Þjóðviljinn - 27.09.1967, Page 7
Miðvikudagur 27. septemtoer 1967 — ÞJÖÐVILJINN — Sl&A J
Jón Bjarnason - MinningarorB
Fraínhald af 5. síðu.
en það, að við eigum öll eftir
að hverfa héðan. En þrátt fyrir
þá staöreynd fer svo að við
eigum oft erfitt að trúa þessu
lögmáli lífsins, þegar vinir okk-
ar á bezta aldri hverfa héðan
snöggt og óvænt.
Mig langar að kveðja góðan
vin og votta venzlamönnunum
samúð mína, en öll orð hljóma
svo innantóm og fátaekleg.
Ég kynntist Jóni Bjarnasyni,
þegar ég var 11 eða 12 ára
strákur og milli okkar tókst
vinátta, þó hann væri þá mað-
ur á miðjum aldri og sú vin-
átta átti eftir að styrkjast eftir
að við fluttum báðir í Kópa-
vog, og á hana bar aldrei
skugga. Jón verður mérminn-
isstæður maður. Hann var
hjálpsamur og fómfús og reikn-
aði ekki vinnustundir sínar í
krónum, þegar hann vann að
málefnum, sem áttu hug hans.
Hér f Kópavogi tók hann að
sér ritstjórn blaðs Óháðrakjós-
enda og blaðs Alþýðubandalags-
ins í Reykjaneskjördæmi, og í
þeim störfum taldi hann ekki
vinnustundimar og sporin,
frekar en að öðra, sem hann
tók sér fyrir hendur.
Jón var ekki eins og hvers-
dagsgrár fjöidinn. Skoðanir
hans á málefnum og mönnum
vora oft ákveðnar, en byggðar
á þekkingu, lífsreynslu ograun-
sæju mati. Þeim, sem ekki
þekktu harin. fannst hann
kan" ' i stunrinm þungur f
dó" »n iéttlætiskennd hans
var w .+ r- eiri en flestra.
Jón var mikill ferðamaðurog
unnandi íslenzkrar náttúrafeg-
urðar og góðra bófca. Hann
átti gott og mifcið bófcasafn og
var víðlesinn og fjölfróður, en
flifcaði því ekfci, slifct var ólíkt
honum. Jón var mikill húmor-
isti og hlátur hanshároghljóm-
mikill. En Jón var fyrst og
fremst greindur maður og
traustup, hjálpsamur og vinur
vina sinna — drengur góður.
Þeir gleyma honum seint, sem
kynntust honum náið. Og í dag
kveðjum við vinir hans hann
hinztu kveðju og þöfcfcum hon-
um samfyllgdina, og vottum Jó-
hönnu Bjamadóttur samúð ofcfc-
. ar.
Þðrir Hallgrímsson.
Það verður naumast annað
sagt en að mér hafi brugðið er
ég frétti að Jón Bjamason fyrr-
verandi fréttaritstjóri hefði orð-
ið fyrir bifreið með þeim af-
leiðingum að tvísýnt væri um
líf hans. Þetta hörmulega slys
varð tæpri hálfri klukkustund
eftir að ég hafði skilið við
hann glaðan og heilbrigðan.
Þessi varð lífca raunin á, því að
hann lézt af afleiðingum slyss-
ins þann 19. þessa mánaðar.
Þannig er lffið misfcunnarlaust
og kalt. Ógæfa annarra feilur
stundum feti nær þeim flefck-
lausa-en efni standa tii.
Jón var fæddur að Laugum
í Hvammssveit i Dalasýslu 5.
márz 1909. Foreldrar hans vora
Bjami Jónsson bóndi þar og
kona hans Kristín Pálína Kristj-
ánsdóttir. Ólst Jón upp með
foreldrum sínum til fullorðins
ára við öll algeng sveitarstörf
eins og títt er um sveitabörn.
Allgóðum gáfum þótti Jónvera
gæddur þegar í æsku og stóð
hugur hans snemma tilmennta.
Því varð það að ráði að hann
hóf nám í Kennaraskóia Is-
lands og útskrifaðist hann
þaðan vorið. 1931. Nokkrum ár-
um síðar hóf hann blaða-
mennskuferil sinn við dagblað-
ið Þjóðviljann og var starfs-
maður blaðsins lengst af síðan,
auk þess sem hann gegndi hlið-
stæðum störfum þar fyrir ut-
an. Jón varð tvisvar formaður
Blaðamannafélags Islands, 1951
og 1957. Kvæntur var Jón Jó-
hönnu Bjamadóttur, bónda
Jenssonar í Ásgarði í Dölum,
hinni ágætustu mannkosta
konu, sem hún á kyn til, og
lifir hún mann sinn,
Þetta má segja að sé hin eigv
inlega lífssaga Jóns Bjarna-
sonar. Ég kynntist Jóni ekki
fyrr en laust eftir 1930. Vorum
við jafnaldrar og fóll brátt vel
á með okkur, sem og jafnan
síðan til hinnar síðustu stund-
ar. Fann ég það brátt hver af-
bragðs maður hann var og hélt
því áfram vinfengi við hann,
þar sem mér þótti sýnt að
væri veg gæfu að ganga, þar,
sem Jón fór, og urðu mér
aldrei vonbrigði að þvi síðar
á æfi okkar. Fyrir það er ég
þakklátur þótt máske að lifflu
haldi komi fyrir vininn minn
latna. a
Margs er að minnast en feest
af því verður í letur fært, að-
eins á stóru stiklað. Aldrei svo
ég minnist þess mætti maður
svo Jóni á götu að hann hefði
ekki nægan tíma til viðræðna
og næg vora og nærtæk hugð-
arefnin um að ræða. Og ætfð
var það með hlýjum huga og
með bros'á vöram, og þó al-
veg sérstafclega við þá sem
kallaðir era smæstir með-
bræðra okkar. Þeir eru því ó-
fáir utangarðsmennirnir sem
sakna hans og biðja honumvel-
famaðar í nýju vistinni. En
það er vissulega satt sem sagt
er, að þar sem góðir menn
fari að þar séu guðs vegir. Eft-
ir samfundi við Jón gekk mað-
ur ávallt hress og endumærð-
ur og fullur bjartsýni um að
úr myndi rætast, ef eitthvað
hafði áður hallast. Það er því
ékki að undra þótt hllýjarhugs-
anir manna fylgdu Jóni á lífs-
Ieiðinni.
Vart þykir mér hæfa á þess-
ari safcnaðarstund að upphefja
harmatölur, því að þaðmyndi
skoðun Jóns sjálfs að þetta
myndi él eitt vera. Því vil ég
þegar þessi góði félagi og mikli
mannfcostamaður er genginn
þakka honum samverustund-
irnar, fulltrúa um að hugþekk
minning geymi lengst góðan
orðst/r.
Mér getur ekki annað enorð-
ið það minnisstætt hve Jónvar
öllum mönnum velviljaður og
fús á að gera hverjum manni
þann greiða, sem hann megn-
aði. Þar fyrir fór það efcki
framhjá manni að ef einhver
var honum eitbhvað ekki að skapi
sneyddi hánn sem mest hann
mátti fram hjá öllum mSkum
við hann. Ekki svo að skilja að
hann sýndi ékki öEum full-
komna háttvisi i tilsvörum og
fyrirgreiðslu ef svo bar til. En
kæmi það fyrir, sem fátíttþótti,
að veitzt væri að honum í orð-
um forðaðist hann sem mest
að tala mikið um, en festi sér
þeim mun betur í minni and-
stasðing sinn og deiluefni. Og
ekki er ég grunlaus um að
hann hafi munað það lengur
en þá, og þá stundina. Og nú
á þessum tímamótum þakka
ég allt það góða og göfuga í
fari Jóns Bjax-nasonar. Dagfar
allt og viðmót Jóns hefur ávallt
verið mér til eftirbreytni fiá
því fundum okkar bar fyrst
saman. Ég held að hvorugufn
okkar hafi fundizt hann eiga
svo annríkt, ef fundum okkar
bar saman, að við . létum það
ekki eftir okkur að skrafa sam-
an stundarkorn, hvort heldur
var á götu eða á skrifstofum
okkar. Og svo var einmitt í
betta síðasta sinn að við stöldr-
uðum við á Njarðargötunni.
Þess vegna þakka ég Jóni að
endingu alliá tryggðina og vin-
áttuna sem ég tél að gert hafi
líf mitt auðugra að umhugsun-
arefni en ánnars hefði orðið.
Vertu sæll, kæri Jón Bjarna-
son, og hafðu beztu og inni-
legustu þakkir fvrir allt ogallt.
Samferðamaður.
Minningarathöfn um manninn minn
JÓN BJARNASON, blaðamann,
fer fram í Fossvogskirkju í dag, nv*y'kudaginn 27. sept.
kl. 3. — Blóm afþökkuð.
Jóhanna Bjarnadóttir.
Alúðarþakkir sendum við þeim, sem sýndu okkur vin-
arhug við andlát og jarðarför
\ EMILS XÓMASSONAR,
Brúarósi, Kópavogi.
Hjartans þakklæti til allra nær og fjær, sem glöddu hann
með heimsóknum, bréfaviðskiptum og á ýmsan hátt hin
síðari ár.
Börn og tengdabörn.
HÖGNl JÓNSSON
Lögfræði- og fasteignastofa
Bergstaðastræti 4
Simi 13036
Beima 17739
RAFLAGNIR
■ Nýlagnir.
■ Viðgerðir.
■ Sími 41871.
ÞORVALDUR
HAFBERG
rafvirkjameistari.
. I
BRIDGESTONE
HJÓLB ARÐAR
Síaukin sala
sannargæðin.
BRIDGESTONE
veitir aukið
öryggi í akstri.
BRIDGESTONE
ávallt íyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÓNUSTÁ
Verzlun og viðgerðir
Gúmmbarðinn h.f.
Brautarholti 8
Sími 17-9-84
Kennsla
ENSKU- og DÖNSKU-
KENNSLA
hcfst 1. október.
Eldri nemendur tali við mig
sem fyrst.
KRISTÍN
ÓLAFSDÓTTIR
sími 14262.
Sængurfatnaður
— Hvitux og mislitur -
ÆÐARDÚNSSÆN GUB
GÆSADÚNSSÆNGUB
DRALONSÆNGUB
SÆNGURVEB
'• LÖK
KODDAVER
biði*
Skólavörðustig 21
ALÞYÐU
BANDALAGIÐ
í REYKJAVIK
[
Alþýðubandalagið t Rvík
hefur nú opnað skrifstofu
| sína reglulega á nýjan leik.
Verður skrifstofan opin frá
kl'. 2—7 síðdegis, frá mánu-
degi til föstudags. Skrifstof-
an er að Miklubrant 34.
síminn er 180 81. Guðrún
Guðvarðardóttir hefur ver-
ið ráðin starfsmaður Al-
þýðubandalagsins i Reykja-
vík. Eru félagsmenn og aðr-
ir Alþýðubandalagsmenn
hvattir til að hafa samband
við skrifstofuna.
úr og skartgripir
KDRNEIIUS
JÚNSSON
skðlavördustig 8
Allt til
RAFLAGNA
■ Rafmagnsvörnr.
■ Heimilistæki.
■ Utvarps- og sjón-
varpstæki
Rafmagnsvöru-
búðin s.f.
Suðurlandsbraut 12.
Sími 81670.
NÆG BlLASTÆÐl.
ÖKKUMST flLLfl
HJÚLBflRBAÞJÖNUSTU,
FLJÓTT OG VEL,
MED NÝTÍZKU TiEKJUM
INNHEIMTA
Löamæoi&TðHF
gjgprmui
Mávahlíð 48. Simi 23970.
Toyota Corona Statíon
Toyota Corona Station
Traustur og ódýr.
TRYGGIÐ YÐUR T0Y0TA.
Japanska bifreiðasalan hf.
Ármúla 7 — Sími 34470.
Einangrunargler
Húseigendur — Byggingameistarar.
Útvegum tvnfnlt einangrunargler með míög stutt-
um fyrirvara.
Sjáum um ísetningu og allskonar breytángar á
gluggum Útvegum tvöfalt gler í lausafög og sjá-
um um máltöku.
Gerum við sprungur i steyptum veggjum með
baulreyndu gúmmíefnL
Gerið svo vel og leitið tilboáa.
SÍMI 511 39.
ÞT NÆG
BÍLASTÆÐI
OPID ALLA
DAGA FRÁ
kl. 7.50-24.00
HJÓLBARDAVIDGERD KÓPAVOGS
Kársnesbraut 1
Sími 40093
ÞU LÆRIR
AAÁLIÐ
r
I
MÍMI
BLADBURDUR
Þjóðviljann vantar fólk til blaðburðar í
Kópavogi. — Sími 40753.
ÞJÓÐVIL JINN.
■»elfur
Laugavegj 38.
Sími 10765.
*
Enskar
buxna-
dragtir
*
Mjög vandaðar
og fallegar.
*
Póstsendum
um allt land.
SIGURÐUR
BALDURSSON
hæstaréttarlögmaður
LAUGAVEGI 18, 3. hæð,
S&»ar 21520 og 21620.