Þjóðviljinn - 02.11.1971, Page 4

Þjóðviljinn - 02.11.1971, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVTLJTNTT — ’ÞirfBgiuidaigar 2. iwSvtearfÖar ÍSTL — Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Otgefandi: Otgáfufélag Þjóðviljans. Framkv.stjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Sigurður Guðmundsson, Svavar Gestsson (áb.). Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig 19. Sími 17500 (5 linur). — Askriftarverð kr. 195,00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 12,00. Undirlægjuháttur eðu reisn J stefnuyfirlýsing'u ríkisstjórnarflokkanna eru mörg athyglisverð ákvæði, — eitt þeirra er á- kvæðið uim brottflutning hersins á kjörtímahil- inu. Þetta ákvæði hefur til þessa orðið valdur meiri umræðna en önnur atriði yfirlýsingarinnar, en því miður hefur yfirgnæfandi hluti þessara ný- legu umræðna ekki verið á því vitsmunastigi að leiði til skynsamlegra ályktana eða viðbragða. Hefur Morgunblaðið haft forustu um sefasýkis- skrif, en í kjölfarið hafa svo komið önnur mál- gögn Sjálfstæðisflokksins. Jgf ákvæði ríkisstjómarsamningsins um brott- flutning hersins eru skoðuð ofstækislaust má hverjum manni ljóst vera að meginbreytingin sem ákvæðið hefur í för með sér, er það, að núverandi ríkisstjóm ætlar að taka upp sjáfstæða, þjóðlega, íslenzka utanríkisstefnu. Jafnframt hefur ríkis- stjórnin ákveðið að umræður um utanríkismál skuli fára þannig fram að fulltrúar allra flokka sem aðild eiga að ríkisstjórninni skuli eiga aðgang að athugunum málsins. Þannig er ljóst að í nú- verandi stjómarsamstarfi er engin tilhneiging til þess að útiloka stóran hluta þjóðarinnar frá at- hugunum og vitneskju um gang mála. Sjálfstæð- isflokkurinn krefst þess hins vegar að kjósendur Alþýðubandalagsins og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna komi sem allra minnst og helzt ekkert nálægt umræðum um utanríkismál. Þessi krafa Morgunblaðsins ber merki fasismans og er algerlega andstæð öllum lýðræðislegum viðhorf- um. jslendingar voru orðnir þreyttir á undirlægju- hætti Sjálfstæðisflokksins gagnvart erlendu valdi. Sá undirlægjuháttur kom meðal annars fram í Kínamálinu. Afstaða Sjálfstæðisflokksins til viðræðna við Bandaríkjastórn nú um endur- skoðun hernámssamningsins yrði brennd sama marki og afstaða íhaldsins til Kínamálsins — ef fulltrúar Sjálfstæðisflokksins væru settir við samningaborð gegn Bandaríkjamönnum jafngilti það því að gefa Bandaríkjamönnum bandamann í íslenzku viðræðunefndinni — svo hundtryggir eru pótentátar Sjálfstæðisflokksins yfirmönnum sínum 1 Washington. Forusta Sjálfstæðisflokksins hefur ekkert lært, ekkert skilið og ekkert endur- metið. Hún er frosin í skel kalda stríðsins. Nú- verandi ríkisstjórn ætlar að rífa þjóðina upp úr þessari niðurlægingu og tryggja íslendingum og íslandi þá imynd á alþjóðavettvangi og þá reisn, sem er í samræmi við þjóðleg viðhorf okkar og arfleifð. — sv. ÞINGSJA ÞJOÐVILJANS Svava Jakobsdóttir flytur frumvarp um JAFNLAUNADÓM TIL TRYGGINGAR LAUNAJAFNRÉTTI KYNJANNA Lagt var jram í neðri deild AL- þingis í gær, jrumvarp til laga um jajnlaunadóm. Flutningsmað- ur er Svava Jakobsdóttir. Er jrum- varpið birt í heild hér á ejtir, en í greinargerð með því segir jlutn- ingsmaður m.a., að þessn jrum- varpi nm jajnlaunadám, ej það verði að lögum, sé cetlað það hlut- verk, að tryggja jramkvcemd laga um jafnrétti kynjanna í atvinnu- líjinu. Reynsla undanjarinna ára og áratuga sýni, að lagasetning ein nægi ekki, til að jullkomið jajnrétti sé tryggt í þessum ejn- um. Sú staðreynd blasir við, að þau störf sem konur vinni í þjóðfélag- inu séu metin til lágra launa. Það sé því full ástæða til að ætla, að hvorki vinnuveitendur né það starfsmat sem fram fer í Iand- inu taki nægilegt tillit til jafnrétt- issjónarmiða við launaákvörðun. Þá þekkist og mörg dæmi um^ misrétti á vinnustað, „sömu" störf séu iðulega nefnd mismunandi starfsheitum, eftir því hvort karl eða kona gegnir þeim og þar að auki gæti ríkrar tilhneigingar til að ganga framhjá konum við hækkun í starfi. Þá segir flutn- ingsmaður að þeirrar tilhneiging- ar gæti, að beina konum í lág- launaðar stöður, algerlega án til- lits til menntunar þeirra eða hæfni, en hér sé um að ræða víta- hring, sem samfélaginu beri að rjúfa. Það er skoðun flutnings- manns að stofnun jafnlaunadóms sé raunhæf lausn að þessu marki. Fer frumvarpið hér á eftir: 1. gr. Konum og körlum skulu greidd jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf. 2. gr. Atvinnurekendum er óheimilt að mismuna starfsfólki eftir kyn- ferði. Gildir þetta ekki aðeins um launagreiðslur, heldur um hvers konar greinarmun, útilokun eða forréttindi vegna kynferðis. Bannað er með öllu að skerða jafnrétti kynjanna til atvinnu- ráðningar, hlunninda, vinnuskil- yrða og hækkunar í starfi. 3. gr. Setja skal á stofn dómstól, er nefnist Jafnlaunadómur. Skal hann sitja í Reykjavík og vera fyrir allrlandið. Jafnlaunadómur skal skipaður 5 dómendum til þriggja ára í senn og skulu þeir ásamt jafn- mörgum varadómendum skipaðir þannig: einn skipaður af Hæsta- rétti og er hann formaður dóms- ins, einn skipaður af félagsmála- ráðherra, einn skipaður af Banda- lagi starfsmanna ríkis og bæja, og skulu þessir þrír ásamt varamönn- um hafa lokið embættisprófi í lögum, einn skipaðut af Alþýðu- sambandi íslands og einn skipað- ur af Vinnuveitendasambandi ís- Iands, og skulu þessir fveir ásamt varamönnum vera 20 ára eða eldri. Málsmeðferð fyrir Jafnlauna- , dómi skal lúta reglum laga um meðferð einkamála í héraði, nr. 85/1936. Kostnaður við Jafnlaunadóm greiðist úr ríkissjóði. 4. gr. Verkefni Jafnlaunadóms er að dæma í málum, er rísa út af kær- um um brot á lögum þessum. í úrskurðum sínum skal Jafn- launadómur byggja, jafnframt þessum lögum, á Iagastefnu þeirri, sem fram kemur í 3. gr. in fine laga nr. 38/1945, um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, í fullgildingu íslands á sam- þykkt Alþjóðavinnumálastofnun- arinnar frá 29. júní 1951, nr. 12/1958, og í lögum nr 60/1961, um Iaunajöfnuð kvenna og karla. Jafnframt ber Jafnlaunadómi að hafa að engu mismunandi nafn- giftir í sama starfi, sem uppi eru í því skyni að mismuna kynjum í launakjörum. 5. gr. Kærendur og sóknaraðilar máls fyrir jafnlaunadómi geta verið: 1) einstaklingur, sem telur brot á lögum þessum beinast gegn sér, og 2) starfshópar eða féiagssam- tök, sem telja atvinnurekanda hafa brotið gegn ákvæðum þess- ara Iaga. 6. gr. Dómur Jafnlaunadóms í kæru- máli einstaklings er bindandi sem ráðningarsamningur milli aðila og verður honum ekki skotið til æðri dóms. Sama gildir um á- kvörðun Jafnlaunadóms um máls- kostnað. Jafnlaunadómur getur dæmt at- vinnurekanda til greiðslu sekta í ríkissjóð vegna brota á lögum þessum. Hámark sekta er kr. Svava Jakobsdóttir 240 000.00. Atvinnurekandi getur áfrýjað sektardómi Jafnlaunadóms til æðri dóms eftir almennum reglum. 7. gr. Félagsmálaráðherra setur nán- ari reglur um framkvæmd þessara laga í reglugerð. 8. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. FLUTTl JÓMFRÚRÆÐU SÍNA í GÆR Eins og getið var um hér á síð- unni jyrir nokkrum dögum, lagði Skúli Alexandersson jyrir neðri deild tillögu til þingsályktunar- um endurskipulagningu sérleyjis- leiða. í gcer mcelti svo Skúli jyrir tillögu sinni og var það jómfrúr- rceða hans á Alþingi. Auk þess sem áður er fram komið um þessa tillögu hér á síð- unni, lagði flutningsmaður nú á- herzlu á, að einn aðal ókostur skipulags sérleyfisleiða nú, væri samgöngurnar innan byggðarlag- anna sjálfra. Bæta þyrfti þetta skipulag og væri til þess rétti tíminn nú, þar eð sérleyfi rynnu út á næsta ári. Þá vék flutningsmaður að sínu kjördæmi og rakti nokkuð ástand <s> þessara máLa þar. Kom þar m.a. fram, að Akranes væri mjög slitið úr þessu Ieiðakerfi og þyrftu þeir sem þangað æduðu helzt að kom- ast á puminum frá vegamótum. Þetta ástand væri þó ennþá baga- legra er litið væri til þess, að á Akranesi væri öflugt atvinnulíf, fjölbreyttur iðnaður, verzlun og mjög góð heilbrigðisþjónusta, sem margur hefði hug á að njóta. Sú Skúli Alexantlersson. bót væri þó á, að þrátt fyrir þetta samgönguleysi, hefðu t.d. Iæknar á Akranesi veitt mikla hjálp til nærliggjandi byggðarlaga, . ^ Þá' benti flutningsmaður á að ríkjandi skipulag væri ekki í anda þeirrar stefnu sem hú ríkti varð- andi byggðaþróun almennt. Þá sagði flutningsmaður, að gagnrýni sinnj væri ekki beint til handhafa umræddra sérleyfa, sem yfirleitt ynnu fórnfúst starf. Að Iokum rakti hann svo í grófum dráttum tillögur að skipulagi er mætti verða til bóta, og lagði þar mikla áherzlu á að nýting bílakosts væri betri en nú er. ÍBÚÐ ÓSKAST Ung hjón óska eftir tveggja til þriggja herbergja íbúð. Upplýsingar í síma 14839 eftir kl. 3. SANDVIK snjónaglar SANDVÍK SNJÓNAGLAR veita öryggi í J snjó og hálku. Látið okkur athuga gömlu hjólbarðana yðar og negla þá upp. Skerum snjómunstur í slitna hjólbarða. Verkstæðið opið alla daga kl. 7.30 til kl. 22, GÚMMIVNNUSTOFAN HF. SKIPHOLTI 35 REYKJAVÍK SÍMI 31055

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.