Þjóðviljinn - 16.06.1970, Page 2

Þjóðviljinn - 16.06.1970, Page 2
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 16. júra' 1970. Aðalritari Evrópuráðs á Íslandi: Sameining Evrápu — péiitískar og efnahagslegar hindranir Nýkjörinn aðalritari Evrópu- ráðsins, dr. Toncic-Sorinj, til skamms tíma utanrikisráðherra Austurrikis, er í heimsókn á íslandi og ræðir m.a. við ráða- menn um staðfestingu íslands á ýmsum samþykktum Evrópu- ráðsins. Dr. Toncic-Sorinj ræddi við blaðamenn í gær. Hann fór vinsamlegum orðum um að að- ild Islands að störfum Evrópu- ráðs, með „lifandi lýðræði" sínu og ýmislegri sérsitöðu gæti það unnið gegn því, að meigin- landshugsunarháttur yrði of sterkur á málþingum evrópskra stjómmálamanna í Strassbourg, sem aðalritarinn taldi um margt betur virkan vettvang til afgreiðslu ýmissa mála en Sameinuðu þjóðiænar, enda um samstæðari hóp ríkja að ræða. Hann kvaðst fagna því að ís- land hefði stigið djarft spor til þátttöku í sameiningarþróun Evrópu með aðild að EFTA“. Dr. Toncic-Sorinj heimsækir nú aðildarríki Evrópuráðs hvert af öðru; hérlendis mun hann, sem fyrr segir -ræða um aðild íslendinga að ýmsum sam- þykktum ráðsins, einkum á sviði félagsmála. Hann lagði á- herzlu á þýðingu ráðstefnu um mengun og náttúruvemd sem Evrópuráðið mun efna til á næsta ári og um rétt til eftir- lits með reglum sem settar verða í þeim málum — muni þetta verða þýðingarmikill lið- ur í undirbúningi að heimsráð- stefnu á vegum Sameinuðu þjóðanna um sömu mál 1972. Hann mintisf og á nýlega ráð- stefnu sem baldin var í Haag, m.a. um eiturlyfjamál, en á- standið væri mjög óviðunandi í þeim efnum oig þörf harka- legra aðgerða á Evrópumæli- kvarða. Dr. Toncic Sorinj taldi það brýnast verkefna Evrópuráðs- ins í .framtíðinni að samræma tvo úndirstöðuþætti i tilveru þess: það vær; annarsvegar ból- virki ákveðinnar hugmynda- fræði — vestræns lýðræðis með tilheyrandi mannréttindum — hinsvegar vild; það stefna að sameiningu allrar Evrópu. I Evrópu væru hinsvegar all- mörg ríki sem ekki fullnægja fyrrnefndum pólitískum kröfum til aðildar að Evrópuráði. Aðal- ritarinn taldi hugsanlegt, að stjóimarf ar og löggjöf í ýmsum ríkjum breyttust í þeim mæli, að aðild þeirra að Evrópuráði kæmi á dagskrá — og nefndi þá Spán annarsvegar og Júgó- slavíu hinsvegar. Aðalritarinn taldi þær buig- myndir, sem lægju að baki sam- starfinu innan Efnahagsbanda- lagsins og EFTA jákvæðar, en í reynd ekki fullægjandi til sameiningar Evrópu — t.d. væri sá samruni sem EBE. gerði ráð fyrir óaðgengilegur fyrir hlutlaus ríki eins og Austur- ríki, Sviss og Finnland. Hann taldi að sameiningarþróun Evr- ópu yrði að byggjast á frjáls- um vilja ríkjanna — en þegar lengra liðj mundi samstairi þeirra verða orðið svo víð- tækt að ekki mundi mögulegt fyrir einstök ríki að snúa við blaðinu, nema að stefna efna- hag sínum í mikinn háska. Aðalritarinn sagði að sam- skipti Evrópuráðsins og G-rikk- lands væru nú við frostmark, og væru þau eingöngu háð því hvort framtíðarþróun yrðið sú í Grikklandi að það ætti aft- urkvæmt að störfum ráðsins. Hat- ur á Svíum Að undantfömu hefur oröið næsta fróðleg breyting á af- stöðu Morgunblaðsins til ail- þjóðamála. Áratugum saman hefur það blað talað um Rússaveldi sem kvalastað fór- dæmdra og víti til vamaðar ölllum frjálsum mönmum; hef- ur sú trúfræðilega skilgrein- ing haildizt óhögguð til skamms tímia. En síðustu mán- uðina hafa Sovétn'kin greini- lega þokað um set í Morgun- blaðiniu og annað land öðl- azt sess sem versta og háska- legasta ríkið á yfirborði hnatt- arins, einskonar fmynd hans í neðra. Þetta land er Sví- þjóð. Nú væri að vísu ekkert við það að athuga þótt Morg- unblaðið gaignrýndi ýmsa þætti í fari Svía og sæmskra stjómmálaledðtoga, engu frek- ar en ástæða er táíl þess að hneykslast á því þótt Svfum j fínnist sitthvað kynlegt í okk- ar háttum. En viðbrögð Morg- unblaðsins hafa farið langt út fyrir þessi mörk. Blaðið hefur unnið marfkvisst að því að reyna að ala á almennri ó- vild í garð Svía og aills sem sænskt er, magna einskonar þjóðarhatur af svipuðu tagi og kynþáttafiordóma. Hefur þetta viðhortf komið einkar ljósiega fram hjá snjöllustu hug- myndafræðingum Morgun- bflaðsins, Matthíasi Johann- essen og Jóhanni Hjálmars- syni. Alvarlegast er þó að upptökdn eru greinilega hjá Bjama Benediktssyni, sjálfum forsætisráðherra Islands. Hann hetfur sem kunnugt er þann hátt á að losa sig viku- lega við ýrnsan óhroða sélar- lífsins í ritsmíð þá sem netfn- ist Reykjavíkurbréf, og að undanfömu hetfur þessi miður geðslaga framleiðsla ékki sa'zt bitnað á sænslku þjóðinni. ! tyrradag taiar hann till að mynda um „sálklotfning Svía“: hann segir að þeár hafi á stríðsárunum verið „Kandlang- arar Hitlers" og það hafi ver- ið meira „en sænsk sam- vizka þoldi. Þess vegna er á hehni opið, ógróið sár ’eða þjóðin síðan haldin sálklctfn-. ingi, hvernig sem sérfræðing- ar komiast að orði. 1 þessu hafa fróðir menn viljað leita skýringanna á þvi, að Svíar komia otft fram sem einskonar aillsherjar tengdamóðir heims- byggðarinnar.“ 1 gervi bónbjargarmannsins Þetta dómadags þvaður er að því leyti fróðflegt að Bjami Benediktsson talar um Svía sem eina heild og notar hug- tök eins og þjóðarsól og þjóð- arsamvizka. öllum dómbærum mönnum kemur saman um að fyrirbæri af því tagi séu hvergi til; hins vegar hafa þær gervihugmyndir oft ver- ið notaðar einmitt til þess að innræta mönnum andúð á heilum þjóðum. (Það hlýtur hins vegar að vera einkaimál fiorsætisráðherrans hvers vegna hann telur það ámælis- vert að hegða sér eins og tengdaimóðir.) Á hinn bóginn er fiulll ástæða til að huga að sál einstaklingsins í sam- bandi við þessi skrif Bjama Benediktssonar. Síðustu árin hefur hann cftar en einu sinni brugðið á það ráð að lfelta á náðir sænskra valdlhafa í gervi bónbjargarmannsins. Þegar hann sótti síðast Norð- urlandaráðsfund f Stokkhóflmi, sátu íslenzkir námsmenn fyrir honum og gerðu honum grein fyrir miklum efnahagsivanda- málum sínum. Viðbrögð Bjama Benediktssonar urðu þau að hann bað sænsk stjómarvöld og raunar stjlóim- ir annarra Norðurlanda að veita íslenzkuim námsmönnum bá fjárhaigsaðstoð sem alþingi Islendinga hafði neitað utn. Þessi máláleitan vakti al- rnenna furðu og fékk ekki samrýmzt flöggjöf annairra Norðuriandaiþjóða, en samt hafa Svíar á ýmsan hátt greitt götu íslenzkra námsmanna sérstakflega. Enn leitaði Bjarni Benediktsson á náðir Svía og annarra Norðuriandaþjóða í samlbandi við inngöngu í EFTA, og að þessu sinni bað hann um bein fjánframllöig til þess að effla iðriþróun hérlend- is. Stofnaður var sérstalkur iðnþróunarsjóður að upphæð 1.232 milj. kr. mestmegnismeð framlö'gum frá Svíum, Finnum, Dönurn og Norðmönnum, og leggja Sviar firam 475 mdljón- ir króna. Hér er um að ræða lán sam eiga að vera vaxta- laus í 10-25 ár, en það ákvæði jafngilldir því að Islenddngar fái að gjöf hundruð miljóna króna, en silfk vildarkjör tíðk- ast vart í milliríkjaviðskipt- um, jafnvel ekiki þeigar í hlut eiga snauðustu þjóðféflög á jarðríki. Vissulega birtist mik- il vinsemd í þessum fjárfram- lögum, enda njóta íslending- ar næsta einstæðrar velvilld- ar á Norðurlöndum þar á rneðal í Svíþjóð, en mörguim hérlendium mönnum finnst forsætisráðherrann hafa mis- notað þá góðvild og lotið furðu lágt í nauðleitum sínum. Bakbliðin á vanmetakenndinni Ekki er vitað að Bjami Benediktsson hafi haft önnur kynni af Svíum seinustu árin en einmitt þessi. Þaima hlýt- ur því að vera að finna ástæð- umar fyrir því að Rússar hafa nú orðið að þoka um set sem verstu fúlmenni mannkynsins en Svíum í staðinn áskotnazt sá -fcitill. Það er einnig næsta alþekkt sálltfræðile'gt fyrirbæri að mienn geta upptendrazt af sérstöku hatri í garð velgerð- armanna sinna; þar birtist bafchliðin á vanmetakennd- inni. En jafnvél þótt þannig megi skýra viðibrögð Bjama Benediktssonar frá mannlegu sjónarmiði, ber honum að minnast þess að hann á því aðeins opinber saimskipti við aðrar þjóðir að hann er for- sætisráðherra Islands; það sem hann seigir og skrifiar er ekkert svartagallsraus í ein- staklingi. Og hefur honum ekki komið í hug að það kunni að verða dálítið óþægi- legt að horfa fraiman í kol- lega sína sænsfca næst þegar hann þarf að hitta þá — og biðja þá um viðvik. — Austri. Staða sveitarstjóra í Grindavík er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. september 1970. — Ráðning miðast við 1. janúar 1971. Umsóknir skal senda til oddvita Grinda- víkurhrepps. Sölufólk Sölufólk óskast til að selja merki Þjóðhátíðar- dagsins 17. júní. Há sölulaun eru greidd. Merkin eru afgreidd að Fríkirkjuvegi kaupastofnun Reykjavikurborgar). 3 (Inn- í»jóðhátíðarnefnd. SAMBAND ISLENZKRA SYEITARFELAGA Ritgerðasamkeppni Samband ísl. sveitarfélaga hefur ákveðið að halda ritgerðasamkeppni um efnið: „Réttindi og skyld- ur sveitarstjómarmanna“ þ.e. bæjarfulltrúa og ; hreppsnefndarmanna. Veitt verða ein verðlaun, kr. 50.000,00, fyrir þá rit- gerð, sem bezt verður talin að dómi sétfstakrar nefndar, sem er svo skipuð, að í henni eiga sæti: Hjálmar Vilhjálmsson ráðuneytisstjóri, Ólafur Jó- hannesson prófessor og Páll Líndal formaður Sa’m- bands ísl. sveitarfélaga. ÖHium er heimil þátttaka í samkeppninni. Ritgerðir, sem ætlazt er til, að verði ÍJ-jSir-arkw.ifí mi Skírnisbroti, skulu vélritaðar og afhentar í skrif- stofu sambandsins eigi síðar en 15. janúar n.k., auð- kenndar með dulnefni, en. nafn höfundar skalu fylgja í lokuðu umsilagi. Með veitingu verðlauna áskilur sambandið sér rétt til birtingar á ritgerðinni án sérstaks endurgjalds. SAMBAND ÍSLENZKRA SVEITARFÉLAGA Auglýsing Samkvæmt 'tillögu Fisksjúkdómanefndar og með skírskotun til laga nr. 38 11. maí 1970 um breytingu á lögum nr. 53 5. júní 1957 um lax- og silungsveiði, er hér með skorað á veiðieigendur, leigutaka veiði- vatna og veiðimenn að þeir hlutist til um sótthreinsun veiðitækja og veiðibúnaðar,: « áður en veiði er hafin í ám eða vötnum hér á landi, leiki grunur á því að búnaður þessi hafi áður verið notaður við veiðiskap í Stóra-Bretlandi eða írlandi. Sótthreins- un skal framkvæmd með 2% formalín- blöndu í vatni í 10 mínútur. Landbúnaðarráðuneytið, 15. júní 1970. Auglýsingasíminn er 17 500 ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.