Þjóðviljinn - 08.03.1967, Page 1

Þjóðviljinn - 08.03.1967, Page 1
Miðvikudagur 8. marz 1967 — 32. árgangur — 56. tölublað. Bóhald Friiríks Jörgensens verBur ennþá lengi í endurskoBun A sínura tíma var fyrirskipud dómsrannsókn á útflutningsstarf- semi Friðriks Jörgensens ogvoru bókhaldsgögn sett í endurskoðun hjá Ragnari Ólafssyni, hrl., en Ólafur Þorláksson var skipaður rannsóknardómari í málinu af hálfu Sakadóms Reykjavíkur. Þjóðviljinn hafði samband við Ólaf Þorláksson í gærdag og spurði hann hvað málinu liði, — kvað Ólafur engar aðrar aðgerðir hafa verið framkvæmdar írann- sóknarskyni, en setja bókhalds- gögnin i endurskoðun og var að heyra á Ólafi, að það tæki lang- an tíma að afgreiða málið á því stigi. <S>_ Hvað líður radarspsglum söndunum? Fyrir um það bil tveim ár- um samþykkti Alþingi þings- ályktunartillögu frá Geir Gunnarssyni alþingismanni um að setja upp radarspegla á suðurströndinni, en strand- lengjan er þar víðast svo lág, að hún kemur ekki fram á radar hjá bátum eða skipum og er þannig brýn þörf fyrir slíka spegla á þessum slóð- um. Þjóðviljinn hafði samband í gærdag við Sigurjón Eiríks- son, eftirlitsmann með vitum, og spurði um framkvæmdir á þessum málum í sambandi við nýorðið strand Bjarma II. frá Ðalvík við Baugsós, — skammt fyrir austan Stokks- eyri. Sigurjón kvað afdrif þess- arar þingsályktunartillögu hafa orðið þau í milliþinga- nefnd í fyrra, að samþykkt hefði verið að byggja radíó- vita og radarstöð í Skarðsfjör- um á Meðallandi, og væri ætl- Unin að hefjast handa næsta sumar um byggingu þessa vita og radarstöðvar. En ein- hvernveginn heyrðist okkur á Sigurjóni, að hann væri samt dauftrúaður á efndir í þess- um málum svo fljótt. í fjarlægari framtíð er svo ætlunin að reisa radarépegla, — til dæmis kemur ekki fyrr- greind radarstöð í tkarðsfjör- um að gagni fyrir báta við Baugsós. * ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Fræðslu- og skemmtikvöld ÆFR Annað kvöld kl. 21 flytur Haukur Helgason síðara er- indi sitt um þróun kapítal- iskra framleiðsluhátta feftir 1930. — Sjá nánar í blaðinu á morgun. SJávarútvegurinn getur lengi enn orð/ð gjöfulasti atvinnuvegurinn Markviss, skipuleg framleiðslustefna komi í stað happa- „Við Alþýðubandalagsmenn lýsum þeirri sök á hendur núverandi stjómarflokkum og stjórnar- stefnu að eftir eitthvert mesta og lengsta góðær- isskeið sem yfir þjóðina hefur komið, skuli s.jávar- vægar greinar höfuðatvinnuvegar okkar, sjávar- útvegs vera að þrotum komnar“, sagði Gils Guð- mundsson I lok ræðu sinnar um „bjargráð“ ríkis- stjórnarinnar á Alþingi í gær. „Við lýsum þeirri sök á hendur stjórnarstefnunni, að um leið og yfirbygging þjóð- félagsins hækkar stöðugt og tútnar út, skuli undirstöðurn- ar látnar grotna niður. Eigi okkur Tslendingum að takast að forða algeru hruni verður að taka upp algerlega nýja stefnu gagnvart undirstöðu- atvinnuvegum þjóðarinnar og þá alveg sérstaklega sjáv- arútvegi. Við þurfum að hag- nýta fjármagn okkar stórum betur en nú er gert í þágu framieiðslunnar. Með skipu- legu átaki verðum við að endurnýja fiskiskipaflotann. tryggja honum og fiskiðnað- inum viðhlitandi rekstrar- aðstöðu svo að þessar mikil- vægu atvinnugreinar geti haldið hér uppi góðum og batnandi lífskjörum. Þetta er hægt ef vilji er fyrir hendi og skilningur á því að hér er undirstaðan, grunnurinn sem afkoma okk- ar byggist að verulegu leyti á. Markviss og skipuleg framleiðslustefna verður að taka við eftir að hin svokall- aða viðreisn, öðru nafni happa- og glappastefnan, hef- ur nú gengið sér rækilega til húðar. Þetta frumvarp mark- ar enga stefnubreytingu. Það er einungis lítil og léleg bót á gamalt og slitið fat. En meðan ekki er um að ræða að losna með öllu við aflóga glappastefnu Gils Guðmundsson. viðreisnarflíkur er bótin trú- lega skárri en ekki neitt“! Gils héít áfram ræðu sinni frá mánudeginum á fundi efri deild- ar Alþingis í gær. Ræðumaður rakti hvemig happa og glappastefna stjómar- valdanna hefur komið fram í fiskiðnaðinum. Reynt hefði ver- ið að hafa fiskverðið óeðlilega og. heimskulega lágt, og hefðu sjómenn borið óeðlilega lítið frá borði af þeim sökum, en útgerð- armenn reynt að bæta sér upp fiskverð með því að koma upp fiskverkunarstöðvum. Þannig hafi víða risið upp litlar fisk- verkunarstöðvar rétt hjá stór- um og afkastamiklum frystihús- um og tekið frá þeim hráefni. Nú loks séu stjómarvöldin að koma auga á hve óhagstasð þessi þróun er þjóðfélaginu og farið að tala í þessu fnumvarpi um nauðsyn skipulagsbreytingar í fiskiðnaðinum. ★ Efla þarf flotann. Nú telur ríkisstjómin það nauðsynlegt að stórfækka frysti- húsum og stækka þau sem eftir verða. Þetta kann að vera rétt- mætt að vissu marki. En sú Framhald á 3. síðu. Þátturinn felldur niður úr dagskrá útvarpsins Á fundi útvarpsráðs í gærkvöld var ekki aðeins fellt endanlega að flytja þátt þann um lækna og heilbrigðisþjónustu sem „frestað“ var í síðustu viku, heldur var og ákveðið að fella gersamlega niður úr dagskránni þáttinn „Þjóðlíf“ sem verið hefur fastur liður í vetur og notið vinsælda. Alsssennur fundur um þjóð- frelsis- og utunríkismál Jónas. Æskulýðsfylkingin á Akranesi efnir til almenns fundar um þjóðfrelsis- og utamríkismál í félagsheimilinu Rein n.k. laugardag kl. 15,30. Á fundinum verður fjallað um hina ýmsu þætti þjóðfrelsis- og utanríkismála, afstöðuna til Atlanz- hafsbandalagsins, styrjöldina í Víetnam o.fl. RÆBUR FLYTJA: JÓNAS ÁRNASON, rithöfundnr SVAVAR GESTSSON, stud. jur. JÓN HANNESSON, menntaskólakennarl. Sýnd verður stutt kvikmynd frá Víetnam. Pétur Pálsson syngw steflwr. ÆSKULVÐSFYI.KINGIN Á AKRANESI. Fyrir fundinum lágu undir- skriftir hátt á þriðja hundrað út- varpshlustenda úr öllum stjórn- málaflokkum undir áskorun þess efnis að útvarpað yrði óbreytt- um þættinum „Þjóðlíf", sem var á dagskrá 2. marz og fjalla átti um lækna og heilbrigðisþjónust- una. 'Meðal undirskrifenda var fjöldi menntamanna, prófessorar, menntaskólakennarar. vísinda- metin. fræðimenn, stúdentar, fjölmargir læknar, þar á meðal stjórnarmenn Læknafélags fs- lands, læknastúdentar og hjúkr- unarkonur; einnig listamenn, rit- höfundar. leikarar. forustumenn almannasamtaka, verkamenn, bændur, embættismenn, lögfræð- ingar, skrifstofufólk og bifreiða- stjórar. Fulltrúar stjórnarflokkanna í útvarpsráði. sem „frestúðu" þættinum í síðustu viku, brugð- ust nú þannig við að fella end- anlega að hann yrði fluttur! Enn- fremur ákváðu þeir að fella framvegis úr dagskránni þáttinn „Þjóðlíf" og kórónuðu með því þá pólitísku vanstillingu sem nú einkennir stjórnarflokkana hvar- vetna. Fyrst þannig er ástatt þremur mánuðum fyrir kosning- ar, hvers má þá vænta þegar lengra líður á vorið? Thor Vilhjálmsson Kevin Pahner Marat/Sade Stúdentafélag Háskólans fyllir Þjóðleikhúsið í kvöld. Og ekki aðeins til að sjá Iofaða sýningu á verkl Pet- ers Weiss um Marat og Sade heldur og til umræðu um verkið og sýninguna. Kvöldið hefst á því að Thor Vilhjálmsson flytur erindi- Um verkið í Þjóð- leikhúskjallaranum og hefst það kl. 7,15. Og að lokinni sýningu mun leikstjóri, Ke- vin Palmer, og leikarar gera grein fyrir verkinu og sýningum eftir því sem fyrirspurnir gefa tilefni til. Það er ekki oft að rætt er um leiksýnlngar í leik- húsi — fyrir tveim árum var þetta reynt á sýningu Grímu á Reiknivél Erilings E. Halldórssonar. Þeimmun meiri ástæða er tilaðfagna þessu tiltæki, sem mun hugsað sem tilraun til að „virkja áhorfendur“, gera list leikhússins að þeirra list. Handtekinn fyrir byssustuld Jón I fyrrinótt kl. í'úmlega fjögur varð lögx-eglan í Rvík vör við mann á Spítalastíg sem hagaði sér fremur undarlega. Þegar bet- ur var að gáð sást að hann hafði stungið inn á sig tveimur riffíl- Var maðurinn fluttur í gæzlu- varðhald og er mál hans í rann- sókn en það liggur Ijóst fyrirað rifflunum og öðru sem hann hafði á sér hefur hann stolið í Vest- urröst í Garðastræti, fyrr um nóttina.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.