Þjóðviljinn - 06.10.1971, Side 1

Þjóðviljinn - 06.10.1971, Side 1
Samningamálin Undirneíndir að störfum í gær klukkan tvö var haldinn þriðji samningafundur um kjara- mál verkafólks. Fundinn sátu annars vegar fulltrúar Alþýðu- sambands íslands og fulltrúar yinnuveitasambands íslands og Vinnumálasambandsins. Snorrj Jónsson framkvæmda- stjóri Alþýðusambandsins tjáði fréttamanni Þjóðviljans í gær að á fundinum hefði aðallega verið rætt um tilhögun við samnings- vinnuna. Var ákveðið að setja á laggimar undirnefndir sem munu nú hefja störf og starfa fram á þriðjudag en þá er ákveð- ið að haldinn verði nýr fundur deiluaðila. WASHINGTON 5/10 Ráðgjafi Nixons forseta í öryggis- og utanríkismálum, Henry Kissinger, heldur í lok mánaðarins í fjögurra daga heimsókn til Peking. Þar mun hann ásamt fulltrúum kín- versku stjórnarinnar gera áætlun um fyrstu heim- sókn bandarísks forseta til Kínverska alþýðulýð- veldisins. Kissinger sagði á blaðaimanna- fundi í Hvíta húsinu í dag, að enn hafi ekiki verið ákveðið hve- nær heimsókin Nixons fer fram, en líklega yrði það fastmælum bundið skömmu eftír að hann Viljið þér leika í nefdropamynd? Auglýsingafyriríæki í New York hefur feng- ið það verkefni að auglýsa nefdropa. Ekki vit- um við hvers konar hefdropar þetta eru, eða hvort þeir koma einhverju góðu til leiðar, en þetta auglýsingafyrirtæki hefur af einhverj- um ástæðum talið fslendinga bezt til þess fallna að auglýsa þessa vörutegund. í bréfi, sem hefur m.a. verið sent í skóla hér, er þess getið að 100 börn fái að leika í myndinni, 20— 30 konur eða karlar og 60—70 piltar. Bréfið er á þessa leið: Reykjavík 30. sept. 1971. Heiðruðu forcldrar. Bréf þctta er ekkj á veg- um skólans, sem barn yðar er í, en það er yður sent fyrir hönd auglýsingafyrir- tækis í New Yorfc. Fuiltrúi þessa fyrirtækis dvelur á Loftleiðum um stundarsakir, en undirritaður aðstoðar við fraimfcvæmdir hér. Erindi bréfsins er að óska eftir aðstoð yðar við gerð stuttrar auglýsingafcvikmynd- ar, en við tökuna þarf um 100 börn á aldrinum 8—12 ára, auk 20—30 kvenna og karla á yðar aidri og 60—70 pilta um eða yfir tvítugt. Kvikmyndun fer fram í ná- grenni Reykjavikur og hefst snemma að morgni sunnu- dags 10. okt. nk. en verður trúlega iokið um miðjan dag. Greiðsla sem boðin er fyr- ir viðvikið er 5 dalir fyrir börn og 10 dalir fyrir fuil- orðna. Hádegismatur verður framreiddur í sérstökum matarvagni, en auk þess verður heitt kaffi og kakó á boðstólum allan daginn. Nóg verður af gosdryfckjum og pylsum handa þeim, er það vilja: Fólkið verður flutt í lang- ferðavögnum fram og tdl baka og bíður í þeim milli atriða. Gæzlumenn, sennilega kennarar, verða börmunum til eftirlits. Til að flýta fyrir kvik- myndun, þaif að taka poiaroid niyndir af öllum þátttakend- um fyrirfram. Þetta verður gert á Hótel Loftleiðum núna á laugardaginn og sunnudag- inn frá kl. 10 f.h. til kl. 5 síðdegis. Á ]ieim tíma eru þeir, sem þátt vilja taka í þessu, vinsamlega beðnir að koma þangað og afhenda um leið seðilinn, sem prentaður er hér að neðan. Þar verða tveir menn við að ljósmynda, þannig að þetta tekur aðeins stuitta stund. Fulltrúi hins ameríska fyr- irtækis er Harold Lang, her- bergi 257, Hótel Loftieiðum, en aðstoðarmaður við undir- búning og framkvæmd er Guðbjartur Gumnarsson sími 42404. Ef þér sjáið yður fært að leyfa barni yðar að taka þátt í gerð umræddrar auglýsinga- myndar og ef til vill koma sjálf, er ósfcað eftir því að þau séu klædd Mýjum úlp- um eða kápum ag hafi helzt regnhlíf meðfei-ðLs. Fullorðið fólk er beðið að klæðast yfirhöfmum og hafa regnhlífar meðferðis. Þátttak- endum verður skipað í lang- ar raðir og þeir beðnir að ganga svolítinn spöl yfir gras- bala eða hraunhæð, en ame- rískur leikari gengur með- fram fólkinu. Bf vel viðrar, gæti þetta orðið skemmtileg tilbreyting á fögrum haust- degi. kemiur aftur frá Pekinig. Kissinger fór fyrst til Kína í júlímánuði og hvíldi mikil leynd yfir þessari ferð. Fréttin um að nánasti ráðgjafi Nixons búist nú til ferðar fyrir opnum tjöidum til að ræða dagsikrá fundar æðstu mp.nna Kína og Bamdaríkjanna hefur þokað til hliðar vanga- veltum um að ferð Nixons yrði ef til vill frestað vegma meintra innanlandsátak'a í Kímversfca al- þýðulýðveldimu. Fréttin staðifestir og, að tilburðir Bamdanikjanna til að tryggja Formósustjóirm áfram- haldamdi setu hjá Sameinuðu þjóðunum hafa ekfcii reynzt al- varleg himdn-un batnandi sambúð við Alþýðulýðveldið. Kissinger sagði á blaðamanna- fundi núna í dag, að hamn m.umi hafa í för með sér tíu manna hóp frá utamríkisráðumeytiinu. Hvíta húsinu og úr eigin starfsliði. Hann lagði áherzlu á það, að Bandaríkin stæðu í beimu sam- Ekarnh. á 9. síðu. Fyrsiu tónleikar á fimmtuda? Á fyrstu tónleikum Sin- fóníunnar, sem verða haldnir á fimmtudagskvöld, leikur austurríski píanóleikarinn Jörg Demus píanókonsert nr. 21, (K467) eftir Mozart. Stjórn- andi verður Bandaríkjamað- urinn George Cleve, sem stjórnaði Sinfóníuhljómsveit lslands á tónleikum í febrú- ar sl. Auk píanókonsertsins verður á cfnisskránni Forleik- ur að Rúslan og Liidmíla eftir Glinka og Sinfónía nr. 4 eftir Brahms. Á myndinni eru talið frá vinstri: Ámi Kristjánsson, Georgc Cleve og Gunnar Guðmundsson. Sex listar kepptu um tvö þingsæti / Færeyjum í gær Kemur okkur ekki við, segja Þjóðveldismenn ÞÓRSHÖFN 5/10 — Kosningar þær sem í dag fara fram í Færeyjum um tvo fulltrúa á ríkisþingr Dana hafa vakið allmikla athygli — bæði vegna þess hve litlu munar að hægt sé að mynda vinstri eða hægri meirihluta á þinginu, og svo vegna deilna í Færeyjum um aðild að Efnahagsbanda- laginu. Þjóðviljinn háfði um mið.jan dag samfoand við Erlend Pat- ursson, formann Þjóðveldis- flokksins og spurði hann um horf ur í þessum kosningum. — Ég vil sem mimnst um þær segja, sagði Erlendur. Við Þjóð- veldismemn tökum ekki þátt í kosmingum á danska þingið, það er okkar prinsípmál og þar höf- um við sömu afstöðu og íslend- ingar hér áður fyrr. — Hverjir hafa átt sæti á danska þinginu frá Færeyjum? — Þeir Johan Nielsen frá Jafnaðairmöinnum c>g Hákon D.iuurhus frá Fólfcaílokkmuim, og þeir eru báðir í framfooði núna. Annars eru listarnir alls sex — frá Samibandsflokiknum, Jafn- aðarmönnum, Sjóilfsstjórnar- flokfcnum, Fól'kaflókfcnium, Fram- sóknairflokknum og þá foýður sig fnam Zaoharias Wang, sem er ó- háður, en hefur fylgt Þjóðveldis- flokknum að máilum. Zacharias Wang hefur fyi-st og fremst háð kosningabaráttuna sem ákveðinn amdstæðingur að- ildar Færeyja að Efnahagsbamda- laginu. Þess má geta, að þeir síðast- nefndu — Fólkaflokfcurinn, Framsióiknarflokurinn og Waing hafa með sér listabandalag. Það þýðir, að ef þeir eiga sameigin- legan rétt á þingsæti, þá fær sá listi að ráða manninum sem hefur filest afkvæðin. — Hvað segja frambjóðeindiur um afstöðu sína til stjórna'rmynd- unar í Danmörku? — Þeir segja svona sitt á hvað. Sumir segjast vilja nota tækifær- ið og leg'gja sitt lóð á vogarskál- ar, en aðrir kveðjast ekki vilja skipta sér af danskri stjómar- kreppu. — H vað ■ um aðild að EBE — er verið að tala um sérstaka þjóðaratkvæðagreiðslu í Færeyj- um um það mál? — Við — og ég get þá aðeins Það er bréf frá Stefáni til Jónasar í blaðinu i dag Frá Færeyjum talað fyrir okkur Þjóðveldis- menn — lítum svo á, að við sé- um utan EÍBE, og meðan iögþimg- ið gerir enga samþykkt um ad- ild þá sé slík þjóðaratkvæða- greiðsla óþörf. Aftur á móti mun- uni við krefjast þjóðaratkvæða- greiðslu ef svo fer að lögþíngið samþykki eitthvað í þá veru. — Hvað er annars að frétta? — Ekkert sérstakt, nema það rignir. Og við ætlum að færa út landihelgina, — í sjötíu milur, til að slá ykkur við Islendingum, bætir Erlendur irið að lokum og hlær við. — áb. Verkamaður sýnirstórhug Almenningur á Islandi er nú farinn að veita hörmunga- ástandi Austur Pakistana verulegan gaum. I fyrradag barst Rauða krossi Islands 100 þúsund króna gjöf frá verkamanni, sem ekki vill láta nafns síns getið. Gjöf- inni fylgir svohljóðandi á- varp: „Ég vil hvetja menn til þess að neita sér um skcmmtanir og glasaglaum í það minnsta eina viku og láta þá pen- inga í Pakistan-söfnunina. — Það gæti orðið álitleg upp- hæð og bjargað nokkrum börnum frá hungurdauða‘‘. Það skal tckið fram, að þegar hafa verið gerðar ráð- stafanir til sendingar 3 smá- Iesta þurrmjólkur til Ind- lands fyrir þessa fjárhæð og nokkrar minni, sem bprizt hafa undanfarna daga. Stjórn Rauða kross lslands færir gefendum þakkir fyrir örlæti þeirra.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.