Þjóðviljinn - 17.01.1971, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 17.01.1971, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVXLJINN — Suinnuidaguir 17. janúar 1971. — Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Otgefandl: Útgáfufélag ÞjóSviljans. Framkv.stjóri: EiSur Bergmann. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson, SigurSur GuSmundsson. Ritstj.fuIItrúl: Svavar Gestsson. Fréttastjóri: SigurSur V. FriSþjófsson. Auglýslngastjóri: Heimir Ingimarsson. Ritstjórn, afgreiSsla, auglýsingar, prentsmiSja: SkólavörSust. 19. Simi 17500 (5 linur). — AskriftarverS kr. 195.00 á mánuSi. — LausasöluverS kr. 12.00. ísfenzk framtíS J>að er eitt einkenni stjómartímabils íhaldsins og Alþýðuflokksins að margar fjölskyldur og ein- staklingar hafa flutzt úr landi til þess að setjast að í öðmm löndum. Þjóðviljinn hefur hvað eftir annað minnt á, að oft lætur þetta fólk ginnast af skmmi útflutnirigsagenta frá löndum sem af ýms- um ástæðum sækjast eftir innflytjendum. En slík- ur áróður hefur því aðeins áhrif að það vantreysti framtíð sinni og bama sinna í ættlandinu, og kasti sér út í óvissuna í von um annað betra. En slíkur flótti frá erfiðleikum og illu stjómarfari er uppgjöf, sem Þjóðviljinn hefur allra blaða mest varað við. Hér á íslandi verður tekizt á um framtíð íslenzku þjóðarinnar, hér heima verða menn að berjast fyrir betri lífskjömm og menntunarfæmm barna sinna, fyrir sjálfstæði landsins og lausn þess af klafa hernaðarbandalags og herstöðva. ginna furðulegast hefur verið að horfa upp á Ástr- alíuferðirnar, sjá stórar barnafjölskyldur taka sig upp af íslandi og flytjast til Ástralíu, svo langt frá íslandi að lengra verður tæpast komizt, og til gerólíkra samfélagshátta. Enda hafa vonbrigði og árekstrar útflytjendanna sjálfsagt orðið meiri og sárari en flesta heimamenn grunar. En hér er það líkt og með vesturfarana á áratugunum kringum aldamótin, oft engin leið að kljúfa kostnaðinn aí heimferð þegar svo langt var komið. Það var sízt að ásiæðulausu að Magnús Kjartansson flutti á Al- þingi í fyrra þingsályktunartillögu um „heimflutn- ing Islendinga frá Ástralíu", en efni hennar var, að Alþingi skori á ríkisstjórnina að gera ráðstafanir til þess að gera íslendingum, sem flutzt hafa bú- ferlum til Ástralíu og vilja snúa til íslands aftur, fjárhagslega kleift að komast heim. Benti Magnús á, að margt af því fólki sem flutzt hefur til Ástralíu á fölskum for^endum hefði fullan hug á því að hverfa aftur heim til íslands, en eigi þess engan kost. Því sé lagt til að ríkisstjómin geri íslenzkum Ástralíuförum sem það vilja kleift að hverfa heim aftur með fjárhagslegri fyrirgreiðslu. J^íkisstjórnin fékk því ráðið að tillagan var ekki afgreidd. Nú hefur forsætisráðherra mælzt til þess að dagblöðin í Reykjavík beittu sér fyrir söfn- un til þess að gera bjargarlítilli íslenzkri fjölskyldu í Ástralíu fært að snúa heim til íslands, og skal hér notað tækifærið og skorað á menn að bregðast vel við því máli. En meira þarf til. Það þarf að sam- bykkja þær ráðstafanir sem fram á var farið í til- lögu Magnúsar Kjartanssonar. Og það þarf að koma á því stjórnarfari, að fólk treysti því að einmitt hér bíði barna þeirra og niðja hin bezta framtíð sem rætast mun, ef fólkið þorir að ráða örlögum sínum sjálft og nýta auðlindir landsins í eigin þágu en ekki ofurselja þær og íslenzkt land á vald erlendra auðfélaga og herstöðvamangara. — s. Helgislepja í fjölmiðlum. — Kvikmyndasíða Þjóðviljans. — Starfsþjálfun og gagnkvæmur hagur. R. Þ. skrifar að þessu sinni um fagnaðarboðskap jólanna í úrtvarpi og sjónvairpi, og er þar hveirgi myrkjuir í máli. f annan sitað er í póstinum bréf fná kvikxnyndaiunnanda •jxn kvikmyndiasíður Þjóðvilj- ans og loks er bréf um starfs- þjálfun Iðnskólans. ★ Kæri bæjarpóstur. Ég vil faora Sigurði Guðjónsisyni á Akranesi sérstakar þakkir fyrir grein hans í Þjóðviljan- um 5. jan s.l. „í tilefni af helgástundum útvarps og sjón- varps“. Þessi ágæta grein kemur eins og hressandi og sval- ur vindblær af fjöllum eftir alla helgislepjuna og hræsn- ina, sem fjölmiðlamir hafa ausið yfir okkur síðastliðin jól. Það er að vísu engin ný bóla að útvarpið sé gert and- laust, gleðisnautt og frá- munalega leiðinlegt um jólin. Þannig hefur það verið hver jól sáðan útvarp hófst á fs- landi. Ég hef stundum genrt það að gamni mínu, að leita er- lendra stöðva, þegar sálma- vælið stendur sem hæst í íslenzka útvarpinu. og það er næstum sama hvar maður ber niður, alstaðair glaðleg tónlist. Það er eins og kdrkj- unnar menn, sem virðast vera aUs ráðandi í útvarpinu þessa daga, álíti fæðingu firelsaranis einhvem sorglegasfa atburð sögunnar. Reyndar virðast þeir halda að adlt, sem va/rð- air trú hljóti að vera sorg- legt. Takið eftir hivemiig preistamir í sjónvarpinu gera sig „drullumáttilausa í andlit- inu“ og málhreimurinn sá saxni og við jarðarför. Ég held að útlendingur, sem ekki skildj íslenzku og sæi og heyrði „faignaðarboðskap jólanna‘‘ fluttan í sjónvarpi, hlyti að sannfærast um að maðurinn væri að tala yfir moldum fraxnliðins ásitvinar, yfirkominn af harmi. Hvergi vottur af gleði yfir því að frelsari mannkyns sé fædd- ur, ekki eitt einasta bros, að- eins sorgarsónn líkræðunnar. Ég býst varla við að fslend- ingar almennt geti talizt bet- ur kristnir en t.d. Bretar <®a Frakkar, en berið saman jólamúsik þessara þjóða. Ef prestamir flettrj af sér helgislepjunni, sem er auð- sjáanlega uppgerð. og mæltu af djörfung og einlægni eins og þessi hressilegi og fals- lausi heiðingi á Akranesd, þá yrðu kirkjumar betur sóttaxr og fólk tækd meira mark á boðstoap þeixra. R. Þ. ★ Bæjarpóstur góður. Erindi mitt við þig, er að grennslaist fyrir um. hivers vegna kvikmyndaþáttur blaðs- ins hefur ekki biirzt nú um langa hríð. Hann er, að minni hyggju, ómissandi í Þjóðvilj- anum og hefur jafnan verið óvenju vandaður og fxóðleg- ur. Það er alnnannarómur, að umsjónarmaður hans standi framar bollegum hans á öðr- um blöðurn, bæði hvað snert- ir vit og kunnáttu á kvik- myndum, svo og rdtfæmi. Kvikmyndaunnandi. ★ Bæjarþósturinn er þér inni- lega sammála, það er mikil eftirsjá að kvikmyndaþættin- um, en ástæða þesis, hve hiann hef'Jir vantað lengi, eru ann- ir umsjónarmannsins á öðr- um sviðum. Það er von okk- ar, að hann sjái sér fært hið fyrsta að taka upp þráðinn aftuir. Badjarpósturinn. „Ygglibrún“ skrifar eftár- farandi: % Þjóðviljinn greinij? frá því nýlega að á veigum' Iðnsikól- ans sé hafin starfsþjálfun fóQíks í verksmiðjuiðnaðinum. Af fréttinni iná ráða, að starfsexni þessi sé nokkuð laus í reipunum, enn sem koxnið er, og eklki hafi verið tekin ákvörðun um, hivort verksmiðjur gefa stairfsfólki sánu kost á að sæ>kjia þessi námskeið með fríi á fuíLLum launum. Að minni hyggju er þetita alger forsenda þess að fólkið geti notfært sér nám- skeiðin. Eftir langan vinnu- dag er það of þreytt tdl að meðtaka kennslu, og í þesisu tilviki er einkuxn um að ræða konur, sem flestar þurf,a auk vinnunnar að sjá um heim- ili, þannig aS þeim er flest- um ofviða að sækja nám- skedðin. Til þessarar starfs- þjálfunar er væntanlega stofnað í þvi markmiði að jafnt atvinnurekendur sem starfsfólk hafi hiag að þedm, en ég fæ ekki séð að þau. komi til góða nema vel sé um hnútana búið. Annars ber að fagna þesum áfang,a í iðn- fræðsiLumálum. Ygglibrún. ög mær - Grein eftir Erik Thygesen um bók eftir enska skáidsagna- höfundinn Eva Figes. Hún lýsir Freud, Darwin og Drottin meðal mestu heilaþvegla sögunnar. Greinin birtist í Politiken þriðjudaginn 8. september 1970. Eva Figes: Patriarcal Attitud- es (Sjónarmið feðraveldisins) Faber & Faber, London, 191 s., d. kr. 41.40. Hvers vegna náðu konurnar ekki félagslegu jafnréttí, þegar þær fengu kosningarréttinn íbyrj- un aldarinnar? Hvaða sálræn öfl komu í veg fyrir það? Það gerði víðtækasta samsæri mannkynssög- unnar. AJger heilaþvottur karla á sjálfum sér og konum sínum. Enski skáldsagnahöfundurinn Eva Figes hefur með bók sinni, Sjónarmið feðraveldisins, tekið sér fyrir hendur hið bráðnauðsynlega verk að gera duglega hreint á þessum vettvangi. Bók hennar er í fyrsta lagi um ytri reglur, sem einnig hafa form- að sálræn viðbrögð og á þann hátt framkaliað „nauðungar- eða skyldueðlishvatir", ailt frá fjöl- skyldumynstrinu til sjálfrar móð- urástarinnar, hrifningar ungra stúlkna af bleiku og alls konar smádóti og skrauti, og því sem er blítt og lágvært. Og einmitt af því að þessar át- kreistu eðlishvatir eru viður- kenndar, hafa hinar félagslegu umbætur, kosningarrétturinn meðtalinn, aðeins haft áhrif um stundarsakir og takmörkuð. Það er ekki nóg að skapa með löggjöf nýja möguleika, það verður að breyta hugmyndunum — og það er menningarbylring — og þar hafa hinar nýju kvenfrelsiskonur Iagt til atlögu. Hatrömm árás Evu Figes á hégiljur Og þjóðsöguna um konuna er raunverulegt fram- Iag til barátmnnar. Hún byrjar á kirkjunni og kristindóminum: „Karlmaðurinn er skynbær, konan ekki. Karl- maðurinn er betti gáfum gæddur en konan. Hún aftur á móti er holdlégri — dýrsleg, munaðar- gjörn. Þess vegna hlýtur maðurinn að stjórna konunni. Allt á þetta rætur að rekja til vonbrigða hins skynsama karlmanns, sem hélt að á þann hátt tækist honum að hemja dýrið í sjálfum sér. Figes heldur því fram, að yfir- ráðahneigð karlmannsins sé í nán- um tengslum við föðurhugmynd- ina. Karlmaðurinn arfleiðir syni sína bæði að nafni og eignum og gerir dauðann heimaskítsmát. Allt er þetta til einskis nema hann hafi fullvissu um, að þeir' raunverulega séu synir hans. Nú getur enginn maður treyst öðrum og er því til þess neyddur að ein- angra ambátt sína heima fyrir. Figes: Margir hafa litið á kyn- ferðisfordóma sem eins konar náttúrlega takmörkun barneigna, þó virðist öllu mikilvægara, að takmörkun kynathafna leiðir af sér færri og strjálli árekstra karl- manns við' karlmann. Ef vanfærar og konur með tíðir eru vanhelgar Iéttir það af karlmanninum kvöð- inni að verja þær. Figes vitnar í sköpuharsöguna og kemst að þeirri niðurstöðu, að Eva hafi verið helzt til fullkomin: hin auðmjúka mær, sem beygði sig undir það hlutsldpti að fæða Adam syni og þetta óviðráðan- Iega kvendýr, sem var í slagtogi við höggorminn og síðan hefur orðið æðstuprestunum þrotlaus út- Iistun hverslags vonzku og syndar. Konan, sem undirrót alls ills et einkennandi fyrir tímabil feðra- veldisins á Vesturlöndum, þar sem vald hennar í hugmyndaflugi mannsins vex í öfugu hlutfalli við það vald, sem hún raunverulega hefur. Því verður ekki neitað, segir Figes, að sumar húsmæður hafa afvegaleitt eiginmenn sína, með því að hindra þróunarmöguleika þeirra. Þegar konan er lokuð úti frá siðmenningunni, frá félagslífi, þá Iilýtur hún að fara að hafa truflandi áhrif á manngreyið sitt. Hún reynir að snúa athygli manns ao sjálfri sér. Það er í raun- inni furðulegt, að karlmaðurinn, sem reynt hefur að loka konuna inni í svefnherberginu, skuli vera síkvartandi yfir því, þegar hún hefur tilburði til þess að heilla hann upp í til sín aftur. Niðurstaða Evu Figes eru: Trú- arbrögð. gerð, af karlmönnum handa karlmönnuro. Og ennfrem- ur: Og karlmaðurinn verður eins og guð. Þörf karlmannsins til þess að ráða yfir konunni er til- , komin af löngun hans til að vinna bug á dauðanum með erfðarétti karlleggsins. Með því að sameina vald og eignarrétt gerði hann þennan erfðarétt hálfu. mikilvæg- ari um leið og hann margfaldaði ’ sína elgin þýðingu. 'Sambandsleysi konunnar við hagsöguna er einkennandi og nú er svo komið: „Að fyrirmynd veiðimannasamfélagsins yfirfærist aS forminu til á tæknisamfélag- ið, þar sem karlmaðurinn þénar en konan eyðir". Flestir meiri háttar hugsuðir mannkynssögunnar fá ædega á kjáftinn. Menn eins og Ágústínus kirkjufaðir, Páll postuli og Rouss- eau. „Frelsi, jafnrétti, bræðralag — en bara handa karlmönnum. í Emile tekur Rousseau eindregna afstöðu gagnvart konunni: Upp- eldí hennar hlýtur að miðast við það, að hún verði manni sínum undirgefin, sinni þörfum hans og þurftum." Darwin fær sömu útreið: Kenn- ingin um Survival of rhe fittest var ekki frelsishugsjóninni til framdráttar. Fra sjónarmiði heimsvaldasinna gaf f þéssi "kénn- ing Evrópubúum frjálsar hendur til að arðræna nýlendurnar. Frá kapítaiísku sjónarmiði réttlætti þessi kenning arðrán verkalýðsins. Sjálfur skrifaði Darwin um konur: „Það er aímenn skoðun, að hæfi- leikinn til ósjálfráðrar hugsunar, kannski líka hermigáfa, sé háþró- aðri með konum en körlum, þetta er líka raunin um óasðri kynþætti, það viF segja eldri og vanþróaðri menningarskeið". Og aumingja Freud; „Öll hans kenning er byggð á giska þröng- um smáborgaraheimi, sem hann reyndi að laga sig eftír. Það sem stóð fyrir utan þennan smáborg- aralega heim skildi hann ekki. Þess vegna hlaut hann að blanda saman orsök og afleiðingu. Og honum var sálarlíf konunnar miklu torráðnara en sálarlíf kaíjs- ins. Einhvern tíma á hann að Iiafa sagt: Hin stóra spurning, sem aldrei fæst neitt svar við, og ég hef heldur ekki fengið neittsvar við eftir 30 ára rannsóknif á kven- sálinni er þetta: Hvað vill.kon- an?" Figes: „Fyrst honum datt nú eklri í hug að spyr|á hana sjálfa hvað hún vildi, fyrst hann var ævinlega að segja henni, hvað hún ætti að vilja, þá kemur það varía nokkrum á óvart, þvílík ráðgáta konan var honum.", Konan sjálf hefúf í uppreísn sinni varla getað lósað sig við þessar gildrur. Kynférðisfordómar verða því eins við lýði að bæði kynin játist undir þá. Hásiðferði- legir kvenréttindappsmlar mót- mæltu á 19- öldinni ívískinnungn- um án þess þó að krefjast nokk- urs frjálsræðis í kynferðismálum. Krafan var sú, að karlmenn sýndu Fraxnhald á 13. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.