Þjóðviljinn - 16.10.1971, Side 6
0 SlÐA — ÞJ'ÓÐVTLJINT'í — Laugaradgur 16. oíktóber 1971.
Skipulag skólastaris hefur
venju fremur verið mikið á
dagskrá nú I haust. Ástæð-
urnar fyrir því eru margar og
misjafnar, en kveikjuna að
þessum umræðum má vafalít-
ið telja opið bréf þeirra hjón-
anna Gísla B. Björnssonar og
Lenu M. Rist til fræðsluyfir-
valda. Bréf þetta birtist hér
í Þjóðviljanum fljótt eftir að
skólar byrjuðu, en í því
beindu þau hjónin nokkrum
spumingum til fræðsluyfir-
valdanna.
Þar sem ekki hafa enn
birtst opinberlega svör við
þeim spurningum flestum,
sem þar voru scttar fram, á-
kvað blaðið að gera gangskör
að þvi aö fá svör við þeim.
Þá hafði blaðinu einnig borizt
fjöldi fyrirspuma, sem lcscnd-
ur fóru fram á, að blaðið
reyndi að fá svör við. Þær
spumingar tók blaðið einnig
upp og kom þeim á framfæri
við fræðslustjóra.
En það er enginn hægðar-
leikur að ná tnli af embætt-
Jónas B. Jónsson
Spurningar
1. Nú er gerð stundaskrár ekki
kennd við KÍ. Fá skólastjórar sér-
fratðiaðstoð við gerð stundaskrár-
innar? (t, d. tölfraeðing)
2. Hver er leyfilegur hámarks-
skólatími barna?
3. Er hugsað fyrir leikþörf
barna við gerð stundaskrár?
4. Fram hefur komið, að nýjum
námsgreinum hefur verið bætt
inn á stundaskrá barna, t. d. eðl-
isfræði og ensku. Falla einhverjar
námsgreinar út af stundaskránni,
eða er þessum greinum bætt inn
á stundaskrá yfirfullra skóla?
5. Hefur komið tilskipun frá
menntamálaráðuneytinu um að
forðast beri eyður í stundaskrám
kennara?
6. Hvað er gert til þess að börn
fái notið einhverrar aðstöðu í
skólum, þar sem þau hafa bið-
tíma?
7. Er tekið tillit til fjarlægða
milli heimilis og skóla við gerð
smndaskrár, eða er viðhorf Kristj-
áns J. Gunnarssonar skólastjóra,
sem birtist í Vísi 10. okt, s.l., á
þá leið, að ekkert væri athuga-
vert við það, að börn færu fjórar
ferðir í og úr skóla daglega, vegna
þess að þau þurfa hreyfingar við
— látið ráða?
8. Er eftirlit haft með því inn-
an fræðslukerfis borgarinnar,
hversu oft menn geta verið yfir-
menn sjálfra sín; er þar átt við
Kristján J. Gunnarsson skólastjóra
— fræðslustjórnarformann — (og
borgarfulltrúa) eða telur fræðslu-
stjóri slíkar ráðstafanir á embætt-
um eðlilegar?
9. Hefur einhverjum smnda-
töflum hér.í borginni verið breytt
/ haust fyrir tilsmðlan Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkurborgar?
10. Hvaða afgreiðslu fá beiðnir
skóla um öryggisbúnað og verði
vlð miklar umferðaræðar?
ismönnum þessa þjóðfélaffs.
Skal engan undra þótt vinn-
andi fólk sem reynir að ná
tali af slíkum mönnum í
knöppum fritima sínum, leggl
cft upp laupana og fái þann-
ig ekki þá þjónustu frá þeirra
hálfu, sem það þó á hcimt-
ingu á.
Mánudaginn 28. september
hafði blaðamaður lokið við að
safna saman fyrirspurnum
lcsendanna og raða þcim nið-
ur. Þann dag hafði hann svo
samband við fræðsluskrifstofu
Reykjavíkurborgar, en án
þess að ná sambandi við
fræðslustjóra. Það tókst svo á
miðvikudag, og var mælt til
móts mánudaginn 4. okt. Áð-
ur en þessi árangur náðist
hafði blaðamaður reynt sex
sinnum, án árangurs, að ná
tali af fræðslustjóra. Var
hann þá ýmist á fundum cða
ekki viðlátinn annara orsaka
vegha.
Mánudaginn 4. okt. var svo
fræðslustjóri upptekinn um-
saminn tíma. Hann hringdi
tii blaðsins síðar þann dag,
og bað um frest til að skila
svörum við spumingunum
fram á fimmtudag 7. okt., en
spurningamar hafði hann
fengið í hendur á fimmtudegi
í vikunni áður.
Þann 7. okt. tókst svo, í
þriðju tilraun, að ná tali af
fræðslustjóra. Sendi hann þá
þegar svör sín til blaðsins.
Var þar mcð lokið þessu 10
daga stríði.
Þctta er ckki sett hér inn
fræðslustjóra til hnjóðs. Held-
ur cr ætlunin með þessu, að
benda rétt cinu sinni en-n á
þann þunglamagang, sem ein-
kennir allt okkar embættis-
mannakerfi. Óhugsandi er-
annað en gcrðar verði á
því gagngerar breytingar.
Fræðslustjóri er enginn und-
antekning frá reglu, heldur
dæmiger embættismaður,
sem með starfi sínu er að
mestu lcyti slitinn úr tengsl-
um við það fólk, sem starfið
er unnið fyrir.
Séu teknir saman stunda-
fjöldar, sem fara I bið eftir
samtali við embættismenn,
bankastjóra og aðra slíka, og
rciknað út í krónutölu eftir
almennum tímataxta, verður
sú tala enn til að ítreka nauð-
syn breytinga, og það gagn-
gerra breytinga þessara mála.
Það væri ekki aðeins, að með
bættu skipulagi þessara mála,
væri verið að losa fólk undan
óþægilegum og tímafrekum
biðum, heldur væri einnig
verið að spara ómældar milj-
ónir, sem með núverandi
skipulagi renna til ónýtís í
glötuðum vinnustundum.
Hér fara svo á eftir spum-
ingar Iesenda blaðsins til
fræðslustjóra og svör hans
Blaðið kann fræðslustjóra
þakkir fyrir, að hafa Ieyst úr
spurningunum og væntir þess,
að svör hans megi verða til
þess að glöggva lescndur á
þeim atriðum, er óvissust liafa
verið í málum þessum. — úþ
JÓNAS B. JÓNSSON, fræðslustjóri, svarar fyrirspurnum lesenda Þjóðviljans
i
„Yiðhorf foreldra til skóla og
kennara vinsamleg og jákvæð"
11. Er hugsanlegt, að gerð verði
tilraun á næstunni með einsettan
skóla, þar sem verði hvorttveggja
lestrar- og mataraðstaða fyrir
nemendur?
12. Hvað gerir fræðslustjóri til
að fylgjast með viðhorfum for-
eldra og nemenda til skólakerfis-
ins og kennaranna?
13. Eru ákvæði í samningum
BSRB og ríkisins um viðtalstíma
kennara? Eru slíkir viðtalstímar
tíðkaðir í einhverjum skóla borg-
arinnar?
14 Er eitthvað sérstakt gert af
hálfu fræðslumálastjóra til þess
að koma á tengslum milli kennara
og foreldra barna sem sækja í
fyrsta skipti skóla?
15. Nú er fyrirsjáanlegt að
Álftamýrarskóli verði þrísettur a.
m. k. 10 ár enn, og skólinn full-
byggður. Eru fyrirhugaðar nýjar
framkvæmdir í húsnæ-ðismálum
skólans í þessu skólahverfi?
16. Hvernig stendur á því, að
skólastjóri stórs skóla hér í borg-
inni þurfti að bíða í 3 ár eftir
að ákvörðun yrði tekin um að
skipta leikfimisal skólans, þannig
að hægt væri að kenna meira en
einum hóp leikfimi í senn?
17. Hefur fjárveitingavaldið, þ.
e. ríki og bær, fengið nægjanleg-
ar upplýsingar um vandamál skól-
anna?
Svör
1. Skólastjórar í Reykjavík hafa
ekki fengið sérfræðiaðstoð við
gerð stundataflna, en fylgst hefur
verið með tilraunum varðandi
notkun tölvu við gerð stundaskrár
í nágrannalöndum. Á s. 1. vetri
voru gerðar ráðstafanir til þess að
fá hingað sérfróðan mann í þess-
um efnum og mun hann koma
hingað á þessu hausti til yiðræðna
við skólamenn.
2. Samkv, námskrá ér hámarks
nemendastundafjöldi sem hér seg-
ir og er þá miðað við á viku 40
mín. stundir á barnaskólastigi og
45 mín. stundir á gagnfræðastigi:
1. bekkxu: ( 7 ára börn) 20 st.
2. bekkur ( 8 ára börn) 22 st.
3. bekkur ( 9 ára börn) 24 st.
4. bekkur (10 ára börn) 31 st.
5. bekkur (11 ára börn) 32 st.
6. bekkur (12 ára börn) 35 st.
Á gagnfræðasdgi:
7. bekkur (13 ára börn) 34 st.
8. bekkur (14 ára börn) 36 st.
(Simd er ekki talið með, en
það fer fram í þriggja vikna
námskeiðum (um 20 tímar).
Heimilisfrceði í 7. og 8. bekk
er heldur ekki með i þessum
tölum, en þar eru 4 tímar á
viku í 7. bekk og 2—4 í 8.
bekk).
3. Frímínútur fylgja kennslu-
stundum og fara þá börnin út til
leikja undir umsjá kennara.
4. Engar námsgreinar hafa ver-
ið felldar niður, en tilfærsla orðið
á stundum í nokkrum greinum.
Nemendastundum hefir fjölgað
um 1—3 stundir á viku í elztu
bekkjum barnaskóla vegna til-
komu nýrra greina.
5. í erindisbréfi kennara frá
1962 segir: „Daglegur starfstími
kennara í skólum skal vera sam-
felldur, nema skólastjóri og kenn-
arar eða kennarafundur verði
ásáttir um annað".
Með kjarasamningum urðu síð-
ar orðalagsbreytingar á þessu og
í gildandi kjarasamningi segir:
„Vinnutími starfsmanna skal vera
samfelldur eftir því sem við verð-
ur komið vegna eðlis starfsins.
Verði eyða í daglegum starfstíma
kennara, skal greiða kr. 45.00 álag
fyrir hverja kennslustund í slíkri
eyðu".
í erindisbréfi skólastjóra frá
1962 segir: „Við samningu stunda-
skrár, gæti skólastjóri þess varð-
andi námsefni að fara eftir ákvæð-
um þeirrar námsskrár. sem í gildi
er á hverjum tíma,og fylgjastmeð
því, að nemendur hafi hóflega
heimavinnu vegna skólanámsins.
Einnig verði þess gætt, að stunda-
skrá nemenda verði sem samfelld-
ust". Ennfremur segir þar: „Hann
(þ. e. skólastjóri) semur eða lætur
semja stundatöflur og skipar nem-
endum í deildir. Gæta skal hann
hagsýni í verkaskiptingu bæði
með tilliti til nemenda, kennara
og rekstrarkostnaðar skólans". Um
önnur fyrirmæli er ekki að ræða.
6. Útilokað er að gefa algilt
svar við þessari spurningu. Ástæð-
ur í skólunum eru ólíkar og þörf-
in mismunandi. Margir skólar
gera ráðstafanir til þess að nem-
endur, sem þess óska, geti dvalið
í skólahúsinu í biðtímum og borð-
að þar nesti.
7. Það er miklum erfiðleikum
bundið að raða nemendum í
deildir eftir búsetu þeirra, en slík
deildarskipan er forsenda þess, að
hægt sé að gera stundaskrár, sem
miðaðar eru við fjarlægð milli
heimilis og skóla. Hins vegar er
það ljóst, að minnsta kosti í eldri
bekkjum barnaskóla og á gagn-
fræðastigi, að ekki er hægt að
byggja töflur upp þannig, að nem-
endur fái alla kennslu öðru meg-
in við hádegið miðað við það, að
matartíminn fari fram milli ld.
12 og 1, til þess eru nemenda-
stundir of margar.
8. Sjálfsagt er að fræðsluráð sé
að einhverju Ieyti skipað skóla-
mönnum og mjög mikilvægt, að
reyndir skólamenn fjalli um þau
mál, sem eru á dagskrá fræðslu-
ráðs hverju sinnL Get ég ekki
séð neina meinbugi á því, þótt
skólastjóri, sem er embættismað-
ur ríkisins, sé formaður fræðslu-
ráðs Reykjavíkur. Annars varðar
það efni, sem um er spurt, ekki
sérstaklega stjórn fræðslumála í
Reykjavík, heldur hið almenna
skólakerfi þjóðfélagsins.
9. Nei.
10. Beiðnir um „öryggisútbún-
að og verði við miklar umferða-
æðar" eru sendar umferðadeild
borgarinnar, annað hvort um
fræðsluskrifstofuna eða beint frá
skólunum, og fá þax afgreiðslu
eftir því sem við verður komið
hverju sinni.
11. Fræðsluráð hefur samþykkt
að Iáta fara fram athugun á því,
hvaða breytingar þurfi að fram-
kvæma á skólastarfi og skóla-
húsnæði til þess að hægt væri að
hafa samfelldan skóladag fyrir
nemendur og hvað slíkar breyt-
ingar myndu kosta. Þessi athugun
er nú að hefjast.
12. Viðhorf foreldra til skóla-
kerfisins koma fyrst og fremst
fram í sambandi við þeirra eigin
böm. Foreldrar og aðrir aðstand-
endur nemenda leita oft til starfs-
manna fræðsluskrifstofunnar
varðandi ýmis áhugamál, L d. val
námsbrauta o. fL, en einnig um
vandamál einstakra barna eða
unglinga. Sálfræðideild skóla, sem
starfar innan fræðsluskrifstofunn-
ar, fær mörg slík mál til með-
ferðar og vinnur að lausn þeirra
í samvinnu við skólana.
Viðhorf foreldra -til skóla og
kennara virðast mér yfirleitt vin-
samleg og jákvæð, sem betur fer.
13. í gildandi kjarasamningi
opinberra starfsmanna, frá desem-
ber 1970, er í fyrsta sinn gert
ráð fyrir, að ákveðinn hluti viku-
legs starfstíma kennara, utan
kennsluskyldu, sé til ráðstöfunar
í þágu skólans. Nýting þessa tíma
er í mótun, en telja verður eðli-
legt, að honum verði að einhverju
Ieyti varið til þess að hafa fasta
viðtalstíma fyrir foreldra, sem
hlýtur að verða sjálfsagður þáttur
í starfi skólans.
14. Leitazt er við að koma á
tengslum milli foreldra og kenn-
ara sex ára barnanna með skipu-
Iögðum einkaviðræðum aðila
strax í upphafi skólavistarinnar.
Börnin eru sem sé boðuð með
Fnamih. á 9. síðu.