Þjóðviljinn - 16.10.1971, Síða 3
Líaugardagur 16. október 1971 — ÞJÓÐVTLJINN — SlÐA 3
AF ERLENDUM VETTVANGI
Buby Doc föðurbetrungur
ásfandið á Haiti skánar
eir sem gerzt þekkja til
mála á Haiti halda því nú
fram, að ástandið sé að breyt-
ast til batnaðar eftir dauða
einræðisherrans Papa Doc. í-
búar eyjarinnar eiga að vísu
varla von á róttækum breyt-
ingum, en eigi að síður hefur
gerzt þar meira á nokkrum
mánuðum en á þeim fjórtán
árum sem Papa Doc hélt
blóði drifinni morðingjahönd
sinni um stjórnartaumaina.
Þeir, sem spá'ðu því að Je-
an Claiude hinn digri og lífs-
glaði sonur einvaldsins myndi
reynast valtur í sessi, hafa
orðið að éta spár sínar ofan
í sig. Jean Claude situr, og
hann situr fast, enda bjó
sá gamli vel í haiginn fyrir
son sinn. ístrubelgurinn ungi
fékk sem sé upp í hendumar
pólitíska eirfðaskrá, sem kvað
á um, hvaða ráðherra hann
skyldi velja sér. hvemig hann
skyldi bregðast við ef í óefni
stefndi með landstjóm og
einkahagsmuni, og að hann
skyldi að lögum vera ein-
valdur á Haiti til æviloka, en
það gæti orðið dágóður tími,
því að ..Baby Doc“ er ekki
nema tvítugur.
eir eru sárafáir sem hafa
litið erfðaskrána augum.
en því fleiri skeggræða efni
hennar, og það gengur fjöll-
tinum hærra, að í henni sé
gert ráð fyrir frjálslegri
stjómarháttum og „lýðræðis-
. legra“ þjóðskipulagi. M
kváðu rá’ðherrarnir fá meira
siálfstæði en fyrrum, enda
fer Jean Claude trauðl'a í
fötia. föður síns hvað snertir
persónuleg áhrif og völd.
Þegar er farið að gæta þess
„að- losnað . hafi um hriútana.
Opinberar stofnanir virðast
vera farnar að gegna hlut-
verkum sínum og sendibréf
komast til skila, aldrei þessu
vant, og meira að segja eru
dæmi þess að menn fái svar-
bréf um hæl. Veri'ð er að
endurskipuleggj.a t-ollgæzltina
og skattakerfið og dómsmála-
ráðherrann, André Rousseau
hefur ját.að, að fulltrúum
réttvísinnar hafi á stundum
. verið mislagðar hendur í kné,
og er þá langt gengið.
Nú skyldu menn þó ekki
ætla, að lýðræðið sé að balda
innreið sína á Haiti. Mð, sem
er að gerast, er einfaldlega
að stofnanir ríkisins eru
famar að starfia, en það
gerðu þær ekki á stjórnarár-
um Papa Docs. Jean Claude
er því merkisþeri nýrra tíma,
en þess ber þó að gæta að
faðir hans fékk h-onum það
merki upp í hendumar, eink-
'jm með því að endurskipu-
leggja og veikja hinar ill-
ræmdu bandíttasveitir, Ton
Ton Macoute, skömmu fyrir
dauða sinn.
Sá gamli skildi vafalaust
mætavel að ef sonurinn
ætti að geta setið að völdum
í friði og spekt. þá yrði að
brjóta niður vald Ton Ton
sveitanna, því að þær voru
eina afl Haiti sem syninum
væri hætta búin af. Her
landsins hefur nú aftur kom-
izt í náðina, en Papa Doc
saumaði mjög að honum fyr-
ir tíu árum, og erfðaprinsinn
hefur nú myndað sinn eigin
lífvörð. ,,Hlébarðana“, sem á
að taka upp baráttuna gegn
skæruliðum og kommúnist-
um, að sögn hins opinbera.
En þar eð skæruliðar og
kommúnistar eru sjaldséðir
fuglar á Haiti, og útlagar
eru ekki sérlega athafnasam-
ir sem stendur, þrátt fyrir
fiórtáin misheppnaðar innrás-
artilraunir, þá ber fyrst og
fremst að líta á Hlébarðana
sem hald og traust unglings-
ins digra gaignvart hugsan-
legum samsærismönnum inn-
an sveita Duvaliers gamla.
Fréttaskýrendur hafa gert
mikið úr vinakliku Jean
Claudes, og lýst ráðhérrum
ban,s sem „ungum og harð-
duiglegum". Ráðherramir
hafa þó í raun sáralítil áhrif,
nema einn, það er landvama-
og innanríkismálaráðheiTanr.
Luckner Cambronne, sem
fyrrum daga var naumast
ainnað en sendill og lítilfjör-
leg blók, en nú næst valda-
mesti miaður landisins. Konur
fyrirmenna hafa löngum haft
sín áhrif bak við tjöldin á
Haiti og systir Jean Claud-
es, Maria Denise, er valda-
mikil, svo að hún er bein
ógnun við yfirráð bróður
síns, og var bví gerð að
sendiherra í París. Simone.
móðir Jeans Claude, er sögð
afar valdamikil, og það geng-
ur fjöllunum hærra í Po’.'t-
au-Prince að kerlingin stjómi
syni sínumn.
Jean Cl'aude hefur eign-
ast stuðningsmann þar sem
er ambassador Bandaríkj-
anna, Clinton Knox, en eft-
ir átján mánaða dvöl sína á
Haiti, segist hann sannfærð-
ur um að allt sé betra en
gamfli Voadoo-læknirinm og
stjórn hans, Washington hef-
ur oft staðið i ströngu með
Haiti. Kennedy hætti efna-
hagsaðstoð við landið, og
Johnson kallaði stjómarfarið
smánarblett á Ameríku. En
nú telja þeir auðvaldsmenn
vestra, að allt sé að snúast
á betri veg, og eflaust megi
gera Haiti að túristaparadís,
þar sem ferðahópar blá-
hærðra amerísikra kvenna
kveði á skammri stund
voodoo galdramenn í kútinn.
Listgagnrýnendum
boðnir styrkir
Norræna memningarmála-
nefndin hefur hvatt ríkisstjórn-
ir Norðurlanda til þess aðleggja
fram styrkj til að kosta list-
gagnrýnendur á Norðu’rlöindum
til dvalar í einhverju öðru
land.i innain Norðurlanda en því,
sem listgagnrýnandinn býr í.
Listgagnrýnendurnir skulu vera
starfandi við dagblöð, tímarit,
útvarp eða sjónvarp og fjalla
um bókmemntir eða listir alls
konar. Sæinslka ríkisstjórnin het-
ur veitt skr. 22.000 til þessa og
mt þeirri upphæð renna skr.
5.000 til þess að kosta dvöl
tveggja íslenzkra listgagnrýn-
enda í Svíþjóð á árinu 1972.
Norræna félaigið tekur á móti
umsókmum um styrk þennian. 1
umsókn skal geta þess, hvemig
umsækjandinn hyggst nota tím-
an>n i Svíþjóð og á hvaða tíma
árs hamm vill korna þangað. —
Umsókmir þurfa að haifa bor'.zt
skrifstofu félagsins, Norræna
húsinu, fyrir 15. nó<v.
(Fréttatilkynnimig frá Nor-
ræna félagimu).
Bíða eftir niðurstöðum
á kostnaði við rafhitun
Vegna þeirrar umræðu, sem nú fer fram um hvort
hagkvæmara sé, að hita íbúðarhús með raforku eða heitu
vatni, hafði blaðið samband við tvo
kaupstaði, sem einmitt þessa
dagana hafa verið að velta fyr-
ir sér hvorn kostinn þeir
ættu að velja. — Enn er ekki
ljóst á hvaða verði Landsvirkjun
kemur ti)l með að bjóða rafmagn til
húsh'itunar frá væntanlegum stórvirkjunum, og dregur
það eðlilega ákvarðanir í þessu efni nokkuð á langinn svo
og alla útreikninga við kostnað hitaveitu.annars vegar og
rafhitunar hins vegar.
Bæjarritarinn á Akranesi svar-
aði því tiil, að einmitt hefði
verið hyrjað að ræða endanlega
ákvörðum í þessu máli á síð-
asta bæjarstjióirnarfundi, þannig
að þessi mál eru mjög í deigl-
unni á Skaganum um þessar
miundir.
Nú stemdur yfir hjá Akranes-
bæ athugun á kostnaði við raf-
hituin. Mjög aðkaillandi er fyrir
bæjarstjóm að fá fljótlega bnð
verð sem Lamdsvi.rkjun ætlar að
selja rafmagnið á, því að nú
stendur yfir bygging nýs íbúð-
arhúsnæðis og talsvert margir
hafa sótzt eftir að fó rafhitun í
hús í því hverfi.
Ekki er enn hægt að segja
hvort verður ofan á hjá þeim
Skagamönnum, rafhitum eða hit-
un með heitu vatni, því að
samanburðartölur liggja ekki
fyrir enn, en reynt verður að
flýta frumrannsókinum eftir
mætti.
Málin kcima til með að skýr-
ast nokkuð eftir næsta, bæjar-
st.jómarfund sem haldinn verð-
ur í síðustu viku mónaðarins,
en framtíð rafhitunar hérbygg-
ist mjög á þvi hvort samningar
takast um að And'akilsárvirkjun
fái að kaupa rafstreng þann,
sem liggur fyrir Hvalfjörð og
flytur viðbótarrafmagn til þeirr-
ar virk junar.
★
Það sem gerzt hefur í hitun-
armálum Kópavogs á þessu ári,
er að undirritaður hefur verið
samningur við HitaveituReykja-
vílcur um kaup á heitu vatni,
sem leysa á af hólmi kyndi-
stöðvar tvær, sem hitað hafa
upp tvö hverfi í bænum með
svartolíu.
Mð vatn sem með þessum
samningum fæst nægir til að
hita um 20% bæjarins, en fjar-
hitaikerfi kyndistöðvanna hefur
til þessa hitað 10% bæjarins.
Umframvatnið verður notað til
þess- að kynda upp félagsheim-
ilið og væntaírilega einnig leitt
í sumdlaugina, auk annarra
bygginga og fbúðarhúsa.
Lögnin fyrir hitaveituvatnið
er bráðabirgðalögn, sem verður
fjarlægð komi til frekari heitc-
vatnshitunar í Kópavog-'. Ælt'-
unin er að heita vatnið ve; ði
komið í gagnið upp úr dramóí-
unum.'
Ekki hatfa verið uranar
samanburðarkostnaðairtölur við
hitaveitu og raíhitun. — Eng-
in átovörðun hefur ver-
ið tekin um það hvor kost-
urinn verður valinn í framtíð-
inni. M er edtt víst, að Kópa-
vogur telur málið ekki það að-
kallandi, að ekki sé unnt að
bíða niðurstöðu rannsókna Orku-
stcfnunar og Landsvirkjunar
um verð á rafmagni til hús-
hitunar. — úþ.
HEFURÐU GÓÐA
HUGMYND?
Iðnþróunarstofnunin hefur gengizt fyrir miati
á iðnaðarvörum og beindist matið fyrst og
fremst að því að sannreyna hönnunargæði
hluta, sem framleiddir eru hér á landi en mat-
ið var í hverju einstöku tilfelli gert að beiðni
hlutaðeigandi framleiðandia.
Stofnunin hefur nú í hyggju að efna til
kynningar á fullunnum vörum og vörum, sem
eru komnar á lokastig en hafa ekki ennþá ver-
ið teknar til framleiðslu Ver'ður lagt mat á
þessia framleiðslu og sú vara tekin til kynning-
ar sem stenzt matið.
Iðnþróunarstofnunin vill með þessu gefa
hönnuðum, sem búa yfir góðum hugmyndum
tækifæri að fá hlutlaust mat á verk sín er
gæti stuðlað að því að koma vörjnni í fram-
lei’ðslu. Krúsin hér til hliðar er hönnuð af
Hauiki Dór.
Hlututrygg-
ingusjóður
Vegna fyrirspurnar sein
blaðinu hefur borizt umhluta-
tryggingasjóð hefur Þjóðvilj-
inn aflað sér eftirfarandi upp-
lýsinga:
Hlutatryggdngasjóður var fyr-
ir allmörgum árum lagður
niður með lögum sem fólu í
sér stofnun aflatryggingasjóðsi
Aðaltekjur aflatryggingasjóðs
eru hlúti útflutningsgjalds af
sjávarafurðum og nokkurt
framlag úr ríkissjóði. Stjórn
þessa sjóðs er þannig skipuð:
MárElísson, Ásgeir Flygenring,
Ingólfur Amarson, Tryggvi
Helgason, Sigfús Jónsson, Ingi-
mar Einarsson og öm Steins-
soe.
Ur þessum sjóði eru r.ú
greiddar bætur til útgerðarfé'
laga eftir ákveðnum reglum
þegar afli verður undir með-
aillagi eftir þar til settum
reglum. Sjóður þessi greiðir
því ékki neinar sérstakar bæt-
ur til sjómanna heldur ein-
göngu til útgerðaraðila, en
þeim ber að nota greiðslur
sem þeir kunna að fá úr sjóðn
um til þess að borga van-
greitt kaup til sjómanna. ef
um það er að ræða, krefjist
sjóðstjómin þess.
Matar fyrir
leikhusgesti
Veitingahúsið Óðal hefur
getið sér gott orð fyrir vand-
aðan mat og fjölbreyti-legan.
Nú vill fyrirtækið koma sér-
staklega til móts við leikhús-
gesti með þvi að útbúa mat-
seðil fyrir þá, sem saman-
stendur af tveimur tegundum
af súpu a.m.k., 6 aðalréttum
og desertum. Leikhúsgestir
geta fengið afgreiðslu sam-
kvæmt þessum matseðli frá
ki. 6 og verður séð tim hraða
afgreiðslu.
1 Óðali er afar vinsælt
kalda-„altarið“, sem saman-
stendur af ýmsum sjávar- og
síldarréttum ásamt kjötréttutn
sem gestir velja sjálfir.
Á kvölldin leika hinir ágætu
tónlistarmenn Baldur Kristj-
ánsson og Steinþór Stein-
grímsson.
Vinstri
viðræður
Eins oig áður hefur veriðskýrt
frá í fréttum hafa Samtök
frjálslyndira og vinstri manria
beitt sér fyrir viðræðum milli
vinstri flloklkanna með þaðmark-
mið Samtakanna fyrir augumað
sameina alla jafnaðarmenn og
samvinnumenn í einum stjórn-
mólaflok'ki, segir í fréttatillkynn-
ingu frá samtökunum.
1 gær hófust viðræður milli
Samtakanna og Framsókriar-
flokksins í fraimíhaldi af bréfa-
skiptum fllokikanna um málið. 1
viðræðunum tóku þátt af hálfu
Framsóknarfloklksins: Eysteinn
Jónsson, Már Pétursson, Ólaíur
Ragnar Grímsson, Steingrímur
Hermannsson og Mrarinn Mr-
airimsson, en af hálfu Samtalra
frjálsiyndra og vinstri manna:
Hannibal Valdimarsson, Bjarni
Guðnason, Bjöm Jónsson og
Hailldór S. Magnússon.
Ennfremur var í gær haldinn
fundur með fulltrúum Alþýðu-
flokks og Samtaka frjálsiyedi-a
og vinstri manna í framhaldi eJ
fyrri viðræðum um sameimingar-
málin. Frá Alþýðuflokkinum sátu
fundinn: Benodikt Gröindal,
Björgvin Guðmundsson, Kjartan
Jóhannwspn og örlygur Geirssom.