Þjóðviljinn - 15.02.1968, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 15.02.1968, Qupperneq 2
/ j2 SfDA t— ÞJÓÐVIÍLJINN — Fimmtudagur 15. fehrúar 1968. Ljúdmíla Béloúsova og Oleg Protapopof — það er ekki í fyrsta sinn að þau hljóta glæsileg verðlaun. Tatjana Sjúk og Alexandr Gorelik Sovézkur sigur í listskautahlaupi - hlutu bæði gull og silfur Staðan er ébreytt BRENOBLE 14/2 — Sovézku ólympíumeistararnir og marg- faldir heimsmeistarar í Iist- skautahlaupi, Ljúdmíla Béloú- sova og Oleg Protapopof, vöíðu titil sinn í Grenoble í dag í harðri keppni við landa sina Tatjönu Sjúk og Alexandr Gorelik. Bættu þau þar með mjög stöðu lands síns sem hafði aðeins hlotið ein gull- verðlaun til þessa. Bronsverðlaunin hlutu þau Margot Glockschuber og Wolf- 03 ^A/OBLE^ gang Danne frá Vestur-Þýzba landi. Úrslitín urðu mjög eftir því sem búizt hafði verið við. Beloúsova og Protopopof komu fyrst fram á alþjóðaveftvangi ,í heimsmeistarakeppninni 1962, en þar urðu þau í öðrp sætL Tyeim árum síðar sigruðu bau á ólympíuleikjunum. — Arin 1965, - ’66, - ’67, hafa þau orð- ið bæði Evrópumeistarar og heimsmeistarar. Tatjana Sjúk og Alexandr Gorelik hafa oft- ar en einu sinni fylgt þeim fast eftir. GRENOBLE 14/2 — De Gaulle forseti hefur aflýst heimsókn sinni til Grenoble á laugardag- inn kemur því hann þarf að vera viðstaddur jarðarför kard- ínála nokkurs. De Gaulle ætl- aði að horfa á þjóðhetjuna Jean-Claude Killy í svigi, en vonir standa til að hann vinni þar þriðju gullverðlaun sín á þessum ólympíuleikj um. Gullverðlaun í fyrsta sinni í greininni Glæsilegur norskur sigur í GRENOBLE 14/2 — Loksins tókst það — til hamingju, — svo hljóðaði heillaóskaskeyti sem norskir göngugarpar fengu frá forsætisráðherra sínum, Per Borten, að loknum frækilegum sigri i 4x10 km. boðgöngu. Þetta er í fyrsta sinn að Norðmenn sigra í þessari grein á ólympíuleikj- um. Aðalkeppinautar þeirra, Svíar, hlutu annað sæti, Finnar hið þriðja og Sovétmenn fjórða. Norðmenn höfðu yfirburði voru varla á blaði, en gullverö- alla gönguna. Odd Martinsen launamaðurinn úr 30 km, Non- byrjaði mjög glæsilega og skil- ^_____________________________ aði hann af, sér til Páls Tyl- dums með fjörutíu sekúndna forskoti. Tyldum, Harald Grönningen og Ole Ellefsæter gerðu og sitt til að bæta við þetta forskot og komu í mark einni mínútu og fjörutíu sek- úndum. á undan Svíum. Ýmis óhöpp hafa elt Norð- menn í stökki og tvíkeppni, en þeir mega sannarllega vel við göngugreinar una. Grönningen fær nú aðra gullmedalíu sína, en hann sigraði í 15 km göngu og Odd Martinsen á fyrir siilf- urverðlaun fyrir 30 km göngu. Tvær norskar stúlkur tóku silf- ur fog brons í 10 kim göngu og eiga því enn von á verðlaun- um í boðgöngu kvenna. Svíar voru jafnan í öðru sæti í þessari göngu, en um hríð voru Sovétmenn allnálægt þeim. Finnar höfðu hinsvegar dregizt helzt til langt aftur úr þessari þrenningu þegar hinn þraut- seigi garpur Eero Mantyranta tók við boðinu síðastur sinna manna. Háði hann æsispenn- andi einvígi um bronsverðlaun- in við Rússann Vjatséslav Véd- enín og hafði betur í bessari friðsamlegu baráttu þeirra grannanna, munaði einni sek. Svisslendingar voru , þegar hlaupið var hálfnað í fimrnta sæti og tókst að halda því og A-Þjóðverjar voru sjöttu. Italir es, setti strik í reikninginn og tókst að tryggja landi sínu stig í þessari grein. Úrslit urðu þessi (endanlegur tími hefur því miður brengl- azt vegna útvarpstrufllana). 1. Noregur (Martinsen, Tyld- um, Grönningen, Ellefsæt- er) 2. Svfþjóð (Jan Halvardsson, Bjame Anderssan. Gunnar Larsson, Rönnlund). 4. Sovétríkin (Voronkof, Aken- téf, Tarakanof, Vedenín) 3. Flnnland (Kalevi Okrainen, Kalevi Laurila,, Hannu Taipale, Eero Mántyranta) 5. Sviss 6. Italía (De Plorian, Nones, Serafini, Stélla). Mikill fögnuður rikir aðsjálf- sögðu í þúðum Norðmanna, fréttamenn segjast ekki vita hvort þar séu háldin jól eða 17. mpi, garparnir standa með fahgið ftjllt af hundruðum sím- skeyta og gera grein fyrir hverjum áfanga. Þeir segja að það skipti miklu, að þjálfari þeirra kunni að smyrja skíði betur en aðrir menn, en hann hafði smurt tíu pör um morg- uninn svona til vonar og vara. Þá er t>g mikið rætt um bar- áttugleði þeirra’— enginn fjór- menninganna sló nokkru sinni af, þótt sigurinn væri vís áður en gangan var hálfnuð. Norskir skautahlauparar fara vel af stað Heimsmethafinn E. Keller sigraii í 500 m skautahl. GRENOBLE 14/2 — Hinn 23 ára gamli vesturþýzki heimsmethafi, Erhard Kel- ler, sigraði í 500 m. skauta- hlaupi á 40,3 sek. Mest á óvart kom Magne Thomas- sen Noregi sem hlaut silf- urverðlaun ásamt með fyrr- verandi ólympíumeistara, Bandarík'jiamanninum Mc- Dermott, fyrir 40,5 sek. Hinum 38 ára gamla kon- ungi spretthlaupara, Girsj- ín frá Sovétríkjunum, mis- heppnaðist því að kveðja grein sína með enn einni medalíu — hann varð fjórði á 40,6 sek. Noregur hefur flest gullverð- luun en Sovétmenn ffest stíg Norðmenn ruku affcur upp í fyrsta sæti bæði að því er varðar fjölda verðlauna og stigafjölda í morgun eftir sig- urinn í 4x10 km boðgöngu og <j> silfur á 500 m. En um kvöldið breytti tvöfaldur sigur Sovét- manna í listskautahlaupi aft- ur stöðunni og hafa þeir nú flest stig og flest verðlaun þótt ekki séu medalíur þeirra „jafn- þungar“ og þær sem Norðmenn og Firakkar hafa hlotið. Staðan er nú þessi — gull, silfur, brons, — síðasta talan táknar samanlagðan verðlauna- fjölda: 1. Noregur 3-3-1-7 2. Frakkland 3-2-1-6 3. Sovétríkin 2-4-2-8 4. Holland 2-1-2-5 5. Svíþjóð 2-1-1-4 6. V-Þýzkaland 2-1-1-4 7. Ítalía 2-0-1-3 8. Bandarikin 1-4-1-6 9. Finnland 1-2-2-5 En að stigatölu er staðan þessi: 1. Sovétrikln 60 2. Noregur 48 3. Finnland 44,5 4. Frakkland 42 5. Austurríki 38 6. Bandaríkin 35,5 7. Svíþjóð 31 8: Holland 31 Hundrað skólafélagar Kéllers, sem er 23 ára gamall. brutust gegnum raöir franskra lög- reglumanna og báru Kelller á gullstol út af leikvanginum að sigri loknum. Keller var mjög taugaóstyrkur fyrir hlaupið, en hljóp eins og engill. Hann sett.i fyrir skömmu heimsmet í þess- ari grein — 39,2 sék. í þessari grein má engu muna, og voru nokkrir helztu kappanna mjög óheppnir. Þeirra á meðal er Japanin Keinohi Su- zuki, sem hefur náð næstbezt- um tíma í heimi í þessari grein, 39,3 sek. Hann átti edtt mis- heppnað skref i hlaupinu, náði 40,8 sek. og varð að láta sér nægja að deilla áttunda sæti með nokkrum mönnum öðrum. Það kom mjög á óvart að Magne Thomassen skyldi verða í öðru sæti, því meiri vonir bundnar við aðra Norðmenn, Roar Grönvold og John Lind, sem báðir voru óheppnir í starti. Hinsvegar tókst Arne Herjuaunet að krækja sér í stíg, hann deilir fimmta sæti méð tveim Bandaríkjamönnum. Hin „aldna“ sovézka kempa, Grísjín, ætlaði að kveðja í- þróttalífið meö medalíu á þess- um Olympíuleikjum en það tókst ekki sem fyrr segir. Hann McDermott — tókst ekki að verja titilinn. er reyndar 38 ára gamall og hefur sigrað í þessari grein á fjórum olympíuleikjum í röð og auk þess hlotið ein silfur- verðiaun (í 1500 m) og það er aðeins Norðmaðurinn IvarBali- angrud sem hefur gert betur á olympíuleikjum til þessa. Grís- jín hefur verið kallaður mestur listamaður í hópi skautahlaúp- ara. McDermott frá Bandaríkjun- um tóks ekki að verja titil sinn frá Innsbruck, sem fyrr segir. Var hann mjög taugaóstyrkur og þjófstarfcaði einu sinni. Olympíufáninn borinn inn á leikvnnginn Pinnar unnu Austur-Þjóð- verja í héldur daufum leik í ísknattleik í Grenoble í gær- kvöld. Mjóu munaði — þrjú mörk gegn tveim. Þá eru Sovétmenn efstir í þessari grein með 10 stig en næstir og jafnir eru Kanada- menn, Tékkar og Svíar með átta stig. Finnar hafa fjögur stig en hvorugt þýzku ríkjanna hefur komizt á blað. Frá setningai'hátíð olympíuleikjanna — olympíufáuinn borinn inn. /

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.