Þjóðviljinn - 17.10.1970, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 17.10.1970, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÖÐVILjnsrN — LaiugHidagur 17. október 1970. — Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Otgefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkv.stjórh Eiður Bergmann. Ritstjórar: Ivar H. lónsson (áb.), Magnús Kjartansson Sigurður Guðmundsson Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00. Verðstöðvun jjingmenn Alþýðubandalagsins hafa flutt frum- varp um tafarlausa verðstöðvun. Eiga ákvæðin uim hana að gilda frá og með 15da október þar til lsta september næsta ár. Jafnframt er lagt til að þessi verðstöðvunartími verði notaður til að ráð- ast í varanlegri aðgerðir til þess að binda endi á óðaverðbólguna hérlendis. Er í því sambandi bent á eignakönnun til þess að skattleggja stórgróða verðbólgubraskaranna, aðgerðir til þess að koma í veg fyrir skattsvik, verulega lækkun á neyzlu- sköttum á nauðsynjavörum, haldbetra og virkara verðlagseftirlit, afnám nefskatta og athugun á verðlagi og verðmyndunarreglum. Krafa Alþýðubandalagsins um verðstöðvun hef- ur verið borin fram hér í blaðinu frá því að samningair voru gerðir í vor. Ef ríkisstjórnin hefði haft einhvern vilja til þess að hafa hemil á verðbólguþróuninni, hefði henni borið að fram- kvæma verðstöðvun einmitt þá til þess að tryggja að kjarasamningarnir yrðu raunhæfir og yllu ekki háskalegri röskun á öllu efnahagskerfinu. En rík- isstjórnin fór þveröfuga leið. Ekki aðeins heimil- aði hún allar verðhækkanir sem einkaaðilar fóru fram á, heldur hafa opinber fyrir'tæki haft sér- staba forustu um að leggja aukin gjöld á al- menning. Svo blygðunarlaus hefur ríkisstjómin verið að hún hefur látið verðhækkanirnar dynja á almenningi á sama tíma og setið er á endalaus- um fundum með fulltrúum Alþýðusambandsstjórn- ar, atvinnurekenda og bænda um aðgerðir til að koma í veg fyrir verðbólgu! Hefði það þó átt að vera lágmarkskrafa að tryggt yrði óbreytt verð- lagsástand meðan þær viðræður stæðu yfir. garátta Alþýðubandalagsins fyrir verðstöðvun hefur torveldazt af því að hún hefur ekki hlotið stuðning annarra andstöðuflokka ríkis- stjórnarinnar. Framsókn hefur fylgt hinni venju- legu jájá-neinei-stefnu sinni, gagnrýnt verðhækk- anir í Tímanum en barizt fyrir þeim í verðlags- nefnd. Formaður frjálslyndra og vinstrimanna Hannibal Valdimarsson hafði allt á hornum sér þegar verðstöðvun var rædd á þingi í fyrradag, og er það að sjálfsögðu óræð gáta hvaða hvatir stjórna þeirri afstöðu. jjjngu að síður er ríkisstjórnin nú orðin hrædd við stuðning almennings við verðstöðvunarkröf- una. Síðustu daga hefur Jóhann Hafstein loks lýst stuðningi við verðstöðvun, þótt með óljósu og loðnu orðalagi sé. Vafalaust er það þó enn hug- mynd ríkisstjómarinnar að tengja sína verð- stöðvun skerðingu á samningsbundin réttindi launafólks, en hinar endalausu viðræður við aðila vinnumarkaðarins hafa sem kunnugt er haft þann tilgang að greiða fyrir slíkum árásum. Reyni rík- isstjórnin hins vegar að halda þeim hugmyndum sínum til streitu er hún ekki að auðvelda lausn verðbólguvandamálanna. heldur munu þau magn- ast um allan helming. — m. Samningar við Pólverja um smíði á togurum ekki reyndir til þrautar -Ar Síðustu dagana hafa verið mikil fundahöld í útgcrðarráði borgarinnar og borgarráði um togaramál. Hafa verið átök í báðum þessum stofnunum um það, hvort faliið skyidi frá óskum um smíði 2ja skuttog- ara i Póllandi, en taka togar- ana frekar frá Spáni. Síðasti svarfrestur við tilboði Spán- verjanna rann út í gær og eft- ir að útgerðarráð og borgar- ráð höfðu fjallað um togara- kaupin tók borgarstjórn það til meðferðar í fyrradag. Fulltrúar Alþýðubandalagsins i útgerðarráði og borgarráði, Guðmundur Vigfússon og Sig- urjón Pétursson, voru á önd- verðum meiði við meirihluta í- halds og Framsóknar í þessum stofnunum. Töldu þeir Sigur- jón og Guðmundur að nauð- syrulcgt væri að kanna til þrautar, hvort unnt væri að ná samningum við Pólverja, m.a. með tilliti til þess að lítil sem engin reynsla væri fengin af spænskum togurum á norður- slóðum. Hafði þegar veriðsam- þykkt að kaupa tvo togarafrá Spáni — deilan stóð um það hvaðan tveir viðbótartogarar ættu hclzt að vera. ÞJÓÐVILJINN greindi í gær frá afdrifum þessa máls í borg- arstjórn, en hér er rakinn fer- ili þess í útgerðarráði og borg- arráði á þriðjudag og miðviku- dag s.I. Þriðjudaginn 13. oktöber var haldinn fundur í útgerðarráði borgarinnar, þ. e. stjórn Bæjar- útgerðarinnar Þar lagði fio.r- maður ráösins Sveinn Bene- diktsson fram eftirfarandi til- lögu: „Vér leggjum eindregið til að framangreindu tilboði spönsku skipasmíðastöðvarinnar verði tekið, þar sem vér teljum að frekari dráttur á að taka ákvörðun um smíðina hafi i för með sér mikla hættu á veru- legri verðhækkun skipanna og ennfremur vegna þess að vér teljum þessa smíðasamninga vera þá hagstæðustu hvað verð og skilmála snertir, sem nú er völ á, miðað við gerð, stærð og útbúnað nýtízku skuttogara, sem gera á út frá íslandi“. Er Sveinn Benediktsson hafði borið fram sína tillögu flutti Guðmundur Vigfússon, fulltrúi Aibýðubandalagsins í útgerðar- ráði. eftirfarandi tillögu: „Ég tel, að skuttogaranefnd hefði átt að snúa sér að samn- ingum við Pólverja með svip- uðum hætti og við Spánverja, en til Spánar fór f jölmenn sendinefnd og dvaldi þar um nokkurra vikna skeið, áður en samningar náðust um smíði tveggja skuttogara. Skoðun mín er sú, að með tilliti til lítillar eða cngrar reynslu Islendinga og annarra fiskveiðiþjóða hér á norðurslóðum af skuttogara- smíði á vegum Spánverja, þá sé of mikil áhætta að semja nú um smíði 4ra skuttogara þar, en í stað þess sé rétt að taka nú upp alvarlcgar samninga- viðræður við Pólverja um smíði 2ja skuttogara á grundvelli upphaflegrar útbcðslýsingar og með þeim breytingum sem nauðsynlcgar eru taildar. Legg ég til, að útgerðarráð samþykki að leggja til við skuttogara- nefnd að svo verðl gert“. I tilefni af tillögu Guðmundar Vigfússonar á fundinum óskaði Sveinn Benediktsson bókað, að fulltrúar BÚR hefðu átt við- ræður við Jamszka fulltrúa Centromor, Póllandi, Gunnar Friðriksson umiboðsmann Cen- tromor á Islandi og C, Godek verzlunarfulltrúa síðustu daga júlímánaðar 1970 Fóru umræð- ur þessar fram í Reykjavík og voru niðuirstöður þeirra að óska eftir tilboði í tvo og fjóra skut- togara af þeirri greð sem skut- togaranafnd ríkisins hafði gert útboð um með skilafresti til 8. maí s. 1. Segir ennfremur í bókun útgerðarráðs: „Var óskað eftir breytingum á tilboði Cen- tromor í samræmi við athuga- semdir við tilboðið, sem Erling- ur Þorkelsson, vélfræðingur, hafði gert í bréfi, dags. 14. júlí. Fulltrúi Centromor, Jaroszka taldi mjög óhagstætt fyrir Pól- verja að gera tilboð um smíði tveggja togara í stað 6, sem tilboð þeirra, er þeir skiluðu 8. maí hafi miðazt við. Gerði hann þá tillögu, að samninga- nefndin féllist á, að þeir tog- arar, sem hún keypti frá Pól- landi yrðu af sömu gerð og ögurvík hf. hafði þá þegar samið urn smíði á við Centro- mor. Taldi hann að auðvelt væri að lengja þessa togara upp í 57 metra milli lóðlína Eins myndu ekki vera vandkvæði á því að auka vélaraflið um ca. 600 hestöfl. BæjarútgerðReykja- víkur afhenti umboðsmanni Centromor uppástungur um 5 breytingar á skuttogurum af ögui’víkurgerð hinn 1. ágúst s. 1, Fulltrúar Pólverja bjuggust við því að geta komið með ákveðin svör við þeim óskum, sem samninganefndin hafði bor- ið fram. Væru svörin væntanleg um miðjan ágúst. Var gert ráð fyrir því að frekari viðræður SláturMsi Ka.upfélags Borg- íirðinga í Borga.mesi hefur ný- lega verið veitt leyfi til að senda afurðir á Bandaríkja- markað. Páll A. Páisson, yfir- dýralaekinir, hefur yfirumsjón með sláturhúsuim á íslandi, fyr- ir hönd landibúnaðarráðuneytis- ins og veitti hann leyfið. Nýlega skoðaði dr. T. J. Matthews sláturhúsið í Borgar- nesi, en hann er deildar-dýra- læknir í bandaríska iandbúnað- arráðuneytinu, neytenda- og söluþjónustudeild. Dr. Matt- hews hefur tjáð sig samiþykkan þessari viðurkenningu Páls A. Pálssonar á sláturhúsinu. Sláturhús Kaupfélaigs Borg- firðinga í Borgarnesi hefur því hlotið viðurkenmingu banda- yrðu teknar upp ef jókvæð svör bærust. Jákvæð svör hafa ekki borizt til þessa dags og nú síð- ast í bréfi, dags. 9. október vitnar Centromor til símskeytis, sem þeir höfðu sent umboðs- manni sínum 24. ágú'st, þar sem þeir segja, að þeir hafi enga möguleika til þess að bjóða tvo togara alf þeirri gerð, sem skut- togaranefnd ríkisins hafi boðið út með breytingum (sem farið hafði verið fram á). Það er því ljóst að aldrei var grundvöllur til að taka upp áframhaldandi samninga við Pólverja meðan einungis höfðu borizt neikvæð svör frá þeim Hins vegar tók- ust samningar við sendinefnd spönsku ski.pasmíðastöðvanna hinn 8. ágúst s. 1. á föstu verði með fyrirvara um skilgreining vissra atriða og um lánskjör. Samkomullag náðist um þau atriði og var samningur undir- ritaður á Spáni hinn 10 sept og staöfestur af sjávarútvegs- ráðherra og fjármálaráðherra hinn 6. okt. s. l.“ Þar með lýk- ur langri bókun Sveins Bene- diktssonar Var að henni gerðri borin upp til atkvæða tillaga Guðmundar Vigfússonar, sem birt er feitletruð hér á undan. Var hún felld með 4 atkvæðum gegn einu atkvæði Guðmundar. Þá var tillaga Sveins borin upp til atkvæða og samþykkt með 4 atkvæðum þeirra Sveins Benediktssonar, Einars Thior- rískra stjómvalda og heldur hún gildi rneðan siáturhúsið fuillnægir bandarískrum kröfium að mat: yfirdýrailæknis. Dýralœtknar frá bandaríska landbúnaðarráðuneytinu skoða árlega erlend sláturhús, sem bandarísika landbúnaðarráðu- neytið viðurkennir. Sama máii gegnir um sláturhúsið í Borg- amesi. Dr. Matthews heiimsófcti einn- ig siláturhús Sláturféla.gs Suð- urlands á Seftfossi, sem nú er nærri fullgert. Veitti hann þeim sem að þessari byggingu ha,fa staðið, sérfræðilegar ráðlegiging- ar og tillögur í samibandi við þær kröfur, sem gerðar eru í Bandaríkjunum um tækjaktost oddsens, Harðar Helgasonar (F) og Haralds Ágústssonar gegn atkvæði Guðmundar Vigfússon- ar. Loks óskaði Hörður Helga- son (F) bókunar: „Ég samþykki tillöigu formanns. þar sem ljóst er að ekki nást samningar við Pólverja, þrátt fyrir að mikil vinna hafi verið í það lögð . ANNAR FUNDTJR ÉTGERÐARRÁÐS Það með lauk þessum fundi útgerðarráðs á þriðjudaginn, en morguninn eftir, klukkan 10 hófst enn á ný fundur í út- gerðarráði og var nú tekin fyrir svofelld tillaga: „f framhaldi af samþykkt útgerðarráðs á fundi sínum í gær, þar sem eindregið var lagt til að taka tilboði spænsku skipasmíðastöðvarinnar Astilleros Luzuriaga S.A. Pasa- jes de San Juan, um smíði tveggja skuttogara til viðbótar þeim tveimur. sem þegar hefur verið samið um smíði á, sam- þykkir útgerðarráð að ósfca eft- ir því að fá hinn fyrri þeirra tveggja skuttoigara, sem nú standa til boða, frá Spánverjum með sömu kjörum og áður. Fellur þá niður ósk útgerðar- ráðs um smíði skuttogara í Pól- landi. Útgerðarráð óskar þess vegna eftir staðfestingu borgar- ráðs að það megi semja við rík- isstjómina um kaup á hinum fyrri þeirra tveggja skuttogara, Framhald á 9. síðu. og annan útbúnað siáturhúsa. f bandarískum lögum um kjötskoðun er þess krafizt,, að erlend sláturhús, sem selja kjöt og kjötvörur til Bandaríkjanna fiu(Ilnæ.gi sömu reglum um bygg- ingu, heilbrigðisskoðun, eftirlit o.s.frv. og þau sláturhús banda- rísk, sem bandaríska landbúnaö- arráðuneytið hefiur veitt við- urkenninigu til að selja fram- leiðsluvörur sn'nar milli ríkja innan Bandiaríkjanna. Land- búnaðarráðherra Bandaríkj- anna gefur Bandaríkjaiþingi ár- leiga skýrslu, þar sem m.a. er greint frá því, aö öfl viður- kennd sléturhús og kjötvinnsiu- stöðvar erlendis ha,fi verið skoð- uð og séu í samræmi við lcröf- ur áðumefndra laiga. Frá sláturhúsinu í Borgarnesi. Sláturhúsið í Borgarnesi: Fær leyfi til að selja af- urðir á Bandaríkjamarkað

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.