Þjóðviljinn - 17.10.1970, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.10.1970, Blaðsíða 2
2 SlÐA — IxTÖÐVILJINN — Laugardagur 17. október 1970. ReykjanesmótiB í handknattleik '70 Reykjanesmótið í handknatt- leik stendur nú yfir. Sex leikj- um er loláð í meistaraflökki karla, en nú verður einnig leikið í II. flokki karla. Er aetlunin að auka þannig við mótið smátt og smátt eftir því sem tími og húsrými leyfir. Má því búast við því að í fram- tíðinni verði leikið heima og heiman og í öllum flokkum í Reykjanesmótinu í handknatt- leik. Úrslit einstakra leikja fram að þessu eru sem hér segir: Grótta—FH 17:25 IBK — Haukar 16:37 Grótta — Breiðablik 14:15 FH — IBK 29: 9 Breiðablik — IBK 14:25 Grótta — Haukar 21:22 Má búast við því að barátt- an um fyrsta saitið í meistara- flokknum standi milli hinna gömlu keppinauta úr Hafnar- firði, Hauka sem eru núver- andi Reykjanesmeistarar og hinna margreyndu kappa úr FH, en þeir hyggjast nú saakja gull í greipar nágranna sinna í Firðinum. Sex lið taka þátt í keppninni í II. fl. að þessu sinni, en það eru: Stjarnan úr Garðahreppi, Breiðablik úr Kópavogi, Grótta af Seltjam- amesi, Keflvíkingar og Hauk- ar og FH úr Hafnarfirði. Keppninni verður framhaldið á morgun, sunnudaginn 18. þ.m. og hefst kl. 18,00. Verða þá leiknir sex leikir í II fl., Stjaman — Breiðablik, Grótta — IBK, FH — Haukar, Stjam- an — Grótta, Breiðablik — FH og ÍBK — Haukar. Þá fer bg fram einn leikur í mfl. milli FH og Breiðabliks. Laugardag- inn 24. október hefst keppnin kl. 16,20 og verða þá leiknir þessir leikir í II. fl.: Stjaman — FH, Breiðablik — IBK, Grótta — Haukar, Stjaman — ÍBK, Breiðablik — Haukar, Grótta — FH. I mfl. ledka Breiðablik og Haukar. Framhald á 9 síðu. Rödd húsbóndans 1 umræðunum á þingi í fyrradag um hásætisræðu Jó- hanns Haífsteins tók Hannibal Valdiimarsson foimaður frjáis^ lyndra og vinstrimanna m'.a. tiil máls. I ræðunni las hann upp ályktun sem miðstjóm Al- þýðusambands Isilands hafði gert uim leyniviðrasður sínar við ríkisstjómina, en blöðum hafði fram að þeim tíma ver- ið neitað um að þirta ályktun- ina. I svarræðu sinni minnti Jóhann Hafstedn Hannibal á að hann mætti ekki blamda þannig saiman tveimur hlut- verkum sínum á hinu pólit- ísfca leiksviðd, forsetastönfum í Alþýðusambandinu og for- mennsku í hinum frjáls/lynda flokki. Hannibal varð nokkuð litverpur og vandræðalegur við þessar snuprur. Hann hetf- ur vafalaust minnzt þess að Jóhann gat fliutt umvamdanir sínar af nokkru húsbóndavaldi — Hannibal er forseti Al- þýðusambandsins í umboði Sjálfstæðísflöikksdns og Al- býðufflokksins. Að halda fund Eftir kosninigahrakfarimar í vor skipaði miðstjóm Albýðu- flokksins níu manna nefnd til þess að fjalla um stöðu flokiksins og áframhaildandi stjómairsamvinnu. Nefndin átti að skila áliti fyrir I5da ágúst, en élitið birtist ekki fyrr en í 'fyrradag — tveimur mánuðum síðar. Vom það raunar siíðustu forvöð þar sem flokksþing Alþýðuflokks- ins hófst í gær. Aða’tillaiga nefndarinna.r er sú gagnmerka hugimynd „að þingflokki Al- þýðufflokksins verði fallið að hafa frumkvæði að samneigin- legum fundi þingHlokka Al- þýðuflokksins, Samtaka frjéils- lyndra og vinstrimainma og Alþýðubandalagsins til þess að raeða stöðu vinstrihreyfing- ar á íslandd“. Ekki er þess getið í állykt- uninni hvort þingffloktour Sjálfstæðisfflokksiins á ednnig að vera á fundinum eða hvort ætlunin er að skjóta honum inn á milli hinna samedigin- legu funda stjómarfloltkanna. Not- ið tækifærið! Alþýðubandalagið hefurlagt fram fruimvarp um verðstöðv- un og eiga ákvæðin að gilda frá þeim degi þegar frumvarp- ið var birt. Jóhann Hafstein hefur hins vegar með loðn- um orðuim boðað að ríkis- stjómin hyggi á verðstöðvun síðar, til að mynda í nóvem- ber. Þessi tilkynning Jóhanns um væntanlega verðstöðvun er afar athyglisverð. Hún er vís- bending til allra þeirra sem vilja hækka verð á vörum og biónustu um að nú verði þeir að flýta sér. Er ekki að efa að fésýslumenn kunna vel að meta þessa aðvörun forsætis- ráðherra síns og hækka nú allt hvað af tekur þaö sem beir hafe á boðstólum. Slíkar aðvaranir um vænt- anlegar efnahaigsráðstafainir þættu stórhneyksli í öllum ná- grannalöndum okkar og réð- herra sem leyfði sér slifkt yrði ekki vært. En betta er ekkert einsdæmi á íslandi. Þannig var gengislaskkunin 1968 boð- uð með margra. ménaða fyrir- vara og rikisstjiómin Jét bað afskiptalausít bótt fjárplógs- menn haignýttu þá vitneskju sér til hins mesta ábata á kostnað almennings. — Austri. Bikarkeppni KSÍ: Sígur á seinni hluta keppninnar Ármann — Breiðablik í dag en Fram — Hörður og ÍBK — Valur á morgun íslenzka landsliðið í knattspymu. sem lék gegn Frökkum í sum- ar, og sennilega verða ekki miklar breytingar á því fyrir leik- ina við Frakka í undankeppni Olympíuleikjanna á næsta ári. 1 dag og á morgun heldur bdkarkeppni KSl áfram. Einn Ieikur fer fram í dag og þá mætast Ármann og Breiðablik á Melavellinum, en á morgun leika svo Valur og IBK í Keflavík og Hörður frá Isa- firði og Fram á Melavellinum. Leikur Ármanns og Breiða- bliks verður án efa skemmti- legur. Þessi lið léku um síð- ustu helgi og fengust ekki úr- slit þrátt fyrir vítaspyrnu- beppni, því að eftir venjulegan leiktíma var jafnt, 2:2, ogeins eftir framlengingu, og í víta- spymukeppninni varð einnig jafnt, 4:4. ★ Á morgun leikur svo Fram gegn Isafjarðarliðdnu Herði, en það lið vann Vestfjarðasvæð- iskeppnina í bikamum og fór þar með í aðalkeppnina. Eftir öllum sólanruerkjum að dæma ætti þessi leikur að verða Fram-liðinu auðveldur, mun- urinn á I. og 2. deildarliðunum er það mikill. Aðalleikur helgarinnar verð- ur aftur á móti í Keiflavík á morgun, þegar mætast lið Vals og ÍBK í bikamum. Bikar- keppnin er síðasta von Kefl- víkinga til að ná í sigurverð- laun á keppnistímabilinu og ör- uggt má telja að þeir verði erfiðir heim að sækja Aftur á móti virðist Vals-liðið vera í ham, enda hefur liðinu gengið óvenju vel síðari hluta sum- arsins, og um síðustu helgi setti liðið markamet, er það sigr- aði Þrótt frá Neskaupstað 15:0. Ég spái jöfnum og skemmtileg- um leik í Keflavik á morgun og ekki er ótrúlegt að það liðið sem sdgrar á morgun, leiki til úrslita í bikarkeppninni. — S.dór. HEFUR TEPPIN SEM HENTA YÐUR TEPPAHUSIÐ * SUÐURIANDS- BRAUT 10 *• SÍMI 83570 Undankeppni ÓL í knattspyrnu: íslendingar leika gegn Frökkum Eins og áður hefur verið sagt frá, tekur íslenzka Iands- liðið í knattspymu þátt í undankeppni Olympíuleikanna, sem lokið á að vera fyrir júní- Iok næsta ár. Dregið hefur ver- ið í riðla fyrri lotu undan-®- keppninnar og leikur íslenzka liðið gegn því franska. Verra gat það verið másegja um andstæðinginn. Við lékum við Frakka landsleik í knatt- spyrnu fyrir rúmu ári, úti í Frakklandi, og unnu Frakkar þá 3:2 og síðan, eins og menn muna 1:0 í leik hér heima á Laugardalsvellinum s.l. sumar. Þar sem einungis áhugamanna- lið eigast við í undankeppni Olympíuieikanna, er alls ekiki vonlaust að íslenzka liðiðsigri það franska og komist i aðra umferð. 1 fyrstu lotu eru rið'l- amir í Evrópu 11 og hver mcð tveimur löndum. Tvö lönd komast beint í aðra umferð, en það eru síðustu Olympíu- meistarar, Ungverjar, og gest- gjafar næstu Olympíuleika, V- Þjóðverjar. 1 annarri umferð undankeppninnar mætast sig- urvegarar úr 1. og 2. riðli, 3ja og 4ða o.s.frv. Þannig að ef íslen2ba liðið sigrar það franSka og kemst áfram mætir það sigurvegara úr riðlinum Sovétríkin — Holland. Framhald á 9. síðu. & Eigum fyrirliggjandi ódýrar Pípur — Spónaplötur — Báraðar asbestplötur. Ennfremur: Steypustyrktarjárn og -stál — Þakjám — Þakpappa — Saum o.fl. VERZLANASAMBANDIÐ H.F., Skipholti 37. Sími 38560. Soluii Jpfe HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR — .«J| \ | m||I ánjómunstur veitir góða spyrnu í snjó og hálku. önnumst allar viðgerðir hjólbarða * 8 ) J með fullkomnum tækjum. Snjóneglum hjólbarða. i GÓÐ ÞJÖNUSTA. — VANIR MENN. I BARÐINN HF. | 1—— Ármúla 7. — Sími 30501. — Reykjavík, |

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.