Þjóðviljinn - 16.03.1972, Qupperneq 12
• Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu í borginni eru
gefnax í símsvara Lækmafé-
lags Reykjavikuir. sími 18888
• Kvöldvarzla lyfjabúfta vik-
una 11. marz til 17. marz, er
i Reykjavíkur Apóteki, Borg-
ar Apóteki og Hafnarfjarðar
Apóteki. — Nseturvarzla er í
Stórholti 1.
• Slysavarðstofan Borgarspít
alanum er opin allan sólar-
hringmn. — Aðeins móttaka
slasaðra. Sími 81212.
• Tannlæknavakt Tannlækna-
félags Islands i Heilsuvemd-
arstöð Teykjavíkur. síml 22411.
er opin alla laugardaga og
sunnudaga kl. 17-18.
rpphnl nnnnrrn nrhnl
Voru brunavarnir á Litla-Hrauni í ólestri?
„Þessir þrír fangaverðiir. sem uppi voru þegar við
fengum vitnes'kju um eldinn, snerust í kringum sjálfa
sig og varla er hægt að segja að þeir hafi kunnað að
fara með þau slökkvitæki sem þarna voru við hönd-
ina. Eldurinn var ekki meiri en svo að ef staðið hefði
verið að málunum af einhvenri þekkingu. hefði verið
hægt að ráða niðurlögum hans þá þegar“.
Þannig fórust einum. fanga
prð, er hann náði sambandi
við blaðið í gær.
„Þegar þeir þöfðu snúizt
þarna nokkurn tíma, stakit
einn þeirra upp á því að far-
ið yrði og hringt í slökfcvi-
liðið. Skömmu seinna var
einn okkar fanganna sendur
niður til þess að ná í gas-
grímur að okkar eigin uppá-
stungu. Þær eiga að vera
geymdar í sérstakri geymslu,
en þar var ekkert að finnsf.
Því fór sem fór. En eldinn
hefði verið hægt að stöðva
ef rétt hefði verið haldið á
málunum strax frá upphafi”,
sagði þessi sami fangi enn-
fremur.
Gleymdist að
gera úrbætur?
Blaðið hafði samband við
Bi'unamálastofnun ríkisins til
þess að spyrjast fyrir um
brunavamir á Hrauninu. Að
sögn Magnúsar Sigiuroddsson-
ar tók Bninamálastofnuninn
ekki til starfa fyiT en um
áramót 1969—1970. Fram að
þeim tíma haíði lítið eldvarn
areftirlit verið víðast hvar.
Bftirlitsmenn frá Brunamála-
stofnuminni vom nýlega
í eftirlitsferð austur á Litla-
Hraunj og töldu þeir þruna-
vörnum þar í ýmsu ábóta-
vant. „En raunin er sú”, sagði
Magnús, „að við komum
hvergi þar sem ekkert er
hægt að finna að brunavörn-
um. Við gáfum þeim frest til
að bæta úr því sem okkur
flannst mest ábótavaint. Var
þar um að ræða að bæta við
neyðarútgöngum og að fá
fleiri tæki til þess að ráða
niðurlö-gum elds á byrjunar-
stigi. Sá fresfcur sem við gáf-
um þeim til þessara • úrbóta
var ekki úti, svo okkur er
ekki kunnugt um hvort ]>eir
hafi verið búnir að bæta hér
úr”.
Eru fangar skyn-
lausar skepnur?
Við höfðum samband við
Njörð Snæhólm, sem hefur
með að gera rannsókn elds-
upptakanna, en han*n hafði
ekkert um málið að segja að
svo komnu.
Svo virðist sem forstjóri
Vinnuhælisins að Litla-Hrauni
hafi bent rannsóknarmön-num
á, að upptök eldsins væru af
völdum einhvers fangans, en
þessi dæmalausi forstjóri lét
það eftir sér í Vísi í gær,
„að þeir (fangarnir) hefðu
svosem vel getað Iaumazt upp
á loftið til að kveikja í”.
Bn þetta voni ekki einu
ummælin sem forstjórinn -lét
hafa eftir sér í því blaði. Á
öðrum stað segir hann meðal
annars: „Við rákum þá út
cins og fé. I>eir voru 34 hérna
fyrir auistan og við höfðum í
fuOlu tré við þ*á fangaverð-
imir, þótt við værum ekki
nema 8 taisins”.
„Við rákum þá út úr hús-
inu og út í útihús, fjárhúsin
hcma, og þar var þeim hald-
ið þar til lögreglan úr
Reykjavík kom ...”
Ummæli lík þessum, svo og
þau sem forstjórinn viðhafði
í sjónvarpi hljóta að vekja
ýmsar spurningar.
Fjöldi fólks hefur hringt
hingað á blaðið og beðið okk-
ur að spyrjast fyrir hvert við-
horf þessa manns til fang-
anna sé, hvort hann líti á þá
sem hættulega óvini, mann-
skæð dýr, eða s'kynlausar
skepnur.
Rykfallin máls-
skjöl í dóms-
málaráðuneytinu
Þá höfum við og verið
beðnir um að kanna hver við-
horf félagsskaparins Vemdar
svo og dómsmálaráðuneytis-
ins séu til ummæla forstjór-
ans. Þessum spumingum er
hér með komið á framfæri,
en þessi bruni virðist gefa
kærkomið tækifæri til þess að
dusta rykið af ýmsu því sem
selzt hefur í dómsmálaráð-
herratíð Jóhanns Hafsteins og
Auðar Auðuns.
1 því sambandi er full á-
stæða til að leggja þá spum-
ingu fyrir dómsmálaráðherra
hvort, eða réttara sagt hvað,
honum sé kunnugt f)f stppfr
um þeiirar nefndar, scm sett
var á stofn fyrir 2—3 árum
til að kanna hæfni forstjóra
Litla-Hrauns til að gegna þvi
starfi sem hann hefur með
höndum og komst að þeirri
niðurstöðu að maðurinn væri
óhæfur til að gegna starfi
sínu.
Það er sannarlega ekki van-
þörf á að hendur verði látnar
standa fram úr ermum í þess-
um efnum, ef ekki á verra
af að hljótast en þegar er
orðið. — úþ.
Kolanámumenn fagna unnum sigri
Þessi mynd var tekin i Glasgow fyrir skömmu, þegar um þúsund kolanámumenn fóru í sigurgöngu um borgina tii að
fagna Því, að þeir höfðu í löngu og hiirðu verkfalli brotið á hak aftur stefnu stjórnar Heaths í launamálum. Kolanámu-
menn, ekki sízt skozkir, eru verkamanna róttækastir á Bretlandseyjum — enda stendur á fána þeirn sem þeir bera fyrir
sér: „Sósíalismi er öryggi“.
Ástamál og tekjumöguleikar
þegar han-n komst að þvi
hvaða starf Sonia hafði stund-
að, sleit trúlofuninni og
heimtaði fé sitt til baka, rakst
hann á harða mótspyrnu.
Sonia fór meira að segja fram
á nokkra fjárupphæð til við-
bótar þeirri sem hún hafði
fengið, á þeim gi-undvelli að
hún hafi ekki getað stundað
atvinnu sína meðan á trú-
lofuninni stóð og því orðið af
miklum t.ekium.
Þrítugur bankastarfsmaður
í Róm hefur hafið mál gegn
fyrrverandi unnustu sinni.
Ástæðan er sú, að hann
komst að því, að kærastan
var skráð vændiskona hjá yf-
irvöldunum.
Banka*strákur þessi kynnt-
ist Soniu Olivanti fyrir ári,
trúlofaðist henni og afhenti
henni sparifé sitt, 25 miljónir
lira, trl að kaupa íbúð. En
* *
i