Þjóðviljinn - 02.11.1971, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 02.11.1971, Qupperneq 1
Þriðjudagur 2. nóvember 1971 — 36. árgangur Ofbeldisseggir vaða uppi: „Þý&ir lítið aí kæra I»að heyrir vart orðið til tíðinda þótt ráðizt sé á fólk á götu í Reykjavík og l>ví mis- byrmt að meira eða minna ieyti. Einn slíkur atburður átti sér stað sl. laugardagskvöld, er ráðizt var að hjónum, er fengið höfðu sér kvöldgöngu. Gat maðurinn sagt lögregl- unni til árásarmannsins, sem reyndist vera 13 ára gamall. Vegna þessa atburðar hringdi til blaðsins maður einn er sagðist hafa orðið fyr- ir svipaðri árás og það hefði raunar komið fyrir oftar en einu sinni. Hann kvartaði mjög yfir framkomu lögregl- unnar í þessum málum. Kvaðst hann hafa kært árás- ina, en fengið þau svör hjá lögreglunni að það væri til lítils að kæra, 90% af slíkum kærum færu beint í ruslakörf- una. Meðan ekki væri tekið Rarðar á málum þessara of- beldisseggja væri varla von að þessum ófögnuði linnti. Blaðið tekur eindregið undir með þessum manni í því að taka verður mun fastari tiök- um á þcim óþjóðalýð er ræðst að vegfarendum með ofbeldi. Það verður þó varla gert fyrr en fangelsismálin eru komin í betra lag, en nú mun vera von til að úr rætist í þeim innan tíðar. — S.dór. Enn er tvísýnt um afdríf að- stoðar USA við önnur ríki WASHINGTON 1/11 — William Fulbright, formaður utanríkis- málanefndar Öldungadcildar bandaríska þingsins sagði í dag, að hugsanlegt væri að deildin Einar Ágústsson á fjölmennum fundi um „varnarmál" í Keflavík: Fuilur skilningur á því erlendis að ísland vilji losna við herinn Stefnan í „varnarmálum" er ekki óvinátta í garð Bandaríkjanna Einar Ágústsson, utanríkisráðh. og Jón Skafta- son, alþingismaður, mættu á fjölmennum fundi Framsóknarfélaganna í Keflavík á sunnudag og ræddu „vamarmálin“. Kom fram í ræðu utanríkis- ráðherra, að full samstaða væri um það innan rík- isstjómarinnar, að unnið yrði að endurskoðun „vamarsamningsins“ og tekinn til þess nægur tími. Jón Skaftason lýsti yfir að hann skildi málefna- samning ríkisstjórnarinnar ekki þannig að skil- yrðislaust ætti að vísa hemum úr landi, því að tryggja yrði að Suðurnesjamenn hlytu ekki af því fjárhagslegt tjón. Utanríkisráðherra hóf ræðu sína á því að skýra frá því, sem gert hefði verið til að kynna mól- stað íslands í landihelgismálinu erlendis. Þá vék hann lítillega að Kínamálinu og sagði að ekki hefði mátt seinna vera að íslend- ingar tækju þá afstöðu, sem tekin var og enginn vafi lóki á því, að réttur málstaður hefði orðið ofan á. Vamarmál Islands, sagði ráð- herra, að yrðu rædd við Banda- ríkjastjórn eftir áramótin. Þá minnti ráðherra á að um vinnu- hagræðingu væri að ræða þar sem væri ráðherranefnd sú sem skipuð hefði verið um varnar- málin. Nefndin væri til þess starfandi, að samræma sjóhar- mið þeirra flokka sem að stjórn- inni stæðu. Mikilvægar áfcvarð- anir væru ekki teknar af nein- um einum ráðherra, heldur af ríkisstjórninni allri. Þá kom ráðherra inm á þær breyttu Qtvinnuhorfur sem sköp- uðust við brottför hersins. Minnt- ist hann þar á skýrslu, sem ný- lokið væri við að vinna um þróun Keflavíkurflugvallar, sem alþjóðaflugvallar. Sagði ráðherra að tölur þær, sem fram kæmu í skýrslu þessari, um fjölda starfsfólks við slíkan flugvöill væru ótrúlega háar. Nefndi hanin fc, d. að árið 1986 þyrfti 3500 síarfsmenn við rlikan millílanda. flugvöll sem stefnt yrði að gera Keflavíkurflugvöll að. Sú tala er nánast helmingi hærri en sú tala starfsmanna, sem nú stundar vimnu á veliihum, jafnt hjá hern- um sem íslenzkum aðilum. UtaniTkisráðherra skýrði enn- fremur frá því að þar sem hann heíði getað því við komið að ræða vamarmál landisdns við er- lenda stjórnmálaimenn hefði komið fram fullur, ski'lningur á þeirri afstöðu okfcar að vilja losma við herliðið af landinu. Jón Slcaftason gerði grein fyrir túlkun sinni á því ákvæði stjóm. arsáttmálans, sem greinir frá endurskoðun vamarsamningsins. Sagði Jón að það væri algjör- lega óheimilt að fullyrða um það að herinn skuili úr landi fyrir lok kjörtímabilsins. Það yrði að ákvarðaist eftir endurskoðun varnarsamningsins. Sýndi sú endurskoðun að hættulaust væri fyrir Islendinga að vera varnar- lausa, væri sjálfsagt að herinn færi. En áður en það kæmi til þyrfti að liggja fyrir ákveðnar áætlanir um atvinnuuppbyggingu fyrir Suðurnes. Þá sagði Jón, að sér virtist að órannsökuðu máli, að ekkd væri ósennilegt að leggja mætti niðurstöður af rannsókn af dvöl varnarliðsins undir þjóðarat- kvæði við bæjarstjórnarkosning- axnar 1®73. Áður en framsögumenn svör- uðu fyrirspurnum, reis úr sœti einn af forystumönnum Fram- sóknar í Keflavík, Valtýr Guð- jónsson bamkastjóri, og varaði menn við iþví að leggja trúnað á lygaskrif Morgunblaðsins um varnarmálin. Mogiginn væri með þessum skrifum sínum, að reyna að sturla þjóðina með uipplogin- PramhaM á 3. saðu. Einar Ágústsson. Að loknium framsöguræðum hófst fyrirspumartími. Heldur voru fyrirspurnir bornar fram meira, af kappi en forisjá, og harla órökstuddar margar hverj- ar. Báru þær sumar allmikinn keim af sefasýkisáróðri Morgun- blaðsins undangengnar vikur og er greinilegt að lygar þær og falsanir sem blaðið hefur verið að bera á borð fyrir landsmenn, hafa hlotið einhvem hljómgrúnn hjá þeim sálum sem grynnst vaða. samþykkti bráðabirgdalög sem tryggðu að ýmsar fjárveitingar Bandaríkjanna til Sameinuðu þjóðanna og mannúðarmála héldu áfram eftir að lög um aðstoð við erlend rílsi ganga úr gildi 15. nóvember. Það kom öllum á óvart á föstudag, að öldungadeildin felldi með 41 atkvæði gegn 27 stjóm- arfrumvarp um 3,2 miljarða doll- ara fjárveitingar til hemaðar. og efnahagsaðstoðar við erlend ríki. Einkenndleg samsteypa þing- manna sameinaðist um að fella frumvarpið — annars vegar íhaldsmenn sem segja að Banda- ríkjamenn ausi út fé án þess að fá nokkuð í aðra hönd og hins vegar frjálslyndari menn sem hafa gagnrýnt stjómvöld fyrir að styðja meS dollurum afturhaldsstjómir um allan heim. Púlbright sagði að til greina komi einnig að samlþykkja sér- stök lög um aðstoð við einstök ríki eins og Israel, en deildin mun ekki vilja halda áfram að- stoð á þeim forsendum sem stjómin viil. Nixon forseti hefiur kallað afstöðu deildarinnar ábyrgðarleysi, sem ónýtt hafi ut- anríkismálastarf stjómvalda í aldarfjórðung. STÓRSKEMMDIR EFTIR INNBROT Saltað í Eyjum Þessi mynd var tekin í Vestmannaeyjum í fyrri vi'ku og sýnir fólk við síldarsöltim í Hrað- fiystjstöð Vestmanna- eyja. Síldin var mjög faileg, og var áœtlað á föstudag, að búið væri að salta í nser 11 þús- und tunnur í Eyjum n.ú í haust. Síðasta veiði- daginn urðu margir fyr- ir því óhappi að rífa nætumar illa, þar sem síldin stóð svo grunnt. Forráðamenn í Eyjum gera sér nú vel grein fyrir hve mikið verð- mætj felst í síldinni og sögðust óhikað kaera hvem þann bát sem vogaði sér að veiða smásíld. — Ljós’m. sj. Þeir ætluðu greini- iega að flá feitan gölt innbrotsþjófarnir og völdu staðinn eftir því, þegar þeir brutust inn í hús Vinnuveitendasam- bands íslands aðfara- nótt sunnudagsins. En þeir höfðu lítið upp úr krafsinu fyrir sjálfa sig, en ollu þess í stað skemmdum fyrir tugi ef ekki hundruð þúsunda króna. Það var um miðja aðfaramótt sumnudagsins að lögreglunni Framhald á 3. síðu. Leggur fram frumvarp um jafnlaunadóm Svava Jakobsdófctir alþingis- maður hefur Xagt fram á alþingi fyrsta frumvarp sitt: það er frumvarp til laga um jafnlauna- dóm. Hlutverk jafnlaiunadóms skal samkvæmt frumvarpinu vera að dæma í málum sem risa út af kærum um brot á ákvæð- - um frumvarpsins um jöfn laun. En 1. grein frumvarpsins hljóðar svo: „Konum og körlum skulu greidd jöfn Iaun fyrir jafnverð- mæt störf“. Frumvarpið er birt í heild á 4. síðu. Yahya Khan, forseti Pakistans: Stríð við Indland vofir yf- Kína mun hjálpa okkur NEW YORK 1/11 — Forseti Pakistans, Yahya Khan, heldur því fram í viðtali við vikuritið Newsweek, að nú vofi yfir styrj- öld milli Indlands og Pakistans, og að Kínverjar muni senda miklar vopnabirgðir til Pakist- ana ef á þá verði ráðizt. Indverski vamarmálaráðherr- ann Jagjivam Ratn, s-mraði þesisiu á þá ledö í Nýju Dehli í dag, að Indverjar muni snúast hart til varnar ef að Pakistanir byrji stríð. Pakistanforseti sagðist reiðú- búinn til að láta lausan hinn pólitíska leiðtoga Austur-Pakist- ana, Mujibur ftahman, „ef þjóð- in krefst þess‘‘. En Khan hélt því um leið fram, að Rahman, sem er for,«eti h-'ns bannaða fkí'ia*. ^awicnibandialiagið, mundi drepinn af sínum eigin mönn- um í Austur-Pakistan ef hann sneri heim, vegna þess að þjóð- in teldi hann bera ábyrgð á þjáningum sínum. — Indverjar eiga nú þegar í styrjöld við okkur, sagði for- setinn m.a., og eina ástæðan til þess að ekki hefiur komið' til stórátaka er sú- að við höfum ekfeí svarað þeim i -ömu mynt. En etf Indjyerjar stigmagna árásabaðgerðir sinar með það fyrir augum að leggja undir sig land og koma á fót Bangla Desh stjóm, sem þeim sé háð, þá mun koma til styrjaldar Hann hélt því fram, aö Kín- verjar mundu ekki leyfa að ráð- izt yrði á Pakistan og mundi landið fá frá þeim vopn og all- an þann stuðning sem þyrfti nemia beina aðstoð herliðs. Um helginia bárust ítrekaðar fregnir um að indverskir(og pak- istanskir hermenn hefðu skipzt á skotum yfir landamæri Aust- ur-Pakistans. ' Indverskia héraðið Tripura var í dag sett undir beina stjóm stjómarinnar í Nýju Dehli eftir endurteknar fréttir um skothríð á bæi og þorp í héraðinu frá Pakistan. Þetta þýöir í reynd að neyðarástandi er lýist yfir i landinn. 4

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.