Þjóðviljinn - 16.06.1970, Side 4

Þjóðviljinn - 16.06.1970, Side 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudaigur 16. júni 1970. — Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Utgefandi: Utgáfufélag Þjóðviljans. Framkv.stjórh Eiður Bergmann. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson Sigurður Guðmundsson Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson Ritstj.fulltrúí: Svavar Gestsson. Auglýsingastj.: Olafur Jónsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00. Skattsvikin gkattskrár hafa nú verið lagðar fram víðast hvar um landið. Mörgum finnast skattarnir þung- bærir að vonum, en þó er miklu erfiðara að sætta sig við mismununina og ranglætið sem einkennir skattheimtuna. Hver einasti maður á íslandi hef- ur slík dæmi fyrir augunum; venjulegir launa- menn bera hinar þyngstu byrðar á sama tíma og alkunnir gróðabrallsmenn sleppa að mestu. Um þetta alvarlega þjóðfélagslega misrétti er rætt ár hvert en lítið er gert til úrbóta. ^kattsvik tíðkast víðar en á íslandi. í Danmörku var sú ósk borin fram við stjórnarvöld s.l. haust að gerð væri áætlun um það hversu mikið fé væri dregið undan skatti. Fjármálaráðherra Dana, í- haldsmaðurinn Poul Möller, hefur nýlega greint frá niðurstöðum þeirrar rannsóknar, en hún var fengin með því að bera saman tölur um skatta- framtöl og tölur um þjóðarfraimleiðslu eftir viss- um reglum. Niðurstaðan var sú ab á árinu. 1968 hefðu um 9.060 miljónir danskra króna í skatf- skyldum tekjum ekki verið taldar fram til skatts. Jafnframt skýrði fjármálaráðherra Dana svo frá að nú yrði gipið til ýmissa ráðstafana til þess að komast fyrir þessa meinsemd, m.a. með því að herða mjög eftirlit með innheimtu á söluskatti. ]yíu miljarðar danskra króna jafngilda yfir 100 miljörðum íslenzkra króna. Það er há upphæð; meira en tíundi hluti af þjóðartekjum Dana. Því miður er engin ástæða til þess að ætla að skatt- svik séu minni hér á landi; margt bendir til þess að þau séu snöggtum meiri. En væru hlutföllin svipuð mætti áætla að um 4.000 miljónir íslenzkra króna væru ekki taldar fram til skatts, enda þótt greiða eigi af þeim gjöld lögum samkvæmt. Það fé sem þannig er stolið undan leggst sem aukn- ar byrðar á þá sem telja heiðarlega fram, hvort sem þeir geria það nauðugir eða viljugir. JJér er um mjög stórfellt vandamál að ræða. Ef gerðar væru ráðstafanir til þess að uppræta skattsvik, með stórauknu eftirliti með innheimtu söluskatts og öðrum hliðstæðum ráðstcÆunum, væri hægt að afnema skat'ta af þurftartekjum og lækka stórlega gjöld af venjulegum launatekj- um. án þess að ríkissjóður og sveitarsjóðir misstu nokkurs í. Þetta vandamál er sérstaklega brýnt nú, þegar láglaunafólk berst harðri baráttu fyrir óhjákvæmilegum kauphækkunum. Verði ekki að gert mun drjúgur hluti þeirra kauphækkana renna í ríkissjóð og sveitarsjóði á sama tíma og forréttindamenn og afætur leika lausum hala án þess að greiða lögboðin gjöld af hátekjum sínum. — m. íslandsmótið 1. deild: ÍA — Fram 2:1 Loks íéru Skagamenn í gang Sýndu að spá manna um ágæti liðsins var á rökum reist ■ Það orkar ekki tvímælis, að leiki ÍA-liðið fleiri leiki eins og það gerði að þessu sinni, og þó einkanlega síðustu 30 mínúturnar, þá verður það ekki auðsigrað af íslenzkum liðum. ÍA-liðinu var spáð miktum frama í þessu íslands- móti, sú spá virtist ekki ætla að rætast í fyrstu leikjum þess, en nú loks fór liðið í gang og sýndi einhvem bezta leik, sem sézt hefur í þessu íslandsmóti. Skagamenn léku undan vind- inum í fyrri hálfleik og sóttu þá mun meira og hvað eftir annað skall hurð nærri hæl- um við Fram-markið. Þó var eins og liðinu tækist aldrei að ná verui ega góðu spili und- an vindinum, sem var nokkuð mikill. Framarar virtust stefna að því að halda jöfnu út hálf- leikinn, en notfæra sér svo vindinn í síðari hálfleiknum eins og títt er að lið geri í svona rokleikjum. Tvö alveg einstök marktæki- færi komu í fyrri hálfleik. Það fyrra átti hinn ötuli tengilið- ur Skagamanna, Jón Alfreðs- son, er hann skaliaði í bver- slá úr opnu færi á 27 mín- útu, en hitt átti Biörgvin Björgvinsson á 30. mín., er hann skaut framhjá, bar sem hann stóð einn með boitann fyrir opnu marki ÍA. Bæði bessi marktækifæri voru með®' þeim beztu sem gerast. Svo á 40. m-'mitu var dæmd hornspyrna á Fram. Guðjón Guðmundsson framkvæmdi spyrnuna og sendi holtann bcint á höfuð Eyleifs Haf- steinssonar, sem skoraði glæsi- Iega með skalla, 1:0. Menn spáðu því að þetta eina mark dygði Skagamönnum j.kammt, þegar Fram væri bú- inn að'ifá" virtdinn í bakið og svo sannarlega virtust -beir ér þannig spáðu. ætla að reyn- ast sannspáir. Fyrstu 10 mfnútur síðari hálfleiksins sóttu Framarar svo stíft, að það hlaut að enda með marki og það kom á 10. mínútu er Ásgeir Elíasson skoraði beint úr hornsipyrnu. Að vísu var þetta dæmigert klaufamark, en sannarlega áttu Framarar skilið að jafna, svo þung var sókn þeirra. En það undarlega gerðist, að við þetta mark lifnaði fyrir alvöru yfir Skagamönnum, sem tóku leik- inn gersamiega í sínar hendur og sóttu látiaust það sem eftir var og hvað eftir annað voru þeir í opnum færum sem ekki nýttust Svo góður var samleikur liðs- ins að langtfmum saman komu Framarar varla við boltann og eimhvern veginn hafði maður á tilfinnin.gunni aðSkaeamönn- um hlyti að takast að skora. En tíminn leið og þegar að- eins voru tvær mínútur eftir af leiknum, leit út fyrir að um enn einn jafnteflisieikinn yrði að ræða. En allt f einu sendi Teitur Þórðarson bolt- ann fyrir markið, en tveir vamarmenn Fram kröfsuðu í boltann, sem hrökk til Eyleifs Hafsteinssbnar, sem aftur skall- aði og skoraði sigurmark ÍA við gífurleg fagnaðarlæti bæði áhorfenda og ekiki síður sam- herja sinna, enda var markið skorað á elleftu stundu. í ÍA-liðinu bar Eyleifur af og sýndi frábæran leik. Hann var sfvinnandi og ógnandi all- an leikinn og sá Skagamann- ana er bezt barðist. Þá átii Helgi Hannesson mjög góðan leik og þótt hann sé nú að koma aftur í knattspymuna, eftir nokkurra ára hlé, hefur hann aldrei verið betri en nú. Þeir Þröstur Stefánsson og Jón Alfreðss'on áttu einnig ágætan leik en aftur á móti vom Haraldur og Guðjón með dauf- ara móti, nema í síðari hálf- leik, er allt liðlð fór í gang. Hjá Fram var það vömin, er stóð sig bezt með .Tóhannes Atilason sem b—*" -- Baldur Seheving og Marteinn Geirsson léku báðir mjög vel. Framlínan stóð sig allvel í fyrri hálfleik, en á hanareyndi lítið í þeim síðari. Dórnari var Guðmundur Haraldssion og dæmdi mjög vel nema hvað honum varð á ein skyssa í fyrri hálfleik. Guðjón Guð- mundsson sótti að Þorbergi markverði Fram og Þorbergur hrinti Guðjóni gróflega, en lét sig falla um leið til jarðar og Guðmundur dæmdi brot á Guðjón. Þarna átti Guðmundur að sjálfsögðu að dæma vita- spymu á Þorberg, en Guð- mundur var í slæmri aðstöðu til að sjá brotið, og þar sem Þorbergur lék það að láta sig falla, leit út fyrir Guðmund, er stóð úti á vellinum, sem Guðjón hefði hrint Þorbergi. — S.dór. Eyleifur Hafsteinsson bezti maður í liði Skagamanna. íslandsmótið 1. deild: KR — ÍBK 0:0 Enn eitt jafnteflið hjá KR Sanngjörn úrslit í ágætum leik — KR hefur gert 3 jafntefli í 4 leikjum ■ I leiðinda yeðri, roki og sfeúraleiðingum, gerðu Kefla- vík og KR jafntefli í íslandsmótinu sl. sunnudag. Fór leikurinn fram í Keflavík. Þrátft fyrir markleysiðiviStt*'‘úm mörg marktækifæri hjá báðum liðum að ræða, en eftir atvikum verður að telja jafnteflið sanngjöm úrslit. Þetta er þriðja iafnteflið, setn KR gerir 1 mótinu í fjórum leikj- um, en aftur á móti tapaði ÍBK þarna sínu fyrsta stigi. Vindurinn stóð alveg þvert á völlinn, svo að hvorugt lið- ið gat notfært sér hann eins og otftar er, þegar roklelkir fara fram. Fyrri hálfleikurinn var mjög fjöru'gur og ágæt- lega leikinn af báðum liðum og þau áttu bæði mörg mark- tækifæri, sem ekki nýttust. Fyrsta verulega marktæki- færið kom á 14. mínútu þegar Magnús Torfason framkvæmdi aukaspymu og gkaut á mark- ið, en boltinn rétt strauk þver- slána. Strax á næstu mínútu myndaðist mikil þvaga fyrir tframan ÍBK-markið og Gunnar Felixspn náði að skjóta, en naumllega var varið í hom. Á 20. mínútu urðu Binari Gunn- arssyni á varnarmstök, sem Baldvin Baldvinsson notfærði sér en skaut framihjá í ágætu færi. Fimm mfnútum síðar átti Bjami Bjamason, miðherji KR, skot af lönigu tfæri, seim Þor- steinn Ölafsson markvörður ÍBK varði vel. Þá átti Magnús Torfason hörkuiskot rétt yfir þverslá á 30. mínútu og 5 mínútum síðar var Jón Ólafur í góðu færi, i eh skot hans strauk þvefsl'ána. Síðan,' á 44. mínútu átti Grétar Magnússon skot, sem KR-ingar vörðu í hom, en • úr hominu áttu ÍBK- menn skot að marki, sem Hall- dór Björnsson varði á línu. I síðari hálfleik dofnaði yfir leiknum, en heldur sóttu Kefl- vfkingar rneira á, það sem etft- ir var leiksins. Eitt bezta tæki- færið í leiknum átti Birgir Einarsson á 16. mín.. er hann komst einn innfyrir KR-vöm- ina en skaut bent í fang Magn- úsar Guðmundssonar mark- varðar. Aðeins mínútu síðar munaði hárstoreidd að Ellert Schram skoraði siálfsmark. er hann hugðist skalla frá markl en hitti boltann svo illa að hann stefndi efst í markhorn- ið, en Magnús markvörður fékik bjargað í hom á síðustu stundu. Á 22 mínútu átti sér stað umdeilt atvik, er Baldvin Baldvinsson komst einn inn- fyrir, Þorsteinn markvörður kom út á móti og þeir lentu saman svo að Baldvin féll' og vildu KR-ingar fá dæmda á þetta vítaspymu, sem þó kem- ur varla til greina, þar sem Þorsteinn setti fótinn fyrir boltann um leið og Baldvin skaut, en Baldvin hljóp síðan á fót Þorsteins og féll við. . . Þá átti Birgir Einarsson skalla í þvertslá á 30. mín., og stuttu síðar var Baldvin Baldvinsson í dauðafæri. en skaut fram- hjá og á 39. mínútu átti Jón Ólafur skalla að marki, en boltinn hrökk f andlit Magn- úsar markvarðar og þaðan í horn. Á þessari upptalningu sést að um mörg marktæki- færí var að ræða hjá báðum ®vo það var ekki því að kenna að leikurinn varð marklaus. Vamir beggja liðanna voru betri hluti þeirra og mið- verðirnir Ellert Schram hiá KR og Einar Gunnarsson hjá IBK beztu menn sinna liða. Þá átti hinn nýi bakvörður ÍBK, Hjörtur Sakkaríasson, miög góðan leik. en hann byrj- aði að leika með tiðinu nú -f vor I framlínu IBK váí- Frið- rik Ragnarsson beztur Og eins átti Jón Ólafur ágætan leik, sinn bezta á þessu keppnis- tímabili. Eins og áður segir var Elí- ert Schram beztur KR-inga og á hnmnm brotnuðu flestar sókn- ir ÍBK Þá áttu B.iörn Ápna- son. Baldvin. Bjarni og Hörð- ur Markan allir ágætan leik. Dómari var Guðión Firmþoga- son og slapp ágætlega frá leiknum. — M.H.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.