Þjóðviljinn - 07.06.1970, Blaðsíða 1
Sunnudagur 7. júní 1970 — 35. árgangur — 125. tölublað.
Fyrsti fundur bœjarstiórnar Kópavogs
Fyrsti fundur bæjanstjómar
Kópavogs var haldinn s. 1. föstu-
dag. Bæjarstjóri Hjálmar Ólafs-
son setti fund og bauð bæjar-
fuilltrúa velikomna og flutti ýtar-
legt yfirlit yfir stöðu bæjarsjóðs
og framkvæmdir bæjarins. Siðan
kvaddi hann aldursforseta Huldu
Jakobsdóttur til að stjórna fundi.
Fram kom tillaga um að fresta
öllum kosningum í bæjarstjórn,
á embættLsmönnum bæjarstjórn-
ar og nefndum til næsta fundar,
með þeirri undantekningu að
umboð bygginganefndar Hafnar-
fjarðai-vegar var framlengt.
★
Með því lýsti bæjarstjómin
mótatkvæðalaust fullu trausti
sínu á byggingamefnd Hafnar-
fjarðarvegar, en hún hafði orðið
fyrir mjög óvægilegum árásum
í kosningabaráttunni af hálfu
Huldu Jakobsdóttur, sem birti í
blaði sínu dylgjur um óreiðu
og óheiðarieik nefndarinnar í
störfum. Með samþykkt þessari
hefur bæjarstjóm lýst þessi um-
mæli tilhæfulauisan óhróður
Hins vfðtæka verkfalls
gætir nú æ meira í þjóð-
lífinu eftir þvi sem hver
dagur líður, og em nú um
15 þúsund manns i verk-
falli. Hvergi verður breyt-
ingin þó eins mikil og við
höfnina í Reykjavík. Þar
sem venjulega er iðandi líf,
er nú þögn ■ og kyrrð og
skipin kúra við haifnar-
bakkann eða halla sér hvert
að öðm.
' Þrettán flutningaskip em
nú þegar stöðvuð í Reykja-
víkurhöfn vegna verkfalls-
ins, og kom Selfoss síðastur
í gærkvöld. Auk þessara
skipa eru í höfninni austur-
þýzkur togari og franska
herskipið sem kom á
þriðjudag og fer aftur á
mánudáginn. Syo kemur
Gullfoss á mánudaginn óg
er ekki vitað enn hvort
hann leggst að eða far-
þegarnir verða selfluttir í
land.
Verkfall aftur
boðað syðra
hjá Loftleiðum
Sáttasemjari boðaði samninga-
fund með deiluaðilum M. 16 í
gær í Alþingishúsinu. Verkalýðs-
og sjómannafélag Keflavikur
boðaði verkfall á fimmtudag hjá
Lbftleiðum á Keflavíkurflugvelli
og kemur það til framkvæmda
11. júní. Stöðvast þá allt milli-
landaflug
Alþjéðleg
vörusýninq
í Reykjavík
12—15 lönd taka væntanlega
þátt í VII. vörusýningu Kaup-
stefnunnar sem haldin verður í
sýningahöllinni í Laugardal 26.
áynst til 11. september 1971.
Hófst undirbúningurinn þegar
fyrir tveimur mánuðum og hefur
nokkur hundruð aðilum verið
boðin þátttaka.
Sýning þessi á að verða al-
menn kaupstefna á bæði tækni-
og neyzluvörum. Er þetta fyrsta
alþjóðlega sýningin sem haldin
er hér á landi. Ráðgert er að
sýningin verði á allt að 6500
fermetra svæði og verða settir
upp tjaldskálar við Laugardals-
höll og einnig sýnt á útisvæði.
Einu .uimfangsmesta verkelfni
Kaupstefnunnar—Reykjavík, en
’bað fyrirtælci var stofnað fyrir
15 ámm, sýningunni Heimilið
„Veröíd innan veggja“ er nú
að Ijúka. Stærstu verkefni Kaup-
stefnunnar auk þeirrar sem lýk-
ur í dag vom sýningarnar 1955,
1957 og 1967.
Sýningarstjóm Alþjóðlegu
vörusýningarinnar er skipuð
beim Gísla B. Björnssyni, Hauki
Björnssyni og Ragnari Kjartans-
syni, sem jafnframt er fram-
lcvæmdastjóri sýningarinnar.
DIODVILIINN
Þjóðviljinn er
W 20 síður í dag,
rfc á sjómannadaginn,
2 blöð: 8 og
?£• 12 síðna.
• •
RIKISSTJORNIN STODVADI
TILBOD ATVINNUREKENDA
Þab sem dregur verkföllin á langinn: Pólitiskf ofsfœki SjálfsfœSis-
flokksins, eymd AlþýSuflokksins og óheilindi Framsóknar
Síðdegis í gær boðaði sáttasemjari fund með
fulltrúum almennu verklýðsfélaganna og full-
trúum atvinnurekenda. Hafði fundur þá ekki
verið haldinn síðan á fimmtudag, en raunar má
segja að fundirnir síðustu viku hafi ekki verið
annað en form, tilgangslaust hangs yfir engu.
Ekki hefur farið dult að það er sjálf ríkisstjóm-
in sem hefur stöðvað samningaumræður; um
miðja vikuna kom hún m.a. í veg fyrir að at-
vinnurekendur Iegðu fram tilboð um fulla verð-
tryggingu launa samkvæmt vísitölu.
60 íslenzkir rafvirkjar
enn þá við störf erlendis
Félag íslenzkra rafvirkja
hér í Reykjavik fór í verk-
faffl. á miðnætti aðfaranótt
] augardagsins og sátu þeir
fyrsta siáittafund kl. 9 á föstu-
dagskvöld og gerðist ekkert
á þeim fundi. Stóð hann til
miðneettis og hefur engin
fundur verið boðaður síöan-
Um 330 rafivirkjar hafa lagt
niður vinnu hér á höfuðborg-
arsvæöinu og hafa þeir uppi
svipaðar kröfur og málmiðn-
aðarmenn, sagði Magnús
Geirsson, formaður félagsins í
viðtali við Þjóðviljann í gær.
Rafvirkjar vinna hluta af
sinni vinnu á ákvæðisivinnu-
taxta svo sem í byiggingar-
iðnaðinum. Nú hafa þeir hug
á því að færa hann út og
setja til dæmis verkstæðis-
vinnu og ralfvélavirkjun undir
ákvæðisvinnu.
Atvinnuleysi hefur verið
hjá raifvirkjum samfara því
að kjör hafa dregizt aftur úr
undanfarin ár. Hyggjast raf-
virkjar leiðrétta þennan mun.
Magnús segir að 60 rafvirkj-
ar af öllu landinu vinni nú
í Danmörku, Svílþjóð og
Þýzikalandi.
Nýlega stofnuðu raflvirkjar
á öllu landinu Rafiðnaðar-
saimlband, og er Félagisllenzkra
rafvirkja eitt af félögunum í
því sambandi. 3 helztu flélög-
in auk Reykjavífcurfólagsins
eru félögin á ■ Akureyri, Suð-
urlandi og Suðurnesjum. Nú
um helgina ræða stjórnir
þessara félaga um svipaðar
aðgerðir og Reykjavíkurfé-
lagið
Stöðvuðu tilboð
Fyrri hluta vikunnar var eink-
um ræðzt við um vísitölukerfið,
og sérfræðingar fengnir til þess
að rei'kna út alfleiðingarnar af
ýmsum hugmyndum sem frarn
höfðu komið. Um miðja viku
voru horfur á því að atvinnu-
rekendur myndu gera grein fyrir
nýjum tillögum um vísitölukerfi,
jafnvel að þeir myndu faillast
á óskerta vísitölu. En þá gerðust
þau tíðindi að embættismenn
ríkisstjórnarinnar lögðu fram
nýtt plagg um stöðu útflutnings-
atvinnuveganna. Gekk þetta
plagg algerlega í berhögg við
það sem þessir sömu aðilar
höfðu áður haldið fram, m. a.
þegar þeir töldu — fyrir kosn-
ingar — að útflutningsatvinnuveg-
irnir þyldu í senn 10% gengis-
hækkun og verulega kauphækk-
un. Nú var niðurstaðan allt í
einu sú að útflutningsatvinnu-
vegimir þyldu ekkert umfram þá
kauplhækkun sem þegar væri bú-
ið að tojlóöa! Þetta furuðlega skjal
gat ekki haft neinn tilgang ann-
an en þann að koma í veg fyrir
ný tilboð og stöðva samninga-
viðræður, cnda varð þeim lil-
gangi náð.
Tjónið nemur
hundruðum miljóna
Sú stöðvun á framleiðslu sem
rfkisstjómin efnir þannig til
verður kostnaðarsamari fyrir
þjóðarbúið með hverjum degi
sem líður. Þjóðarframleiðslan
mun í ár verða um 100 milj. kr.
á dag, en meginþættirnir í þeirri
framlciðslu lamast nú í æ ríkara
niæli, svo að senn má telja tap-
ið í hundruðum miljóna króna.
Ástæðan fyrir því að svo frá-
leitur herkostnaður er lagður á
þjóðina er annars vegar ofstæki
Sjálfstæðiisflokksins, sem því
miður . hefur aukizt við . úrslit
sveitairstjómarkosninganna, og
■aumingjaskapur ■ Alþýðuflokks-
ráðherranna, sem liggja undir
þungum þrýstingi í fiokki sín-
um en þora samt ekkert að
aðlhafást.
Botnlaus óheilindi
Raunar em óheilindi Fram-
sóknarforustunnar einnig völd að
því að ofstæki Sjálfstæðisflokks-
FraimhaJd á 12. siðu.
Sumarferð Alþýðuhancialagsins
Alþýðiubandalagið í Reykjavík efnir til sumarferðar
surmudaginn 5. júlí n.k. Farið verður í Húsafellsskóg og um
Borgarfjarðarhérað. Síðar verður gerð nánari grein fyrir
leiðinni hér í blaðinu og nánari upþlýsingar gefnar um
ferðina.
Eins og menn muna var sumarferð Alþýðuþandalagsins
í Reykjavík á sl. ári afar fjölmenn og er ekki að efa. að
mjög margir hafa hug á að taka þátt í ferðmni um
Borgarfjörð að þessu sinni. Verða þaulkunnugir farar-
stjórar til leiðsagnar í hverjum bíl.