Þjóðviljinn - 07.10.1969, Blaðsíða 9
I
í>riðjuda@ur 7. ofktóber 1969 — ÞvJÓÐVILJINN — SÍÐA 0
Austur-þýzka alþýðuveldið 20 ára
Framhald af 5- siðu-
Hann lagði strax mikla áherzlu
á þau einkenni þess, sem mik-
ilvægust eru: það miðair í senn
að því að hver maður hljóti
einhverja sérþekkingu og svo
að því að í því séu engar blind-
götur: að menn geti haldið á-
fram námi, bætt við sig, hvar
sem þeir eru staddir í kerfinu.
Þetta er að sjálfsögðu merki-
legt, ekki sízt fyrir þá sem
hafa áhuga á því að fræðsla
sé „virk“.
Forskólastiginu er skipt í tvo
áfanga (1-3 ára og 4-6 ára), og
er nú um helmingur barna í
slíkum smábamastofnunum. og
þegar á líður er reynt að tengja
leiki ýmiskonar hagnýtri þekk-
ingu. Síðan kemux tíu ára al-
mennur skóli og ljúka nú um
80% nemenda við hann. Rússn-
eska byrjar í fimmta bekk,
annað erlent mál (frjálst val,
helmingur tekur ensku) í 7.
bekk. Raunvísindagreinar verða
mjög fyrirferðarmiklar þegar á
líður (17 stundir af 36 vikuleg-
um í 10. bekk). Um 3% nem-
enda sækja sérskóla fyrir hæfi-
leikafólk í tónlist, íþróttum,
stærðfræði eða tungumálum
(7.—12. bekkur og þaðan beint
í háskóla).
Um 25% tíundubekkinga
komast í 2ja ára framhalds-
deildir sem lýkur með Abitur,
stúdentsprófi. Schindler sagði,
að við val þangað væri bæði
farið eftir námsárangiri, sósíal-
ískum þroska og skiptingu íbú-
anna í starfsstéttir — við vilj-
um ekki, sagði hann, að nýir
menntamenn komi fyrst og
fremst úr röðum menntamanna.
(Ekki gat ég fengið botn í það
hvemig þessir þrír þættir
sipinnast sarnan við valið).
En fleiri leiðir eru til æðri
menntunar. Eftir tíunda bekk
geta menn farið í þriggja ára ;
sémám og unnið sér rétt til
háskólavistar um leið. — Hér
er um að ræða fagskóla fjrrir
bamakemnara, fóstrur,' tækni-
fræðinga, sérhæft skrifstofu-
fólk, svo dæmi séu nefnd, og
getur legið leið þaðan upp í
ákveðnar deildír háskóla. Nú
sem sitendur koma í hiáskóla
75% frá framhaldsdeildum al-
mennra skóla (samsv. mennta-
skólum) og 25% um sémáms-
skóla. Enn er að geta um þá
sem erfiðast eiga með nám —
þeir geta fairið í 2—3 ára iðn-
nám eftir áttunda bekk (20%
af árgangi nú), og þaðan ef til
vill í sérskóla af næsta stigi.
Margt fleira hafði Schindler
fram að færa sem ekki verður
rakið í stuttu máli. Eitt var,
að unnið var að því að um_
steypa öllu iðnnámi, fækka iðn-
greinum í nokkrar undirstöðu-
greinar sem menn gætu síðan
byggt á ýmisloga sérþjálfun —
er þetta gert til að koma í
veg fyrir að menn lokist inni
í þröngri iðngrein sem tækni-
þróunin getur svo gert úrelta.
Annað var, að starfsfræðsla
hefst strax í 6. bekk — og ári
áður en hvaða námi sem er
lýkur útfyllir nemandi kort með
óskum sínum um áframhald
eða ákveðin störf. Þetta kort
er svo sent til fræðsluyfirvalda
sem í samvinnu við áætlana-
fólk og fyrirtæki gefa sín með-
mæli eða vísa mönnum ann-
að ef of mikil aðsókn reynist í
greinina.
Að elnfalda
Schindler gaf greinargóð svör
yfir höfuð og ekki skal dregið
í efa, að hann hafi fulla á-
stæðu til að bera sig vel: hér
var um það svið þjóðlífs að
ræða þar sem DDR stendur
einna bezt að vígi. Vandinn er
bara sá — með þennan alúð-
lega mann eins og svo marga
kollega hans úr sósíalískum
ríkjum — að það vantar oftasit
ei'tithvað á til að úr út.listun
geti orðið opin samræða um
vandamál. Þetta birtist t.d. í
sterkri tilhneigingu til að gera
lítið úr árekstrum og andstæð-
um, sem auðvitað hlióta að
koma upp þegar eitthvað er
gert sem um munar. Við töl-
uðum t.d. um háskóla í DDR:
þar er líka verið að breyta
mörgu. leysa upp hefð'bundna
deildaskiptingu, breyta um
stjórnunarhætti o.fl. Schindler
minntist á ný ráð við háskól-
ana, félagsráð svonefnd, sém
hann sagði valdamikil. Þar sætu
fulltrúar stúdenta með fullum
atkvæðisirétti eins og prófess-
orar. Ég spurði: Hvernig skipt-
ast atkvæðin? Hann saigði: Það
skiptir ekki miklu hvort stúd-
entar og prófessorar hiafi t.d.
jafnmörg atkvæði eða ekki—
því að hér hjá okkur er ekki
um andstæður að ræða, heldur
það, að ungir og gamlir legg.i-
ast á eitt um að komiast að
hinni béztu laúsn.
Þetta var nokbuð dæmigert
svar: Hjá oltkur eru ekkd and-
stæður, heldur allt á hinum
bezta vegi sósíalismans. (Dr..
Panglosis; Birtíngur). Auðvitað
skal ekki standa á okikur að
óska þess að þeir í DDR leysi
allan sinn vanda fljótt og vel.
F.n þótt rnaður sé ekki gamall
hundur orðinn hefur reynslan
þegar kennt að mannle^ vandia-
mál eru aldrei einföld viður-
eignar, geta ekki verið það. Og
ekki einu sinni víst að það sé
æskálegt.
Árni Bergmann.
Flokksráðsfundur Alþýðubandal.
Framhald af 12. síðu.
erlendis fjárfestingarfjármagns-
Gils lauk móli sínu með því að
gera grein fyrir drögum að álykt-
un um sjálifsitæðis- og utanríkis-
mál og verður ræðan birt í blað-
inu síðar.
Síðcisti framsögumaður á sunnu-
dag var Lúðvík Jótsepsson og er
sagt frá ræðunni á forsíðu blaðs-
ins- |
Að loknum framsöguræðum
fóru fram almennar umræður og
tók fyrstur til máls Eðvarð Sig-
urðsson sem lagði m a. áherzlu á
nauðsyn þess að barátta stjórn-
málásamtaka alþýðunnar og
verkalýðshreylfingari'nnar héldist í
hendur. Þá gerði Jóhann J. E.
Kúld grein fyrir breytingartillögu
við drög að ályktun um efnahags-
og atvinnumál- Haukur Helgason
ræddi iim EFTA og áformin Um
aðild Islands að Fríverzlumar-
bandalaginu. Ræddi Haukur til-
lögu bá, er fyrir lá um EFTA-
málið og verður endanleg gerð
hennar birt í blaðinu næstu daga-
Brynjólfur Bjarnason hóf mál
sitt á því að óska Alþýðubanda-
laginu allra heilla á þeirri erfiðu
siglingu sem framundan væri.
Sagðist Brynjölifur í upphafi hafa
verið andvígur því að Alþýðu-
bandalagið yrði stjómmálaflokk-
ur. En úr því sem komið er, þeg-
pr Alþýðuibiandalagið hefur innan
sinna vébanda meginfylkingu ís-
lenzkra sósíalista, má ekki láta
gamlar væringar hindra mögu-
leika þess. Hann sagði að Alþýðu-
bandalagið væri í dae eini flokk-
ur íslenzkrar alþýðu og því ættu
íslenzkir sósíalistar að efla hann
og styrkja af beztu getu-
Síðan töluðu Ulfar Þormóðsson,
Keflavík, Páll Bergþórsson og
síðan Guðmundur Vigtfússon, sem
gerði meðal annars að umtals-
efni EFTA-ályktun og efnaliags-
og atvinnumál.
Jón Snorri Þorleifsson ræddi
um vandamál byggingariðnaðar-
ins og Hjalti Kristgeirsson um
fjölskyldumálefni. Gunnar Sigur-
mundsis., Vestmannaeyjum. sagði
| m.a. að fóikið í landinu biði eftir
bví að heyra hvaða floklcur ætlaði
| að leysa vandamálin og hvernig-
i Alþýðubandalagið ætti að sýna
| íram á lausnir vandans.
Guðrún Gísladóttir talaði síðan,
J bá Gúnnar Guttormisson og loks
Sigurður Magnússon, en þá var
fundi frestað og um kvöldið
störfuðu umræðuhópar: Umræðu-
hópur um efnahags- og atvinnu-
mál undir forustu Jóns Snorra,
uim utanríkis- og sjálfstæðismál
undir formennsku Þormóðs Páls-
sonar og umræðu/hópur um fé-
lags- og fjölskýldumálefni undir
forustu öddu Báru Sigfúsdóttur.
Á sunnudagsmorgun' hófuist
fundarstörf að nýju um tíuleytið
með því að Kjartan Ólalfsson gerði
grein fyrir tillögum kjörnefndar.
Þá var tekinn fyrir dagskrárlið-
ur um Alþýöubandalagið og bæj-
arstjórnarkosninigaimar og hafði
Guðmundur Vigfússon, borgar-
ráðsmaður, framsögu. Verður
ræða Guðmundar birt hér í blað-
inu síðar- Þeir Ólaifur Jónjsson,
Kópavogi, Bjarni Þórðarson,
Neskaupstað og Sigmar Ingason
tóku til máls undir þessum lið
dagskrárinnar.
Þá gerðu fundarmenm grein
fyrir tillögum sínum um menn í
miðstjórn og síðan voru tekin
fyrir álit nefnda: Hjörleifúr Gutt-
orimsison mælti fyrir áiiti alls-
hei’jamefndar og til máis tóku
síðan Páll Bergþórsson og Er-
lingur Viggósson,
Síðan mælti Haukur Helgason
íyrir nefndaráiliti um EFTA og
Þormióður Pálsson fyrir áliti um
nærtæk verkefni sjálfstæðis- og
utanríkismála. Um þessi mál tóku
til máls þeir Hjörleifur Guttorms-
son og Svavar Gestssan- Voni álit
nefnda þessu næst afgreidd.
Pál Bergþórsson mælti fyrir
nefndaráliti um efnahags- og at-
vinnumál og til máls tóku þeir
Sigmar Ingason, Jón Snorri Þor-
leifsson og Guðmundur Vigfús-
son- Var álitið siðan afgreitt.
Loks var á dagskrá álit aJlis-
herjarne'fndar um reikninga og
fjármál flokksins og kvöddu sér
hljióðs þeir Raignar Arnalds og
Guðmundur Hjartarsson. Lt>ks
var gengið til miðstjórnarkjörs
og er greint frá niðurstöðum þess
í sérstakri frétt frá fundinuiTi.
Adda Bára Sigfúsdóttir sieit
flok'ksráðsfundinum með stuttri
ræðu- 1 ræðu sinni ræddu hún um
aukið starf flokksins, þrotlausa
vinnu félaganna hvar sem er
hvenær sem er við að koma mál-
efnum flolcksins á framfæri við
almenning. Hún þakkaði að iok-
um fundarmönnum komuna á
fundinn, og fundarstjóranum gott
starf og sagði síðan þessum fyrsta
flokksráðsfundi Alþýðubandalagis-
ins slitið.
Innbrot applýst
Á laugardaginn hafði rann-
.sóknarlögreglan upp á þeim, sem
fyrir nokkru stálu gull- og silfur-
munuim fyrir 100 þúsund krónur
úr sýni ngarkassa Kjartans Ás-
mundssonar. Voru þrír unglings-
piltar valdir að þjófnaðinum og
hötfðu falið þýfið, sem hefur nú
miestallt komið til skila.
Samia dag náði rannsóknarlög-
reglan þeiim siem stálu og
skemandu verðmæti fyiir um 100
þúsund krónur í Tómstundabúð-
inni nýlega. Voru þar einnig
unglirigar að vcrki og haifa nú
skilað því sern þeir stá'lu.
Frá Raznoexport, U.S.S.R.
Aog B gœðaflokkar Laugaveg 103 ^ ^ ^
sími .1 73 73
Faðir okkar og tengdafaðir
AXEL CORTES
lézt lauigardiaiginn 4. okit. að heimili siínu, Njarðargötu 76.
Garðar Cortes,
Jódís og Jón Kristinn Cortes.
Slys í Straumsvík
Framhald aif 12. síðu.
Vilhjálm Aðalsleinsson, Vil-
hjálm Ástráðsson og Guðbjart
Gunnarsson. Brenndust menn-
irnir aillir og voru flutitir á
Slysavarðstofuna, þaðan sem
þrir þeirra fengu að fara heim
að lokinni aðgerð, en þeir Gisli
og Rúnar voru lagðiir á sjúkra-
hús með þriðju gráðu brunasár.
Rannsókn slyssins var ekki
lokið í gser og saigði Sveinn
Björnsson rannsóknarlögreglu-
maður í Hiafnarfirði Þjóðviljan-
um, að ekki hefði verið unnt
að rannsaka vettvang slyssins
sem skyldi, þar eð lögreiglunni
hefði ekki verið tilkynnt um
það fyrr en þrem timum eftir
að það skeði og befði þá verið
búið að taka til á siysstað og
verksiummerki borfin. — Kvað
h'ann mjög vítavert að draga
svo léngi að tilkynna slysið og
sagði, áð þetta væri ekki í fyrsta
sinn sem slys á þessum sfað
væri ekki tilkynnt fynr en seint
og síðar meir.
Drjúgt drukkið
Óvenju mikil ölvuin var á
A'kranesi um helgina og yfir-
fyllitust famgageymsiur lögregl-
urmar.
Spellvirkl í
miðbænum
Meðan Volkswagen-bifreið var
skilin eftir í hálfan þriðja tíma
á hoxni Vonarstrætis og Lækjar-
götu si. lauigardagskvöld hefur
eimhver gert sér að leik að kiasita
grjóthnullungi gegnum afturrúðu
bilsins og lá steinninn í bflnum
er að var komið um kl. eitt. Þar
sem rarinsóknarlögreglan telur
sig hafa ástæðu tál að ætla að
skemmdir hafi verið unnax á
fleiri bilum á þessu svæði og
brotnar voru rúður í húsi
skammt frá um þetta leyti eru
þedr sem kynnu að hafa orðið
vairir spellvirkjanna beðnir að
gera lögreglunni aðvart.
IMF samþykkir
„pappírsgullið"
V7ASHINGTON 3/10 — Stjóm
Alþjóða gjaldeyrissjóð'sins (IMF)
samþykkti á fundi sínum í
W ashington í gær gildisföku
samkomulagsins um „sérstakar
yfirclráttarheimiildir“ í sjóðnum,
eða hið svok)allaða ,pappírsgull“
sem á að auðveldia milliríkjaivið-
skipti með allt að 9,5 miljarða
dollara aukningu a yflrdráttar-
heimdldum aðildiarríkja sjóðsdns.
Svefnbekkir — svefnsófar
fjölbreytt úrval.
□
□
Beztu bekkimir — bezta verðið.
Endumýið gömlu svefnhúsgögnin.
S VEFNBEKK J AIÐJAN
Laufásvegi 4 — Sími 13492.
1
Loksins...
þétf blekhylki
ipennann
Platignum
Fátt er auðveldara f notkun en
blekhyjkin frá Platignum
-Þérstingiðaðeins nýju
hylki í pennan begar blekið
brýtur. Hverjum penna
fylgja 4 ókeypis blekhylki.
Platignumsjálfblekungar
ogkúlupennarfástíbóka—
og ritfangaverzlunumum
land allt I fjölbreyttu úrvali.
Athugiðsérstaklega
hagstættverð.
AuBveldir, bœgilegir,
endingargóQir... Þér Þurfið hvorki
að óttast lekan penna né blekbletti
á fingrunum. Platignum
blekhylkin eru Þétt.
Full ábyrgð
Allar Platignum vörur eru
tryggðar gegn gölluöu efni og
vinnu. Gölluð vara er bætt meö
nýrri og ógallaðri.
Einkaumboð: Andvari Hf. Smiðjustíg 4, Sími 20433.
Flugfélag íslands vill ráða reglusaiman
mann á aldrinum 25 - 40 ára til að gegna
starfi starfsmannastjóra.
Umsóknir, með sem fylístum upplýsingum
um menntun og fyrri störf, sendist aðal-
skrifstofu félagsins í Bændahöllinni,
merktar „STARFSMANNAHALD“ fyrir
15. október.
jry •
iCEJLAjyjDAIR
Ritarí éskast
Vífilsstaðahælið óskar eftir að ráða læknaritara
strax í óákveðinn tíma, til afleysinga 1 veikinda-
forföllum. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veittar á staðnum og í síma
42800.
Reykjavík, 6. október 1969.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Byggingarfélag alþýðu
77/ sö/u
2ja herbergja íbúð .1 1. byggingarflokki til sölu.
Umsóknum sé skilað í skrifstofu félagsins, Bræðra-
borgarstíg 47, fyrir' kl. 12 á hádegi miðvikudag-
inn 15. þ.m.
Stjómin.
tmmm