Þjóðviljinn - 30.06.1970, Page 2

Þjóðviljinn - 30.06.1970, Page 2
2 SlÐA — ÞJOÐVXLJINN — ÞffKttudagiur 30. júní 1970. Þið munið hann Jörund, leikur Jónasar Árnasonar, hefur verið sýndur við meiri aðsókn í Iðnó en dæmi eru til áður um ísleuzkt ieikrit síðan Leikfélag Keykjavíkur sýndi Hart í bak eftir Jökul Jakobsson um árið. AAetár hjá Leikfélagi Reykjavíkur: 39.114 sýningargestir sáu rúmar 200 sýningar í Iðnó Leikári Leikfélags Reykja- víkur lauk um fyrri helgi og urðu á árinu 216 leiksýningar á vegum félagsins, þar af 207 kvöldsýningar og er það í fyrsta sánn að þaer eru fleiri en 200 á einu leikári. Sýnd voru í vetur 8 leikrit í Iðnó og var helmingur þeima íslenzk- ur, en eitt af leikritunum var tekið upp frá fynra ári, og annað, Kristnihald undir Jökli, -------------------------------«> Guðmundur Sigruði Addison Guðmundur Sigurjónsson er með Zlh vinning og biðskák eft- ir 7 umferðir á aJþjóðlega skák- mótinu í Caracas í Venezuela. í 6. umferð vann Guðaminöur Addison frá Bandaríkjunuim sem var efistur í rmótinu fyrir þá utm- ferð. f 7. umferð tefldi Guðmund- ur við stórmeistairann Banno frá Argmtínu og fór slkáikin í báð, en Guðmundur hefur heddur lafcari stöðu. í 8. umfeirð tefldi Guð- mundur við 'Bisquier frá Banda- ríkjunuim.’ Korpof frá Sovétríkjunum er efstur í mótinu með 6 vinninga og Kavalek frá TéMeóslóvakíu í 2. sæti með 5‘A vinning. Framimistaða Guðmundar í mótinu hefur verið með mikilium ágætum, og á hann eftir að tefla við alíla lökustu mennina að ætia má. tilheyrir í rauninnj naesta leik- ári og verður hin eiginlega frumsýning í haust. Tala sýningargesta var 39.114 og hafði aukizt um 13 þúsund frá fyrra leikári, en þá var hagur félagsins mjög eríiður. Um 30 leikarar störf- uðu í Iðnó eins og undanfa-rin ár. en aðeins 9 þeirra eru fast- ráðnir. Ledkstjórar voru 6, en leikmyndateiknarar 3. Annað starfsfólk leikhússins er um 20 manns. Hæsta sýningartala á árinu var á Iðnó-revíunni, 64 sýn- ingar, en Tobacoo Road var sýnt 50 sinnum og Þið munið hann Jörund, 45 sinnum, ávallt fyrir fullu húsá og mun ekki hafa verið Önnur eins aðsókn að íslenzku leikriti, síðan Hart í bak var á fjölunum í Iðnó. Jörundur verður sýndur að nýju í haust, en um þessar mundir er verið að leggja upp í leikför um landið með Tob- acco Road. I>á sýndi félagið í vetur fyrsta gríska harmleikinn, sem fluttur hefux verið á íslenzku leiksvdði, Antígónu, og ung- verskan samtímaleik, sem um þessar mundir vekur mikla at- hygli víða um heim, í>að er kominn gestur. Ótaldar eru þá sýning-ar á Sá. sem stelur fæti er heppinn ; ástum. eftir Dario Fo, og bamaieikritinu Einu sdnnl á jólanótt, sem sýnt var nokkrum sinnum um jólin. Auk Jörundar verður Það er kominn gestur sýnt aftur í haust, en sýningar á Kristni- baldi undir Jökli hef jast í september, og í októ-ber verður svo frumsýning á hinu fræga írska leikriti Séan O’Caseys Plógur og stjörnur. en leik- stjóri verður gamall góðkunn- ingi íslenzkra leikhúsgesta, Thomas MacAnna. Aðalfundur Leikfél. Reykja- víkur var nýlega halddnn. For- maður er Steindór Hjörleifsson, framkvæmdastjóri Guðmund- ur Pálsson, en leikhússtjóri Sveinn Einarsson. Skreyta veggfíísar með íslenzku grjóti Þrír ungir menn hafa sett á stofn nýtt fyrirtæki að Digra- nesvegi í Kópavogi, Flísagerð- ina s.f. Framleiðslan, sem er flísar til skreytinga bæði utan húss og innan, var kynnt á sýningunni Heimilið — veröld innan veggja. Hráefnið sem notað er til framleiðslunnar er innlent, að undanteknum steinlitum sem notaðiT eru í grunnflöt flís- anna, en þeir eru frá Bayers- verksmiðjunum í Þýzkalandi., Flísamar eru skreyttar á mis- munandi hátt ýmsum mynstr- um og er fellt í þær íslenzkt grjót í ýmsum komastærðum, t.d. er notað til skreytingar hrafntinna, silfurberg. rauð- grýti, liparit og kvars, svo nokkrar tegundir séu nefndar. Getur fólk valið um 5 gerðir og 9 liti. Enn sem komið er eru flísarnar handunnar, en í athugun er að smíða vélar til framleiðslunnar. Eigendur fyrirtækisins eru Gunnar Kristjánsson, múrara- nemi, sem er upphafsmaður þessarar flísagerðar, Garðar Arnkelsson og Gísli Skúlason. Sagði Gunnar blaðamönnum að bann hefði hafið tilraunir með flísagerðina fyrir 8 mánuðum en fyrirtækið tók til starfa fyrir mánuði og hefur þennan tíma afgTeitt pantanir sem bár- ust á sýningunni í Laugardal. Hann kvaðst bafa sótt um einkaleyfi á uppfinningu sinni og hefur lagt umsókn þar að lútandi inn hjá iðnaðarmála- ráðuneytinu. Harin ságði einn- ig að nú þegar væri fengin reynsla fyrir því að flísarnar þola mjög vel veðrun utanhúss; eru það niðurstöður ’-annsókna sem framkvæmdar voru hjá Rannsóknasrtofnun byggingar- iðnaðarins. Innanhúss eru flis- arnar ætlaðar til sknauts í for- stofum, upp með stigagöngum, á innskotsveggi á stofum, kring um arinelda og fleira. Hver fermetrj af flisunum kositar rúmlega 500 krónur og verða þær til í nokkrum byggingar- vöruverzlunum. ðtsvör á Akranesi nema W/z milj. Á Akranesi var alls jafnað niður útsvörum að upphæð kr. 34.467.700 á 1242 einstaklinga og 44 félög. Útsvör einstaklinga voru kr. 33 489.7000,00 og útsvör féflaga kr. 978.000,00. Aðstöðugjöld að upphæð kr. 6.594.800,00 voru löigð á 132 ein- staklinga og 73 félög. Aðstöðu- gjöld einstaklinga voru alls kr. 1.247.400,00 og aðstöðugjöld fé- laga kr. 5.347.400,00. Hæstu samatnlögð útsvör og aðstöðugjöld bera a£ einstakling- um Fríða Proppé lyfsalli krénur 245.000, Viðar Karlsson skipstjóri kr. 182.200 og Guðmundur Magn- ússon hiúsasmíðaimeistairi krónur 173.000 og af féíögum Haraldur Böðvarsson og Co 1.677.700, Þor- geir og Ellert hf. kr. 552.300 og Sfldar og fiskimjölsverksmiðjan hf. tor. 500.100. Umferðarslys urðu í Ölfusi, Flóa og Reykjavík um helgína Nokkuð var um umferðarslys í Reykjavík og á vegum úti á landi um helgina. Tveir piltar siösuðust alvarlega í bílveltu á þjóðvcginum við Ferstiklu á sunnudagsmorguninn, 2 stúlkur voru fluttar á sjúkrahús á Sel- fossi eftir árékstur og minni- háttar árekstrar urðu á nokkr- um stöðuna. Lögregllunni á Akranesi var tilkynnt að bflS frá Reykjavík hefði oltið á vegiruum við Fer- stitóu kl. 10 ó sunnudag. I bfln- um voru fjórir ungir menn, all- ir ölvaðir nema ökiumaðurinn. Slapp hann og einn farþegi með lítiilsiháttar meiðsli en hinirtveir siösuðust. Var annar þedrra fluttur með filugvél til Reykja- vikur eftir hádegið á sunnudag, og lagður hér á sjúkrahús. Hinn liglgur ennþá á sjúkrahúsinu á Akranesi. Inn- ræting Prestastefna Islands var haldin í Reykjavík í síðustu viku, og hún sendi frá sér einkar fróðlega álitsgerð. Þar eru bomar fram mjög ein- dregnar kröfur um það að áróður í þágu evangelísk-lút- erska trúflokksins verði magn- aður í öllum skólum landsins. Á fræðsluskyldualdri verði sú námsgrein kennd „allan vet- urinn. öll skóiaárin'1. en jafn- framt verði hliðstæður áróður tekinn upp á öllum stigum skódakerfiisins, í Kennarskól- anum, Fóstruskólanum, Hús- mæðrakennaraskólamim, verk- námsskólum og öðrum sér- skólum, ennfremur í Hásikóla Islands; og er talið aðkallandi í þessu sambandi að stofna emibætti námsstjóra sem vinni að þessum verk- efnum. Hér er ekiki átt við almenna fræðslu um trúar- brögðin og sögu þeirra, heldur einhliða áióður utn ágæti evangelísk-lúterskra kenninga; hér er farið fram á þaar at- hafnir sem á nútfmamáli nefnast inmæting eða hedla- þvottur. Gegn stjórnarskránni Samkvæmt stjómarskránni á að vera trúfreilsi á Islandi. I 63ju og 64ðu grein hennar er komizt svo að orði: „Landsmenn eiga rétt á að stofna félög til að þjóna guði með þeim hætti, sem bezt á við sannfæringu hvens og eins; þó má ekki kenna eða fremja neitt, sem er gagn- stætt góöu siðferði og alls- herjarreglu, Enginn má neins í missa a£ borgaralegum og þjóðlegum réttindum fyrir sakir trúarbragða sinna, né heldur má nokkur fyrir þá sök skerast undan abnennri félagsskyldu, Enginn er sikyld- ur til að inna af hendi per- sónuleg gjöld til neinnar annarrar guðsdýrkunar ' en þeirrar, ér hann sjálfur að- hyllist.'' Þessi mannréttinda- ákvæði eru alveg skýlaus, en stjórnarskráin er ekki sjálfri sér samkvæm í þessu efrii. Þar er einnig kveðið svo á að hin evangelíska lúterska kirkja sktfll vera þjóðkirkja á tslandi. Hins vegar er tekið fram að þessu ákvæði im þjóðkirkju megi breyta með lögum, svo að það er engan veginn talið jafn rétfihátt og hin almennu trúfrelsisákvæði. Af því leiðir hins vegar að þjóðkirkjan mé ekki aðhafast neitt það sem skerðir frelsi manna til þess að velja sér trúarbrögð eða hafna þeim. Hugmyndin um að neyða skuli upp á ungt fólk evan- gelísk-lúterskum áróðri á öllum stigum skólakerfisins gengur því ekki aðeins í ber- högg við nútímalegar hug- myodir um frelsi einstak- lingsins heldur brýtur hún í bága við sjálfa stjómarskrána. Að þyrma biblíunni Prestastefnan vísar til þess að í firæðslulögum og náms- skrá sé gert ráð fyrir kennslu af slíku tagi á skyldustiginu, og það er rétt. Þar er um að ræða leifar frá fomum þjóðfélagsaðstæðum, þegar hlutverk kirkjunnar var allt annað en nú, En um leið og skólanám varð almennur réttur og skylda var tíma- bært að skilja á milli kennslu og trúaráróðurs. Þróunin hef- ur einnig orðið sú, ekki aðeins hér á landi heldur og í ná- grannalöndum okkar, þar sem skoðanafrelsi er talið til grundvallarréttinda. Því væri það eðlileg hugmynd að fella öll þvílík ákvæði niður úr fræöslulögum og námsskrá, en samþykktir Prestastefn- unnar eru afturhvarf til mið- alda eða áhritf frá einstefnu- þjóðfélögum okkar tíma Með þessu er engan veginn sagt að draga eigi úr kynningu í skólum á biblíunni, skáldskap hennar og lffsspeki, svo ná- komin sem hún hefur verið íslenzkri menningarsögu; öllu heldur er lögð áherzla á að því öndvegisriti verði þyrmt. svo að það verði lifandi bók- menntir en ekki dauð kredda. — Austrl. Um níuleytið á sunnudags- kvöld valt bifl hjá Alviðru í ölfiusi. 1 bflnum voru 7 manns og slösuðust tvær stúlkur, þó ekki álvarlega. Á laugardaiginn kl. 5 ók bíll á brúarstöpul aust- an við Þingborg í Flóa. Var þetta Volkswagen og í honum þrir amerikanar. Einn þeirra slasaðist og var fluttur á Land- spítalann. Lögreglan á Selfossi fór á tvo síðastnefndu slysstað- ina, en hún var einnig beðin um að fjarlægja sauðdrukkinn mann sem reið hesti sínum um bæinn með þvilfkum látum að vegfarendur töldu sig vera í hættu. Reiðför hans endaði með því að hann féfl af baki á Að- algötu. Mikfl uimferð var á „rúntiu- um“ svokailaða í Reykjavik á sunnudagsikvöld og stöðvaði lögregfian umferð í Kirkjustræti um tfma. Einn ökuimannanna þar fór nokkuð greitt af stað aftur og lenti bífl hans á manni sern var á gangi á Kirkjutorgi. Var maðurinn filuttur á Slysa- varðstofiuna og reyndist illa marinn á læri, en óbrotinn. Bæjarmyndír úr stóru safni Harð- ar Agnstssonar Vegna frétta sem birzt hafa hér í blaðinu um sýningu A.rki- tektafélaigs íslands í anddyri Háskólabíós, helgaða islenzka torfbænum, skal það tekið fram að langflestar myndanna á sýn- ingunni eru úr safni Harðar Ágústssonar. skólastjóra _ Mynd- lista- og handíðasikóla íslands, en Hörður er sem kunnugt er manna fróðastur hér á landi um húsakost og híbýlj landsmanna fyrr og nú og hefur á undan- fömum árum viðað að sér geysi- miklum fróðleik um íslenzka byggingarlist, m.a. safnað þús- undum mynda og uppdrátta af húsum og byggingum. Eru mynd- irnar á sýningunni í Háskóla- bíój úr því mikla siafni.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.