Þjóðviljinn - 17.08.1967, Síða 9

Þjóðviljinn - 17.08.1967, Síða 9
Fimmtudagur 17. ágúst 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 0 Hugleiðingar á ferð Framhald af 7. sídu. um að mæla ambögu, að það gerði hann aldrei, en hver hans setning grópaðist í minni ein- feldnings nokkurs, sem á hana hlýddi, en hann mælti að jafnaði fátt. En nú sný ég aftur að ráð- gátunni miklu um skáldmennt Borgarfjarðar. Ekki verður hún rakin til einstakra ætta, því skáldin voru sinn úr hverri áttinni, ekki til fátæktar, þó að hún væri almenn, ekki til vesældar, því hún var næst- um engin. En samt kom eitt góðskáldið frá efnaheimili, að ég held. Húsakynni voru þá almennt vond, eldiviður lakleg- ur, og allt ástandið svona rétt ámóta og á Tíbet, nema pynd- ingar voru ekki hafðar, það var búið að leggja þær niður. Glæða þá vond húsakynni skáldskaparmennt? Er það skáldi hollt að lifa svangur, syfjaður, svívirtur og hrak- inn? Ólafur Kárason hérna Ljósvíkingur væri vísastur t.il að geta svarað því. í suðri blasa við fjöll, sem líklega eru hin einu sönnu fjöll veraldar, bygging svo haglega gerð, að henni er einskins vant. En ekki var því að heilsa að þeir hefðu þetta fyrir augum, sem bezt hafa ort, síður en svo, nema einn. Hann sá þessi fjöll víst stund- um, hinir sjaldan og ekki nema þeir færu að heiman. Svo varla eru það fjöll, sem þessu hafa valdið. Ekki heldur sólarlög, því þau sjást engin úr dölum, en úr dölum voru þeir víst flestir, og eru þar sumir enn. Aftur á móti sá ég fjö-11 þessi, og ég kiknaði fyr- ir þessari snilld og varð að engu. Og sé nú ekki betur en að ráðgátan verði að bíða eftir þeim sem er þess betur umkominn en ég, að leysa hana. II Það lagði helkulda norðan úr Dumbshafi yfir þetta land í allt vor og langt fram á sum- ar, og holtasóleyin, sem er grasa bezt eins og einna feg- urst, þorði ekki upp úr mold- inni, og ekki spratt henni rjúpnalaufið, ekki blómið, ekki hárbrúðan. Hún faldi sig eins og dís eða vættur, sem ekki þorir lengur til af því kom- inn er ófriður í landið, og fleiri voru þau blóm, sem ekki spruttu. Ijósberi gerði það ekki, og saknaði ég ilms hans í holtum. Og núna, um mánaðamótin, þegar blóm blágresisins eiga að vera faliin, en fræin að dafna, eru blómin uppi við, og eru að bera sig að brosa við sólinni gegnum kuldann. en ógn eru þau lítil núna. Eins voru sætukoppamir. hrjáðir og hraktir af sumar- kuldum, og ekki sætubragð að, núna þegar ættu að vera komnir stórir grænjaxlar. Ekki sá ég Maríuvönd, þó að nú sé tími Maríuvanda, þessara beizku jurta sem gróa á harð- bölum. Sumar þetta getur ekki tal- izt meðal sumra, heldur vetra, en stundum fáum við vetur sem ekki getur talizt vera það, og ekki sumar heldur. Og mun vetra- og sumratal á íslandi fara á ringulreið. Þegar Einar Benediktsson sigldi upp í Borgarfjörð end- ur fyrir löngu á bát baróns- ins á Hvítárvöllum, þá rauk á hverjum bæ, því húsfreyjurn- ar voru komnar á faetur og farnar að hita kaffi. Til þess þurftu þær að sækja vatn í brunn, kveikja eld eða lífga hann falinn, leggja að mó eða tað, og kom fyrst reykur, hósta, svelgjast á, súrna í aug- um, pottarnir voru svartir að utan og innan, sótugir neðan og eins katlarnir, og fylgdi þessu sífelldur burður, vatns, mós og taðs, ösku, allt varð ryk- og reykfullt, aldrei sást út úr verkunum, enda leizt Einari síður en svo vel á þetta mannlíf og vildi breyta því, — og honum tókst það. Engum er það að þakka fremur en Einari Benediktssyni að nú snýr hver húsfreyja í Borgar- firði krana, ef hana vantar vatn, og takka, vanti hana eld. (Raunar ekki allar enn.) Segi menn svo að ekki sé gagn í skáldum. III Marga veit ég sem er illa við hrís og það þó að þeir hafi aldrei flengdir verið (eða voru þeir barðir með birki- vendi?), en fáa sem hatast svo við gras að þeir geti ekki ó- grátandi á það minnzt, og alls engan sem hatar mosa. Von- andi á eftir að koma upp i landinu mikil andúð á græn- gresi og jafnvel mosa. Það er ekki frítt við ég hafi heyrt að mosi spilli hrauni, og feli það fyrir auganu hve úfið það er og grátt, en annarsstaðar má mosi vaxa fyrir þeim. En þeg- ar grashatur verður jafn al- mennt og mosahatur og nú er barrtrjáahatur, þá verður dýrðlegt að lifa jafnt á sumri og vetri, þá verður landið svo náttúrlega bert og nakið eins og yngismey sem farið hefur af klæðum, að vísu dálítið hrjúft átekta, og litimir á henni ekki nema svo sem eins og í meðallagi og batna ekki þó komi fram á vor. Þeir sem ekki þola að sjá grænan lit, þeim líður þá vel. En fyrst verður að setja alla þjóðina í það að rífa upp gras, bæði á l.óttu og degi, en sumir rífa mosa, en aðrir hrísl- ur. Þá verða Eggjar á Meðal- landi ekkert einsdæmi, nema ögn hrjúfari en hitt, allt land- ið verður þá grásvart sem þær — og afarfagurt. Þegar kommúnistar komu til valda í Kína fyrir 18 árum, þá var öll þjóðin, 600 000 000, sett í það að drepa flugur. Þetta var gert með smeUum og skellum, og heyrðust skell- irnir til nálægra landa, urðu þá sumir hræddir. Mjög var þá kátt i Kínaveldi. Málfríður Einarsdóttir. Hugheilar þakkir færum við hinum mikla fjölda vina sem sýndu okkur alúð og samúð við andlát og útför JÓNASAR SVEINSSONAR, læknis, Ragnheiður Ilafstein Börn og tengdabörn. Bandaríkin ekki alheimslögregla BONN 14/8 — Bandaríkin eru ekki nein alheims- lögregla og þau eiga að láta Evrópumenn bera sjálfa ábyrgð á vörnum sínum, sagði bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Mike Mansfield í viðtali við vestur-þýzka vikublaðið Der Spiegel í dag. Mansfield hólt því fram, að áformin um að senda 36.000 bandaríska hermenn burt úr Evr- ópu og heim væru ekki nógu stór í sniðum. Þetta er ágætt fyrsta skref en aðeins sem slíkt, sagði hann, og það er sannarlega kominn tími til að Evrópulönd axli sjálf byrð- arnar af sínum eigin vörnum. Ég er þeirrar skoðunar, að Bandaríkjamenn eigi ekki að blanda sér inn í svæðisbundin á- tök í öðrum löndum, en við höf- Hvítum morð- ingjum sleppt í Detroit DETROIT 9/8 — Tveir hvítir lögregluþjónar, sem eru ákærðir fyrir að hafa myrt tvo unga blökkumenn í kynþáttaóeirðun- um í Detroit nýlega hafa verið látnir lausir gegn tryggingu þrátt fyrir mótmæli ákæruvaldsins. í ákærunni gegn þeim segir að þeir hafi í lögregluáhlaupi á veitingahús 2. júlí síðastliðinn húðskammað. lamið og að lok- um skotið tvo unga blökkumenn til bana með köldu blóði. Fulltrúi ákæruvaldsins mót- mæltiþ ví að þeir væru látnir lausir og segir, að samkvæmt fylkislögum sé ekki hægt að láta þá lausa sem ákærðir eru fyr- ir morð. Sósíal isteaf élag Reykjðvíkur Þar eð sumarleyfum er nú lokið er skrifstofa félagsins opin eins og venjuiega alla virka daga frá klukkan 10 — 12 f.h. og 5—7 e.h., en á laug- ardögum kl. 10—12 fyrir há- degi. — Sími skrifstofunnar cr 17510. Sósíalistafélag Reykjavíkui. Skipaður borg- arhagfræðingur um um alla veröld haft einhverja íhlutun í frammi, sagði öldunga- deildarþingmaðurinn. Mansfield var sammála þvi á- liti blaðamannsins, að það mundi skapa valdapólitík tómarúm í Evrópu ef brezki Rínarherinn og Vestur-þýzki herinn verða enn skomir niður, en bætti því við að hvorki Vestur-Þýzkaland né Bretland hafi staðið við skuld- bindingar sínar í Nato. Þau lönd sem hafa myndað þetta tómarúm verða að bera á- byrgð á þvi, sagði Mansfield. (gntinental Hjólbarðaviðgerðir OPIÐ ALLA DAGA (LfKÁ SUNNUDAGA) FRÁ KL. 8 TIL 22 GÚmívmUSTOFAN HF. Skipholti 35, Reykiavík SKRIFSTOFAN: sími 3 06 80 VERKSTÆÐIÐ: sími310 55 Allt til RAFLAGNA ■ Rafmagnsvorur. ■ Heimilistæki. ■ Útvarps- og sjón- varpstæki. Rafmagnsvöru- búðin s.f. Suðurlandsbraut 12. Sími 81670. NÆG BlLASTÆÐi. Stúdentar erlendis Munið aðalfundinn í kvöld klukkan 8 að CAFÉ HÖLL (uppi). Stjórnin Skólavörðustíg 13. UTSALA þessa viku. MIKILL AFSLÁTTUR Gerið göð kaup. ÖNNUMST ALLA HJÚLBARÐANÓNUSTU, FLJÓTT OG VEL, MED NÝTÍZKU TJEKJUM Á fundi borgarráðs í fyrradag var samiþykkt að skipa Sigfinn Sigurðsson i stöðu borgarhag- fræðings frá 1. septemfoer n.k. að telja. Fann enga síld á Hnnaflóanum Vélskipið Hugrún, sem ieitað hefur síldar á Húnaflóa undan- farna daga, hætti leitinni í fyrri- nótt. Hafði skipið enga síld fundið á þessum slóðum. Loftleiðir Framhald á 12. síðu. Engu að síður flytja Loftleiðir allmikinn fjölda af Þjóðverjum til Bandaríkjanna. Félaginu er kleift að bjóða upp á lægri far- gjöld en önnur flugfélög á flug- léiðinni yfir Atlantshafið vegna þcss að félagið er ekki aðili að Alþjóðasamtökum flugfélaga. Samkvæmt frétt AP háfa aust- ur-þýzk yfirvöld nú boðið Loft- leiðum Iendingarréttindi á Sch- önefeld-flugvellinum í Austur- Berlín og var lagt til að Loft- Ieiðir hæfu reglubundnar flug- ferðir milli Austur-Berlínar og Reykjavíkur. Búast má við að tilboð Austur- Þjóðverja verði sent til utanríkis- ráðuneytisinc, samgöngumálaráð- herra og flugmálástjóra — og síðan til Loftleiða. HELDUR HEITU OG KÖLDU ÚTI OG INNI NÆG BÍLASTÆÐI OPID ALLA DAGA FRÁ kl. 7.30-24.00 HJÓLBARDAYIDGERD KÓPAVOGS Kársnesbraut I - Sími 40093 Smurt brauð Snittur við Oðinstoii: Simi 20-4-90 HOGNI JONSSON Lögfræði- og fasteignastofa Bergstaðastræti 4 Sími 13036 Heima 17739 khbm \ V ♦ 4 4 c

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.