Þjóðviljinn - 23.02.1968, Page 10

Þjóðviljinn - 23.02.1968, Page 10
10 SÍÐA — MÖ£WMJ5Nífl — Fösfcudagur 21. ÆöbœÉaa? 3B68. SAKAMÁLASAGA Eftir J. B. PRIESTLEY 17 vann hann á ^itt band. Ég get bætt því við að Tommy hefur verið erlendis síðan í septem- berbyrjun, og það hefur ekki auðveldað mér störfin. Ég get líka bætt því við — og gleymið því ekki, Salt læknir — að ég hef aldrei talað nema örfá orð við Sir Amöld Donnington- Hon- um leizt ekki á mig og mér leizt ekki á hann. Það var ekki að undra þótt Derek veslingurinn væri dálítið villtur og kjánaleg- ur og stelpan, Erica, sé j>að enn — — Donnington á þá 1 dóttur? eagði Salt læknir. — Já. Hún var tveimur árum eldri en Derek. Og hræðileg plága. Við megum þakka fyrir að hún skuli ekki vera héma núna. Hún er lesbísk og eltir mig á röndum og þegar hún er drukkin hef ég ekki stundlegan frið- En snúum okkur aftur að Noreen Wilks og samkvæminu. Hún og Derek fóru saman. Ég veit það vegna þess að ég sá þau fara og ég var guðsfegin. Ef til vill hefur hún verið alls- gáð, en ég er viss um að hann var það ekki. Hún Irkaði ándar- tak. — Jæja þá. Og nú getur verið að atvinnan mín sé farin vel sllrar veraldar. Hún leit i kringum sig og horfði síðast á Alan. — Við þurfum ekki að láta það sem hún segir fara lengra, er það, Salt læknir? Alan var biðjandi á svipinn, þótt röddin væri það ekki. — Þér þurfið þess ekki. Ekki ég heldur, sagði Salt læknir, — þótt ég geri ekki ráð fyrir að hún segi okkur mikið. — Það er ekki af því að ég vilji það ekki, læknir. Það er vegna þess að ég veit í rauninni svo lítið. Ég get bara getið mér til um eitt og annað. Ég veit ekki einu sinni með vissu hvort Derek Donnington framdi sjálfs- morð nokkrum klukkutímum eft- ir að þau fóru úr klúbbnum. Það getur hugsazt að það hafi verið voðasköt, eins og úrskurð- urinn hljóðaði — EFNI SMÁVÖRUR TÍZKUHNAPPAR Hárgreiðslan Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinu og Dódó Laugav 18, III. hæð (lyfta) Símí 24-6-16. PERMA Hárgreiðslu- og snyrtistofa Garðsenda 21. SÍMI 33-968. — Þeir hefðu sagt að hann hefði. dáið af þvi að þefa af rós- um, ' ef Donnington hefði farið fram á það, sagði Salt læknir. — Ég er ekki í neinum vafa um að pilturinn framdi, sjálfsmorð. — Ekki ég heldur, sagði Jill Frinton. — Og ég h'eld að hann hafi farið með Noreen Wilks heim — heim til hans — og faðir hans hafi komið að. þeim og allt hafi farið upp í loft. Og svo getur hver sem er reynt að geta í eyðumar. En ég held að strax og Sir Amold komst að því hvað Derek hafði gert, hafi hann kom- ið Noreen í burtu á einhvem hátt. Hann mátti til, að öðrum kosti hefði orðið hræðilegt hneyksli — reglulegur sorp- blaðamatur — hið Ijúfa líf í iðn- aðarhverfunum — svallveizlur 1 Verksmiðjuklúbbnum — verk- smiðjustúlkur látnar stjana við og skemmta vellríkum, erlend- um viðskiptavinum — — Nú, en er það ekki einmitt það sem á sér stað? Þetta var Maggie, sem hafði reyndar ekki ætlað að grípa fram í en gat ekki lengur á sér setið. Jill Frinton stóðst ef til vill ekki Salt lækni snúning, en hún leyfði Maggie ekki að komsist upp með moðreyk. — Lífið er ekki bókabúð, góða mín — — Ég hef ekki verið í bóká- búð alla mína ævi — — En það er ekki held- ur sunnudagaútgáfur sorpblað- anna.... — En var það ekki einmitt hlutverk yðar að hafa upp á þekkilegum stúlkum i þessu samkvæmi? Nei, Alan — skiptu þér ekki af þessu. Égeraðspyrja hana — og ég veit að þetta er satt. v — Já, er það ekki hræðilegt? Jill Frinton sendi henni nístandi augnaráð. — Að hirða þær upp úr hliðargötunum í Birkderi, þar sem eru nokkrar sóðalegar búlur og subbulegir ballsalir — galla þær upp í falleg föt og fara með þær þangað sem þær fá al- mermffegan jaa/t og dryUk og félagsskaip — hræðilegt? Nú jæja — kannski var þeim stundum sýnd ágengni — þær, hafa þurft að taka mannlega á móti öðru hverju — ég kannast við það — og kannski hafa þær líka sumar skreiðst upp í rúm til einhvers fyrir fimm punda seðil, í stað þess að láta káfa á sér og þukla í skúmaskotum — hræðilegt — hræðilegt vitið þér hvemig það er — að vera verksmiðjustúlka í Birkden? Salt læknir varð fyrri til. — Ég ætti að vita það, sagði hann þurrlega, — eftir sjö ára starf sem læknir í einu af aumustu hverfunum. En við skulum halda okkur við efnið. Þér háldið að Sir Amold Donnington — af ótta við hneyksli, sem kæmi við hann, fjölskyldu hans og fyrir- tæki — -hafi gert ráðstafanir til eð tryggja það að um ekkert slíkt hneyksli yrði að ræða. Nrireen Wilks varð að hverfa umsvifalaust. Ekki mátti spyrja neinna spuminga. Lokið var kyrfilega látið á. Og svo kem ég í spilið — eða hvað? — Já, Salt læknir. Mér var sagt þsð í gærkvöld — það var ekki Sir Amold, hann myndi aldrei viðurkenna - tilveru mína — að einhver læknissnuðrari kynni að koma og spyrjast fyrir um Noreen Wilks. Þessi Salt læknir væri að fara frá Birkden hvort eð væri — og kannski fyrr en hann héldi — og ef hann kæmi í klúbbinn, þá ættum við að koma honum í skilning um að hann væri að sóa tímanum — — Og ykkur tókst að blekkja hann eða hitt þó heldur, sagði Maggie kaldranalega. — Heyrið mig nú — verið þér ekki að hælast um, hrópaði ungfrú Frinton. — Ég sá það af augnaráðinu sem þér senduð honum í klúbbnum, að þér álituð hann óttalegt fffl. Reynið bara að neita því! Allt í lagi — hann er slyngur, útsmoginn og senni- lega tillitslaus líkai ■«— og ég er búin að gefast upp — hamingjan hjálpi mér. En hvað um yður og þennan viðkunnanlega bróð- ur yðar? Hvað um föður yðar? Haldið þið að hann sleppi tak- inu á ykkur? Hann hugsar um það eitt að komast að því hvað orðið hefur af Noreen Wilks. Það getur komið að því að hann verði álíka útsmoginn og tillits- laus gagnvart ykkur. — Ég veit ekki hvort þér er- uð aið slá mér gullhamra eða móðga mig, sagði Salt læknir mildum rómi. — En ég held að við getum látið þetta liggja milli hluta- En eitt langar mig til að vita. Hver gaf yður og Dews fyrirmælin í gærkvöld? — Það get ég ekki sagt yður. — Þér eigið við að þér viljið það ekki. — Ég á við það, að ég hef gengið eins langt og ég þori, Salt læknir. Klapparstíg 26 Sími 19800 BUÐIN Condor — Og uncfrr þessam krtngum- stæðum, sagði Alan, — finnst mér það ekki nema sanngjarnt. — Ekki spyr ég að. Maggie var hontwn fokreið. — Salt læknir lét sem hann heyrði ekki þessar orðahnipping- ar systkinanna. — Jæja, Jill, byrjaði hann. Hún greip fram í: — Nú — já, ég er orðin Jiíl núna, eðá hvað? Nú á að beita mýktinni. — Ekki að treysta því, sagði Salt læknir. — Sannleikurinn er sá — ég held að þér heitið Jill í raun og veru — en ekki Frinton — — Jæja — það er aldrei — — Það kemur of vel heim við persónuna — grímuna, ytra borðið — sem þér hafið bygfft svo vandlega upp. Allt svo und- ur ólíkt Bmkden- Frinton. Fín- heit. Fjarlægð frá öðrum. Úng- frú Jill Frinton. Borð handa ung- frú Frinton. Símtal til ungfrú Frinton. Jill Frinton. Cadrigan Mansions númer 6. Mjög áhrifa- mik’ð. Of áhrifamikið. Þess vegna segi ég að þetta sé ekki yðar rétta nafn. — Og ég segi, srjgði Alan reiði- lega, — að þér séuð ruddalegur Sqlt — Hún brosti til hans með bakk- læti í svipnum. — En auðvitað hefur hann rétt fyrir sér, þrjót- urinn sá arna. Rétta nafnið mitt er irskt — eitt af þessum nöto- um sem gefa til kynna, ef msð- ur og stúlka, að annaðhvort geti enginn fengið þ;g eða hver sem er. Hún leit á Salt lækni — Jæja þá, kallið mig bara Jill. En ég ætla ekki að segja yður fleira. Ég hef ekki efni á því. — Þér hafið ekki efni á að láta það vera, Jill, sagði Salt læknir. — 1 gærmorgun talaði ég við Hurst yfirlögrefflubjón á lögreglustöðinni. Ég ætla að tala við hann aftur á morgun. Nú er sannleikurinn sá, að Hurst trúir þvf að b»ð sé upphefð og heið- ur að eiga heima f sömu borg og S;r Amold Donnington. En innan sinna takmarka er hann heiðarlegur maður. Hann veit að hann þarf &ð snyrjast fyrir um Noreen Wilks. Ég verð að segjá honum, nð ég viti að hún fór í samkvæmi í klúbbnum hinn 12. september. Eri ég þarf ekki að segja honum — nema þér neyðið mig til þess — hvemig ég komst að þvf. Ég þarf ekki að kvarta yfir . verksmiðjuklúbbnum — — Gott og vel, saeði hún breytulega. — Þér sigrið, aftur. Það var Aricson, sem talaði við okkur f gærkvöld. — Og hver er hann? — Hann er víst kallaður fé- lagsmálafulltrúi. Tommi Lins- dale kallar hann „friðairspilli". Hvernig hann spillir friði veit ég ekki. Ég hef haft lítið saman við hann að sælda. Hann kem- ur dkki oft í klúbbinn. Ég hef hugbrið um að honum falli illa við mig, og ég veit að mér fell- ur jlla við hann. Hann er köld og útreiknuð manngerð, en þó á hann állra geðfelldustu konu og tvö börn. Þér ætlið þó ekki að tala við hann? — Auðvitað ætla' ég að gerai það. í kvöld ef hægt er- Klukk- an er ekki nema liðlega hálfníu. Hvaða símanúmer hefur hann? — Það er í litlu rauðu bókinni þrirna. Jill virtist hálfdösuð. — En verið nú sanngjam, Sailt lækntr. Þér þurfið ekki að segja honum, að þér séuð staddur hér, er það? — Nei, sagði Salt læknir á leiðinni í símann. — Ég erfi ekki neitt við yður, Jill. Ef ég get haldið yður utan við þetta, geri ég það. Hann tók upp litlu, rauðu bókina, en í því hringdi sfminn. Hann svaraði ósjálfrátt. — Sam- tal við yður frá New York. — Ekki leggja á strax, sagði hún í flýti. — Ég tek samtalið inni í svefnherberginu. Hún flýtti sér út og eftir stundar- kom lagði hann tólið á og gekk yfir stofuna f áttina til Maggie og Alan- — Engar spurningar. Það er kannski enginn tími til þess,. Ef Aricson er heima, þá ætla ég til hans. Það . er bezt að þú SKOTTA KARPEX hreinsar gólfteppin á angabragði — Hvað kemur, mikill reykur úr bílnum á hverjum kílómetra? ÚTSALA - ÚTSALA \ Stórfelld verðlækkun á öllum vörum verzlunar- innar. — Notið þetta einstaka tækifæri og gerið fóð kaup. AÐ SELJAST! VERZLUN GUÐNÝJAR Grettisgötu 45 * Utsa/a — Kjarakaup Úlpur — Kuldajakkar — Peysur — Buxur Hvítar fermingarskyrtur — Skyrtupeysur og margt fleira. r _ O. L. Laugavegi 71 SLmi 20171. Gerið við bíla ykkar sjólf Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga. BlLAÞJÓNUSTAN Auðbrekku 53, Kópavogi — Sími 40145. Lótið stilla bílinn Önnumst hjóla- Ijósa- og mótorstillingu Skiptum um kerti. platínur, ljósasarrtlokur. — Örugg þjónusta. BÍLASKOÐUN OG STILLING Skúlagötu 32t simi 13100. Hemlaviðgerðir • Rennum bremsuskálar. • Slípum bremsudælur. • Límum á bremsuborða. Hemlastilling hf. # Súðarvogi 14 — Sími 30135. k

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.