Þjóðviljinn - 14.07.1970, Page 1

Þjóðviljinn - 14.07.1970, Page 1
Þriðjudagur 14. júlí 1970 — 35. árgangur — 155. tölublað Veigamiklar breytingar verða á námi í 3 deildum Háskólans — laganám styttist, verkfræðingar útskrifast hér, tvær leiðir í viðskiptafræði, þjóðfélagsfræðanám að hefjast Framvegis geta þeir scm leggja laganám á íslandi séð íram á styttri námstíma en áður, þeir sem fara í viðskiptafræði eiga J um fleiri leiðir að velja og þeir sem setjast í verkfræði- og raunvísindadeild Háskólans geta Iokið námi á Islandi ef þcir vilja. Samkvæmt frétt frá mennta- málaráðuneytinu staðfesti forseti íslands í gær veigamiklar breyt- ingar á reglugerð fyrir Háskóla Islands að því er varðar nám í þessum þrem deildum. Að því er snertir lagadeild voru eldri reglugerðarákvæði um tilhögun laganáms að meginstofni frá ár- inu 1949, en lagadeild hefur unn- ið að endurskoðun þessara á- kvæða síðan 1967. Breytingar þær, sem nú hafa verið stað- festar, og eru samkvæmt til- lögum lagadeildar, stefna að styttingu námstímans, meiri fjöl- breytni í námi í deildinni og meiri sérhæfingu í lokaþáttum námsins. Hingað til hefur reglugerð ekki kveðið á um lengd námsins, en meðalnámstími í lagadeild hefur verið um 6V2 ár. Nú kemur það fram í reglugerðinni, að stefnt skuli að þvi, að embættisprófi sé lokið eftir 5 ára nám. Til þess að ná þessu marki verður náminu nú skipt niður- i þrjá hluta, (2 ár, 2 ár og 1 ár) i stað tveggja áður, og þar með gefin rikari hvatning til náms- afkasta á öðru og þriðja náms- ári en verið hefur. Tveir kjamar í viðskiptafræði. Tillögur sem viðskiptadeild hefur samþykkt um ný reglu- gerðarákvæði um námstilhögun Framhald á 3. síðu. Enn ósamið við 13 féiög í Rvík 13 verkalýðsfélög j Beykjavik hafa enn lausa samninga og miðar lítið 1 samnmgaviðræðum þeirra og atvinnurekenda. FyrSti samningafun'dur Félags kjötiðn. aðarmanna og atvinn urekenda hófst í gær kl. 4. en ekki hafa verið boðaðir viðræðufundir hjá öSrum félögum. ANT-þota vcenfonleg í dag sunnudag' og í gær héldu Sovélmenn áfram ioftflutningum sinum á hjúkrunar- og hjálpargögiium til Perú með viðkomu á Keflavíkurfiugvelli og komu á sunnudag tvær fiugvclar af gcrðinni AN-12 og í gær komu þrjár flugvélar af sömu gerð. Höfðu þær allar viðdvöl > Kefiavík tii þess að taka benzín. Núna með morgninum, væntanlega um níuleytið, er hins vegar væntanleg fyrsta risaflugvélin af gerðinni ANT eða AN-22, ef áætlunin breytist ekki. Er myndin hér að ofan af einni slíkri risaþoíu. 12% hækkun á allri álagningu í smásölu og heildsölu ákveðin □ Á fundi sínum í síðustu viku samþykkti meiri- hluti verðlagsnefndar að heimila hækkun á allri álagningu í heildsölu og smásölu um 12%. Meirihluti verðlagsnefndarinnar var skipaður fulltrúum atvinnurekenda og kaupmanna á- samt oddamanni, en í minnihlutanum voru full- trúar verkalýðssamtakanna. □ Álagningarhækkunin verður tilkynnt í Lögbirt- Sláttur hálfum mánuBi síBur en venjulegn víBast hvar Léleg og sein spretta víftast hvar á landinu veldur því, aft sláttur hefst yfirleitt um hálf- um mánuði síðar en venjulega. Er ekki farið að slá nema á ein- staka bæ og mikið af nýju kali bæði á Austur- og Norðurlandi. Aö því er Sveinn Haiilgríms- pon ráðunautur hjá Búnaðarfé- lagi íslands sagði blaðinu eru heyskaparhorfur heldur sflæmar víðast hvar á landinu og sláttur í seinna lagi. Á Austurlandi er nú mikið um1 nýtt kal í túnum og þar ekki farið að slá nema sumsstaðar á F1 jótsdalshéraði. Á Suður- og Vesturlandi er slátt- ur líka um hálfum mánuði síð- ar en vant er og óvíða farið að slá nokkuð að ráði, en þegar vel sumrar er slætti hins vegar stundum lokið í síðarj hluta júlí- mánaðar hér á Suðurlandi. Norðanlands hefuir lítið frétzt af slætti, þar eru horfur mjög slæmar á öskuíallssvæðunum og víða, einkum í S-f>ingeyj arsýslu er mikið af nýju kali. Hinsveg- ar er ástandið sæmilegt í Eyja- firði og virðist ætla að spretta betur þar. ingablaði næstu daga og verðlagsskrifstofan sendir út nýja verðskrá. Þannig dynur verð- hækkunin strax yfir almenning þrátt fyrir fög- ur orð í stjómarblöðunum um nauðsyn þess að koma í veg fyrir víxlhækkanir verðlags og launa. □ Um þetta mál er f jallað í forustugrein blaðsins á síðu 4. Landsmóti hestamanna lokið Myndin er frá landsmóti hestamanna er haldið var að Skógar- hólum í Þingvallasveit um helgina og sagt er írá í frétt á 12. síðu í dag. — (Ljósmynci Matth. Gestsson). Fjöldi nýrra kenn- ara í Háskólann Stórauknar fjárveitingar til HÍ Vegna breytinga á reglugerð um Háskóla íslands, sem gera ráð fyrir fleiri námsleiðum, fleiri stúdentum og fleirí kenn- urum, verða fjárveitingar til skólans stórauknar á næsta ári. 1 frétt firá menntamálaráðu- neytinu segir, að ríkisstjómin haff í síðustu viku átavarðað heild arfj árveitin gar þær til Há- skólans 1971, sem tillögur verða gerðar um með fjárlagafrum- varpi í haust. 1 reglugerðar- breytingum H.l. feJast nýjungar í námi og hýjar námsleiðir, en jafnframt þarf skólinn að geta tekið við ört vaxandi stúdenta- fjölda, er t.d. búizt við, að skráð- ir stúdentar við Háskólann verði 15% fleiri árið 1971 en á árinu 1970. Allar þessar breytingar hatfa að sjálfsögðu mjög aukinn kostn- að í för með sér, segir í frétt menntamálaráðuneytisins og hef- ur 1 ríkisstjórnin ákveðið, að í fjá-rlagafrumvarpi verði rekstrar- fjárveiting til Háskölans á árinu 1971 a.m.k. 81 miljón króna (mið- að við verðiag og kaupgjald í mai 1970). Sambærileg tala á fjárlögum ársins 1970 var 63,3 miljónir kr„ þ.e. hér er um 28% aukningu að fæða að raunveru- legu verðgildi. Þá ætlar stjórnin að beita sér fyirir því, að allt að 11 miljónum kr. (einnig miðað við verðlag í maí 1970) verði aflað til tækja- kaupa vegna nýrra rannsókna- og tilraunalcennslustofa við Há- skólann. Verður fjáröflun til þessara þarfa samskonar og til bygginga Háskólans, þ.e. ráðstöf- un á hagnaði happdrættis Há- skólans og sérstakar fram- krvæmdafjárveitin-gar. Þá kemur ennfremur frám, að kennaraliði við Háskólann verð- ur fjölgað að mun og mun fjár- veiting til launagreiðslna í til- lögu ríkisstjórnarinnar hækka um a.m.k. fjórðung frá 1970, miðað við óbreytt kaupgjald. Áð tölu til mun þó fastakennurum fjölga mun meira en þetta segir til u-m og er þar að nokkni um skipulagsbi-eytingu að ræða, bar sem fastráðnir kennarar koma í stað stundakennara. Hafa nú verið eða verða aug- lýst 8-9 þrófessoi’sembætti viS Háskólann, 8-9 dósentsstöður og 10-12 lektorsstöður. Er í öllum tilvikum um fullt starf að ræða, en auk þess hafa þegar verið ráðnir eða verða ráðnir á næst- unni allt að 20 aðjunktar til hluta starfs. • Vinnuslys á Akureyri 24ra ára gamall maður varð fyrir slysi við vinnu sína á Ak- ureyri í gær. Vann hann með krana á bíl og rakst kraninn í háspennu-línu, en slysdð varð við spennistöð efst í bænum. Maðurinn brenndist alhnikið á fótum og handlegg. Hann er nú á sjúkrahúsinu á Akureyri. . |

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.