Þjóðviljinn - 15.02.1968, Side 3

Þjóðviljinn - 15.02.1968, Side 3
Flmnrtfcudagar 15. íetxpúair 1868 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA J Skotið á stúdenta í Santo Domingo SANTO DOMINGO 14/2 — Löff- reglan skaut stúdent til bana í miðri höfuðborg Dóminíska lýð- vdldisins í dag er hún beitti skot- vopnum gegn stúdentum sem andstæðir eru stjóminni. Kínverjar skutu niður banda- ríska flugvél WASHINGTON 14/2 — Kín- versk flugvél skaut niður bandaríska flugvél skammt frá eynni Haihan í dag, en önnur flugvél af sömu gerð komst undan. Talsmenn Bandaríkjahers segja, að flugvðlarnar hafi af „misgáningi“ farið inn fyrir kínverska lofthelgi. Hafi flug- vélamar verið óvopnaðar.' — Flugmaðurinn sem undan komst lenti á bandarísku flugstöðinni í Danang í Víet- nam og kvaðst hann ekki vita um afdrif félaga síns. Það var kínversk MIG-vél sem grandaði bandarísku vélinni. Bandaríkjamenn hafa þá misst átta flugvélar yfir kínversku landL Allt var á öðrum endanum í miðborginni. Lögregla og stúd- entar slógust á háskólasvaeðinu og þyrlur sveimuðu yfir til að fá yfirsýn yfir atburði, fyrr um daginn bafði lögreglan einnig beitt skotvopnum í um það bil klukkustund. Svo fór að lokum að herinn sendi fimm brynvagna á vettvang gegn stúdentum, sem voru um 300 talsins. Stúdentarnir lokuðu sig þá inni í háskóla- byggingunni- Forsenda óeirðanna er sú að stúdentar krefjast aukins opin- bers styrks við háskólann. Lög- reglan sakar þá um að hafa skotið á lögreglumenn-, en stúd- entar segja það uppspuna. Santo Domingo var á hvers manns vörum -fyrir tveim árum er Bandaríkin sendu þangað her- lið til að koma í veg fyrir vinstriþróun í stjórnmálum landsins. KiarnarafsföS í Finnlandi? HELSINKI 14/2 — Sovétmenn hafa boðizt til að reisa fyrir Finna kjarnorkuknúið rafbrku- ver, hið fyrsta í Finnlandi- Finnar eru sagðir hafa áhuga á því að þettai mál nái fram að ganga. Atvinnuleysistryggingar Skrýtirm afli sænsks togara Fékk í vörpu sína þýzk leyndarskjöl! STOKK'HÓLMI 14/2 —Er sænski togarinn Falken var að veiðum í Eystrasalti um 10 klst. stím frá Simrisham fékk hann margra rúmmetra kassa í vörpuna. Þeg- ar hann var opnaður, kom í ljós, að innihaldið var mikið magn af þýzkum leyniskjölum. Stokkhólmsblaðið Dagens Ný- heter segir, að það hafi einnig verið kort í kassanum og eftir öllu að dæma hafi kassinn geymt áætlanir. nazista um árásimar á Danmörku og Noreg. Ástæðan fyrir því að kassanum var sökkt Grímuklæddir baúkaræningjar NEW YORK 14/2. Maður og kona, bæði vopnuð og með sokk fyrir andliti, réðust inn í banka í New York í dag og höfðu 130 þús. dolilara með sér. Maðurinn batt sex starfsmenn bankans og neyddi gjaldkerann til að opna peningaskápinn. Enginn meiddist. á um það bil hundrað metra dýpi er talin sú, að þáverandi þýzk yfirvöld hafi viljað koma í veg fyrir að þau féllu í óvina hendur að striði loknu. Togarinn var að reyna veiðar á svæði þar sem enginn hefur reynt botn- vörpu fyrr. Slegizt á þingi Vestur-Bengals KALKUTTA 14/2 — Mikik ringulreið varð í Vestur-Beng- al í dag er hin vinstri sinnaða stjómarandstaða reyndi að hindra landstjóra fylkisins í að setja þingfund um fjárlög. Stjórnarandstaðan lagði undir sig sæti landstjóra og þingfor- seta og kom til allharðra slags- mála í nokkrar mínútur. Störf- um þingsins var frestað um ó- ákveðinn tíma. Kommúnistar og aðrir vinstri- sinnar hafa 132 þingsæti aif 284. Ræddi í dag við de Gaulle Framhald af 1. síðu. legar. Hafa því komið fram há- værar raddir frá félagsmönnum verkalýðsfélaga, sem em eigend- ur sjóðsins, um, að heimilaðar verði hærri bótagreiðslur. Til þess þarf lagabreytingu á Al- þingi. 3. þing Verkamannasambands íslands, sem haldið var 3, og' 4. febrúar s.I., samþykkti einróma ákveðnar tiUögur um breytingar á lögum um atvinnuleysistrygg- ingar og skoraði á Alþingi að tryggja framgang þeirra. Fmmvarp það, sem hér er filutt, er byggt á þessum tillögum Verkamannasambands Islands, og fylgja tillögur þess ásamt grein- argerð sem fylgiskjal með fmm- varpinu, Fylgískjal Samþykkt Verkamannasam- bands Islands um atvinnuleysis- tryggingar. 3. Þing Verkamannasambands íslands, haldið í Eeykjavík 3. og 4 febrúar 1968, Skorar á Alþingi að gera hið fyrsta eftirfarandi breytingar á lögum um atvinnu- i ey s istry ggingar: 1. Bótagreiðslur verði hækkað- ar þannig, að þær nemi eigi lægri upphæð á viku fyrir kvæntan mann, en sem nemur 80 prósent af viku- kaupi verkamanns í Reykja- vík fyrir dagvinnu og 70 pró- sent af sama vikukaupi fyrir einhleypan mann. Hámark bóta á viku til ein- staklings, ásamt bótum vegna barna, megi vera sama upp- hæð og vikukaup verka- manns í Reykjavík fyrir dag- vinnu. 2. Numið verði úr lögum það á- kvæði sem skijýrði fyrir bótagreiðslu, að menn hafi ekki á síðustu sek mánuðum haft tekjur, sem fara fram úr vissu hámarki. 3. Atvinnuleysisbætur verði greiddar til allar vinnufærra manna, sem lögin taka til og atvinnulausir eru, einnig þótt þeir séu orðnir 67 ára og njóti ellilífeyris. Atvinnuleysisbætur fyrir kvæntan mann eru nú 931 króna á viku, en það er 45 prósent af kaupi miðað við lágmarkstíma- kaup Verkaimannafélagsins Dags- biúnar. Einhleypur maður fær nú 823 kr. á viku, en það er 39.7 prósent af lágmarkskaupi Dagsbrúnar. Hámark bóta getur nú numíð 1256 kr. á viku, eða 60.5 prósentum af lágmarks- kaupi Dagsbrúnar, en það er fyr- ir kvæntan mann, með 3 börn. Augljóst er, hve fjarri þessar upphæðir éru því að nægja til framfæris, þegar miðað er við núverandi verðgildi peninga. Með tillögum þeim, sem hér eru gerðar um upphæðir hóta, ef miðað er við Hágmarkstaxta Dagsbrúnar, mundi kvæntur maður fá um 1655 kr. á viku, einhleypur maður uim 1450 kr., og hámark bóta gæti orðið um 2070 kr. á viku. Nú á sá maður ekki rétt til atvinnuleysisbóta, sem haft hef- ui í tekjur á siðustu sex mán- uðum upphæð, sem fer fram úr 75 prósentum af tekjum verka- manna eða verkakvenna f Rvík, miðað við almenna dagvinnu og 300 vinnustundir á ári næstliðin ár. Hér er um allt of þröngt tekjutakmark að ræða, og þykir engin ástæða til þess, að það sé neitt, enda þekkjast slík tekju- mörk ekki lengur í lögum um almannatryggingar. Samkvæmt atvinnuleysistrygg- ingalögunum, eins og þau nú eru, fær maður, sem' orðinn er 67 ára og tekur ellilífeyri, engar at- vinnuleysisbætur, þótt hann missi atvinnu sfna og sé full- vinnufær. , Ef sami maður slas- aðist við vinnu, fengi hann full- ar slysabætur með ellilaunum. Þetta misræmi verður að leið- rétta. Atvinnuleysistryggingasjóður- inn, sem stofnaður var með samningum í vinnudeilunum miklu 1955, er nú orðinn öflug- astur sjóða í landinu. Við stofn- un hans sló verkafólkið af kaup- kröfum sinum til að afla honum fjár. Það er því hluti af kaupi verkafólksins, sem geymdur er á þennan hátt sem tryggingasjóð- ur þess gegn vágestinum mikla, atvinnuleysinu. Fyrsta skylda s.ióðsins er að aðstoða hina tryggðu, 'og enginn á rfkari kröfu til hans en þeir. Hér eru gerðar tillögur um breytingar á lögunum um at- vinnuleysistryggingar til hags- bóta fyrir hina tryggðu. Breyt- ingar þessar eru aðkallandi vegna hins alvarilega atvinnuleysis, sem nú gerir vart við sig víða um landið. Ber friðarvi&leitni jT , U Þants árangur? x Bandarískir hermenn * í hinni umkringdu herstöð við Khe Sanh. Stórskotahríð á degi hverjum. Bandarískar sprengjur á úthverfi Saigons 50 borgir hálfeyði- laglar siSustu daga PARIS 14/8 — I dag ræddi að- alritari SÞ, Ú Þant, við de Gaulle forseta og einnig ræddi liann við fulltrúa Norður-Viet- nams í París, Mai Van Bo, um Vietnammálið. B S sðaú tgef end u r stofna félag f gær var stofnað hér í Rvík félag blaðaútgefenda í Reykja- vík og eru dagblöðin fimm hér í bæ svo og Vikan aðilar að fé- laginu. Er félaginu ætlað það hlutverk að gæta hagsmuna blaðaútgefenda í hvívetna og koma fram fyrir þeirra hönd í sameiginlegum, málum, ennfrem- ur að fylgjast með nýjungum á sviði blaðaútgáfu og reksturs blaða. f fyrstu stjóm félagsins voru kjömir Sigfús Jónsson fram- kvæmdastjóri Morgunblaðsins formáður, Kristján Benediktsson framkvæmdastjóri Tímans og Sigurpáll Jónsson framkvæmda- stjóri Vikunnar. Skókþing Framhald af 12. síðu. 3’/2 og 1 biðskák. Stendur bar- áttan um fjórða sætið þarna á milli Benónýs og Jóns Pálsson- ar. , B-riðill: 1. Björn Þorsteinsson 7; 2. Bragi Kristjánsson 7 (hefur lokið keppni). 3. Jón Kristins- son 6%; 4. Leifur Jósteínsson 5V2; 5. Bjarni Magnússon 4% og ein skák ótefld; 6. Gylfi Magnússon 4%; 7. Jóhann Þór- ir Jónsson 3.V2 og ein ótefld. Þeir Bjarni og Jóhann eiga ó- tefldar skákir við Hauk Kristj- ánsson er ekki hefur mætt til keþpni síðustu umferðirnar en Leifur á að tefla við hann í síðustu umferð. Hins vegar á Bjarni þá í höggi við Jón Krist- insson og stendur því verr að vígi í keppninni um 4. sætið í riðlinum. Fylgzt er af mikilli athygli með ferðum Ú Þants um þess- ar mundir því nú horfir betur en lengi áður um jákvæðar und- irtektir við tilraunum hans til að_ koma á friði í Vietnam. f gær átti Ú Þant viðræður við vietnamskan blaðamann í London, í dag hitti hann sendi- mann Hanoistjórnarinnar í París og gekk því nægt á fund de Gaulles og ræddi við hann í heila klukkustund. Þaðan hélt hann síðan á fund Couve de Murville utanríkisráðherra. Ekki er vitað hvað þeim fór á milli. j Ú Þant hefur og talað við Kosy- gín í Moskvu og Wilson og Brown í London síðustu daga. Fréttaritari AFP í Hanoi leggur á það áherzlu í dag, að stjórnin þar hafi ekki fyrr síð- an stríðið hófst haft sig jafn- mikið í frammi um friðarum- leitanir og nú — um leið og þjóðfrelsisherinn hefur stór- sókn. Hann telur líklegt að msð þessu sé í senn verið að sýna hernaðarlegan mátt og friðar- vilja. Flugvélin Framhald af 1. síðu. Flugvél þessi cr elgn banda- rísku flúgmálastjórnarinnar og var hún að koma frá Keflavíkur- flugvelli. Var hiin búin mjög verðmætum tækjum til þess að mæla hvort aðflugstæki flug- valla gefa rétt merki en slikar athuganir eru gerðar reglulega á mánaðarfresti. Var filugvélin að koma hingað til Reykjavíkur í slíka könnunarferð er óhappið vildi til. Strax í fyrrakvöld var undinn að því bráður bugur að bjar<ra hinum dýrmætu tækjum úr flug- vélinni og munu þau öll hafa náðst óskemmd. Flugvélin sjálf er hins vegar talin gereyðilögð. Sagði Sigurður Jónsson að þetta væri gömul vél og skemmdimar það miklar að alls ekki myndi svara kostnaði að fara að gera við hana. Eins og frá var sagt í blað- inu í gær slapp áhöfn flugvélar- innar ómeidd. SAIGON 14/2 — Enn er barizt af hcift i Hue. Bandarikjamenn hafa haldið uppi miklum loft- árásum i dag, bæði á Hanoi, úthverfi Saigon og næsta ná- grenni hinnar umkringdu her- stöðvar Khe Sangh. Bandaríkjamenn játa að þeir verði fyrir allmiklu tjóni í Hue, þar sem þjóðfrelsisherinn held- ur enn gamla borgarhlutanum, og,mistekizt hefur að einangra hersveitir hans þar. Fréttaritari Reuters segir að bandarísk her- deild sem reyndi að sækja yfir fljótið, sem skiptir borginni, á vatnabílum hafi orðið fyrir miklu áfalli. Kóleru hefur skot- ið upp í borginni en þar eru nú 30 þúsund 'flóttamenn. Tíðindalítið hefur verið við Khe Sangh i dag, nema stórar bandarískar flugvélar hafa gert árásir á hugsanlegar bækistöðv- ar skæruliðahersins kringum herstöðina. Bandarískar flugvélar gerðu í dag loftárásir á úthverfi Hanoi í fyrsta sinn síðan í desember leið. Útvarpið í Hanoi segir að þrjár þeirra hafi verið skotnar niður. Talsmenn bandaríkjahers við- urkenndu í fyrsta sinn í dag að hafa ofreiknað mannfall and- stæðinga sinna. Þá sagði for- mælandi Saigonstjómarinnar að í bardögum síðustu daga hefðu 50 borgir eyðilagzt að . hálfu leyti og tala flóttamanna væri nú hálf miljón. Manniall er ’mikið en engar tölur um það áréiðanlegar. — Fallnir bandarískir hermenn í Saigon. Vopn þjóðfrelsishersins eru úr ýmsum áttum, jafnan hefur mikiO af þeim verið herfang og allmikið er heimatílbúið. — Myndin er fi'á vopnasmiðju skæruliða. 4

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.