaup- arar skiptust á að taka forust- una og beita brögðum til að ná forskoti sem erfitt yrði fyrir hina að vinna upp. Þegar 3000 metrar voru eftir hafði Roel- ants heppnazt slikt bragð og hafði nú um 30 metra forskot, F-n ekki leið á löngu þar til Mecser, Haase og Mititenko og aðrir höfðu dregið hann uppi. Spenningurinn í hlaupinu jókst að mun þegar Mecser herti mjög á sér þegar 600 m voru eftir og ætlaði sér að gera þar með út um hlaupið með löngum endaspretti. En Haase tókst að hlaupa Mecser uppi og komast fram úr honum rétt eftir áð síðasti hringurinn var byrjaður og sigra á mjög góðum enda- spretti sem Mecser réði ekkert við. Þessi sigur Haase sem er að- eins 21 árs að aldri, er hans stærsti til þessa. F,áir munu hafa búizt við því að honum tækist að vinna hlaupið, þótt líklegur væri til mikilla afreka. Snemma í sumar hljóp Haase á 28.12,6 mín en tapaði fyrir Clarke og Roelants í keppni á Bislet um mitt sumarið. □ Sovézka liðið varð fyrir því óhappi að systurnar Press og langstökkvarinn Tsélkanova gátu ekki komið með til Búda- pest en allar líkur vöru á því að þær ynnu 4 gullverðlaun fyrir Sovétríkin. Grein Tamöru Press, kúluvarpið var í dag og breyttist nú hin væntanlega harða keppni um annað sætið í baráttu um sigurinn. Löndu Press, Tsishovu tókst að bjarga þessari sovézku grein með sóma. I öðru og þrið.ia sæti urðu austur-þýzku stúlkurnar Gummel og Lange, en við því var búizt að þær myndu báð- ar hafa góða möguleika á fremstu sætunum. . □ Undanrásirnar í 100 m hlaupi sýndu að Frakkarnir Bambuck og Piquemal munu koma til með að sigra þegar til úrslitanna kemur. Bambuck náði bezta tímanum 10,4 sek. og liafði tölyverða yfirburði ■ Jurgen Haase Dieter Lidncr sínum riðli. Að undanteknum sovézku spretthlaupurunum, en aðeins einum þeirra, Ivanov, tókst að komast í milliriðil, urðu hlutskarpastir hlauparar sem fyrir mótið voru álitnir sig- urstranglegastir svo sem Mani- ak Póll., Knickenberg V-Þýzka- 1. og Giannattasi frá Ítalíu sem sigraði í sínum riðli á 10.5. □ Svipaða sögu er að segja Framhald á 9. síðu. Leikurinn á Laugardalsvelli sl. sunnudag bar lítinn svip af úrslitaleik og allra sízt eins og þeir hafa oft verið í 2. deild úndanfarin ár. Baráttuvilji I leikmönnum sást varla bregða fyrir og hljótt yfir hinum fáu áhorfendum, er lögðu leið skia á völlinn. Það var líkast því, að allir teldu að hinn raunveru- legi úrslitaleikur í deildinni hcfði þegar farið fram helgina áður, milli Fram og ÍBV. Enda var frá upphafi leiks nokkuð Ijóst hvort liðið mundi sigra, því að Fram hafði alla yfirburði í leiknum en eins og oft áður gekk illa að skora og strand- aði oft á hinum ágæta mark- verði Kópavogs, Loga Kristj- ánssyni, sem raunar er þekkt- ari úr handknattleiksliði Hauka í Hafnarfirði. / Á 15. mín. eirilék Erlendur, innherji Fram, og sendi boltann til Elmars sem var frír fyrir marki, en skotið smaúg yfir. 10. mín siðar var þóf framan við mark Breiðabliks og var skotið af stuttu færi í stöng. Á 28. mín. bjargaði Logi vel er innher-ji Kram var kominn frír innfyrir. Loks á 35. mfn., skor- ar Fram sitt fyrsta mark,' hægri bakvörður Breiðabliks braut á Elmar innan vítateigs og dæmdi Baldur Þórðarson réttilega vítaspyrnu, sem Helgi skoraði örugglega úr. í síðari hálfleik voru yfir- burðir Fram enn meiri og • er leið á leikinn var úthald Kópa- vogsmanna þrotið. Þrátt fyrir fjölmörg tækifæri skoraði Fram ekki fyrr en á 28. mín. Hreinn EUiðason fékk boltann innfyrir vörn Breiða- bliks og skoraði óverjandi fyr- ir markvörð. Og 6 mín. síðar bætti Hreinn við þriðja marki Fram. Boltinn hrökk af mark- verði til Hreins sem skaut við- stöðulaust. i Að leik loknum afhenti Ipgv- ar Pálsson, ritari KSÍ, sigur- vegurum bikar þann sem keppt var um. I. deiíd: • crl Akureyri vann yfir- burðasigur á Skaga ■ Á sunnudaginn léku Akureyringar. og Akurnesing- ar síðasta leik sinn í íslandsmótinu í ár og fór leikurinn fram á Akranesi. Akureyringar unnu yfirburðasigur, skoruðu 7 mörk gegn 2, og hafa því hlotið 12 stig eins og Valur og Keflav. en þau eiga bæði eftir að leika einn leik, Valur gegn Þrótti og Keflavík gegn KR. Og viniý Þrótt- ,Vr og KR verða fjögur lið jöfn með 12 stig, Valur, Kefla- vík, Akureyri og KR, en á því eru raunar litlar líkur. I leiknum á Skipaskaga á sunnudaginn höfðu Akureyr- ingar algera yfirburði í fyrri hálfleik og skoruðu 5 mörk gegn engu. Fyrsta markið skor- aði Skúli Ágústsson á 4. mín- útu leiksins. Á 11. mínútu áttu Skagamenn sitt fyrsta mark- tækifæri en Samúel markvörð- ur varði. 4 mínútum síðar skorar Kári Árnason > annað^ mark Akureyringa. Rétt á eftiú' meiddist Björn Lárusson, Akur- nesingur, og kom Rúnar Hjálm- arsson inn fyrir hann. Fékk Rúnar arinað marktækifæri Akranessliðsins í þessum hálf- leik skömmu eftir að hann kom inn á völlinn en Samúel varði aftur. Átti Akraries ekki fleiri færi í þessum hálfleik. Á 22. mínútu var Valsteini útherja Akureyrar brugðið og var dæmd vítaspyma á Akra- nes sem Skúli skoraði úr. Sjö minútum síðar ■ skoraði Val- steinn 3. mark Akureyringa og 5 mínútum* fyrir lok hálfleiks- ins bætti Kari 5. markinu við. 1 byrjun síðari hálfleiks Framhald á 9. síðu. ÍBÍ -KR 2:1 ísfirðingar halda áfram í bik- arkeppninni en b-líð KR er úr leik eftir sigur Isfirðinga 2:1 í Ieik bessara liða á Melavellin- um sl. laugardag. 1966 — EVRÓPUBIKARKEPPNI MEISTARALIÐA — KR — NANTES fer fram á Laugardalsvellinum miðvikudaginn 7. sept- ember kl. 7..00 e.h. 1967 Forsala við Útvegsbankann. K.R. Verð aðgröngumíða: Stúka kr. 125,00 Stæði kr. 90,00 Böm kr. 25,00 1

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.