Þjóðviljinn - 09.01.1971, Blaðsíða 3
EasagaMfegMr 9. Íen&se 1971 — WÓÐVffiJWN — SlÐA 3
Hörð mótmæli ítalskra kommunista
gegn réttarhöldunum í Leningrad
— Brotið var gegn tveim meginreglum stjórnarskrár Sovétríkjanna
í réttarhöldunum gegn gyðingunum í Leníngrad, segir Terracini
Sjómenn í Vestmannaeyjum
RÓM 8/1 — Dómarnir sem nýlega voru kveðnir upp í
Leníngrad yfir fólki af gyðingaættum hafa sætt harðri
gagnrýni af hálfu leiðtoga og málgagna ítalskra ko'mm-
únista. Einn elzti og virtasti leiðtogi flokksins, Umberto
Terracini, sem er formaður þingmanna hans í öldungadeild
ítalska þingsins, fór þannig í gærkvöld mjög hörðum orð-
um um réttarhöldin og dómana sem hann kvað brjóta í
bága við stjórnarskrá Sovétríkjanna.
Terracini lýsti einnig and-
styggð sinni á þeim þætti
sovézks réttarfars að í því er
ékki gerður greinarmunur á
drýgðum afbrotum og þeim sem
aðeins hafa verið hugsuö eða
lundirbúin.
Te.rracini sem sjálfur er af
gyðingaættum lét þessar skoðan-
ir í ljós á fundi sem haldinn var
í Róm í gær til að fjalla um
dómana i Leningrad, en þar voru
m. a. tveir sovézkir þegnar af
gyðingaættum dæmdir til lífláts
fyrir að hafa haft í hyggju að
ræna flugvél til að komast úr
landi. Hæstiréttur rússneska
sovétlýðveldisins breytti síðar
þeim dómum í 15 ára fangelsis-
vist.
Meginreglur brotnar
Terracini dvaldist sjáifur
sautján ár í fangelsum fasista og
þekkir því slíka refsingu af eig-
in reynslu. Hann sagði m. a. að
í féttarhöldunum i Leningrad
hefðu tvær meginreglur stjómar-
skrár Sovétríkjanna verið brotn-
ar, sú að slík réttafhöld skuli
fara fram fyrir opnum dyrum
t>g hin að í málaferlum skuli
notuð tunga sakbominganna.
Skyssa sovézkra valdhafa
Hann bætti því við að Sovét-
ríkin hefðu orðið einna fyrst til
að viðurkenna ísraelsríki þegar
það var stofnað eða endurreist,
en valdhafar í Sovétríkjunum
hefðu gert sig seka um þá skyssu
að þau báttaskil í sögunni myndu
draga dilk á eftir sér, nefnilega
þann að sovézkir þegnar af ætt-
um gyðinga myndu æskja bess
að flytjast til hins nýja heim-
kynnis þjóðar sinnar.
Itrekun fyrri gagnrýni
Gagnrýni Terracinis kemur
ekki á óvart. „PUnitá“, aðalmál-
gagn Kommúnistaflokks Italíu,
gagnrýndi réttafhöldin í Lenin-
grad þegar fyrir áramót og kvað
dómana sem kveðnir voru upp
að þeim lolcnum ,.óskiljanlega“.
I þeirri grein var til'högun rétt- | um er alveg óhætt að halda á-
afhaldanna einnig gagnrýnd,' fram að senda efni.
bæði að þau fóru fram fyrir
luktum dyrum og sakborningar
voru dæmdir til að afplána
þungar refsingar fyrir glæp sem
aldrei var drýgður.
„Öleyst vandamál“
Greinarhöfundur kt>mst m. a.
svo að orði að „þess væru mörg
merki bæði í ■ Sovétrikjunum og
öðrum sósíalistískum ríkjum að
þar væru óleyst vandamál sem
stöfuðu af uppruna eða trúar-
brögðum sumra þegna þeirra.
Við nefnum þetta til þess að
leggja enn einu sinni á það
áherzlu að sú fræðikenning sem
við höfum að leiðarhnoða í öllu
okkar starfi og baráttu krefst
algers jafnréttis allra .manna,
hver svo sem uppruni þeiri'a
er eða trúarbrögð".
Dómarnir réttlættir
1 sovézka vikublaðiniu ..Ze
R.úbesjom“ sem fjallar um utan-
ríkismál var því haldið fram
í dag að enginn fótur væri fyrir
gróusögum sem haldið væri á
loft á vesturlöndum af hálfu
Óskastundin er ekki í blaðinu
í dag. Hún birtist næsta laugar-
dsg og síðan reglulega á laugar-
dögum svo að yngstu lesendun-
„zíonista“ að gyðingar nytu ekki
fullkomins jafnréttis á við önn-
ur þjóðabrot í Sovétríkjunum.
Slíkar staðhæfingar væru upp-
spuni frá rótum. Lítill vafi er
talinn á að gagnrýni kommún-
istaffokka á vesturlöndum, en
franskir kommúnistar hafa t. d.
tekið mjög í sama streng og
ítalskir um réttarhöldin í Len-
ingrad, sé helzta ástæðan fyrir
tilraun vikublaðsins til að rétt-
læta réttarhöldin og dómana. en
sovézk blöð hafa fram að bessu
verið mjög fáorð um allt þetta
mál.
LONDON 8/1 — Áfrýjunardóm-
stóll í LondPn staðfesti i dag
þann úrskurð Maudlings innan-
ríkisráðheira að Rudi Dutschke,
einn helzti leiðtogi vinstrisinn-
aðra stúdenta í Vestur-Þýzka-
landi, skyldi gerður landrækur.
Framihald af 1. síðu.
til skipta beint til s.iómanna.
AJlt hitt fá útgerðarmenn í sinn
hlut, ef frádregnir eru aukahlut-
ir til yfirmanna. á síldveiðum
voru 37% tekin af heildarafla
síldveiðibáta og lækkaði sú
prósenta niður í 31% í fyrra
og renna 11% til útgerðar-
manna og 20% til stofnfjár-
sjóðs.
Meginkrafa þings Sjómanna-
sambandsins síðastliðið haust
var einmitt leiðrétting á þessufn
óréttmætu lögum. Hvað varð af
þessari kröfu? spyrja sjómenn-
imir í Hafnarfirði. Vestmanna-
eyjum og Hornafirði nú.
Ástæða er til þess að vekja
athygli á þeirri staðreynd, að
Leikfélagið
Framhald af 12. síðu.
ekki að sakir þess hve mikilog
látlaus aðsókn var að öðrum
leikritum, en LR getur ekki
geymt nema takmarkað af leik-
tjöldum. Nú hefur það mál verið
leyst með því að geyma leik-
tjöldin að Hunangsilmd í bifreið
þeirri sem flytur þau til ná-
grannabyggðanna. Hunangsilmur
hefur verið sýndur 17 sinnum,
þar af fjórum sinnum í Hafnar-
firði, Jörundur 68 sinnum og
Kristnihafidið 45 sinnum.
bátakjarasamningamjx hafa að-
eins verið samþykktir af sjó-
mannafélögum í Keflavík, Sand-
gerði, Grdndavík og Akranesi
Þessir samningar hafa ekki ver-
ið samþykktir ennþá í sjómanna-
félögum í Reykjavík og á Akur-
eyri. Og hivað um sjómannafé-
lögin eða deildimar á Snæfells-
nesi? Þær bíða átekta og hafa'
ekki ennþá samþykkt bátakjara-
samningana.
Á sunnudag verður fundur í
Sjómannafélagi Reykjavíkur um.
bátakj arasamningana.
,Verðstöðvunin'
Framhald af 1. síðu.
Auk þessa ákvaö verðtegsnefnd
að hækka hámarksverð á ýms-
um öðrum tegundum fisks, en
þó var þessi ákvörðun frábrugð-
in því sem verið hefur við fyrri
hækkanir að því leyti að fisk-
södum er ekki heimilt að haekka
ýmsar aðrar fisktegundir að eig-
in geðþótta. Var safnþykkt í
verðfiagsnefnd að !áta svofellt á-
kvæði fyigja listanum um nýtt
hámarksverð: „Verð á öðrum
fisktegundum en að framan grein-
ir svo og verð á hökkuðum fiski.
fiskfarsi o.s.frv. er óheimilt að
hækka frá því sem það var 1.
nóvember s.l. nema sérstakt
leyfi verðlaigsstjóra komj til“.
Pólskt stjórnarmálgagn játar
mistök af fullrí hreinskilni
VARSJÁ 8/1 — Eitt helzta málgagn pólsiku stjórnarinnar,
vikuritið „Polityka11, viðurkennir í dag undanbragðalaust
að uppþotin og verkföllin sem urðu í ýmsum borgum Pól-
lands í síðasta mánuði hafi leitt í ljós að í landinu hafi
ríkt pólitískt vandræðaástand.
Fréttamaður júgóslavnesku
fréttastofunnar Tanjúg hefur
þetta effitir hinu áhrifamikla
tdmariti: — Enda þótt svo megi
virðast sem fuilldjúpt sé tekið í
árinni komumst við ekld hjá þvi
að mæla þessi orð: Þeir aibburð-
ir sem gerðust dagana í desem-
ber eru sönnun þess að tengslin
milli þegnanna og stjómvald-
anna, milli verklýðsins og
fiokksins hafa versnað svo að
til vandræða horfir. Þegar svo
var komið mótmælti verulegur
hluti verkalýðsins sumum mik-
ilvægum nýjum þáttum stefn-
unnar í efnahagsmálum,
„Víti til varnaðar“
Tímaritið fer ekki dult með þá
skoðun sína að Verkamanna-
flókkurinn pólski eigi sökina á
hinum hörmulegu atburðum.
— Harmleikur sá sem átti sér
stað í hafnarborgum Póllands
yerður að vera víti til varnaðar.
Hann er einkenni á að ekki er
al.lt með felldu í skipulagi sam-
félagsins, segir „Polityka“.
Stanislaw Majewski varafor-
sætisráðherra og formaður áætl-
unarráðs pólska ríkisins lét í gær
í ljós þá skoðun að Pólverjar
yrðu að ganga djarflegar en áð-
ur til verks í því skyni að flýta
fyrir efnahagsþróuninni í land-
inu.
Nýjar brautir
Hann flutti ræðu á fundi þar
sem komnir voru saman um 800
pólskir hagfræðingar og sagði m.
a. að hinir nýju valdhafar í
Póllandi yrðu að leysa marghátt-
uð vandamiál, efnahags- og fé-
lagsleg. Þeir verða að fara nýjar
leiðir i tækniþróuninni og koma
á fót nýjum iðngreinum á þeim
sviðum þar sem Pólverjar geta
staðizt öðrum snúninig.
— Þetta verður vandaverk.
Byltingin í vísindum og tækni
krefst atorku og þors til að
leggja inn á nýjar brautir sem
kunna að reynast áhættusamar,
sagði Majewsld.
Spor í rétta átt
Pólverjar fylgjast með umræð-
unum á hagfræðingaþinginu af
miklum ábuga. Maiewski taldi
’að hinir nýju valdhafar hefðu
HVERS VEGNA
EIN BIBLÍA, EINN KRISTUR —
EN MARGSKIPT KRISTNI?
Sigurður Bjarnason
flytur erindi um þetta
efnj í Aðventkirkjunni,
Reykj'arvík. siunnudaiginn
10. janúar kl. 5.
Jón Hj. Jónsson synguir eimsöng. — Alliir velkomnir.
farið rétt af stað með því að
binda kröfuna um meiri afköst
við ráðstafanir til að bæta lífs- j
skilyrði alþýðu manna. Hann
gagnrýndi að áður fyrr hefðu j
ráðamenn haft tilhneigingu til !
þess að auka framleiðsluna
hennar einnar vegna og hefði
óskin um bætt, lífskjör almenn- |
ings kafnað í sannkölluðu flóði ;
af skýrslum og tölum.
Enda þótt hann teldi að nauð- ;
synlegt væri að bæta mönnum
aukin afköst með sérstakri þókn-
un, kvað hann að slík skipan
mála kæmi ekki að gagni nema
því aðeins að á boðstólum væri
allur sá varningur sem almenn-
ingur vildi eignast.
FriÖrik teflir
í Beverwijk
Friðrik Ólafsson stórmeistari
verður meðal þátttakenda í
Beverwijk skákmótinu í Hollandi
er hefst n.k. þriðjudag, en hann
hefur nokkrum sinnum áður tek-
ið þátt í þessu móti með mjög
góðum árangri.
Keppendur í .aðalflokki mótsins
eru 16 að tölu. Auk Fi'iðriks II
stórmeistarar, þar af fjórir, sem
þád táka í næsta kandidatamóti
og 5 sem þátt tóku í nýafstöðnu
millisvæðamóti og af þeim voru
fjórir mjög nærri því að komast
í kandidatamótið. Sýnir þetta
glöggt styrkleika keppenda. Stór-
meistararnir eru annars þessir:
Petrosjan, Koi'tsnoj og Smyslof
frá Sovétríkjunum, Gligoric og
Ivkov frá Júgóslavíu, Hort frá
Tókkóslóvakíu, Hiibner frá V-
Þýzkalandi, Uhlmainn flrá Aust-
ur-ÞýzkaO„ Meeking frá Brasilíu.
Najdorf frá Argentínu, Donner
Hollandi og svo Friðrik. Um nöfn
hinna keppendanna er Þjóðvilj-
anum ekki kunnugt en beir
munu flestir eða allir vera Hol-
lendingar.
Handritin heim
Þátttajka yðar
gerði Árnagarð
að veruleika
70% byggingarkostnaðar
Árnagarðs, eða 42 milljónir króna, var greiddur með
ágóða af Happdrætti Háskóla íslands. Þannig hafa þeir,
sem eiga miða í Happdrætti Háskólans stuðlað að var-
anlegri geymslu fyrir dýrmætustu eign þjóðarinnar.
Kaupið miða í Happdrætti Háskóla íslands og takið þátt
í uppbyggingu íslenzkrar menntunar. Vinningar eru
hvergi stærri.
Þriðjungur þjóðarinnar
á nú kost á að hljóta
vinning — því er Happ-
drætti Háskólans glæsi-
legasta happdrætti
landsins. Verð miðanna
er óbreytt.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS