Þjóðviljinn - 23.08.1967, Side 3
Miðvilkudagur 23. ágúst 1967 — ÞJÖÐVTLJINTST — SÍÐA 3
DregiS úr geimrannsóknum í
Bandaríkjum vegna Vietnam
WASHINGTON 22/8 — Johnson foHseti sagði í
gær, að stríðið í Vietnam yrði til þess að fjárfram-
lög til geimrannsókna Bandaríkjamanna yrðu
skorin niður á þessu fjárhagsári urn hálfan milj-
arð dollara.
Forsetinn skrifaðd í gær und-
ir fjárlög fyrir geimrannsóknar-
stj'ómina og féllst á tillögur
þingsins um að skera niður hin
upphaflegu fjárlög.
í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu
segir að forsetinn hefði við aðr-
ar kringumstæður verið mótfall-
inn niðurskurði á fjárframlagi
tii geimrannsókna, en nú væru
kringumstæður þannig að nauð-
synlegt væri að skera niður öll
opinber útgjöld.
Fréttamenn segja að það sé
greinilegt að aukin útgjöld í
sambandi við stríðið í Víetnam
hafi reynzt þyngst á metunum
er dregið var úr geimrannsókn-
aráætluninni.
Mikilvægustu verkefni samkv.
áætluninni sem þegar er unnið
að munu geta gengið eftir 4-
ætlun, en önnur verkefni sem
áformað hafði verið að hefja
verður að fresta.
Viðtal við Debray í
franska útvarpinu
PARÍS 22/8 — í viðtali við útvarpið í París í dag
skýrði franski blaðamaðurinn Regis Debray frá
því að Emesto Che Guevara hafi bæði verið í Asíu
og Afríku síðan hann hvarf úr opinberu lífi á
Kúbu árið 1965.
Þessi mynd er samsett úr myndum frá Cleveland og Saigon. Á báðum stöðunum á bandarísk yfirstétt í styrjöld og telur sig vera
að vernda lýðræðið. En það er auðskilið, að hún er fyrst og fremst að berjast fyrir hagsmunum sínum og hlýtur að tapa á báðum
vígstöðvum, því „það er ekki hægt að búast við því að þjóð hef jíst heilsliugar handa við tvö verkefni í einu sem stangast gjör-
samlega á: styrjöld í fjarlægu heimshorni og endurreisn síns eigin þjóðfélags", segir Walter Lippmann í nýlegri grein.
Regis Debray
Debray sem verður leiddur
fyrir rétt í Bolivíu ákærður fyr-
ir að hafa tekið þátt í skæru-
liðastarfsemi, sagði að Guevara
hefði farið úr Bolivíu eftir að
hann hafði dvalið bar nokkra
hríð.
Debray hefur setið í fangelsi
í Camiri í Bólivíu síðan í apríl.
Hann sagði í viðtalinu að hann
hefði verið barinn og pyntaður
eftir að hann var handtekinn og
einu sinni lá hann meðvitund-
arlaus í heilan sólarhring.
Debray neitaði bví að hafa
'verið skæruliði og sagði að hann
gæti ekki sagt yfirvöldunum í
Bolivíu hvar Guevara væri að
finna.
Guevara hefur farið á alla
staði þar sem hans hefur verið
þörf, sagði Debray. Hann hefur
komið til fjölmagra ólíkra staða
í Asíu og Afríku.
Forseti Bolivíu Rene Barri-
entos lét í það skína í gær, að
Debray yrði ekki dæmdur til
dauða. Þegar dómur hefur ver-
ið kveðinn upp mun ríkisstjórn-
in kannski athuga um möguleika
á því að skipta á Debray og
pólitískum föngum á Kúbu, sagði
forsetinn.
Brezka sendiráðið í
Peking brenntígær
PEKING, LONDON 22/8 — Rauðir varðliðar brut-
ust í kvöld inn í brezka sendiráðið í Peking,
kveiktu í húsinu, brenndu innanstokksmuni og
misþyrmdu karlmönnum í starfsliðj sendiráðsins.
í marga klukkutíma var óljóst hvað orðið hefði
um starfsfólkið en í nótt gat fréttaritari AFP í
Peking skýrt frá því að allir væru á lífi.
Brezka utanríkisráðuneytið
skýrði opinberlega frá því seint
í kvöld að allir hefðu bjargast út
úr brennandi húsinu og enginn
hlotið alvarleg meiðsl.
Um lOflO Kínverjar brutust inn
í bygginguna klukkan 22,45 að
staðartíma en það var nákvæm-
lega á þeim tíma sem ríkis-
stjórnin í Peking hafði áður til-
kynnt Bretum að væri loka-
frestur til að láta lausa fimm
New York Times segir að:
Hættan á styrjöld við Kína
hefur aldrei verih jafn mikil
HONGKONG 22/8 — Lofthelgisbrot Bandaríkja-
manna yfir Kína í gær er alvarleg ögrun gegn kín-
versku þjóðinni, en hún er reiðubúin að berjast,
ef hún verður neydd til þess, segir Dagblað alþýð-
unnar í Peking í morgun. í morgun aðvaraði einn-
ig hið þekkta blað The New York Times Banda-
ríkjastjórn við þeim hættum Isem loftárásir á mörk
naerri landamærum Kína gætu haft í för með sér.
í Dagblaði alþýðunnar segir
ennfremur að Kúwerjar séu
reiðubúnir að berjast til síðasta
manns, ef Bandaríkj amenn vilji
neyða þá í stríð.
Bandaríska varnarmólaráðu-
neytið sagði í gær að tvær banda-
rískar flugvélar hefði villzt yfir
landamæri Kina eftir árásir *
Norður-Vietnam skammt frá
landamærunum og hefðu þær
verið skotnar niður.
New York Times segir í for-
ystugrein um þessar fréttir -að
ekki séu nokkrar sannanir fyr-
ir því að aukin áhætta sem loft-
árásir' nærri landamærunum hafi
í för með sér geti borið hern-
aðarlegan árangur sem geti dreg-
iö úr baróttuviilja N-Vietnam.
New York Times vísar ábug
fullyrðingum Johnsons í fyrri
viku, að ekki sé hægt að skoða
loftárásir í landamærahéruðun-
um sem neina ógnun við Kína
og blaðið bendir á það, að flug-
vélarnar sem hurfu í gær hafi
ekki verið að róðast að mörk-
um í 10 til 15 km fjarlægð frá
landamærunum, þegar þær
„villtust“, en hafi verið í meira
en hundrað km fjarlægð, og
samt hafi þær lent í kínverskri
lofthelgi.
★
Hvernig er þá hægt að taka
fuíllyrðingar forsetans alvarlega
er hann heldur þvi fram að það
sé engin hætta á loftórásum á
kínverskt land fyrir mistök, spyr
blaðið, og lýsir því yfir aðhætt-
an á stríði við Kina sé nú meiri
en nokikru sinni fyrr.
ritstjóra i Hongkong eða taka
ella afleiðingunum.
Fréttamaður AFP í Peking
sem er eini vestræni fréttamað-
urinn sem enn starfar í borginni
skýrði frá því að eldurinn í
byggingunni hefði sést um alla
Peking, og sendi hann síðan
reglulega fréttir af atburðinum
meðan hann stóð yfir fram á
morgun.
Brezkur sendiráðsstarfsmaður
hefur upplýst að kviknað hafj í
er Rauðu varðliðarnir hentu
benzínbrúsum inn á lóð sendi-
ráðsins og hafi eldurinn breiðzt
fljótt út og stóðu eldtungurnar
skjótlega upp í gegnum þakið
á sendiráðsbyggingunni.
Brezka stjórnin hefur bann-
að öllum kínverskum sendiráðs-
starfsmönnum að fara úr Lond-
on nema með sérstöku leyfi
brezkra yfirvalda og gildir það
sama um alla Kínverja sem
starfa á vegum kínverskra stofn-
ana, svo sem fréttamenn, banka-
starfsmenn við Bank of China
og starfsmenn verzlunarfyrir-
tækj a.
Svo að segja allir starfsmenn
brezka sendiráðsins í Peking
höfðu flúið úr íbúðum sínum
með fjölskyldurnar og leitað
hælis í sendiráðinu vegna vax-
andi andbrezkra mótmælaað-
gerða síðustu daga í Peking.
Sendiráðsstarfsmenn sem urðu
fyrir barsmíð rauðra varðliða
segja allir að lögregla og her-
menn hefðu gert sitt ítrasta til
að vernda þá fyrir ofbeldi rauðu
varðliðanna, og margir særzt í
þeim átökum.
Yfirvöld í Hongkong héldu
áfram í dag yfirheyrslum yfir
ritstjórunum fimm sem hafa
játað að hafa hvatt til óeirða.
Brezku sendiráðsstarfsmenn-
irnir hafa fengið húsaskjól í
öðrum sendiráðum í Peking en
fréttaritari AFP segir að útlend-
ingar í Peking séu skelfdir og
svartsýnir á framtíðina.
George Brown utanríkisráð-
herra Breta, sem hefur verið í
orlofi í Noregi hefur ákveðið að
hraða sér til London og mun
hann væntanlegur þangað á
morgun.
NEW YORK 22/8 — U Þant að-
alritari Sameinuðu þjóðanna tt-
rekaði í dag þá skoðun sína að
hægt sé að hefja friðarsamn-
inga í Víetnam innan þriggja til
fjögurra vikna, ef loftórásunum
á Norður-Vietnam væri hætt.
Talsmaður aðalritarans skýrði
blaðamönnum frá þessu og jafn-
framt lagði hann áherzlu á, að
þetta væri ekki sett fram í sam-
bandi við fréttir af þvi, að Al-
eksei Kosygin forsætisráðheri-a
Sovétríkj anna hefði tilkynnt
bæði U Þant og Johnson for-
seta að ráðamenn í Hanoi væru
reiðubúnir að hefja friðarsamn-
inga ef loftárásum verður hæi:t.
Sprengjur falla á
miðborg Hanoi
HANOI 22/8 — Mörg íbúðarhús og verzlanir í mið-
borg Hanoi voru gjöreyðilögð 1 dag er tveim eld-
flaugum var skotið að þeim í loftárásum Banda-
ríkjamanna. Óbreyttir borgarar létu lífið, en ekki
hefur enn verið skýrt frá fjölda fómarlambanna.
Húsin stóðu i hverfinu um-
hverfis Hue-götu, en það er ein
Loftleiðadeilunni skotið til
samgöngumálaráðherranna
HELSINGFORS 22/8 — Utanrík-
isráðherrar Norðurlanda af-
greiddu í dag rúmlega helming-
inn af þeim málum sem voru á
dagskrá þessa fundar þeirra.
M.a. var rætt um ástand í al-
þjóðamálum, einstök mál í sam-
bandi við næsta allsherjarþing
SÞ og afvopnunarvandamál.
Utanríkisráðherramir tóku
einnig fyrir deilurnar um lend-
ingarrétt SAS og Loftleiða- Á-
kveðið var að samgöngumála-
ráðherrar landanna skuli fram-
vegis fjalla um málið.
Fundinn í Helsingfors sitja all-
ir utanríkisráðherrar Norður-
landa og æðri embættismenn i
utanríkisráðuneytum.
Búizt er við að fundinum
ljúki snemma á miðvikudag og
verður þá gefin út sameiginleg
yfiríýsing.
helzta verzlunargatan í höfuð-
borg Norður-Vietnams.
Árásimar í dag eru jafn heift-
arlegar og þær sem gerðar voru
í gær.
Fréttaritari AFP í Hanoi seg-
ir að árásin hafi staðið í 35 mín-
útur og hefði loftvamarskothríð
verið mikil er bandarísku flug-
vélamar flugu yfir miðbæinn.
Björgunarlið hófst þegar handa
að grafa særða og látna úr
rústum íbúðarhúsanna í mið-
bænum.
I gær gerðu Bandaríkjamenn
einnig heiftarlegar árásir á Hanoi
°2 var það í fyrsta skipti síðan
10. júní að sprengjum var varp-
að á höfuðborgina sjálfa.
Sex bandarískar flugvélar voru
skotnar niður.