Þjóðviljinn - 01.04.1967, Page 2

Þjóðviljinn - 01.04.1967, Page 2
2 SfÐA — ÞJÖÐVXLJINN — Laugardagur 1. apríl 1967 Stefánsmót Skíðadeildar KR Um þessa helgi verður svo- nefnt Stefánsmót haldið við Skíðaskála KR í Skálafelli. Mót þetta er að venju haldiö á vegum skíðadeildar KR. Búizt er við mjög góðri þátt- töku í mótinu að þessu sinni og verða keppendur víðs vegar að —.— --------------—— ■' ' < Hve hátt svífur Phillips í dag? Meistaramóti íslands í frjáls- um íþróttum innanhúss verður haldið áfram í íþróttahöllinni í Baugardal x dag kl. 3.30. 1 dag verður keppt í stang- arstökki með þátttöku Banda- ríkjamannsins Dennis Phillips en hann er fyrsti stangar- stökkvarinn sem hingað kemur sem stokkið hefur yfir 5 m. Einnig verður keppt í hástökki, hástökki án atrennu. 40 m grindahlaupi, 1000 m hlaupi og hástökki og 40 m grindahlaupi kvenna. af iandinu auk þess sem nokkr- ir skozkir skíðamenn verða meðal þátttakenda. Mótið hefst í dag á keppni í stórsvigi. Keppt verður í fjór- um flokkum; flokki karla, 17 ára og eldri, drengja, 16 ára og yngri, kvenna, 16 ára og elldri og stúlkna, 15 ára og yngri. Keppni hefst kl. 16.00, en nafnakall verður kl. 14.30 við Skíðaskála KR. Farið er úr Reykjavík á mótsstað frá Umferðamiðstöð- inni kl. 12.30 og 14 og er fyrri ferðin fyrst og fremst ætluð keppendum. Á morgun verður keppt í svigi í sömu flokkum. Hefst keppnin kl. 10.30 og verður þá keppt í fl. drengja, stúlkna og kvenna. Kl. 14.30 heldur keppni á- fram og verður þá keppt í flokki karla. Nafnakall fer fram hálfri klukkustund áður en keppni hefst. Ferðir úr Reykjavik verða frá Umferðamiðstöðinrti kl. 9.00 og kl. 13.00. Barna- vinurinn mesti Við íslendingar erum sem kunnugt er sannkristnir menn. Við höfum meiri helgi á písl- ardauða Krists og upprisu en nokkrum öðrum atburði mannkynssögunnar, fellum niður störf dag eftir dag, lok- um kvikmyndahúsum, leik- húsum og dansstöðum svo að engin ótímabær léttúð spilli þeirri andlegu upphafningu sem fylgir helgum dögum. Enginn getur dregið í efa að Jesús er enn bróðirinn bezti. Hins vegar er hann ekki lengur barnavinurinn mesti. Dagana fyrir dymbilviku birt- ist aftur og aftur 1 Morgun- blaðinu auglýsing frá einni af þeim verzlunum höfuðborgar- innar sem hafa það fyrir verkefni að uppfylla óskir barnanna og gleðja þau. Á auglýsingunni var mynd af bandarískum hermanni sem geystist áfram með stálhjálm á höfði og hríðskotabyssu milli handanna, og textinn var svohljóðandi: „Fighting Yank er með liðamótum. Kostar kr. 175. 12 tegundir af fötum. Leikfangabúðin Laugaveg 11“. Væntanlega hafa margir for- eldrar hlaupið til og keypt hinn bandaríska stríðsmann handa börnum sínum svo að þau hefðu eitthvað til að rísla sér við á föstudaginn langa meðan klerkarnir rifjuðu upp söguna um mannssoninn og krossinn Og væntanlega hafa menn keypt allar fatategund- irnar tólf, en hverjum nýjum klæðnaði hefur trúlega fylgt nýtt vopn; hver veit nema einnig hafi verið hægt að fá eftirlíkingar af bensínhlaups- sprengjum og nálasprengjunni sem kölluð er lati hundurinn, að ógleymdum gassprengjun- um? Bandarískur þingmaður skýrði frá því fyrir skömmu að „The Fighting Yanks“ hefðu limlest eða deytt eina miljón barna í Víetnam síðan Y/4MK Lihkuitiyabúiliii l.;iugav«g 11, þeir hóíu innrásarstyrjöld sína. Hvað er þá sjálfsagðara en að í stað úreltra biblíu- mynda komi eftirlíking af hin- um mesta barnavini okkar tíma? Með liðamótum. — Austri. Tuttugu ára starf KSÍ: Knattspyrnan vinsælasta íþróttagreinin á Islandi verið hafa í sambandsstjórn og ekki verið hér nefndir eru Ámi Ágústsson og Jón Eiríks- son. 1 lögum Knattspyrnusamb. Islands segir, að tilgangur sam- bandsins sé að hafa yfirstjóm í málefnum knattspyrnuíþróttar- innar á íslandi og vinna að eflingu hennar. Segir þar enn- fremur, að sambandið komi fram sem fulltrúi ISl við er- lenda aðila. Knattspyrnusamband Islands er meðlimur í Alþjóðaknatt- spyrnusambandinu, Evrópu- knattspyrnusamb. og samtök- um knattspymusambanda á Norðurlöndum. Hafa knatt- spyrnulið tekið þátt f heims- meistarakeppni, Evrópukeppni og Norðurlandamótum. sem fram hafa farið á vegum þessara samtaka, og einnig hafa fulltrúar sambandsins tek- ið þátt í ráðstefnum, þjálfara- námskeiðum, dómaranámskeið- um og öðrum fundum, sem einnig hafa farið fram á veg- um þessara samtaka. Hafa fjölmörg lið, bæði eldri keppenda og yngri keppenda, farið utan og þá einnig tekið á móti jafnöldrum sínum ti) keppni hér á landi. Alls hafa íslenzkir knattspyrnumenn leik- ið 51 landsleik, þar af 43 A- landsleiki, 3 B-landsleiki, 1 landsleik fyrir leikmenn undir 24 ára, og 4 unglingalandsleiki. Knattspyrnusamband Islands hefur að sjálfsögðu frá stofn- un séð um öll landsmót í Fi-amhald á 9. síðu. ■ Um þessar mundir eru tuttugu ár liðin síðan Knattspyrnusamband íslands var stofnað og var því þá falið að hafa yfirstjórn í málefnum knattspymuíþróttarinnar á íslandi. Enn í dag er knattspyrnan vinsælasta íþróttagrein á íslandi eins og var er KSÍ var stofnað og segir það nokk- uð til um hvemig sambandinu hefur tekizt að rækja hlutverk sitt. í dag heldur KSÍ upp á 20 ára afmælið með móttöku gesta í Sigtúni, og vill Þjóðviljinn af því tilefni rekja hér nokkuð sögu sambandsins þessi tuttugu ár. Þegar Iþróttasamband ts- lands var stofnað árið 1912, var knattspyrna vinsælasta íþrótta- greinin hérlendis, en knatt- spyrna barst til landsins nokkru fyrir aldamótin. Stjóm ISI sá strax nauðsyn á að fræða al- menning sem bezt um þessa íþrótt, og árið 1916 gaf ISÍ í fyrsta sinn út knattspymu- lögin og stuttu síðar voru gefn- ar út almennar reglur ISl um knattspymumót. Með þessari útgáfu má segja að lagður hafi verið varanlegur gmnd- völlur að _viðgangi knattspyrn- unnar á íslandi. Stjórn ISl hafði ennfremiír á þessum árum forgöngu um að fá erlenda knattspymumenn til keppni hér á landi, og voru knattspymumenn úr Akadem- isk Boldklub frá Kaupmanna- höfn fyrstu erlendu knatt- spyrnumennirnir, er heimsóttu Island árið 1919. Þessi fyrsta erlenda heimsókn knattspymu- manna og mikill áhugi hér á landi fyrir knattspymunni opn- aði augu manna fyrir þeirri nauðsyn að fela stjórn knatt- spyrnumálanna einum aðila, sem eingöngu beitti sér fyrir útbreiðslu og eflingu þessarar íþróttagreinar. sáu forystumenn knattspymu- mála nauðsyn þess, að einhver aðili hér á landi kæmi fram fyrir hönd allra knattspymu- Stjóm ISl skipaði því á fundi sínum hinn 29. maí 1919 nefnd er nefndist Knatt- spymunefnd Reykjavíkur, og var starfesvið hennar að hafa forystu um knattspymumál t höfuðstaðnum. Nefndin var þannig skipuð: Egill Jakobsen (frá ÍSÍ), Pétur Sigurðsson (Fram), Erlendur Ó. Pétursson (KR), Magnús Guðbrandsson (Valur) og Axel Andrésson (Víkingur). Nefndarmönnum var það strax ljóst, að nauðsynlegt væri, ef reglulegur árangur setti að fást af störfum þeirra, að starfesvið nefndarinnar næði yfir stærra svæði en Reykja- vík, og lögðu þeir því til við stjóm ÍSÍ, að starfesvið þeirra næði til alls landsihs. Stjóm ISÍ féllst á þessa tillögu, og var nafni nefndarinnar breytt, og nefndist hún „Knattspymu- ráð lslands“. Hélzt þessi skip- an til ársins 1923, en þá er starfssviðið aftur eingöngu bundið við Reykjavík, og nafn- inu breytt í „Knattspymuráð Reykjavíkur". Höfðu þá verið stofnuð samtök knattspymu- manna annars staðar á landinu. Segja má, að með stofnun þessarar. nefndar hafi stjóm ISl á vissan hátt stofnað fyrsta sérsambandið, og að þetta hafi verið fyrsti vísirinn að Knatt- spymusambandi Islands. — Á næstu áratugum koma oft fram tillögur að stofnun Knatt- spymusambands íslands, en ali- ar tilraunir í þá átt strönduðu ýmissa orsaka vegna. Knattepymxxráð ReykjaVíkur ákvað árið 1946 að beita sér alvarlega fyrir stofnun sérsam- bands knattspyrnumanna og var ástæðan fyi-st og fremst aukin samskipti við útlönd, og Stjórn Knattspymiisambands Islands, sem sctið hefur óbreytt frá árinu 1958. Talið firá vinstri: Ingvar N. Pálsson, Guðmundur Sveinbjörnsson, Ragnar Lárusson, Björgvin Schram, form., Sveinn Zoega, Jón Magnússon og Axel Einarsson. manna á Islandi. Stjórn KRR var þannig skipuð; Jón Þórðarson, formaður; Ól- afur Jónsson, Sveinn Zoega, Sigurjón Jónsson, Lúðvfk Þor- geirsson. Ritaði stjóm KRR bréf til fé- laga og bandalaga úti á landi og barst síðan beiðni frá 6 sér- ráðum og íþróttabandalögum um að stofna sérsamband knattspyrnumanna. Stjóm ISÍ boðaði til stofnfundar Knatt- spyrnusambands Islands í Reykjavík hinn 26. marz ár- ið 1947. Þóverandi forseti ISÍ, Benedikt G. Waage, stjórnaði fundinum. Sjö íþróttabandalög vonx stofnaðilar að KSÍ, en nú em 17 íþróttabandalög aðilar að sambandinu.. Fyrsta ársþing KSl var hald- ið 23. nóvember 1947 og hafa árþing sambandsins ávallt verið haldin í nóvembermánuði ár hvert. Fyrsta stjóm sambands- ins var þannig skipuð: Agnar Kl. Jónsson, for-m. Björgvin Sdhram Pétur Sigurðsson Guðmundur Sveifibjörnsson Rútur Snomason. Núverandi stjóm sambands- ins er þannig skipuð: Björgvin Schram form., Guðmundur Sveinbjörnsson, Axel Einarsson, Ingvar N. Pálsson, Jón Magn- ússon, Ragnar Lámsson og Sveinn Zoega. Þessi stjóm KSÍ hefur verið óbreytt síðan 1958. Björgvin Schram núverandi for- maður hefur setið x' stjórn sam- bandsins frá upphafi, en for- menn hafa verið Agnar Kl. Jónsson, Jón Sigurðsson og Sig- urjón Jónsson, og aðrir sem Byggingarfélag verka- manna, Reykjavík Framvegis verður skrifstofan í Stórholti 16 opin til afgreiðslu; mánudaga og fimmtudaga kl. 4—7 síðdegis. Stjómin. Roamer 100% vatnsþétt V erksmið j uáby rgð Gæðin eru óvefengjanleg. ÍIERMANN JÓNSSON & Co. Lækjargötu 2

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.