Þjóðviljinn - 15.09.1966, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 15.09.1966, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 15. september 1966 — ÞJOÐVILJTNÍN — SIBA g í meira en tvo áratugi hefur álagning á vörur þær, sem olíufélögin selja verið ákveðin af verðlagsyfir- völdum. Segja má, að allan þann tíma hafi álagning á fuelolíu, gasoliu og bílabenzín verið þannig ákveðin, að hún hafi tæplega staðið undir kostnaði við innflutning og dreifingu á þessum vörum, hvað þá að sala þeirra skilaði eðlilegum hagnaði. Fjármagnsþörf»olíufélaganna, til þess að standa undir aukinni sölu og vegna þynning- ar gjaldmiðilsins hefur hins vegar, svo sem augljóst má vera, aukist ár frá ári. Stefna verðlagsyfirvalda hefur því óhjákvæmilega leitt til þess, að olíufélögiin hafa stöðugt orðið að leita til viðskiptabanka sinna um aukin lán til þess að standa undir auknum innflutningi og hækkandi kostnaði. Við- skiptabankarnir hafa eðlilega talið þessa þróun bæði óæskilega og hættulega. Af þessum ástæðum var svo komið í júlímánuði s.l., að viðskiptabankar olíufélagannæ synjuðu um opnun % Samkvæmt bessu qilda eftirfarandi reqlur frá 1. október nk. • lögunum heimilt að semja við stóra viðskiptamenn um mánaðarviðskipti, enda grreiði þeir sömu auka- gjöld og um getur í 1. og 2. gr. Skulu þeir greiða út- tektir sínar fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir út- tektarmánuð. 4 Hafi mánaðarviðskiptamaður ekki greitt skuld * sína að fullu fyrir lok greiðslumánaðar, skal reikna honum dráttarvexti, 0,83% á mánuði, miðað við skuld í lok úttektarmánaðar að frádregnum inn- borgunum í greiðslumánuði. Jafnframt skal stöðva reikningsviðskipti og hefja venjulegar inn- heimtuaðgerðir. Reykjavík, 13. september 1966. OLfUFÉLAGIÐ H.F. OLÍUVERZLUN ÍSLANDS H.F. OLÍUFÉLAGIÐ SKELJUNGUR H.F. N Öll smásala frá benzínstöðvum skal fara fram gegn • staðgreiðslu. Ef um félög eða firmu er að ræða, sem hafa minnst 5 bíla eða tæki, er heimilt að selja gegn mánaðarviðskiptum, enda sé greitt aukagjald, kr. 25,00 fyrir hverja afgreiðslu, vegna vinnu við bók- hald og innheimtu. Öll sala til húsakyndinga skal fará fram gegn stað- ‘ greiðslu. Ef viðskiptamaður af einhverjum ástæð- um greiðir ekki við afhendingu vörunnar skal reikna sérstakt aukagjald, kr. 100,00, fyrir hverja afhendingu, vegna vinnu við bókhald og innheimtu. Önnur vörusala olíufélaganna beint til notenda skal að jafnaði vera gegn staðgreiðslu. Þó skal olíufé- ábyrgða fyrir olíuförmum frá Rússlandi, og hélzt það ástand fram yfir miðjan ágústmánuð, en á því tímabili höfðu útflytjendur í Rússlandi sent þrjá olíufarma til félaganna, án þess að ábyrgðir væru opnaðar fyrir þeim samkvæmt gildandi samningúm við Rússa, sem olíufé- lögin hafa tekið að sér að framkvæma í umboði ríkis- stjórnarinnar sem samningsaðila gagnvart hinum rúss- nesku útflytjendum. r Til þess að koma í veg fyrir að olíuinnflutningur stöðvaðist, féllust bankarnir loks á, að opna nauðsyn- legar ábyrgðir, gegn því skilyrði, að olíufélögin tækju upp nýja hætti, að því er varðar útlán og innheimtu. í samræmi við þetta hefur nú verið ákveðið, að taka upp í allri olíusölu staðgreiðsluviðskipti, að svo miklu leyti sem mögulegt er. Til þess að hvetja til stað- greiðsluviðskipta hafa verðlagsyfirvöld heimilað olíu- félögunum að taka sérstakt aukagjald,. ef viðskipti eru ekki staðgreidd. \

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.