Þjóðviljinn - 25.06.1970, Síða 10
JQ SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Fimimtudagur 25. júní 1970.
H.-K. Rönblom:
Haustlauf
og
hyldýpi
hann væri að taka við peningum
frá nefndinni án þess að hafa
rétt til þess. I raun og veru var
ekki um neinar slíkar greiðslur
að ræða í nafni nefndarinnar.
Þess vegna er sennilegast að
Bhlevik hafi greitt peningana i
nafni nefndarinnar en úr eigin
vasa. Ég tel víst ,að hægt sé
að koma siíku í kring.
— En hvað var unnið við
þetta? spurði Vilh'elmsson. —
Hann hefði líklega eins getað
borgað honum milliliðalaust.
— En þá hefði hann orðið að
halda áfrarn að borga Báck um
alla eilífð. En nú sá hann sér
fært að hætta greiðslunum eftir
nokkurn tíma og skýra Back
frá því að þeir væru báðir í
sama báti — ef Báck ljóstaði
upp um Ehlevik í sambandi við
slysið, þá kæmist hann sjálfur
í klandur fyrir svik eða hvað
er hægt að kalla það, þegar ein-
hver tekur við fjölskyldubótum
sem hann hefur ekki rétt til.
— Mjög útsmogið.
— Eðlileg varúðarráðstöfun af
hálfu Ehleviks, sagði Paul þurr-
lega. — Báck hafði vit á að láta
sér þetta lynda og Ehlevik sem
var orðinn einn af máttarstólp-
um bæjarfélagsins, hjálpaði hon-
um á annan veg og útvegaði
honum ágætt starf hjá rafveit-
unni.
— Hann var auðvitað hræddur
þm,. aö ,B.ackrxpypfljt tala. a| ség„
sagði Vilhelmsson, — og þess
vegna —
Hann bætti við með meiri
bfsa:
— Og það hdfur auðvitað verið
þess vegna sem hann fékk hann
til að ganga í stúkuna!
— Gerði hann honum nokkurn
órétt með því? spurði Paul vin-
gjarnlega. — Ég held að Báck
hafi ekki þurft yfir neinu að
kvarta. Hann öðlaðist öryggi Og
það var það sem hann vildi. Og
Ehlevik lét æ meir til sín taka
í opinberu lífi, og það var það
sem hann vildi. Ég veit ekki
betur en hann hafi staðið sig
með prýði.
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslustofa
Kópavogs
Hrauntungu 31. Simi 42240
HárgTeiðsIa. — SnjTtingar.
Snyrtivðrur.
Hárgreiðsln- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 18 III. hæð (lyfta)
Sími 24-6-16.
Perma
— Ekki er hægt að neita því,
sagði Vilhelmsson. — Hann hef-
ur komið mörgu góðu til leiðar.
— Því get ég vel trúað, sam-
sinnti Paul. — I raun og veru
hefði allt gengið eins og bezt
varð á kosið, ef forlögin hefðu
ekki gefið þeim gætur og tekið
45
í taumana þegar þeir áttu þess
sízt von.
— Eiginlega er einhver for-
lagakeimur af þessu öllu, sagði
Súsanna.
— Það var eins og rödd full-
trúan.s kæmi langt að; þegar
hann talaði um Ehlevik notaði
hann fortíð, rétt eins og hann
væri að tala um látinn mann.
— Hann hafði margar góðar
hliðar. Það var ósvikinn þjóðfé-
lagsáhugi bak við allt sem hann
tók sér fyrir hendur.. Hefði hann
ekki orðið svo mörgum að bana,
hefði hann náð langt.
— Verkfæri örlaganna,- sagði
Paul, — var náungi við Stokk-
hólmsblaðið sem fékk þá hug-
mynd að skrifa flokk viðtala við
manneskjur sem einar höfðu lif-
að af stórslys. Báck var sjálf-
kjörinn í þann hóp. Fyrst var
hringt í Ehlevik og hann beðinn
um upplýsingar um Báck og
■fékk*,‘uffl1" *l’eið^ 'áð'' ’VftEf 'hvað ti'l
stóð. Síðan var hringt í Báck
sjálfan eitt kvöldið og honum
tilkynnt að .ritstjóri frá höfuð,-
staðnum kæmi til hans f næstu
viku til að eiga viðtal við hann.
Báck átti frægð í vændum,
peningum bjóst hann einnig við,
og ég veit ekki nema , honum
hafi verið enn annara um frægð-
ina-en peningana. Hvað sem því
leið, þá festist hann á önglinum.
— Þegar Eblevik mmntist' á
viðtalið við mig, sagði Róthman,
— þá var það eiginlega í fram-
hjáhlaupi. Hann iét á sér skilja
að ritstjórinn væri á hnotskóg
eftir lífsspeki.
— Það var líka rétt, sagði
Paul, — en hann bjóst ekki við
því að Báck hefði mikið á boð-
stólum af þeim varningi. Lífs-
spekina ætlaði hann að leggja
fram sjálfur.Honum var mest í
mun að fá að vita hvað Báck
hefði séð um leið og slysið varð.
— En Báck var bundinn a.f
sínum eigin — hm —, óheiðar-
leika? sagði Vilhelmsson.
— Sökin var fyrnd, sagði Paúl,
— Til vonar og vara gek'k hann
úr skugga um það. Sennilega
hafa afbrot EJhlevi'ks ein.nig verið
fyrnd. En um stjórnmálamenn
gilda aðrar fyrningarreglur en
almenning. Ehlevik hefði ' orðið
að draga sig í hlé ef allt hefði
komizt í hámæli. Enn á ný hafði
Back örlög Ehleviks í hendi sér.
— Hann hefði væntanlega get-
að mútað honum á ný, sagði
Vilhelmsson.
— Sennilega hefði hann getað
það, sagði Paul. — En við verð-
um að athuga að nú átti hann
í höggi við annan Báck en
fátæka dátann sem sat holdvotur
og hálflamaður í bílnum hjá
honum. Þessi nýi Báck hafði allt
sitt á þurru, en þar sem fóik
gerir sig sjaldnast ánægt með
það sem það hefur, er ekki ó-
líklegt að hann hafi fyllzt löng-
un til að verða umtalaður og
vekja almenna athygli. Við hölf-
um sannanir fyrir þvi að hann
lagði talsvert kapp á að búa sig
undir viðtalið.
— En Ehlevik hefði að
minnsta kosti getað reynt að
semja við Báck hélt Vilhelmsson
áfram
— Auðvitað, sagði Paul. —
Og þess vegna hefur hann trú-
lega verið að bíða eftir honum
í Pakkhússundinu kvöldið sem
stúkuráðsfundurinn var haldinn.
Ég geri ráð fyrir því að hann
hafi vitað að fundurinn var
haldinn?
Paul leit spyrjandi á hina og
Rothman kinkaði kolli.
— Ég hafði sjálfur orð á því
við hann. Það var ein ástæðan til
þess að ég grunaði — en haldið
áfram.
— Ég skal segja frá, hélt Paul
áfram. Ég segi frá því sem ég
held að hafi gerzt, með stað-
reyndum og getgátum í einni
bendu Þið getið fengið það að-
greint eftir á ef þið viljið.
— Byrjaðu á einhverju, sagði
Súsanna óþolinmóð. — Ehlevik
var sem sagt á vappi þarna í
sundinu og beið eftir Báck.
— Hann var þangað kominn
ti’l að gera upp við hann. Hann
vissi að í þetta sinni yrði það
erfiðara en í fyrra skiptið. Hann
geklk þarna um aleinn og óskaði
þess með sjálfum sér að þessi
óskemmtilegi Báck væri dauður.
Þá kom hann auga á stálvírinn
og steimhelluna og um leið skaut
hinni illu hugmynd upp í huga
han.s. Á fáum andartökum tókst
honum að strengja vírinn yfir
sundið á þessum hættulega stað
og svo dró hann sig í hlé. Bezti
felustaðurinn í nánd við staðinn
er vörubíll sem stendur ólæstur
í porti alveg rétt hjá. Þar kom
hann sér fyrir og fór að velta
fyrir sér hvað hann hefði í
rauninni gert. Hann hélt að á-
hættan væri ekki sérlega mikil.
Enginn hafði séð hann koma og
sennilega yrði smástrákum kennt
um allt saman. Og Báck myndi
örugglega ekki fara yfirum, nei,
en hann gæti fengið heilahrist-
ing og þá gæti ekkert orðið úr
blaðaviðtalinu. Meðan hann sat
barna og braut heilann, kom
Báck þjótandi og skall L. götuna
eins og til stóð. og þegar Ehle-
vik kom til að líta á hann, var
hann látinn.
— Þér haldið þá ekki að
Ehlevik hafi haft í hyggju —
Orðin þvældust fyrir Vi'lhelms-
son og hann gat ekki haldið
áfram.
— Ég held ekki að Ehlevik
sé morðingi að eðlisfari, sagði
Paul. — En ef þið sem þekkið
hann betur eruð á annarri skoð-
un, þá skal ég ekki andmæla
ykkur,
— Hann hafði þegar tólf
mannslíf á samvizkunni, sagði
Rothman.
— Það var miklu framur slys
en afbrot, sagði Paul. — Og
hann hafði reynt að bæta fyrir
ólánið með þvf að bjarga einu
mannslífi. Og svo tortfmdi hann
að lokum nýju lífi sem hann
hafði bjargað. Þannig fyrirgerði
hann því sem hefði getað reikn-
azt honum til tekna.
— Þetta eru vissulega forlög,
sagði Súsanna aftur.
Paul leit yfir að glugganum.
Hlynurinn varð varla greindur í
haustmyrkrinu fyrir utan.
— Það var ekki orðið svona
slíuggsýnt þegar Ehlevik stóð
hjá hinum látna f Pakkhús-
sundinu. — Hann hefði getað
átt á hættu að til hans sæist
og hann þekktist, og hjá því
varð hann að komast. Eina
undankomuleiðin var að fara
eftir Pakkhússundi í áttina að
smáiðnaðarsvæðinu og þá leið
fór hann. En þegar hann kom
að vegamótunum við Smiðsbakka
rétt fyrir neðan kapelluna, þá
komst hann ekki lengra. Þar
stóð kvenmaður sem hann þekkti
á tali við lögregluþjón. Hann
beið stundarkorn, eina mínútu
eða tvær, jafnvel allt að því
fimm mínútur. en samtalið hélt
áfram Hann varð æ órólegri.
Hvernig í skollanum er eiginlega
hægt að fá lögreglulþjón til að
Hver býður betur?
Það er hjá okkur sem þið getið fengið
AXMINSTER teppi með aðeins 10%
útborgun.
AXMINSTER — annað ekki.
AKMINSTER
ANNAÐ EKKI
Grensásvegi 8 — sími 30676.
Laugavegi 45 B — sími 26280.
Húsruðendur!
Geri við heita og kalda krana. WC og WC-kassa,
leka á ofnum og hitaveituleiðslum.
STILLI HITAVEITUKERFI.
HILMAR J. H. LOTHERSSON
pípulagningameistari.
Simi 17041 — til kl. 22 e.h.
Minningurkort
• Slysavarnafélags
Islands.
• Barnaspítalasjóðs
Bxingsins.
• Skálatúnsheimilisins.
• F.iórðungssjúkrahússins
Akureyrt
• Heleu Ivarsdóttur.
Vorsabæ.
• Sálarrannsóknalélags
Islands.
• S.I.B.S
• Styrktarfélags van-
gefinna
• Mariu lónsdóttur.
flugfreyju.
• Sjúkrahússjóðs Iðnað-
armannafélagsins á
Self nssi.
• Krabbameinsfélags
Islands.
• Sigurðar Guðmunds-
sonar. skólameistara . r i
• Minningarsjófis Árna :
Jónssonar kaupmanns j
• Hallgrimskirkju. j
• Borgarneskirkju.
• Minningars.ióðs Stcinar' :
Richards Elíassonar.
• Kapellusjóðs Jóns
Steingrímssonar.
Kirkjubæjarklaustri. ■
• Akraneskirkju.
• Selfosskirkju.
• R,!"Uravinafélags
Islands.
Fást í MINNINGABOÐINNI
Laugavegi 56 — Sími 26725.
nmnsH)
[I
HEFUR TEPPIN SEM
HENTA YÐUR
TEPPAHUSIÐ
*•
SUÐURLANDS
BRAUT 10
*
SÍMI 83570
Hárgreiðsiu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SlMI 13-9-68
>1 \XSIOX-rósalión ^efnr þæ^ilegan ilm í stofuna
. *
V