Þjóðviljinn - 06.05.1970, Side 4
4 6®0A — ÞJÓÐVILjJ’T'NN — Miðrvikiudagur 0. miatf 1970.
— málgagn sósíalisma, verkalýSshreyfingar og þjó5frelsis —
Cltgefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmana
Ritstjórar: Ivar H. fónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjórl: SigurSur V. FrlSþjófssoa
Ritstj.fulltrúl: Svavar Gestsson.
Auglýsíngastj.: Olafur lónsson.
Rltstjórn, afgrelSsla, auglýsingar, prentsmlSja: SkólavðrSust. 19. Siml 17500
(5 linur). — AskriftarverS kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00
Einnig mái ísiendinga
því er nú þegar fengin löng reynsla að í hvert
skipti sem ráðamenn Bandaríkjanna tala um
frið í Indókína hyggja þeir á auknar styrjaldar-
aðgerðir. Undanfarna mánuði hefur Nixon Banda-
ríkjaforseti boðað þá kenningu að hann ætlaði að
draga úr styrjöldinni í Víetnam, kalla heim liðs-
sveitir og stuðla þannig smátt og smátt að frtði.
Furðumargir hafa lagt trúnað á þessi fyrirheit,
m.a. dró verulega úr baráttunni gegn styrjöldinni
í Víetnam innan Bandaríkjanna. En á sama tíma
og Nixon hafði frið á vöruim lét hann í verki
undirbúa stórauknar árásir. Bandarísku leyni-
þjónustunni var falið að skipuleggja valdarán í
Kambodju, og þegar landið hafði verið svipt þjóð-
legri forustu, réðust bandarískar hersveitir og
málaliðar inn í landið. Fréttamenn greina frá því
hvernig styrjöldin er háð; himinninn myrkvast af
flugvélaflotum sem varpa sprengjum og bensín-
hlaupi yfir sveitaþorpin; síðan kemur landherinn,
brennir hvert hús og myrðir það fólk sem ekki
kemst undan á flótta — en gefur síðan upp tölur
um að svo og svo margir „kommúnistar“ hafi ver-
ið felldir. Á sama tíima eru stórfelldar loftárásir
á Norður-Víetnam teknar upp á nýjan leik, og
barátta Bandaríkjanna gegn þjóðfrelsisfylkingunni,
í Laos er mögnuð. í stað þess að Nixon þóttistj
ætla að draga úr hinni villimannlegu styrjöld í i
Suður-Víetnam hefur hann magnað hana svo að
bandarískir hermenn sinna nú blóðverkum sínum
í öllum ríkjum Indókína.
pramferði Bandaríkjastjórnar hefur vakið við-
bjóð og reiði um allan heim, mótmælaöldu jafnt
meðal almennings sem ríkisstjóma. Þó eru til
valdamenn sem virðast hinir ánægðustu. f>egar
Jónas Ámason spurði að því á þingi í fyrradag
hver væri afstaða íslenzku ríkisstjórnarinnar til
þessara válegu atburða, kvað Emil Jónsson stjórn
sína enga afstöðu hafa tekið. Hún hefur að sjálf-
sögðu ekki haft tíma til að sinna smámunum eins
og þjóðarmorðum á dögum hinnar skefjalausu ál-
gleði. Ekki hafa hernámsblöðin heldur tekið þátt
í hinum alþjóðlegu mótmælum; blaðamenn þeirra
hafa í staðinn þegið boð uim að skoða herstöðina
í Keflavík, væntanlega til þess að ganga úr skugga
um að bandarísk stjómarvöld gætu veitt Islend-
ingum sömu vemd og ástunduð er í Indókína.
giðferðileg ábyrgð á glæpaverkunum í Indókína
hvílir einnig á þeim ríkisstjómum sem eru í
hemaðarbandalagi við hið vesturheimska stór-
veldi, ekki sízt þeim sem lagt hafa land sitt und-
ir herstöðvar Bandaríkjanna. Afstaðan til þjóða-
morðanna í Suðaustur-Asíu er einnig íslenzkt
innanlandsmál. Þegar menn gera það upp við sig
hverjum flokkum þeir ætla að veita brautargengi
eru þeir einnig að taka afstöðu til styrjaldarmnar
í Indókína. — m.
Grunnt er á mannúðinni, — Bilið milli
„verkalýðsflokkanna.“ — Hver eru árslaun
Jóhannesar Nordals? — Ættu að líta í
eigin barm.
Nýlega birtust í Þjóðviljan-
im tvser greinar um málefni
afbrigðilegra og vangefinna.
Fer því fjairri, að fjiallað
bafj verið nægilega um það
mikla þjóðfélaigslega vanda-
mál, en vonandj hefur þefta
vakið einbverja til umbugs-
unar á því.
í viðtölum þeim, sem hér
um ræðir, er farið mörgum
orðum um nauðsyn mennta-
stofnana og heimila fyrir
þessi olnbogaborn, en einnig
er drepið á þá nauðsyn, sem
er breyttur hugsiunarháttur
hins almenna borgara gaign-
vairt afbrigðilegum og van-
gefnum. Verður aldrei nóg-
samlega brýnt fyrir almenn-
ingi að temja -sér umburðar-
lyndi og biálpsemi gagnvart
þessum borgurum, þvi að
sáík-t er siðferðileg skylda
okkar allra. og enginn veit
nema hann eigi sjálfur eftir
að standá andspænis því
vandamáli að þurfa að annast
afbri’gðilegt barn, og finna,
hve grunnt er á mannúð og
manngæzku á þessu sviði:
Ég kannast við unga stúlku,
sem varð afbrigðileg upp úr
veikindum, og sú mannlega
grimmd. sem hún hefur mætt
sökum þess. tekur enigu taii.
í>að er í sjálfu sér nægilegt
vandamál að fyrir einstak-
linga á hennar þroskastigi
eru engar stofnanir né önnur
félagsleg aðstoð. en hvar sem
hún hefur komið, hefur hún
orðið fyrir bryllilegu aðkasti
og áreitni. Börn og fullorðn-
ir baf a hent gaman að greind-
arskorti hennar. foreldrar
hafa jafnvel bannað börnum
sínum að leika við hana, og
mannúð og skilningur eru af
sivo skornum skarrwnti, að úti-
lokað er að £á henni a-uðveld
störf, sem hún hefði þroska
til að gegna, en hún er ekki
það sem við köllum vangefin.
Hún er aðeins ein af hundr-
uðwm þessi stúlka. fómar-
lamb grimmra örlaga. Hví
reynum við ekki að létta und-
ir með henni í stað þess að
leika hiana ennþá grárra en
örlögin?
P.R.
Rétt f þessu heyrði ég nýj-
asta tilbrigðið j móðursýkis-
kantötu íhaldsins okkar út af
ellefumenningunum frægu —
(sem að vísu voru sextán).
Varð þess Muti tónverksins
ísmeygilega felldur inn í nöld-
urþáttinn um daginn og veg-
enn, en kraitinn, sem flutti
hann núna, heitir Siigurður
Guðmundsson. Undraðist hann
m.a. stórum duig og áræðj ís-
lenzks æskufólks. endia þekk-
ir hann þetta af eigin raun.
Hann hefur um árabil stjóm-
að einni af þeim stofnunum
kerfisins, sem leggja sig í
lím3 um að eera ungu fólki
lífið sem leiðast.
Það er lítið hervirki, að
tugur röskra stráka stjakar
meinléysfslegum hjónaleysum
út úr lítilsigldri stofnun í lág-
reistu húsi. Ef brýnir hags-
munir islenzkra námsmanna,
— að ekki sé minnzt á þarf-
ir sósíalískrar byltingar —
krefjast siíks lítilræðis, þyk-
ir mér nú ekki á það horf-
andi. Má það heita undravert.
að svo lítils þarf við til
að þúsundlhöfðaðir fjölmiðlar
Kerfisins froðufelli í krampa-
kenndum móðursýkisflogum
dag eftir dag*
En slælegur þykir mér Mut-
ur Þjóðviljans í þessu máli.
Sér nú á, að hann er ekki
lengur málgagn byltingasinn-
aðs flokks. Byltingarboðskap
Stokkhólmsávarpsins, sem
raunar var kjami þesis —
hefur blaðið meðhöndlað líkt
og gert var við óhreinu börn-
in hennar Grýlu. Ég er m.a.s.
ekkj alveg viss um hvort
blaðið télur kjaraikröfur
námsmannanna réttmætar.
Er þá ályktun kerfiskrat-
ans ef til vill rétt, að á sama
tíma og Alþýðuflokkurinn
befur færzt til hæigri við
Sjálfstæðisflokkinn, hafi bilið
milli „verkalýðsflokkanna
beggjia" mjókkað.
Franz Gislason.
Hérna eru nokkrir ungir
menn að vinna hjá mér og
i morgunkaffinu vorum við
m.a. að velta því fyrir okkur
hvað yfirlaunaskammtari rík-
isins, Jóhannes Nordal, hefði
sjálfur 1 laun. Hvað skyldi
hann hafa alls: Sem banka-
stjóri, formaður nefnda og
auk þess í ótal nefndum öðr-
um. í bílastyrk. risnu og
margskonar friðindi önnur.
Vill ekkj Bæjarpósturinn
koma þessari spurningu á
framfæri fyrir miig: Hvað
hefur Jóhannes Nordal f árs-
laun? — Kona f Norðurmýri.
Bæjarpósturinn hefur kom-
ið spurningunni á framfæri.
Og nú verður Jóhannes að
svara.
Núna hneykslast forsvars-
menn Sjálfstæðisflokksins
mjög á námsmönnum fyrir
aðgerðix þeirra, en sumir
þessara forsprakka mættu
muna eigin æsku í Heimdalli. •
Ég man til dæmis eftir þeim
Davíð Ólafssyni og Matthíasi
Johannessen fyrir utan sov-
ézka sendiráðið. þar sem þeir
stjómuðu ólátum og ýmsir
viðstaddra urðu fyrir meiðsl-
um af hálfu þeirra sem for-
sprakkarnir siguðu á undan
sér. Og sumir þessara
manna. sem í dag hneykslast
mest og hrópa úr hæstum
stólum, ættu að líta í e'>in
barm áður en þeir fara að
úthrópa námsfólk sem gríp-
ur til örþrifaráða til þess að
fá leiðrétt kjör sín.
Verkamaður.
Sélfræiiþjénusta í skólum innan SASÍH
trtatr
Aðalfundur Samtaka sveitarfé-
laga í Reykjaneskjördæmi var
haldinn í samkomuhúsinu á
Garðaholti Iaugardaginn 4. apríl.
H jálmar Ólafsson bæ jarst jóri
flutti skýrslu stjórnar, en hann
hefur verið formaður samtakanna
frí stofnun beirra. 1 skýrslu for-
manns kom fram að starfsemi
þessara ungu samtaka er orðin
umfangsmikil og fjölþætt.
Stjómin hefur haft mikið sam-
starf við þingmenn kjördæmis-
ins og með þeirra aðstoð fengið
nokkurt framlag á fjárlögum til
að hefja byggingu á heimavistar-
skóla í Krísuvík, en þar er fyr-
irhugað að byggja skóla í sam-
vinnu við sumarbúðanefnd þjóð-
kirkjunnar Þá hefur einnig feng-
izt 10 miljón króna lántökuheim-
ild til rannsókna á iarðhitasvæð-
unum í Krísuvík og Trölladyngj-
um.
Fyrir forgönigu samtakanna var
á síðastliðnu hausti ráðinn sál-
fræðingur, sem gegnt hefur því
í kjördæminu öm He!rra.son sál-
fræðingur, sem gengt hefur þvi
starfi í vetur flutti fróðlegt erindi
á fundinum um starf sitt og sál-
fræðiþjónustu almennt. Kom
fram almenn ánægja með þessa
tilraun og samþykkti fundurinn
tillögu frá stjóminni um að veita
sálfræðingnum starfsaðstöðu og
skrifstofuaðstoð á tveim stöðúm
í kjördæminu og ráða annan sál-
fræðing til starfa á næsta skóla-
ári. Kópavogskaupstaður hefur
um langt skeið haft nokkra sál-
fræðiþjónustu í sínum skólum,
en aðrir skólar í kjördæminu hafa
enga slíka bjónustu haft fyrr en
nú í vetur Á þessi starfsemi vafa-
laust eftir að aukast verulega á
næstu árum.
Á liðnum vetrl hefur verið unn-
ið að því. fyrir forgöngu bæjar-
stjómar Kópavogs að stPtfna
hlutafélag með þátttöku sveitar-
félaganna f Reykjaneskjördæmi.
til að annast framleiðslu og
blöndun olíumalar Á aðalfund-
inum fluttu þeir Ólafur G. Ein-
arssom sveitarstjóri og ólafur
Jensson verkfræðingur erindi um
það mál og urðu um það nokkr-
ar umræður.
Stjóm Samtaka sveitarfélaga f
Reykjanoskjördæmi var öll end-
urkjörin en hana skipa Hjálmar
Ólafsson bæjarstjóri, formaður,
Sigurgeir Sigurðsson sveitarstjóri
og Svginn Jónsson bæjarstjóri i
Keflavík í varastjóm mi’Kpis:^
inn Ó. Guðmundsson Hafnárfirði.
Salóme Þorkelsdóttir, Mosfells-
sveit og Pétur Jónsson Vatns-
leysuströnd.
Stjórn og vaxastjórn Samtaka sveitarfélaga í Reykjaneskjördæmi, talið frá vinstri: Hjálmar Ól-
afsson Kópavogj, Salome Þorkelsdóttir Mosfellssveit, Sigurgeir Sigurðsson Seltjarnarnesi, Sveinn
Jónsson Keflavík, Pétur Jónsson Vatnsleysuströnd, Kristinn Ó Guðmundsson Hafnarfirði.
Listi Alþýðubandalagsins á SuBureyri
Framboðslisti Aiþýðubanda-
lagsins á Suðureyri er þann-
ig skipaður:
1. Gestur Kristdnsson,
skipstjóri
2. Birkir Friðbertsson, bóndi
3. Þórarinn Brynjólfsson,
verkamaður
4. Kristjana Friðbertsdóttir,
frú
5. Einar Guðnason, skipstjóri
6. Hafsteinn Sigmundsson,
skipstjóri
7. Sigurður Ingimarsson,
stýrimaðu-r
8. Valgeir Hallbjömsson,
stýrimaður
9. Gísli Guðmundsson.
vigtarmaður
10. Jóhannes Pálmason,
sókn ar prestur.
Þrír framboðslistar hafa ver-
ið lagðir fram til sveitar-
stjórnaikosninga á Bíldudial —-
K-listi, listi óháðra kjósendia
er borinn fram af Alþýðu-
bandalagsmönnum, Framsókn-
armönnum og stuðningsmönn-
um Hannibals Valdimarssonar.
Listinn er skipaður eftirtöld-
um mönnum:
1. Pétux Bjamason skóla-
stjóri
2. Björn Magnúsison : vélstjóri
3. Ingimar Júlíusson verka-
maður
4. Halldór G. Jónsson, bóndi
5. Guðmundur R. Éinarsson
Framhiald a 9. saðu
t