Þjóðviljinn - 21.03.1967, Side 2
2 SíÐA — ÞJÓÐVELJINN — Þtiðjudagar 21. marz 1*967.
frumsýnir nýj-
Diirrnmatts
Þann 31. þ.m. frumsýnir
Þjóðleilchúsið nýjasta leikrit
Friedrich Diirrenmatt, Loft-
steininn, í þýðingu Jónasar
Kristjánssonar, skjaiavarðar.
Loftsteinninn var fyrst frum-
sýndur 20. janúar 1966 í Ziirich
og vakti strax gífurilega athygli
eins og öll leikrit eftir þennan
merka og sérkennilega höfund.
Fyrir skömmu var leikurinn
frumsýndur á Konunglega leik-
húsinu í Kaupmannahöfn og
hefur verið sýndur þar við met-
aðsókn undanfamar vikur.
Friedrich Durrenmatt er
fæddur 5. janúar árið 1921 í
Konofingen, smáþorpi í grennd
við Bem. Faðir hans var prest-
5 ur, mótmælendatrúar. Dúrren-
matt lagði stund á heimspeki
og guðfræði við helztu. háskóla
í Sviss og er nú búsettur í Zii-
rich, þar starfar hann sem rit-
höfundur og gagnrýnandi.
Tvímælalaust er Dúrrenmatt
einn áhrifamesti og merkasti
rithöfúndur, sem nú ritar á
þýzka tungu. Hann hefur skap-
að sér sterkan og sérkennileg-
an stíl og á marga aðdáendur
um víða veröld, en heíur eihn-
ig verið umdeildur af öðrum.
Helztu leikrit hans eru: Kóm-
úlus mikli, flutt hér í útvarp-
inu fyrir nokkru, Sú gamla
kemur í heimsókn, og Eðlis-
fræðingamir, en bæði þessi
leikrit voru sýnd hjá Leikfé-
lagi Reykjavíkur fyrir nokkru,
þá hefur hann einnig skrifað,
Hjónaband herra Missisippi og
Herkúlus og Ágíasarfjósið, en
það var sýnt hjá Leikhúsi æsk-
unnar. Auk þess hefur hann
skrifað nokkur útvarpsleikrit.
Eins og fyrr segir er Loft-
steinninn nýjasta leikrit Dúrr-
einmatts og er það fyrsta leikrit-
ið, sem Þjóðleikhúsið sýnir eft-
ir hann.
Loftsteinnin er gamanieikur
og fjallar um frægt nóbelsskáld,
Wolfgang Schwitter, sem bíðtir
dauða síns með óþreyju. En það
gengur ekki hljóðalaust fyrir
frægt nóbelsskáld að deyja og
mikið vatnsmagn . rennur til
Sjávar áður en Schwitter tekst
það. Þessi skrumgjama aug-
lýsingaveröld, sem við lifum 1,
gefur okkur ekkj næði til að
deyja í friði, og eins og nóbels-
skáldið kemst að orði í leik-
lok: „Þið eruð alltaí að trufla
mig við að deyja."
En þótt mikið sé rætt um ■
dauðann í þessum leik þá fjall-
ar hann ekki um dauðann
heldur upprisuna, Wolfgang
Schwitter, nóbelsskáld, er Laza-
rus okkar tíma.
Á yfirborðinu virðist, að leik-
rit Dúrrenmatts séu hörð á-
deila á samtíðina og þjóðfélag-
ið í heild. Þó fjaila þau fyrst
og fremst um grundvallaratriði,
en eru klædd í samtímabúning.
Þau fjalla ekki um velferðar-
ríki, hvorki um kapítalisma né
kjamorkustyrjöld, heldur um
ábyrgð mannsins, svik, sekt,
frelsi og réttlæti og þá fyrst og
fremst um siðferði í algerri
merkingu þess orðs.
Gísli Alfreðsson er leikstjóri
við þetta leikrit og er þetta
annað leikritið, sem hann
stjórnar hjá Þjóðleikhúsinu.
Leikmyndir eru gerðar af
Gunnari Bjarnasyni.
í Loftsteininum eru 14 hlut-
verk og leikur Valur Gíslason
aðalhlutverkið, nóbelsskáldið,
Wolfgang Schwitter. Aðrir leik-
arar eru: Ævar Kvaran, Bald-
vin Halldórsson, Bessi Bjama-
son, Rúrik Haraldsson, Helga
Valtýsdóttir, Kristbjörg Kjeld,
Sigríður Þorvaldsdóttir ogfleiri.
Um þessar mundir eru liðiu
40 ár frá því að Valur Gísla-
Friedrich Durrenmatt.
son lék sitt fyrsta hlutverk.
Fjörutíu ára leikafmælis Vals
verður minnzt með þessari
sýningu á Loftsteininum, ' þar
sem Valur leikur aðalhlutverk-
ið, nóbelsskáldið Wolfgang
Schwitter, eins og fyrr segir.
Valur Gíslason hefur venð
einn af aðalleikurum Þjóðleik-
hússins, frá því það tók tU
starfa árið 1950 og hefur leikxð
Valur Gíslason.
þar fleiri aðalhlutverk en nokk-
ur annar. Hann var áður í
mörg ár einn af aðalleikunxm
hjá Leikfélagi Reykjavíkur og
um margra ára bil í stjóm L.R.
Valur hefur starfað mikið að
félagsmálum fyrir stétt sína og
hefur hann gegnt formanns-
stöðu í Félagi íslenzkra leikara
í samfleytt 10 ár eða lengur en
nokkur annar.
starfsemi Félags
Aðalfundur Félags íslenzkra
bifreiðaeigenda var haldinn 28.
febrúar í Tjarnarbúð. Húsfyllir
var á fundinum enda féiagið
orðið mjög fjölmennt; félaga-
tala á öllu landinu nær 12 þús-
und. Lætur nærri að um 40%
bifreiðaeigenda séu nú félags-
menn í F.l.B. og mun það
hæsta hlutfallstala sem noltkurí
bifreíðaeigendafélag hefur.
Bifreiðatryggingar og
ferðamál
I skýrslu stjórnarinnar var
skýrt frá athugun á því, hver
áhrif afskipti F.Í.B. af bif-
reiðatryggingamálum hefðu
haft á - iðgjöld bifreiðatrygg-
inga. Samkvæmt athugun þess-
ari kom í ljós að félagsmönn-
um í F.Í.B, mun hafa sparazt
fjárhæð. sem nemur 25-30 milj.
króna á ári, vegna lækkaðra
bifreiðatryggingariðgjalda, sem
urðu fyrir atbeina F.Í.B. Á það
var bent að 1965 voru bifreiða-
tryggíngar sú ’ þjónusta, sem
talið var að rekin væri með
einna mestu tapi hér á landi
og iðgjaldahækkun óhjákvæmi-
leg. Fyrir frumkvæði F.l.B. var
Beðið
eftir skýrslu
J»egar það var sannað og
viðurkennt vestanhafs að
bandaríska leyniþjónustan
hefði um langt órabil lagt
fram stórar fjárfúlgur til ým-
iskonar félaga og alþjóðasam-
taka, sem áttu að heita 6-
háð á yfirborðinu, var þess
krafizt hér í blaðinu að ís-
lenzkar deildir þvílíkra sám-
taka gerðu hreint fyrir sín-
um dyrum. Samband ungra
jafnaðarmanna hefur nú
brugðizt við þeirri kröfu, en
það er aðili að Alþjóðasam-
bandi ungra sósíaldemókrata
sém sannað er að þegið hefur
fé frá bandarísku leyniþjón-
ustunni. Rakti Samband
ungra jafnaðarmanna fjár-
reiður sínar í alllangri grein-
argerð í Alþýðublaðinu,
kostnað af rekstri, tímarits-
útgáfu og húsakaupum, skuld-
ir í því sambandi og samskot
félagsmanna. Verður þessi
greinargerð að sjálfsögðu ekki
vefengd nema rök komi til.
Hins vegar greintíi sambandið
ekki sérstaklega frá tengslum
sínum við Alþjóðasamband
ungra sósíaldemókrata, þátt-
töku í þingum og ráðstefnum
og greiðslu ferðakostnaðar í
því sambandi.
Engu að síður eru þessi við-
brögð ungra jafnaðarmanna
virðingarverð og þurfa að
verða öðrum fordæmi. Til
þess er þó naumast að ætl-
ast að hliðstæðar greinargerð-
ir birtist frá Samtökum um
vestræna samvinnu og Varð-
bergi; þar er um að ræða
hreinræktuð agentasamtök
sem haldið er uppi opinskátt
með erlendu fjármagni. Hins
vegar ættu félagssamtök eins
og Frjáls menning að telja
sér skylt að gera hreint fyrir
dyrum sínum. Það hefur verið
sannað og viðurkennt vestan-
hafs að bandaríska leyniþjón-
ustan hafi lagt fram mjög
verulega fjármuni til alþjóða-
samtaka þeirra sem nefnd eru
Frjáls menning og til ein-
stakra deilda þeirra samtaka.
Af þessu tilefni hefur yerið
framkvæmd rannsókn annar-
staðar á Norðurlöndum og
niðurstöður hennar hafa nú
leitt til þess að verið er að
leggja niður skrifstofu sam-
takanna í Kaupmannahöfn.
Hliðstæð rannsókn hérlendis
ætti að vera þeim mun sjálf-
sagðari sem aðalleiðtogi sam-
takanna er nú Jóhhnnes Nor-
dal seðlabankastjóri; æðsta
trúnaðarmanni íslenzka ríkis-
ins í efnahagsmálum ber að
sjálfsögðu að afsanna það að
félagsskapur sem hann veitir
forstöffu hafi nokkur annar-
leg tengsl við leyniþjónustu
stórveldis. Þetta er þeim mun
sjálfsagðara sem í félagi við
seðlabankasx jórann hafa ver-
ið mikilsvirtir menningarleið-
togar, eins og Tómas Guð-
mundsson, sem auk menning-
arinnar er nú pólitískur sið-
gæðisvörður á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík. Raun-
ar ætti ekki að þurfa að leiða
jafn ágætum mönnum þessa
nauðsyn fyrir sjónir; sjálfs-
virðing þeirra ■ hlýtur að
nægja. — Austri.
tekið upp nýtt tryggingarkerfi,
iðgjöld voru lækkuð og tjóna-
bætur í sumum tilvikum aukn-
ar, laun skrifstofufólks og bif-
vélavirkja hækkuðu á tímabil-
inu um 20-40 prósent. Við þess-
ar ráðstafanir hvarf taprekstur
bifreiðatrygginga, og breyttist
raunar þann,-1;, að ^þetta er nú
talin eftirsott og. sæmilega
arðvænleg þjónustustarfsemi.
Félagið hefur eflt sambönd
sín við erlend bifreiðaeigenda-
félög einkum varðandi öryggis-
mál umferðarinnar, ferðaþjón-
ustu og ferðatryggingar. I þessu
sambandi má minnast á, að í
ráði er að taka upp á þessu
ári samskonar ferðatryggingar
og bifreiðaeigendafélögin á
Norðurlöndum veita félags-
mönnum sínum. Þá hefur F.Í.B.
fengið rétt til að gefa út svo-
nefnd tjaldbúðavegabréf (IAT
Camping Camet) og hafa all
margir ferðamenn notað sér þá
þjónustu.
Ráðstefna um vega- og
öryggismái
Þá var skýrt frá ráðstefnu
sem F.I.B. efndi til á Akureyri
dagana 19.-20. nóv. s.l. þar sem
rædd voru öryggismál og vega-
mál og skipulagsmál félagsins.
Voru samþykktar allmargar á-
lyktanir varðandi öryggismál og
vegamál og sendar þeim opin-
berum aðilum, sem um þessi
mál fjalla. 1 athugunum sem
gerðar höfðu verið um vega-
mál kom greinilega fram að
þeir einstöku skattar Sem bif-
reiðaeigendur hafa greitt af bíl-
um og rekstrarvörum til þeirra
hefðu nægt til þess að endur-
byggja og setja varanlegt slit-
lag á mikinn hluta hinna fjöl-
fömustu vega hér á landi.
Einnig kom fram á ráðstefnu
þessari ábending um það,
hvernig auðvelt er að spara út-
gjöld ríkisins, þannig að nóg
fé verði fyrir hendi, án nýrra
skatta, til þess að endurbyggja
og setja varanlegt slitlag á
flesta fjölfömustu vegi landsins
á næstu 5 árum.
Framhald á 7, síðu.
Framkvæmdamefnd byggingaáætlunar óskar eftir
til-boðum í smíði á handriðum á stiga og kjallara-
tröppum 6 fjolbýlishúsa í Breiðh o-ltshverfi.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu vora frá þriðju-
deginum 21. marz 1967 fyrir 1000,00 kr. í skila-
tryggingu.
ÚTBÚÐ
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar óskar eftir
tilboðum í hita- og hreinlætislagnir (efni og vinna)
í 6 fjölbýlishús í Breiðholtshverfi.
Útboðsgagna má vitja frá 21. marz 1967 gegn
3000,00 kr. skilatryggingu.
ÚTBOÐ
Framkvæmdanefnd byggingaráætiunar óskar eftir
tilboðum í sölu á miðstöðvarofnurh í 6 fjölhýlis-
hús í Breiðholtshvprfi.
Útboðsgagna má vitja frá 21. marz 1967 gegn 500,00
kr. skilatryggingu.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI7 SÍMI 10140
Frn Barístrendmgufélnginu
Barðstrendingafélagið í Reykjavífc býður að venju
fóUd úr Barðastrandarsýslu, sem búsett er í
Reykjavík og nágrenni, 60 ára og eldri, til sam-
komu í Skátaheimilinu við Snorrabraut 23. marz
n.k. (skírdag) kl. 14,30.
Tilhögun verður með sama hætti og verið hefur.
Gestir úr heimabyggðum veri einnig velkomnir.
Boðið gildir fyrir hjón, þótt annað þeirra sé ekki
úr Barðastrandarsýslu.
Að þessu sinni verða ekki send sérstök þoðskort
til fólks.
Barðstrendingafélagið.
Otboð
Tiiboð óskast um að byggja viðbyggingu við Vöggustofu
við Dyngjuveg, hér í borg, fyrir Thorvaldsensfélagið.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri, gegn 5090 króna
skilatryggingu
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 13.
apríl kl. 14,00 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800
tlí SOIU
Eignir H.f. Miðness í Sandgerði eru til sölu, ‘ef við-
unandi tiiboð fæst.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður.
BJÖRN SVEINBJÖRNSSON hrl.,
Sambandshúsinu.
Símar 12343 og 23338.