Þjóðviljinn - 04.06.1970, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — WÖÐVIiLJTNN — Fimmtaiai@ur 4. júní 1970.
— Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandi: Utgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjórl: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson
Sigurður Guðmundsson
Fréttaritstjóri: Sigurður. V. Friðþjófsson
Ritstj.fulitrúi: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Oiafur Jónsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Sími 17500
(5 línur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Óþolandi seinagangur
^einagangurinn í samningunum við verkafólk er
ósæimilegt og afar kostnaðarsamt hneyksli. Það
er almennt viðurkennd staðreynd að kröfur verka-
fólks um kauphækkanir og verðtryggingu launa
eru hófsamlegar og sanngjarnar; meira að segja
málgögn atvinnurekenda viðurkenna í orði að
sjálfsagt sé að fallast á „verulegar kjarabæ'tur”.
Samt er hangið í aðgerðarleysi dag eftir dag. Fyr-
ir kosningar var þessi seinagangur afsakaður með
því að menn þyrðu ekki að láta hug sinn uppi af
ótta við að það yrði mísnotað í kosningunum, en
tregðan hefur haldið áfram óbreytt að kosningum
loknum. Sú ályktun er nú mjög nærtæk að þrátt
fyrir öll fögru orðin ætli atvinnurekendur og
stjómarvöld að draga verkföllin á langinn, sóa
hundruðum miljóna króna af þjóðartekjum til þess
að reyna að beygja láglaunafólk með erfiðleikum
og skorti.
"yerklýðssamtökin og allur almenningur verða að
bregðast við þessum horfum af fullri einbeitni.
Félögin hafa allt til þessa framkvæmt verkföll sín
á rnildan hátt, en nú hlýtur að koma til álita hvört
ekkj her þegar í stað að afnema allar undanþágur,
til dæmis á Keflavíkurflugvelli. Einnig ber launa-
fólki að þrýsta á stjómmálaleiðtoga, m.a. fomstu-
menn Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins
sem geta nú þegar haft úrslitaáhrif á lausn deil-
unnar. Og verklýðsfélögin þurfa með fjársöfnun-
um, fundahöldum og öðrum aðgerðum að sækja
styrk í þá staðreynd að kröfur þeirra hafa yfir-
gnæfandi meirihluta þjóðarinnar að bakhjarli.
Alger forsenda
Ekki dylst að krafan um heiðarlega verðtryggingu
launa er grundvallaratriði í samningunum.
Grunnkaupshækkanir koma fyrir lítið ef jafnframt
er samið um „sjálfvirkt kauplækkunarkerfi“, eins
og Alþýðusambandsstjórn hefur gert tvö undan-
farin ár. Forsenda þess að samningar takist nú er
að fallizt verði á vísitölukerfi, sem mælir verð-
hækkanir að fullu og gerir ókleift að lækka kaup
með skipulagðri verðbólgu.
Sið/eysi
pVrir borgarstjómarkosningamar í Reykjavík
skoruðu Geir Hallgrímsson og félagar hans á
menn að losa flokksböndin og kjósa D-listann til
að forðast glundroða. Ekki dylst að þúsundir
manna hafa orðið við þessu ákalli. En eftir kosn-
ingar leyfa Morgunblaðið og Bjarni Benediktsson
sér að eigna Sjálfstæðisflokknum öll þessi atkvæði.
Fólk ætti að veita þessari staðreynd athygli og
muna hana, ekki sízt þar sem einnig er reynt að
nota fylgi D-listans til þess að skerða hlut launa-
fólks í þeirri örlagaríku kjaradeilu sem nú stend-
ur yfir. — m.
Rúmenar náðu ekki að komast í
gegnum frábæra vörn Englendinga
Heimsmeistaramir unnu 1:0
Heímsmeistararnir frá 1966,
Englendingar, stóðust fyrstu eld-
raunina við að verja HM titiIJ
sinn, er þeir unnu Ri ena 1:0
í fyrsta Ieik þessara liða í HM
keppninni í Mexíkó. Það var að
vísu ekki mikill heimsmeistara-
blær yfir leik Englcndinga og
þetta eina mark þeirra skoraði
Geoff Hurst á 10. m/ínútu síðari
hálfleiks, en áður en það gerð-
ist, hafði hinn frægi, fyrirliði
Englendinga, Bobby Moore
bjargað á Iinu snemma í fyrri
hálfieik.
Rúmenska liðið byrjaði mjög
vel og var oft nærri þvi að
skora en vöm Englendinganna
var mjög sterk og örugglega
betri hluti liðsins, stóð af sér
allar sóknarlotur Rúmena. Þeg-
ar svo líða tók á leikinn, náðu
Englendingar betri tökum á
leiknum og voru sannarlega ó-
heppnir að skora eikki. Til að
mynda áttu þeir tvívegis skot í
stöng í fyrri hálfleik. Það vakti
athygli fréttamanna, hve illa
Englendingunum var tekið af
áhorlfendum, sem allan leikinn
hvöttu Rúmena eins og um
heimalið væri að ræða og er
greinilegt að um samantekin
ráð Suður-Ameríkuþjóðanna er
að ræða, að hrélla Englending-
ana sem allra mest.
1 síðari hálfleik vom Eng-
lendingarnir greinilega sterkari
aðilinn og eftir- að Hurst sikor-
aði markið á 10. minútu léku
þeir fyrst og fremst upp á að
halda forskotinu, með ýtrasta
öryggi. Hinn heimskunni knatt-
spyrnumaður Bobby Charlton,
sem að þess-u sinni lék sinn
103ja landisleik fyrir England,
átti mjög góðan leik og m.a.
átti hann skot af lönigu færi,
sem rétt strauk þverslána, en
hann er hvað þekktastur fyrir
langskot sem margan markvörð-
inn hafa hrellt. Það má því
segja að Englendingar hafi
staðizt fyrstu eldraunina i að
verja HM titill sinn hvað sem
síðar verður.
Uruguuy áttí ekki / nemum
erfííleikum mei Ísraelsmenn
Og sigraði 2:0 sem var sízt of stór sigur
Eins og fyrir fram var búist
við, var um algeran einstefnu-
akstur að ræða í leik Uruguay
og ísraels í 2. riðli HM i
Mexíkó. Israelsmenn hafa Iöng-
um verið kunnari fyrir annað
en knattspyrnu, en Uruguay-
menn aftur á móti lengi verið
Perúmenn snéru vörn í sókn
Búlgarar voru komnir í 2:0 en töpuðu síðan 3:2
Hann varð sannarlega sögu-
legur leikur Perú og Búlgaríu
í HM úrslitunum s.l. þriðju-
dagskvöld. Hinn frægi brasil-
íski knattspyrnumaður Didi,
sem var í heimsmeistaraliði
Brasilíu 1958 og 1960, er þjálf-
ari Perúmanna og það kom
strax í ljós, að hann hafði gefið
liði sínu skipun um sóknarleik,
því lítil áherzla var lögð á varn-
arleikinn og innan tíðar var
staðan orðin 2:0 fyrir Búlgaríu.
En „enginn ræður sínum
næturstað“ stendur einhvers-
staðar“, og það sannaðist þama,
þvi eftir að Perúmönnum hafði
tekizt að skoi-a eitt mark, var
sem liðið færi loks í gang og
það svo um mumaði. Varð nú um
áður en yfir lauk hafði Perú-
algeran einstefnuakstur að
búlgarska markinu að ræða og
Perúmenn
rændir
Á meðan leikmenn Perú
voru á sríðustu æfingu sinni
fyrir leikinn gegn Búlgaríu,
brutust þjófar inn í hótelið
þar sem Perúmenn hafa að-
setur og stálu fleiri 'úísund
dollurum frá leikmönnum.
Strax þegar rikisstjóm Perú
frétti um þetta sendi hún
skeyti til leikmannanna um
að þeir skyldu engar
áhyggjur af þessu hafa,
þeim yrði bættur skaðlnn.
Lcikir S0. og Sl. 'maí 1970 1
Vfllur — Í.A.>) |x / 1- 1/
I.B.K. — Í.BA.') 2
Í.B.V.,— Fram1) 2 ý- -
Jlftiiknr —- Sclfoss3) x; 2 - 2
Völsungftr — Ármann*) / bcec.ii>
Brönsliöj Frcm / / - 0
3í 1901 — B 1903 2 0 - 1
ItnmlerB — Ilvidovre 2 0 - 2
Vcjlo — K.B. / V - 2
GjVJ.S. — Norrköping 2 2 - V
IlaTnraarby — Elfsborg / 2 - 0
öster — A.I.K. / / • 0
mönnum tekizt að skora tví-
vegis í viðbót og sigruðu þvi
verðskuldað 3:2.
Það bjuggust fáir við miklu
af Perúmönnum fyrir þessa
keppnj, en eftir, þennan leik,-
ber mönnum saman um að þeir,
séu til alls líklegir,' slík tilþrif
sýndu þeir í leik sínum. Þvi
var spáð fyrir keppnina að
þeim liöum, sem síðast komu til
Mexíkó, kæmi til með að ganga
illa í keppninni vegna þess að
leikmenn þeirra hefðu ekki
vanizt þunna loftinu í þeirri
hæð sem leikið er. Þetta virð-
ist ætla að sannast á búlgarska
liðinu, sem var með þeim sið-
ustu, sem til Mexíkó kom. Það
er ámk. athyglisvert að því
skyldi ekki takast að halda 2:0
forskoti út síðari hálfleik, svo
mikill getumunur er varla á
liðunum.
meðal bestu knattspyrnuþjóða
heims. Þessi 2:0 sigur Uruguay
var sízt of stór miðað við igang
leiksiius.
Uruguaymenn urðu fyrir því
óhappi að einn af þeirra beztu
leikmönnum, Rocca meiddist
mjög illa svo vafi leikur' á,
hvort hann getur leikið meira
með í keppninni og ef svo verð-
ur gaeti það þýtt, að Uruguay
kæmist ekki í 8 liða úrslitin
eins og fyrirfram var talið
öruggt. Með Israel #g Uruguay
í riöli eru Svíar og Italir og
stendur keppnin um að komast
i 8 liða úrslitin milli þessaxa
3ja liða.
Fram Rvíkur
meistari
Með því að sdgra Val 3:0,
tryggði Fram sér Reykjavíkur-
meistaratitilinn 1970. Fram
hafði yfirburði í þessum leik
og það sem meira var leik-
mönnunum tókst að skora mörk
svo ef til vill má ætla að álög-
unum hafi verið létt af Frömm-
urum. Það var nýliði í Fram-
liðinu, Kristinn Jörundsson sem
skoraði tvö af mörkum Fram
en Erlendur Magnúsison eitt.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík verður opinbert uppboð háð að
ÁRMÚLA 26, laugardag 6. júní 1970, kl. 10.00 og verða þar seldar ýmsar
vörur, sem innflytjendur hafa látið hjá líða að greiða af aðflutningsgjöld,
svo sem kvenskór, hitunartæki, vélahlutir, blómlaukair, bílalakk, þynnir,
skrifstofustólar, undirburður, hráefni, umbúðir, bómullarefni, nylon-
undirfatnaður, rafhlöður, flóki, kæliskápar, barnakjólar, þéttiefni o.fl.
Ennfremur eftir kröfu sama verða seldir ýmsir lögteknir hlutir, svo sem
flygill, auglýsingaklukka, saumavél, ísvél, skósmíðavélar og 2 Pfaff-
saumavélar.
Á sama stað og tíma verða seMir fjárnumdir munir eftir kröfu lögmanna,
banka og skiptaréttar, svo sem sófasett ,sófaborð, armstólar, skrifborð. skrif-
borðsstólar, rafm.ritvél, ýmsir varahlutir í Toyota bifreiðir, svo sem bílgrind,
vatnskassi, stuðarar, framhurðir, afturhurðir, kistulok, boddyhliðar. aftur-
bretti, frambretti, síls, ca. 1800 stk. bílkerti, hosuklemmur. Ymsar gerðir
af sjónvarpstækjum, ísskápar, borðstofusett, hansahillur, kæliborð, ljósa-
stillingartæki, hvíldarstólar, eldavélar, 23 stk. ræsivökvadælur. pen.skápur,
radiofónar, hárþurrkur, þvottavélar, 24 bindi New Standard Encyclopedia,
stálstólar. málverk, fatnaður, búðarkassar, bandsög, gólfteppi, reiknivél,
loftpressa, rammaskurðarhnífur, I.B.M. rafm.ritvél, borðstofuhúsgögn o.m.fl.
Greiðsla fari fram við hamarshögg. Tékkávísanir ekki teknar sem greiðsla
nema með samþykki uppboðshaldara.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.