Þjóðviljinn - 01.04.1967, Síða 7

Þjóðviljinn - 01.04.1967, Síða 7
kaugardagur L apríl 1967 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA r* kviHcmyndir* Ungverskur kvikmyndamaður gerir Snilldarverk um djöfullega maskínu harðstjórnarinnar Ungverjinn Miklós Janscó hefur gert kvikmynd úr sögu Ungverja sem nefnd hefur verið „Þeir vonlausu“ og hefur hlotið einróma lof í austri og vestri. Menn segja að sjaldan hafi verið sýnt af jafnsterku raunsæi hvernig hin kalda vél harðstjórnarinnar malar í sig manneskjurnar af djrif- ullegri grimmd og slóttug- heitum. ★ ar hefur sögu að Gedeon Raday greifi, lögregluherfor- ingi Habsborgara, hefur fengið það verkefni að útrýma skæru- liðaflokki Sándors Rózsa, sem hafði tekið þátt í Kossuth-upp- reisninni 1848 og enn berst gegn yfirvöldunum. Raday notar ým- islegar djöfullegar sálrænar pyndingar og aðferðir til að komast að þvi hvaða bændur eru í þessum flokki. Allmargir bændur eru handteknir og geymdir í virki nokkru. Morð- ingja einum er heitið lífi ef hann geti fundið uppreisnar- menn meðal fanganna. Hann nefnir tvo menn og unnustu eins — en lögreglan getur nú notað hann sem beitu og skilur nótt eina nokkra klefa eftir opna. Morguninn eftir finnst uppljóstrarinn kyrktur í klefa sínum — og lögreglan veit, að sá sem morðið framdi hlýtur að vera uppreisnarmaður sem vildi þagga niður í svikaran- um. Þennan mann finnur lög- reglan með brögðum — og tel- ur honum trú um að honum verði leyft að ganga í keisara- herinn sem foringi nýstofnaðr- ar riddaraliðssveitar og megi hann kjósa sér liðsmenn. Hann gerir það — og dæmir þar með til dauða félaga sína í bylting- arhreyfingunni. Og fleira er þarna af djöful- skap: feðgar eru látnir draga um það hvor þeirra skal hengd- ur — ungur maður á um það að velja að sjá unnustu sína barða nakta til bana eða koma upp um félaga sína, og svo mætti lengi telja. Ung kona er barin til bana tii að unnusti hennar ljóstri upp um félaga sína. Höfundur myndarinnar, Jans- có, fer m.a. svofelldum orð- um um myndina: „Ég hef unnið að hreinsun, að einföldun, í þessari mynd var kvikmynda- vél mín fyrst og fremst köld, þurr. .. Til eru menn sem halda því fram að ég hafi ekki vilj- að segja söguna af skæruliðum Sándors Rózsa heldur af fanga- búðum Stalíntíma. Hefði það verið ætlun mín, hefði ég búið til kvikmynd einmitt um þá staði, um þá tíma. Ég ætlaði ekki að vera „abstrakt" . . . — Ég held að „Hinir von- lausu“ . sé raunsæjust sögulegra mynda okkar . . . Raday greifa hafði verið sagt að slökkva gjörsamlega elda uppreisnar í Ungverjalandi. Þeir atburðir sem sýndir eru gerðust í raun og veru í virkinu í Szeged. Við höfum skjalfestar heimildir um aðferðir þær, sem notaðar voru til að knýja fram upplýsing- ar og við fundum einnig mynd- ir af skæruliðum Sándors Rózsa . . . Vestrænir gagnrýnendur hafa furðað sig á því, hve litlu fé var varið til að gera svo ágæta mynd. Janscó hefur og vikið að þessu atriði: Við höfum ekki peninga til þess í Ungverja- landi að mála heila borg upp á nýtt vegna sálrænnar kvik- myndar í litum (hér er átt við Auðnina rauðu eftir Antonioni) . . . Ég elska liti en hef ekki efni á að nota þá. . . . En frá hvaða landi sem við annars er- um, hvaða tungumál sem við tölum og hvaða ráð sem við höfum, þá eigum við eitt sam- eiginlegt kvikmyndamenn: erf- íðleikana við að búa til góða mynd. Thomas gleymir morðinu; uafnlausar fyrirsætur gera meira til- kali til athygli hans. Antonioni gerir kvikmynd á Englandi um Ungt fólk sem hvorki vill skilja né útskýra raunveruleikann í dag Sá marglofaði ítalski kvikmyndameistari. Antoni- oni, er nú að ljúka við kvik- mynd sem hann nefnir „Sál- arlíf tízkuljósmyndara11 og gerist hún í London og fara enskir leikarar með aðal- hlutverk. Antonioni segist hafa valið tízkuljósmyndara og fyrirsætur sér að verk- efni því að í þessu fólki birtist skýrast nýr lífsstíll, nýr hugsunarháttur — og háskasamlegur um leið. Aðalpersónan er Thomas, þekktur ungur ljósmyndari í London og um leið dæmigerður fulltrúi sinnar kynslóðar, seg- ir Antonioni, virkur og forvit- inn í allt að því sjúklegum mæli, hrifnæmur en ekki fær um að taka raunverulega þátt i nokkrum sköpuðum hlut og sannar tilfinningar eru honum lokuð bók. Dag nokkurn tekur hann eft- ir pari í skemmtigarði: ung kona er að tæla roskinn mann með sér út í runna — Thomas fylgir þeim eftir og tekur af þeim myndir. Konan verður hans vör og veitir honum eft- irför og heimtar af honum filmuna. Hún fer heim með honum og leggst með honum og fær fyrir filmu — en ekki þá réttu. Thomas fer nú að framkalla og tekur þá eftir ýmsu einkennilegu og að lok- um sér hann á myndunum mann í felum með skamm- byssu: hann skilur að hann hef- ur ekki aðeins orðið vitni að ástarævintýri heldur og morði. Og viti menn: í ofangreindum runna finnur hann roskna manninn myrtan. Thomas reynir að hafa upp á konunni, leitar aðstoðar félaga síns sem ekki er við- mælandi sakir eiturlyfja, lendir sjálfur í partí — og vaknar til þess að myndirnar, stúlkan og líkið eru horfin. Hann sér stúdenta með hvítmáluð andlit í einkennilegum leik í garð- inum þar sem morðið var fram- ið og Thomas fær áhuga á þessu skrýtna fyrirbæri: á- horfendur skilja, að hann mun ekki framar reyna neitt til að upplýsa glæpinn. það er sem ekkert hafi skeð. Framhald á 7. síðu. Ingmar Bergman kveður leikhúsið eftir 25 ár Leikhúsið - kirkja fyrir lítinn söfnuð! Kvikmyndaleikstjórinn heims- frægi, Ingmar Bergman, hef- ur unnið að því að setja á svið fyrir Þjóðleikhúsið í Osló leikrit Pirandellos Sex persónur leita höfund- ar, og er frumsýningin í dag. í samtali við blaðamenn segist Bergman með þessari sýningu kveðja leikhúsið, en hann hefur um 25 ára skeið sett a.m.k. þr jú leikrit á svið árlega — fyrir utan kvik- myndir sem hann hefur gert. Er Ingmar Bergman var spurður um ástæðuna fyrir þvi að hann kýs nú að hætta að starfa við leikhús svaraði hann því til að sér fyndist eitthvað svo þýðingarlaust að vinna við leikhúsið eins og það væri núna orðið. Leikhúsið er, segir hann. orðið eins og kirkjan, helgidóm- ur sem aðeins fámennur söfn- uður sækir meðan allur fjöld- inn gengur fram hjá. Milli þessa litla hóps og alls þorra manna er lofttómt rúm — þótt að til séu menn sem luma á þrá eftir leikhúsi og að með- al almennings sé leikhúsþörf. ☆ ☆ ☆ í mörg ár hef ég æpt mig hásan um að við þurfum að koma á fót barna- og æsku- lýðsleikhúsi sem standist strangar kröfur til að skapa grundvöll að lifandi leikhúsi fyrir fullorðna, sagði Ingmar Bergman. Hann telur annars að sjónvarpið hafi skerpt andstæð- urnar milli skáldskapar og veruleika. Listin hefur í dag það erfiða verkefni að vinna sér staðfestu við hlið þess drama úr okkar eigin veruleika sem blasir við okkur daglega á skerminum í stofu okkar. Berg- man segist vel geta hugsað sér að vinna í sjónvarpsleikhúsi, sem að hans áliti hefur ekki enn fundið sér endanlegt form: sjónvarpsleikhúsið er ekki kvikmynd og ekki leiksvið en það er mjög forvitnilegt list- form sem nota mætti til stórra hluta. ☆ ☆ ☆ Ingmar Bergman segist vera í þann veginn að byrja á nýrri kvikmynd sem frumsýnd verði um næstu áramót og verði hún „ólík öllum öðrum myndum mínum“. Hann segist ætla að láta lengra líða á milli kvik- mynda en áður. en tota tímann sem sparast til að gera í kyrr- þey tilraunir með túlkunarað- ferðir, sem hann muni ef til vill aldrei beita. Hann hefur þegar fundið leikara í tvö aðalhlut- verkin, en vill ekki skýra frá því hverjir þeir eru.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.