Þjóðviljinn - 17.06.1970, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 17. júní 1970 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA g
Sautjándi 'júní ’tákndagur fengins sjálfstæðis, minningardagur
fornrar frelsisbaráttu, hátíðiar og gleðidagur hvert íslenzkt sum-
ar, vakningadagur, sem minnir á ævarandi verkefni frjálsrar
þjóðar í frjálsu landi.
□ -
Samvinnufélögin eiga sér rætur í sjálfstæðisbar-
áttu 19. aldar. Jón Sigurðsson hvatti íslendinga
til að „hafa samtök" um frjálsa, innlenda verzlun.
Samvinnufélögin hafa gert þá hugmynd að öflugri
veruleika en frelsisunnendur 19. * aldar gat órað
fyrir. íslenzk verzlun sem sameign innlendra
manna varð eðlilega einn meginþáttur íslenzks
sjálfstæðis. Og félagshyggjia samvinnufélaganna,
umbótavilji og alhliða framfarastarfsemi er upp
runnin úr jarðvegi íslenzkrar sjálfstæðishreyf-
ingar.
- □ -
Gísli Brynjóífsson sagði í kvæði til Jóns Sigurðs-
sonar:
En fyrst lokið er ei stríði
enn ei sigri hrósa má, ....
Sjálfstæðisbaráttu þjóðar er , aldrei lokið, nema
hún gefist upp. Trú samvinnumanna á landið, for-
ysta þeirra og hugsjónir eru afl, sem allir íslend-
ingar finna að þeir hafa traust og hald af í ævar-
andi sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, hvort seim
þeir játa samvinnustefnu eða ekki.
Samvinnufélögin. Sameign allra íslendinga
H
Samband íslenzkra samvinnufélaga
i
á