Þjóðviljinn - 22.02.1967, Síða 8

Þjóðviljinn - 22.02.1967, Síða 8
g SfiBA— MóEWELJíiMEi — MáðuikudegMr 22. Mmaáat 1Ö60. T var eins og kvíði mrnn hefði hjaðnað að mun. Með röskleika og djörfung átti þetta að geta tekizt. Mariowe andvarpaði og lét fallast í annan djúpa stólinn hjá aminum og síðan þerraði hann sveitt ennið með vasaklútnum. Báðdr áheyrendur hans drógu andann djúpt. — Alli annað vitið þið, sagði hann. Hann tók sígarettu úr öskju á borðinu og kveikti í henni. Trent tók eftir því að hönd hans titraði lítið eitt ogum leið sá hann að hendur hans sjálfs vora ekki aiveg lausarvið skjálfta. — Það voru skómir sem ljóstr- uðu upp um mig við yður, hélt Marlowe áfram eftir nokkra þögn. — Þeir meiddu 'mig með- an ég var í þeim, en mér datt ékki í hug að þeir hefðu rifnað neins staðar. Ég vissi að ég mátti hvergi skilja eftir fótspor mín í mjúkum jarðveginum í kringum líkið eða milli- þessog hússins, og þessvegna færði ég hann úr skónum og tróð mér í þá strax ög ég var kominn inn um hliðið. Ég skildi eftir skóna mína ásamt jakkanum og frakk- anum skammt frá Iíkinu og setl- aði að nálgast það- síðar, Það var skelfilegt að færa líkið úr ytri fötunum og klæða það seinna í brúnu fötin og skóna og setja smádótið í vasana og enn verra var að taka tennumar út úr honum. Höfuðið — en það er ekki vert að tala um það. Ég fann ekki svo mjög til þess þá. Ég var að bjarga mínu eigin höfði úr snörunni, sfciljið þið. Ég vildi að ég hefði haft hugsun á að draga skyrtulíningamar niður Pg binda skóreimarnar snyrtilegar. Og það vora mistök að setja úrið í skakkan vasa. En þetta varð allt að gerast í svo miklum flýti- — En yður skjátlaðist þó um whiskýið. Ég fékk mér einn væn- an drykk en ekki meira; en ég hellti í pela sem var í skápnym og stakk honum í vasann. Ég átti framundan skelfingamótt og ég vissi ekki hvernig ég gæti afbor- ið hana- Ég varð að fá mér hressingu meðan á hinni löngu ökuferð stóð. Þér tailið um tím- ann sem það tæki að aka til Southampton í skýrslunni yðar. Þér segið að til þess að komast á leiðarenda klukkan hálfsjö að morgni í þessum bíl, yrði mað- ur að leggjai af stað frá Marl- stone ekki seinna en á miðnætti, jafnvel þótt hann æki eins og óður maður. Ég var ekki bú- inn að hafa fataskipti á líkinu, Hárgreiðslan Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinu og Dódó Laugav. 18, III. hæð (lyfta) Sími 24-6-16. PERMA Hárgreiðsiu- og snyrtistofa Garðsenda 21. SÍMI 33-968. lagfæra hálsbindið og allt það fyrr en klukkan tiu mínútur yf- ir tólf Og þá átti ég eftir að fara að bílnum og ræsa hann. En ég geri naumast ráð fyrir að nokkur annar maður hefði teflt á þær hættur sem ég gerði í bílnum þessa nótt án framljósa. Það fer hrollur um mig þegar, ég hugsa um það núna. — Það er ekki mikið um at- hafnir mínar í húsinu að segja. Eftir að Martin' fór út, í- hugaði ég vandlega hvað gera skyldi, og ég tæmdi skotin úr byssunni og hreinsaði hana vandlega og notaði vasaklútinn minn og pennahylki á skrifborð- inu. Ég setti einnig seðlabúntin, veskið og demantana í skrif- borðsskúffuna sem ég opnaði og læsti aftur með lykli Mander- Bons- Það var dálítið taugastríð að fara upp á loftið, því að þótt ég væri kominn úr augsýn Mart- ins sem sat niðri í búrinu, var ekki óhugsandi að éinhver væri á ferli á efri hæðinni. Stundum hafði ég rekizt á frönsku bem- una þegar allir aðrir voru gengnir til náða- Ég vissi að Bunner svaf fast. Mér hafði skil- izt að frú Manderson væri yfir- leitt sofnuð klukkan ellefu; mér hafði stundum dottið í hug að hæfileiki hennar til að njóta svefns hefði gert sitt til að við- halda fegurð hennar og yndis- "þokka þrátt fyrir hjónaband sem við vissum allir að var van- saelt. En samt var það erfitt að ganga upp stigann og vera reiðu- búinn að hörfa aftur niður í bókastofuna við minnsta hljóð að ofan- En ekkert gerðist. — Hið fyrsta sem ég gerði þegar upp í ganginn kom, vanr að fara inn í herbergi mitt og setja skammbyssuna og skot- hylkin í kassann aftur. Þá slökkti ég ljósið og læddist 'inn í herbergi Mandersons. — Þið vitið hvað ég þurfti að gera þa<r. Ég varð að fara úr skónum og setja þá út fyrir dymar, skilja eftir jakka Mand- ersons, vesti, buxur og svarta slifsið, tæma vasana, velja föt og bindi og skó harnda líkinu og setja lausa góminn í skálina, sem ég færði frá vaskinum og að náttborðinu og skildi þá eft- ir þessi fingraför. Förin á skúff- una hef ég trúlega sett þegar ég lokaði henni eftir að ég var bú- inn að ná í slifsið. Þá varð ég aö leggjast í rúmið og bæla það. Þið vitið allt um þetta — allt nema hugarástand mitt, sem þið getið ekki gert ykkur í hugar- lund og ég get ekki lýst- — Verst af ööu var, þegar ég var nýbyrjaður >og frú Mand- erson talaði til mín innanúr her- bergi sínu, þar sem ég hélt að hún væri í fastasvefni. Ég hafði tekið þann möguleika með, — það vair hugsanlegt að þetta gerðist; en samt munaði ekki miklu að ég tapaði mér- Samt.. — Jó, ég get sagt ykkur þetta; ef svo óliklega vildi til að frú Manderson væri vakandi og gerði mér þannig ókleift sA komast út um gluggann á her- þergi hennar, hafði ég ætlað mér að vera um kyrrt í nokkra tíma, hraða mér síðan útúr húsinu án þess að tala við hana, og fara útum aðaldymar. Þá væri Mart- in kominn í rúmið. Það kynni að heyrast til mín en enginn myndi sjá mig. Ég hefði getað gert það við lfkið sem ég ætlaði mér og fflýtt mér síðam sem mest ég mátti til Southampton. Munurinn hefði aðeins verið sá, að ég hefði ekki haft ótvíræða fjarvistarsönmm með því að mæta á gistihúsinu klukkan hálfsjö. Ég hefði getað bætt bað upp með því að aka beint niður að h^n og gera fyrisEspumir mínan- þar á áberandi háitt Ég" gæti alla vega verið kominn þangað löngu áður en báturinn færi á hádegi. Ég gat ekki séð að neinn gæti gtunað mig um gl^epinn hvort sem væri, en þótt svo væri og ég hefði ekki komið í áfangástað fyrr en Múkkan tíu, þá hefði ég reyndar ekki getað sagt: — Það er ógerningur að komast alla leið til Southampton á svona skömmum tíma. Ég hefði einfaldlega orðið að segja, að ég hefði tafizt vegna bilunar á bíln- um eftir að ég skildi við Mand- erson klukkan hálfellefu og skorað á viðkomandi að sanna að ég hefði átt hlutdeild i glæpnum. Það hefði ekki verið hægt. Byssan lá í herberginu mínu og hver sem var hefði get- að notað hana, jafnvel ef hægt hefði verið að sanna að einmitt sú byssa hefði verið morðvopn- ið. Enginn gæti með sanngirni setf mig í samband við morðið,. svo framarlega sem álitið var að það hefði verið Manderspn sem kom heim síðar um kvöldið- Ég var sannfærður um að engum dytti slík fjarstæða í hug. Samt sem áður vildi ég reyna að tryggja mér næstum pottþétta fjarvistarsönnun; ég vissi að þá yrði ég tíu sinnum öraggari um minn hag- Og þegar ég heyrði af andardrættinum að frú Mander- son var sofnuð aftur, læddist ég í skyndi yfir herbergið hennar á sokkaleistunum og var kominn niður á grasfflötina með pinkil- inn minn innan tíu sekúndna. Ég held ég hafi ekki gert hin minnsta háva^a. Gluggatjaldið var úr mjúku, þykku efni sem ekki skrjáfaði í, og þegar ég opnaði glerhurðina ögn meira, heyrðist ekki neitt. — Segið mér, mælti Trent þegar Mariowe þagnaði til að kveikja sér í nýrri sígarettu, — hvers vegna þér hættuð á að fara gegnum herbergi frú Mand- erson til að komast út úr hús- inu? Ég sá reyndar fljótlega að glugginn varð að vera þeim megin í húsinu; annar.s var hætta á að Martin sæi til yðar útum gluggann sinn eða þá einhver annar af þjónustufólkinu. En þama vora þrjú mannauð her- bergi; tvö gestaherbergi og setustofa frú Manderson. Ég hefði talið það öruggara að loknum þessum nauðsynlegu at- höfnum í herbergi Mandersons, aö fara hljóðlega útúr því aftur og komast útum einhvem af gluggunum í þeim herbergjum.. .. Sú staðreynd að þér öárað uro; það herbergi, bætti hann viði þurriega, — hefði ef upp hefði komizt getað vakið vissar grun- semdir með ti'lliti til frúarirm- ar sjálfrar. Ég tield þér skiljið rnig. Mairiowe sneri sér að honum rjóður í andliti. — Og ég held þér skiljið mig, herra Trent, sag'ði hann og rödd hans skalf lítið eitt, — þegar ég segi, að hefði annað hvarflað að mér þá, hefði ég fremur teflt á hvaða hættu sem var en fara þessa leið .... O, jæja, hélt hann á- fram rórri í fasi. — Ég býst við að fyrir hvem þann sem ekki þekkti hana hefði hugmyndin um hlutdeild í morði eiginmanns- ins ef til vill ekki verið svo ó- lýsanlega fjarstseðukennd. Fyrir- gefið hvernig ég tek til orða- Hann horfði með athygli á sígarettuglóðina, lét sem hann tæki ekki eftir reiðiglampanum sem blossaði sem snöggvast upp í augum Trent við orð hans og hreim. En sú geðshræring stóð að- eins andartak. — Athugasemd yðar hefur fullan rétt á sér, sagði Trent með álíka rósemi. — Ég trúi því líka mætavel að yður hafi ekki komið annar möguleiki til hugar þá. En burt- séð frá þvi, hefði verið örugg- ara að gera það sem ég minnt- ist á; að fara útum glugga i ein- hverju af auðu herbergjunum. — Ha'ldið þér það? sagði Mar- lowe- — Ég get aðeins sagt, að ég hefði aldrei haft kjark til þess. Ég get sagt yður, að þeg- ar ég kom inn í herbergi Mand- ersons, lokaði ég úti mikinn hluta af skelfingu minni. Vand- inn var með mér í lítillj stofu og aðeins eitt sem gait reynzt hættulegt: að frú Manderson vaknaði. Þessu var næstum lok- ið; ég þurfti aðeins að bíða þar til hún var örugglega sofnuð eftir að hafa rumskað amdartak. 6em ég hafði jafnvel gert ráð fyrir að hún gerði. Leiðin var opin ef ekkert slys kæmi fyrir. En setjum nú svo að ég hefði opnað dyrnar fram á ganginn, haldandi á fötum og skóm Mand- ersons og farið snöggklædtíur og á sokkaleistunum eftir gang- inum til að fara inn í eitt aí auðu herbergjunum. Tunglskin- ið lýsti upp ganginn gegnum gluggann á gaflinum. Þótt ekki sæist framan í mig, gæti eng- inn villzt á mér og Manderson þegar ég stóð uppréttur- Martin hefði getað verið á gamgi um ^/fl# frá MjilkBrflíi Flóaiiianna Selfnssi Fyrst umsinnverður flessi osluraðeins fáanlenur í Osla-ng smjörbúíini Snorraflraut 54 Osta-og smjörsalan s.f. SKOTTA — Þarftu endilega að sitja þamai og glápa á okkur? POLARPANE EINKAUMBOD MARS TRADIIVIO OO _____LAUGAVEG 103 SIMI 17373 Póstmannafélag íslands Framhoðsfrestur Samkvæmt lögum P.F.Í. er ákveðdð að við!hafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kosnmgu stjómar og annarra trúnaðarstarfa. Tillögum skal skila ti'l kjörstjórnar í pósthúsinu í Reykjavik fimmtud. 2. marz kl. 22—24 og föstud. 3. marz.Jrl. 22—24. Tiliögur, sem síðar kunna að bera&t, verða ekki teknar til grema. Reykjavík, 21. 2. 1067. Kjörstjórnin. TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIRS IINOAROATA * REYKJAVlK SlMI S1240 SlMNEFNI ■ SURETY

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.