Þjóðviljinn - 29.08.1967, Síða 4

Þjóðviljinn - 29.08.1967, Síða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINÍT — Þriðjudagur 29. ágúst 1967. tftgefandi: Sósíalistaflokk- Sameiningarflokkur alþýðu urinn. Bitstjórar: ívar H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Frið'þjófsson. Auglýsingastj.: Sigurðúr T. Sigurðsson. Framkvstj.: Eiður Bergmann. Ritstjóm, afgreiðsla,. auglýsingar. prentsmiðja Skólavörðustíg 19. Sími 17500 (5 línur) — Áskriftarverð kr- 105.00 á mánuði. — Lausasöluverð krónur 7.00. Arás | kosningabaráttunni í vor bentu Alþýðubandalags- menn þrásinnis á, að framundan væri harðn- andi stéttarbarátta; barátta, sem verkalýðshreyf- ingin yrði að búa sig undir að heyja af fullri ein- urð og festu. Það kemur líka æ betur á daginn, að þessar viðvaranir og ábendingar Alþýðubanda- lagsmanna voru réttar. Stjórnarmálgögnin og ráð- herrar hafa þegar tekið að boða kjaraskerðingu fullum hálsi og árásir á kjör launafólks í landinu. Aðalmálgagn ríkisstjórnarinnar talar beinlínis um kjaraskerðingu í þessu sambandi. Forsætisráð- herrann segir í sunnudagspistli sínum, að almenn- ingur v.erði að sæta skerðingu á tekíum sínuim. Og þó að litla stjórnarblaðið kenni sig við alþýðu manna, tekur það undir þennan árásartón, segir að þjóðin verði að sætta sig við það þó að lífskjör versni eitthvað! jjndirtónninn í kjaraskerðingarboðskap ríkis- stjórnarinnar, er sá að viðskiptakjör séu,nú lakari en verið hefur og að afli fari minnkandi. Þó að þetta sé að sínu leyti rétt, að á þessuni svið- um sé um að ræða nokkru óhagstæðari útkomu en verið hefur, ber að hafa það jafnframt í huga, að afkoman hefur á engan hátt versnað svo að réttlæti árásir á alþýðu manna. Hins vegar er það í fullkomnu samræmi við stefnu ríkisstjórnarinn- ar og eðli að ráðast fyrst á garðinn þarna. Það er til að mynda á reikning ríkisstjómárinnar og efna- hagsstefnu hennar að þjóðarfé hefur árum saman verið sóað í óarðbæra handahófsfiárfestingu og bruðl, spákaupmennsku og brask. Það er ríkis- stjórnin, sem hefur leitt yfir þjóðina vandamál, sem því aðeins er unnt að leysa að breytt verði um stefnu í efnahagsmálum, tekin upp jákvæð og skipulögð áætlunarstefna í stað handahófsins. jjrátt fyrir ítrekuð viðvörunarorð í kosningabar- unni tókst stjórnarflokkunum að halda velli — að vísu vantaði Alþýðubandalagið aðeins nokkur hundruð atkvæði til þess að fella ríkisstjómina og efnahagsstefnu hennar þar með. En samtök launafólks verða að ganga þeim mun framar í bar- áttunni sem afl þeirra er minna á löggjafarsam- kundu þjóðarinnar. Herútboði ríkisstiórnarinnar til árásar á kjör launafólks verður að svara með öðu herútboði af hálfu launafólks í landinu; þar verður í senn að gæta þess að náist bætt kjör, að standa á verði um það, sem áunnizt hefur og síð- ast en ekki sízt að knýja á um nýja jákvæða efna- hagsstefnu. Atvinnuleysi j Þjóðviljanum í fyrradag er greint frá því, að verkafólk í níu kaupstöðum og kauptúnum á Norðurlandi hafi fengið greiddar atvinnuleysis- bætur á þessu ári. Þannig kemur atvinnuleysis- vofan æ óþyrmilegar í ljós og leiðir af sér fólks- flótta frá þéssum stöðum meðaÞannars. Hér er á ferðinni enn eitt vandamálið, sem núverandi rík- isstjórn hefur frekar magnað en að hún hafi sýnt raunhæfa viðleitni til að leysa það. — sv. ■ Rok og rigning var á Laugardalsvelli bæði á laugardag og sunnudag er Afmælismót FRÍ fór fram, og varð þetta mót sem átti að vera helzta frjálsíþróttamót sumarsins því heldur sviplít- ið, og áhorfendur fáir. Rok og rigning um helgina eyðilagði afmælismót FRÍ Sérstaklega, virtist hið slæma veður koma illa við hina er- lendu íþróttamenn sem boðnir höfðu verið til mótsins. Ýmist tóku beir ekki bátt í beim greinum sem fyrirhugað hafði verið eða þeir voru langt frá sínum bezta árangri. Einnig varð fjarvera Þorsteins Þor- steinssonar til að draga úr að keppnin yrði skemmtileg. ★ . Af útlendingum stóð danski hástökkvarinn Svend Breum sig bezt og stökk tvo metra. A1 íslenzku keppendunum stóðu sig bezt þeir Guðmundur Her- mannsson sem kastaði 17,79 m og reyndist alger of.iarl Norð- mannsins B.iörns Bang Ander- sen, Valb.jörn Þorláksson, sem stökk 4,30 metra í stangarstökki og reyndi við nýtt met í slag- viðrinu, og Ólafur Guðmunds- son sem sigraði í 400 metra hlaupi á 51,4 sek. sem er á- gætur tími í slíku veðri. Auk gestakeppninnar fór fram keppni drengja, sveina og kvenna. Þar vakti langmesta athygli Skúli Arnarson, sonur Amar Clausen, sem sigraði Hlauparinn býr sig af stað og skrúfar startblökkina í réttar stell- ingar. — (Ljósm. Þjóðv. Hj. G.) Tekst ÍB V loks að komast /1 deild? I kvöld klukkan sjö hefst á Laugardalsvcllinum úrslita lcikur í annarri deild Is- landsmótsins í knattspyrnu, og keppa þar Þróttur og IBV um hið eftirsótta sæti í fyrstu deild. Sem kunnugt er hafa Vest- mannaeyingar staðið nálægt því nú síðustu ár að komast í 1. deild, og er þetta í þriðja sinn -------------------------------<$> • r FH sigraðí 3. deildinni FH sigraði í 3. deild Islands- mótsins og keppir því í 2. deild næsta ár. Úrslitaleikurinn í 3. deild fór fram á Akureyri á sunnudag og vann FH Völs- unga frá Húsavík með 3:0. Ragnar Jónsson skoraði 2 mörk- in og örn Hallsteinsson eitt. Jón Magnússon frkVst. KSÍ afhenti að loknum leík verð- launagrip, sem Málningarverk- smiðjan Harpa hefur gefið. ÆF Skrifstofa ÆFR er opin daglega kl. 4-7 og þar er tekið við félagsgjöldum. — Hafið samband við skrif- stofuna, síminn er 17513. N.k- fimmtudagskvöld verð- ur Leó Árnason frá Víkum gestur félagshcimilisins. Leó mun lesa upp frumort Ijóð. á seipustu fjórum árum að þeir keppa til úrslita- 1964 léku þeir gegn ÍBA, unnu Akureyringa með 1:0 og skoruðu úr víta- spyrnu. Árið eftir mættu Vest- mannaeyingar Þrótti í úrslitum og er ein mínúta var eftir af leiknum stóðu leikar 3:2 fyrir ÍBV en Þrótti tókst að jafna, og var þá framlengt- Lauk þeim leik með sigri Þróttar 5:3. í fyrra lenti ÍBV í riðli með Fram og tókst ekki að kom- ast í úrslit, en Fram vann Breiðablik í úrslitum og berst nú um efsta sætið í 1. deild. ★ Dómari í leiknum í kvöld verður Rafn Hjaltalín frá Ak- ureyri. Þrfú heims- met í sundi Bandaríska sundfólltið setti þrjú heimsmet í gær á al- þjóðlega sundmótinu sem fram fór í Tokíó. Greg Charl- ton synti 400 m skriðsund á 4:08,2 mín. Charles Hickcox synti baksund á 59,3 sek. og er það 2/10 úr sck. bctri tími en heimsmctið sem Douglas Russel hafði sett scx klst. áð- ur. ' Einnig settu bandarísku sundmennirnir hcimsmct í 4x 100 m skriðsundi 3:32,6 mín. I sveitinni voru Ken Walsh, D. Hevens, Greg Charlton og Zach Zorn. Bandaríkin áttu einnig fyrra heimsmetið 3:33,2 mínútur. Guðmundur Hermannsson KR sigraði norska methafann, Björn Bang Andersen. í þeim sex greinum sem hann tók þátt í, og kastaði m. a. 53,86 metra í kringlukásti. Nánar verðhr sagt frá úr- slitum mótsins í Þjóðviljanum á morgun. -© Tímaverðirnir gættu sekúndubrotanna. yfu-tímaverðir voru Hörðr ur Haraldsson og Jóhann Jóhannesson. Tilboð óskast í fólksbifreiðir og 10 tonna Mercedes Benz vöru- bifreið með sturtu er verða sýndar að Grensás- vegi 9, miðvikudaginn 30. ágúst kl. 1—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5. SÖLUNEFND VARNARLIÐSEIGNA.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.