Þjóðviljinn - 27.10.1970, Side 1

Þjóðviljinn - 27.10.1970, Side 1
Þriðjudagur 27. október 1970 — 35. árgangur — 244. tölublað. íslenzka sveitin er 7. á brídgemótinu íslenzku sveitinni vegnaði ekki vel á Evrópumeistaramótinu í bridge um helgina. Á föstudags- kvöld var hún komin í 1.-2. saeti en í þeim fjórum umferðum, er spilaðar voru á laugardag og sunnudag hrapaði hún niður í 7. sæti. í 9. umferð föpuðu íslending- ar fyrir Líbanonmönnum með 6 stigum _ gegn 14. í 10. umfer’ð gerðu íslendingar hins vegar jafntefli við ítali, 10:10. í 11. umferð töpuðu íslendingar fyrir Finnum, er voru með neðstu sveitunum á mótinu með 6 stig- um gegn 14 og loks töpuðu þeir í 12. umferð fyrir Austurríkis- mönnum með 0 gegn 20. Röð efstu sveitanna eftir 12 umferðir er þessi: 1. ítalía 172 stig. 2. Pólland 169, 3. Frakkland 167, 4. Sviss 158, 5. Austurríki 152, 6. Svíþjóð 150, 7. ísland 145. írland er í 8. saeti, Bretland í 9., Holland í 10. og Noregur í 11. sæti. Eftir er að spila 9 umferðir. þannig að röðin á eftir að breyt- ast mikið enn. I$>- Launafólk skipi sér um einn öflugan flokk — sem berst fyrir hagsmunamálum alþýðu. Aðrar leiðir til að tryggja sókn vinstri stefnu á Íslandi eru ekki til. Grund- völlur vinstrisamvinnu verður að vera raunhæf vinstristefna Eigi Alþýðubandalagið að ná árangri í þeim örlaga- ríku átökum. sem framundan eru, verður flokkurinn að eflast svo mjög að hann geti haft úrslitaáhrif á þróun þjóðmála. Alþýðubandalagið hefur haslað sér völl sem flokkur íslenzkra launamanna í mjög nánum tengslum við verkalýðshreyfinguna. Urslit sveitarstjórnarkosn- inganna í vor sönnuðu að Alþýðubandalagið er forystu- flókkur launafólks á íslandi og kjaraátökin miklu stað- festu þá staðreynd. En á meðan launafólk lætur sundra sér í margvíslegum stjórnmálasamtöku'i.n getur það ekki haldið til jafns við sameinaðan flokk hægrimanna á stjórnmálasviðinu. Eigi launafólk að ná árangri í kjaramálum og félagslegi'i baráttu verður að skipa sér um einn öflugan sósíalískan stjómmálaflokk, sem er hagsmunatæki alþýðu og berst fyrir óhvikulli félags- legri stefnu. Aðrar leiðir til að tryggja sókn vinstri hreyfingar á fslandi eru ekki til. Ofangreindui' kafli er loka- kafiii aðaiályktunar filokiksráðs- fundar Aliþýðubandalagsins, en fundinum lauk á sunnudags- kvöld. Ályktunin um atvinnu- og dýrtíðarmál verður birt í heild í blaðinu síðar, en auk hennar var samlþykkt ályktun um vinstrasamista,rf, þar sem hafnað er slagorðaigilamri um vinstrasamstarf, en krafizt vinstrasamstarfs um raun- hæfa vinstristefnu: Vinstri- stefna verður að fela í sér samstarf við vedkaaýðshreyf- inguna og önnur samtök vinn- andi fölks, segir í ályktun fiundarins og ennfremur: — Raunveruleg vinstristefna mið- ar að því að tryggja sjálf- stæði þjóðarinnar, standagegn erlendri ásælni, standa gegn sívaxandi áhrifavaldi erlendra auðfyrirtækja í íslenzku at- vinnulífi, að vfkja hermim úr landi og að tryggja að ís-' land standi utan allra hem- aðarbandaílaga og póílitíslkra viðskipta- og efnahagsbanda- laga. — f forustugredn Þjóð- viljans í daig er tekinn upp aðalkaifli ályktunarinnar um vinstrasaimstarf, sem einnig verður birt hér í blaðinusíð- I 1400 tonn af eiturefninu flúor losna árlega í álverksmiðjunni Jóhann Hafstein lýsir yfir á Alþingi að ríkisstjórn íslands geti hvenær sem er skipað álverksmiðjunni að setja upp hreinsitæki □ Magnús Kjartansson flutti í gær framsöguræðu í neðri deild Alþingis um þingsályktunartillögu þeirra Geirs Gunnarssonar um varnir gegn mengun frá Álverksmiðjunni og upplýsti m.a. eftirfarandi: Miðað við 40 þúsund tonna árs- framleiðslu á áli, eins og nú er í Strauimi, losn- ar flúormagn sem nemur hvorki meira né minna en 1400 tonnum á ári. Q Af þessu magni berast um 70% burt með ræsti- loftinu mestmegnis sem flúorvetni. Það magn sem þannig berst út í andrúmsloftið er því um 980 tonn á ári, 2700 kíló á sólarhring, yfir 100 -<s> Víðtækasta leit sem gerð hefur verið bar ekki neinn árangur Á sunnudag lauk leitinni að Viktori Hansen, er týnd- ist á rjúpnaveiðuim við Blá- - fjöll fyrra laugardag. Hafði ieitin þá staðið vfir í 8 daga aills og er þetta við- tækasta leit, seim hér hef- úr farið fram. Rösiklega 20 sveitir tóku bátt í leitinni og eru sam- anlögð dagsverk er farið haifa í leitina 1195 að tölu. Tóku þátt í leitinni allar hjálpar- og björgunarsveitir á Reykjavíkursvæðinu, af Suðurnesjum og Suður- landsundirlendi, frá Akra- nesi og jafnvel allt frá Ak- ureyri. Einnig var leitað æeð flugvé'um, þegar flug- veður leyfði. Leitii. barfengan áramigur. Magnús minnti á að tekizt var á um það þegar álsamningarnir lágu fyrir Alþingi hvort skylda ætti hið erlenda auðfélag til að setja upp lofthreinsitæki, svo sem gert hefði verið í öllum öðrum álverksmiðjum þessa fyr- irtækis. Þá hefðu jafnt stjórnar- flokkarnir og hinir erlendu stjórnendur Swiss Aluminium talið það óþarft. Það eitt hefði áunnizt að bi-eytt var gerð verksmiðjuhússins á þá leið að þar er hægt að setja upp hreinsi- tæki. Náttúruvernd Magnús rifjaði upp röksemdir Aiþýðubandalagsþingmanna í málinu, og las kafla úr ýtarlegri ræðu Alfreðs Gíslasonar í um- ræðunum um álsamningana. Hann rakti svo athuganir Ingólfs Davíðssonar og krafðist þess, að hafizt yrði handa um að setja hreinsitæki upp til að draga úr flúormengun. Deíldi Magnús fast á það sjónarmið sem virtist hafa ráðið afstöðu ríkisstjórnar og stjóvnenda hins svissneska auð- félags, að þeir hefðu talið litlu kíló á hverri klukkustund. Það er hátt í þrjú tonn af flúorvetni sem sáldrast yfir umhverfi álbræðslunnar hvem einasta sólarhring allt ár- ið. Þegar búið verður að tvöfalda verksmiðjuna tvöfaldast einnig þetta eiturmagn. □ Ef ekki verður að gert kemst það magn sem berst út í andrúmsloftið þá upp í 1960 tonn á ári eða 5400 kíló á hverjum sólarhring. spillt þó umhverfi verksmiðjunn- ar yrði fyrir mengun vegna þess að ekki væri um ræktarland að ræða, og hélt fram sjónarmiði náttúruvemdar gegn óskynsam- legri Dg hættulegri iðnvæðingu. Á valdi ríkisstjómarinnar 1 lok ræðu sinnar beindi Magnús þeim spumingum til for- sætisráðherra hvort hann væri þeirrar skoðunar að íslenzk stjórnvöld geti tekið ákvörðun um það að fyrirskipa að hreinsi- tækjum verði komið fyrir í ál- bræðslunni, og svaraði ráðherr- ann því játandi. Það væri sam- Framhald á 3. síðu. iklar og málefnalegar um- rzcður á flokksráðsfundinum B Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins var haldinn um helgina og lauk honum á sunnudagskvöld með stuttu ávarpi Oddu Báru Sigfúsdóttur, varaformanns Alþýðubandalags- ins. Flokksráðsfundurinn tókst hið bezta og voru umræður. líflegar og málefnalegar allan fundartímann, frá föstudegi til sunnudags. Fundurinn hófst með venjuleg- um upphafsstörfum slíkra funda á föstudagskvöld. Guðmundur Vigfússon va.r forseti flokksráðs- fundarins, Svandís Skúladóttir og Haukur Hafstað vom varaforset- ar fundai-ins. Á föstudagskvöld fluttu þeir Ragnar Arnalds og Lúðvík Jósepsson, framsöguræð- ur sínar, en á laugardag flutti Hjörleifur Guttormsson, fram- söguræðu um náttúruverndarmál. Vakti ræða Hjörleifs verðskuld- aða athygli og verður hún birt í heild í Þjóðviljanum á sunnu- daginn. Að lokinni framsöguræðu Hjör- leifs fóru fram almennar umræð- ur og var þátttaka í umræðunum mjög mikil. Meðal þeirra sem tóku til móls voru Eðvarð Sig- urðsson, Hjalti Kristgeirsson, Magnús Kjartansson, Rafn Guð- mundsson, Ölafur Jónsson, Stykk- ishólmi og margir fieiri. Á laug- ardagskvöld og á sunnudags- morgun störfuðu svo nefndimar og skiluðu áliti sínu á sunnudag eftir hádegi. Fundurinn á sunnu- dag hófst með því að Guðmund- ur Hjartarson gerði grein fyrir áliti kjörnefndar, þá gerði Sig- urður Magnússon grein fyrir áliti flokksstarfsnefndar, Adda Bára Sigfúsdóttir skýrði álit allsherjar- neifndar og Lúðvík Jósepsson tal- aði fyrir hönd stjómmálanefndar. Urðu miklar umræður um nefndarálitin og var margt tekið fyrir í umræðunum. Er fundinum lauik síðdegis á sunnudag var það mál manna að fundurinn hefði tekizf, hið bezta, og um sjöleytið á sunnudagskvöld sleit Adda Bára Sigfúsdóttir varaformaður Alþýðubandalags- ins fundinum með snjöllu ávarpi. Á sunnudagskvöld bauð Al- þýðubandalagið í Reykjavík til hófs í Domus Medica. Þar voru ýmis dagskráratriði; Atli Heimir lék á píanó, og síðar lék Atli undir fjöldasöng, Sigurjón Pét- ursson flutti snjallt og skemmti- legt ávai-p, Elísabet Erlingsdóttir söng einsöng. Heimir Ingimars- son las sögu eftir Einar Kristjáns- son frá Hermundarfélli og Sverr- ir Hólmarsson las kafila úr síð- ustu bók Soltsénitsyns — Innsti hringur vítis. Var gerður góður rómur að skemmtuninni. en Gunnar Guttormsson stiórnaði samkomunni af myndarskap. Er skemmtuninni lauk svo um kvöldið voru tilkynnt úrslit í miðstjórnarkjöri og er greint frá þeim annars staðar í blaðinu. Fjórar auka- síður í dag um flokks- raösfundinn Þessa mynd tókljósmynd- ari Þjóðviljans af Ragnari Arnalds, formanni Alþýðu- bandaiagsins, er Ragnar flutti framsöguræðu sína mn huginyndagrundvöll vinstristefnunnar og verk- efni Alþýðubandalagsins. — Ræða Ragnars er birt í heild i sérstökum viðauka við Þjóðviljann í dag þar sem á 4 síðum eru birtar, auk ræðu Ragnars, myndir frá flokksráðsfundinum svo og landbúnaðarráðstefnunni, er haldin var í gær, og loks greint frá úrsíitum mið- stjómarkjörs. Á fjórðu síðu blaðsins er forustugrein þess um niðurstöður flokksráðsfund- ar og vinstrasamstarf.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.