Þjóðviljinn - 25.06.1970, Page 10

Þjóðviljinn - 25.06.1970, Page 10
JQ SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Fimimtudagur 25. júní 1970. H.-K. Rönblom: Haustlauf og hyldýpi hann væri að taka við peningum frá nefndinni án þess að hafa rétt til þess. I raun og veru var ekki um neinar slíkar greiðslur að ræða í nafni nefndarinnar. Þess vegna er sennilegast að Bhlevik hafi greitt peningana i nafni nefndarinnar en úr eigin vasa. Ég tel víst ,að hægt sé að koma siíku í kring. — En hvað var unnið við þetta? spurði Vilh'elmsson. — Hann hefði líklega eins getað borgað honum milliliðalaust. — En þá hefði hann orðið að halda áfrarn að borga Báck um alla eilífð. En nú sá hann sér fært að hætta greiðslunum eftir nokkurn tíma og skýra Back frá því að þeir væru báðir í sama báti — ef Báck ljóstaði upp um Ehlevik í sambandi við slysið, þá kæmist hann sjálfur í klandur fyrir svik eða hvað er hægt að kalla það, þegar ein- hver tekur við fjölskyldubótum sem hann hefur ekki rétt til. — Mjög útsmogið. — Eðlileg varúðarráðstöfun af hálfu Ehleviks, sagði Paul þurr- lega. — Báck hafði vit á að láta sér þetta lynda og Ehlevik sem var orðinn einn af máttarstólp- um bæjarfélagsins, hjálpaði hon- um á annan veg og útvegaði honum ágætt starf hjá rafveit- unni. — Hann var auðvitað hræddur þm,. aö ,B.ackrxpypfljt tala. a| ség„ sagði Vilhelmsson, — og þess vegna — Hann bætti við með meiri bfsa: — Og það hdfur auðvitað verið þess vegna sem hann fékk hann til að ganga í stúkuna! — Gerði hann honum nokkurn órétt með því? spurði Paul vin- gjarnlega. — Ég held að Báck hafi ekki þurft yfir neinu að kvarta. Hann öðlaðist öryggi Og það var það sem hann vildi. Og Ehlevik lét æ meir til sín taka í opinberu lífi, og það var það sem hann vildi. Ég veit ekki betur en hann hafi staðið sig með prýði. HÁRGREIÐSLAN Hárgreiðslustofa Kópavogs Hrauntungu 31. Simi 42240 HárgTeiðsIa. — SnjTtingar. Snyrtivðrur. Hárgreiðsln- og snyrtistofa Steinu og Dódó Laugav. 18 III. hæð (lyfta) Sími 24-6-16. Perma — Ekki er hægt að neita því, sagði Vilhelmsson. — Hann hef- ur komið mörgu góðu til leiðar. — Því get ég vel trúað, sam- sinnti Paul. — I raun og veru hefði allt gengið eins og bezt varð á kosið, ef forlögin hefðu ekki gefið þeim gætur og tekið 45 í taumana þegar þeir áttu þess sízt von. — Eiginlega er einhver for- lagakeimur af þessu öllu, sagði Súsanna. — Það var eins og rödd full- trúan.s kæmi langt að; þegar hann talaði um Ehlevik notaði hann fortíð, rétt eins og hann væri að tala um látinn mann. — Hann hafði margar góðar hliðar. Það var ósvikinn þjóðfé- lagsáhugi bak við allt sem hann tók sér fyrir hendur.. Hefði hann ekki orðið svo mörgum að bana, hefði hann náð langt. — Verkfæri örlaganna,- sagði Paul, — var náungi við Stokk- hólmsblaðið sem fékk þá hug- mynd að skrifa flokk viðtala við manneskjur sem einar höfðu lif- að af stórslys. Báck var sjálf- kjörinn í þann hóp. Fyrst var hringt í Ehlevik og hann beðinn um upplýsingar um Báck og ■fékk*,‘uffl1" *l’eið^ 'áð'' ’VftEf 'hvað ti'l stóð. Síðan var hringt í Báck sjálfan eitt kvöldið og honum tilkynnt að .ritstjóri frá höfuð,- staðnum kæmi til hans f næstu viku til að eiga viðtal við hann. Báck átti frægð í vændum, peningum bjóst hann einnig við, og ég veit ekki nema , honum hafi verið enn annara um frægð- ina-en peningana. Hvað sem því leið, þá festist hann á önglinum. — Þegar Eblevik mmntist' á viðtalið við mig, sagði Róthman, — þá var það eiginlega í fram- hjáhlaupi. Hann iét á sér skilja að ritstjórinn væri á hnotskóg eftir lífsspeki. — Það var líka rétt, sagði Paul, — en hann bjóst ekki við því að Báck hefði mikið á boð- stólum af þeim varningi. Lífs- spekina ætlaði hann að leggja fram sjálfur.Honum var mest í mun að fá að vita hvað Báck hefði séð um leið og slysið varð. — En Báck var bundinn a.f sínum eigin — hm —, óheiðar- leika? sagði Vilhelmsson. — Sökin var fyrnd, sagði Paúl, — Til vonar og vara gek'k hann úr skugga um það. Sennilega hafa afbrot EJhlevi'ks ein.nig verið fyrnd. En um stjórnmálamenn gilda aðrar fyrningarreglur en almenning. Ehlevik hefði ' orðið að draga sig í hlé ef allt hefði komizt í hámæli. Enn á ný hafði Back örlög Ehleviks í hendi sér. — Hann hefði væntanlega get- að mútað honum á ný, sagði Vilhelmsson. — Sennilega hefði hann getað það, sagði Paul. — En við verð- um að athuga að nú átti hann í höggi við annan Báck en fátæka dátann sem sat holdvotur og hálflamaður í bílnum hjá honum. Þessi nýi Báck hafði allt sitt á þurru, en þar sem fóik gerir sig sjaldnast ánægt með það sem það hefur, er ekki ó- líklegt að hann hafi fyllzt löng- un til að verða umtalaður og vekja almenna athygli. Við hölf- um sannanir fyrir þvi að hann lagði talsvert kapp á að búa sig undir viðtalið. — En Ehlevik hefði að minnsta kosti getað reynt að semja við Báck hélt Vilhelmsson áfram — Auðvitað, sagði Paul. — Og þess vegna hefur hann trú- lega verið að bíða eftir honum í Pakkhússundinu kvöldið sem stúkuráðsfundurinn var haldinn. Ég geri ráð fyrir því að hann hafi vitað að fundurinn var haldinn? Paul leit spyrjandi á hina og Rothman kinkaði kolli. — Ég hafði sjálfur orð á því við hann. Það var ein ástæðan til þess að ég grunaði — en haldið áfram. — Ég skal segja frá, hélt Paul áfram. Ég segi frá því sem ég held að hafi gerzt, með stað- reyndum og getgátum í einni bendu Þið getið fengið það að- greint eftir á ef þið viljið. — Byrjaðu á einhverju, sagði Súsanna óþolinmóð. — Ehlevik var sem sagt á vappi þarna í sundinu og beið eftir Báck. — Hann var þangað kominn ti’l að gera upp við hann. Hann vissi að í þetta sinni yrði það erfiðara en í fyrra skiptið. Hann geklk þarna um aleinn og óskaði þess með sjálfum sér að þessi óskemmtilegi Báck væri dauður. Þá kom hann auga á stálvírinn og steimhelluna og um leið skaut hinni illu hugmynd upp í huga han.s. Á fáum andartökum tókst honum að strengja vírinn yfir sundið á þessum hættulega stað og svo dró hann sig í hlé. Bezti felustaðurinn í nánd við staðinn er vörubíll sem stendur ólæstur í porti alveg rétt hjá. Þar kom hann sér fyrir og fór að velta fyrir sér hvað hann hefði í rauninni gert. Hann hélt að á- hættan væri ekki sérlega mikil. Enginn hafði séð hann koma og sennilega yrði smástrákum kennt um allt saman. Og Báck myndi örugglega ekki fara yfirum, nei, en hann gæti fengið heilahrist- ing og þá gæti ekkert orðið úr blaðaviðtalinu. Meðan hann sat barna og braut heilann, kom Báck þjótandi og skall L. götuna eins og til stóð. og þegar Ehle- vik kom til að líta á hann, var hann látinn. — Þér haldið þá ekki að Ehlevik hafi haft í hyggju — Orðin þvældust fyrir Vi'lhelms- son og hann gat ekki haldið áfram. — Ég held ekki að Ehlevik sé morðingi að eðlisfari, sagði Paul. — En ef þið sem þekkið hann betur eruð á annarri skoð- un, þá skal ég ekki andmæla ykkur, — Hann hafði þegar tólf mannslíf á samvizkunni, sagði Rothman. — Það var miklu framur slys en afbrot, sagði Paul. — Og hann hafði reynt að bæta fyrir ólánið með þvf að bjarga einu mannslífi. Og svo tortfmdi hann að lokum nýju lífi sem hann hafði bjargað. Þannig fyrirgerði hann því sem hefði getað reikn- azt honum til tekna. — Þetta eru vissulega forlög, sagði Súsanna aftur. Paul leit yfir að glugganum. Hlynurinn varð varla greindur í haustmyrkrinu fyrir utan. — Það var ekki orðið svona slíuggsýnt þegar Ehlevik stóð hjá hinum látna f Pakkhús- sundinu. — Hann hefði getað átt á hættu að til hans sæist og hann þekktist, og hjá því varð hann að komast. Eina undankomuleiðin var að fara eftir Pakkhússundi í áttina að smáiðnaðarsvæðinu og þá leið fór hann. En þegar hann kom að vegamótunum við Smiðsbakka rétt fyrir neðan kapelluna, þá komst hann ekki lengra. Þar stóð kvenmaður sem hann þekkti á tali við lögregluþjón. Hann beið stundarkorn, eina mínútu eða tvær, jafnvel allt að því fimm mínútur. en samtalið hélt áfram Hann varð æ órólegri. Hvernig í skollanum er eiginlega hægt að fá lögreglulþjón til að Hver býður betur? Það er hjá okkur sem þið getið fengið AXMINSTER teppi með aðeins 10% útborgun. AXMINSTER — annað ekki. AKMINSTER ANNAÐ EKKI Grensásvegi 8 — sími 30676. Laugavegi 45 B — sími 26280. Húsruðendur! Geri við heita og kalda krana. WC og WC-kassa, leka á ofnum og hitaveituleiðslum. STILLI HITAVEITUKERFI. HILMAR J. H. LOTHERSSON pípulagningameistari. Simi 17041 — til kl. 22 e.h. Minningurkort • Slysavarnafélags Islands. • Barnaspítalasjóðs Bxingsins. • Skálatúnsheimilisins. • F.iórðungssjúkrahússins Akureyrt • Heleu Ivarsdóttur. Vorsabæ. • Sálarrannsóknalélags Islands. • S.I.B.S • Styrktarfélags van- gefinna • Mariu lónsdóttur. flugfreyju. • Sjúkrahússjóðs Iðnað- armannafélagsins á Self nssi. • Krabbameinsfélags Islands. • Sigurðar Guðmunds- sonar. skólameistara . r i • Minningarsjófis Árna : Jónssonar kaupmanns j • Hallgrimskirkju. j • Borgarneskirkju. • Minningars.ióðs Stcinar' : Richards Elíassonar. • Kapellusjóðs Jóns Steingrímssonar. Kirkjubæjarklaustri. ■ • Akraneskirkju. • Selfosskirkju. • R,!"Uravinafélags Islands. Fást í MINNINGABOÐINNI Laugavegi 56 — Sími 26725. nmnsH) [I HEFUR TEPPIN SEM HENTA YÐUR TEPPAHUSIÐ *• SUÐURLANDS BRAUT 10 * SÍMI 83570 Hárgreiðsiu- og snyrtistofa Garðsenda 21. SlMI 13-9-68 >1 \XSIOX-rósalión ^efnr þæ^ilegan ilm í stofuna . * V

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.