Þjóðviljinn - 11.09.1970, Side 5

Þjóðviljinn - 11.09.1970, Side 5
Fösfeudagur 11. sqptembeir 1970 — ÞJÓÐVTLJTNN — SlÐA g Einkaframtak: Marihuanarækt í gluggakistu. Bandarískir lögregluþjónar eru nú farnir að sjá í gegnum fingur við þá ung- linga sem reykja marihuana á popp-hátíðum. Þau draga úr viljastyrk neyt- andans og eyða löngiun hans til framkvæmda (þ. á. m. allri löngun til að gefa náunganum utanundir). I stað þess opna þau honum nýjan heim, þar sem allar skynjanir verða miklu skarpari en í venjulegu ástandi, nýjar hugmyndir fæðast með ofsahraða, rás tímans breytist og allir hlutir birtast í nýju ljósi og verða jafnvel óþekkjanlegir. Það er ekki úr vegi að birta hér lýs- ingu hassisneytanda á því ástandi, sem hann komst í við neyzlu þess, þar eð íslend- ingum mun sú ölvun öllu ókunnari en sú, sem ég hef þegar lýst Þessi lýsing er eftir Oharles Baudelaire og er tekin úr „Les paradis artifi- deils“: „A þessu stigi ölvunarinnar kemur í Ijós aukinn næm- leiki allra skilniwgarvita. Tlmur, sjón, heym og til- finning breytast jafnmikið. Augun líta til hins óendan- lega. I hinuim mesta hávaða heyrir eyrað hljóð, sem eru næstum því ógreinanleg. Það er á þessu augnabliki, sem ofskynjanimar hefjast. Hlutir taka smám saman á sig furðu- legustu myndir, hverja á eftir annarri. Þeir aflagast og breytast. Síðan koma tvíræðar skynjanir, villur og breytingar hugmynda. Tónamir íiklæðast litum og í litunum felst tón- list. Menn munu segja að þetta sé fullkomlega eðlilegt og sérhver skáldlegur andi geti auðveldlega ímyndað sér slikar samsvaranir í eðlilegu ástandi. En ég hef þegar bent lesandanum á það, að það er ekkert yfirnáittúrulegt við hass-ölvun. Þessar samsvaran- ir verða aðeins óvenjulega skýrar við slík skiiyrði; þær ráðast inn í hugann, fylla hann og drottna yfir honum eins og harðstjórar. Nótur tónlistarinnar verða að tölum, og ef þér hafið einhverja hæfileika á sviði stærðfræði, breytast laglinurnar og sam- hljómarnir í risavaxið reikn- ingsdæmi, án þess þó að giata munaðareðli sínu, og þér fylgizt með tilurð þess og framþróun á óskiljanlega ein- faldan h'átt Og jafn léfetilega og flytjandinn. Það kemur stundum fyrir að persónuleikinn hverfur og þér þróið svo mjög með yður ópersónuleg viðhorf af því tagi sem aligyðismönnum eru töm, að þér gleymið tilveru yðar við að horfa á ytri hluti og rennið brátt saman við þá“. ★ Það er auigljóst að það hljóta að vera þjóðfélög með gerólíkt gildismat, sem vélja þessj tvö geróhTku „fíknilyf11. Cannabislyf hæfa félaigshóp- um, sem meta íihugun og hug- leiðingar mest allra gæða og keppast að þvi að komast í sem nánust tengsl við um- hverfið: skynja liti og hljóð á sem skýrastan hátt og losna úr klafa vanabundinnar og stirðnaðrar hugsunar. Það er /’fka ekki að furða þótt það séu aðallega trúflokkar á Indlandi og í arabaríkjunum, sem neyta þeirra: þeirra æðsta hugsjón er ekki at- hafnalíf (þar með talin her- mennska) heldur dulrænt samband við guðdóminn og alheiminn. Æðsta hugsjón oikkar vest- ræna og kristna þjóðfélags eru hins vegar af allt öðru tagi. Það metur mest atorku og framkvæmdasemi og allar þær dyggðir, sem snerta her- mennsku, þar á meðal þján- ingar, sjálfsaífneitun, fómfýsi o. þ. h. Grundvöllur þess er samkeppnin, framagirnd ein- sitaklingsins, sem gengur kapp- samlega fraim í hemaði til þess að öðlast frægð og frama, og berst við meðbræður sína takmarkað hugtakið „siðferði" við sjálfsafnedtun á sviði kyn- lífs og nautna: eins og kunn- ugt er hefur páfinn haft miklu meiri áhyggjur af „pillunni" en nokkurri styrj- öld, sem geysað hefur á þess- um hnetti síðustu ár. Það er því mjög auðskilið hvers vegna þjóðfélag okkar fordæmir cannabislyf á hinn strangasta hátt, áhrif þeirra eru í algerri andstöðu við allt gildismat þess. Það er því nauðsynlegt fyrir vestur- landabúa að trúa þvi að cannabislyf séu stórhættuleg fyrir einstaklinginn og þjóð- félagið, valdi geðveiki, „geri menn óhæfa til hermennsku“, valdi morðum o>g manndráp- um, og leiði menn í stuttu máli út í alla hugsanlega ó- hæfu. Þessar trúarsetningar eru svo nauðsynlegar að siðan cannabisneyzla tók að breið- ast út á vesturlöndum, hafa fáir fengið að gera tilraunir með áhrif þeirra aðrir en þeir, sem reiðubúnir voru til þess að styðja hina opinberu skoðun Hass-reykingar eru eitt af „uppreisnartáknum" ungra manna popp-tónlist um peninga og þjóðfélagssifeöð- ur: sumir verða undir í bar- áttunni, það eru misheppnaðir menn, „dropouts“ á ensku, en aðrir hljóta að launum frægð, penimga og feitt embætti. Þetta sama þjóðtflélag fiordæm- ir svo að sjálifisögðu nautnir af hvaða tagi sem er, þar á meðal kynferðislíf og epi- kúriska lifnaðarhætti, og allt það annað, sem dregur úr mönnum baráttuikjarkinn og gerir þá óhæfa til að berjast um frægð og fnama. Nefna mætti fjölda dæma um bessi viðhorf úr ritum vestrænna hugsuða, en einna þýðingar- mest finnst mér sú staðreynd, að kristindómurinn hefur Það er á sama hátt auð- ski'lið að áfengi skuli ekiki vera fordæmt á vesturlönd- um, þótt noktours tvískinn- ungs gæti í viðhorfi manna til þess. Áfengisneyzila er nauitn, og því í andstöðu við griundvallarkennisetningar trú- arbragðanna, en um leið eru áhrif þess í svo miklu sam- ræmi við hugmyndafræði og grundvallarviðhortf vestræns þjóðfélags, að ekki er unnt að banna það. Afleiðing þessa tvískinnungs verður sú að þjóðfélagið reynir að draga úr víndrykkju, en um leið sér það til þess að t.d. her,- menn geti haft aðgang að áfengi. Ég las eitt sinn blaða- grein eftir hermann, sem skýrði frá því að þegar hann kom heim til sín að styrjöld lokinni mættu honum flenni- stór áróðurspjöld gerð af opinberum aðilum, þar sem varað var við áfengisneyzlu. Hins vegar höfðu þessir sömu opinberu aðilar séð til þess að hann hefði jafnan aðgang að áfengi þegar hann var á vígstöðvunum og fékk leyfi til að sleppa vélbyssunni stundarkorn. Fyrir nokkrum árum gerði enskur sálfræðingur merki- lega athugun á þorpi í Norð- ur-Indlandi. Hann sýndi þar í hnotskum þau ólíku viðhorf gagnvart áfengi og cannabis- lyfjum, sem við höfum nú fundið með fjarlægum og ó- likur þjóðum. I þessu þorpi var stéttaskipting, eins og víðast hvar á Indlandi, og voru tvær yfirstéttir, rajputar eða hermenn og brahminar eða prestar. Þorpsbúar þekktu til tvenns konar „fíknilyfja“: daru, sem er sterkt áfengi, og bhang, sem er fremur vægt cannabis- í dag, eins og sítt hár og lyf. En það voru ekkl sömu mennimir, sem neyttu þessara lyfija: hermennimir neyttu einungis áfiengis og höfðu engan áhuga á bhang, sem þeir töldu alls ekki fyrir sig, hins vegar neyttu brahmin- amir einumgis bhangs, sem var í þeirra augum mjög heilaigt lyf, en fordæmdu á- fengi algerlega og töldu neyzlu þess syndsamlega. Höifiundur þessarar athugunar (sem helfiur m.a. bdrzt í bandaríska rit- gerðasafninu „The Marihuana Papers“) rannsakaði þetta þjóðféiagsfyrirbæri og fann að skýringin var fólgin í ólíkum viðhorfum og ólíku gildismati þessara tveggja stétta. Hánn reyndi bæði „fíknilyfin“ og komst að þeirri niðurstöðu, að þótt neyzla bhangs væri betri frá félagslegu sjónar- miði, vom áhrif þess svo annarleg og í slíku ósamræmi við hina evrópsku lífsskoðun hans að hann kaus heldur áfengi: video meliora probo- que, detertara sequor. Þótt hassis væri fkveikjan í þeirri bók Baudelaires, sem verður að teljast meðal allira beztu verka hans, „Les Paradis art- ificiels", komst hann um síðir að þessari sömu niðurstöðu, að áfengi væri betra en hassis því að það efldi vilj- ann í stað þess að veikja hann. Eg hef einungis fjallað um áfengi og cannabislyf í þess- um pistli, en það er að sjálf- sögðu auðvelt að skýra neyzlu annarra lyfja eins og ópíums og peyotls á sama hátt. En þegar hingað er komið, rekumst við á nýtt vandamál. Áhrif cannabislyfja em í andstöðu við Mshuigmyndir og gilddsmat þess þjóðfélags, sem við lifum í, hvemig stendur þá á því að cannabis- neyzla er að aukast á vesfeur- löndum? Það er nefnilega ekki einhlítt að líta einungis á áhrif þessara „fí!knilyfja“ og afstöðu þeirra til giildis- mats okkar þjóðfélags, vjð verðum lílka að taka tillit til annars fyrirbæris, t«g það er uppbygging þjóðfélagsins og sú spenna, sem innan þess rfikir Þótt flest sé rólegt á yfir- borðinu á vesturlöndum (a.m.k. miðað við aðra heims- hluta) er ekki vafi á þva að talsverð spenna rókir þar undir niðri, m.a. milli kyn- slóðanna, ungu kynslóðarinn- ar, sem vaxið hefiur úr grasi á síðasta áratug, og hinna éldri. Þessi spenna er í raun- inni eðlileg afleiðing hinnar hröðu þróunar í stjómmalum og menningarmiálum siðustu ára. Vegna fjölmiðla nútím- ans er ekkert því til fyrir- stöðu að ungir menn, sem hafa áhugia á því að fylgjast með þvi sem er að gerast, viti miklu meina um veröldina nú á dögum en gamlir menn, sem hættir enu að fyilgjast með — og siíkt ber oft við. Það skapast þvi mikill mun- ur á viðhorfum ungra manna og viðhorfum mdðaldra manna og eldri, sem eru gjaman nokkuð úrelt (það enu jafnvel til orð, sem túlka þefeta: um suma menn er sagt að þeir hafi ,Jcaldastríðsviðhorf‘ til heimsmálanna). Viðhorfin þróast stöðugt, bilið breikkar og það verður æ erfiðara að brúa það. Ianis Xenakis verkfræðingur og tónskáld sagði einu sinni i fyrirlestri að sér hefði aldrei tekizt að gena nokknum manni yfir fertugt kenningar sínar um nofekun stærðfræði við tón- smiðar skiljanlegar. Ungir menn gera sér grein fyrir þessu, en vegna þess að hér sem annars staðar er það éldri kynslóðin sem ræður, kemur þessi rnuniur á viðhorf- um kynslóðanna fram í upp- reisn yngri kynslóðarinnar. Eins og jafnan þegar slík spenna og uppreisn kiemur fram (nnan þjóðfélags, birtist hún í uppreisnartáknum af ýmsu tagi. Þessi uppreisnar- tákn geta verið mjög marg- vísleg, og hafa fátt sameigin- legt annað en að vera uppreism- artákn, m.a. má nefna popp- tónlist, sítt hár og hassreyk- ingar (hér er ég að sjálfsögðu að tala um vesturlönd í heild, en ékki leland, þar sem cannabisneyzla er naumast til). 1 samræmi við ledkreglur í baráttu kynslóðanna verður éldri kynslóðin svo að telja þessi uppreisnarbákn hættu- leg í sjálfu sér, með því rnóti fær hún kæitoomið tangar- hald á hinn uppreisnargjarna lýð: popp-tónlist er þá talin skeonma heym manna, og sitt hár er talið valida kyrwillu. Hass-reykdngar eru undir sömu sökina seldar. En þær verða þó að téljast enn flókn- ara rnál en hin uppreisnar- táiknin tvö: í okikar menning- arheimi er hugtakið „eitur- lyfjaneyzla“ einn afkomandi hu'gtaksins „syndar“, sem er dálítið farið að láta á sjá. Þjóðfélagslega og sálfræði- lega verða þvi viðhorfin til cannabisneyzlu (bæði neyt- enda og annarra) svipuð cxg viðhotrf manna á fyrri tímum til syndarinnar, hún er for- boðin en lævís og lipur þó. Viðhorf þeirra manna, sem berjast gegn cannabisneyzlu, mótast því mjög af því hvaða spenna rikir í þeirra eiigin sálarlífi, hiver eru viðhorf þeiirra til „syndar“ yfirleitt. Ef menn hugleiða „fíkni- lyfjavandamálið“ frá þessu sjónarmiði, er kannski von til að menn átti sig noktouð á hinni furðulegu mótsögn, þegar blaðamenn sitja við skrifborð sitt, unnvafðir sígar- ettureyk, kannski svoditið slæptir efitir að hafa fengið sér ednn lítimn daginn áður og með afréttara fyrir framan sig, og sfcrifa hróllvekjandi greinar um „ffikmilyfjábölið“. Það er í rauninni rrúklu merkilegra verkiefni að rann- saka hvaða breytingar eru að gerast í menniingarlífi og lífsviðhorfum vesturlandabúa, sem valda því að cannabis- neyzla, sem áður var svo til óþekkt, er nú að aukast, heldur en skrifa óiökstuddar greinar af þvi tagi. Völundur. í SKUGG- SJÁNNI * í i i v

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.