Þjóðviljinn - 13.08.1972, Síða 1
PJODVIUINN
Sunnudagur 13. ábústl972—37. árgangur —179. töluþlað
Alþýóubankinn hf
ykkar hagur
okkar metnaóur
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA I KRON
Bráðabirgðalög gefin út um lœkkun tekjuskatts aldraðra og öryrkja:
86,4% aldraðra
greiða engan eða
skertan tekjuskatt
Samkvæmt nýjum bráðabirgðalögum verður
tekjuskattur felldur niður á öldruðum og ör-
yrkjum að 14.000 kr. marki hjá einstaklingum en
22 þús. kr. hjá hjónum. Þetta hefur það i för með
sér að einhleypir greiða ekki tekjuskatt fyrr en
við 300 þús. kr. nettótekjur og hjón greiða ekki
tekjuskatt fyrr en við 440 þús, kr. nettótekjur.
Samkvæmt greinargerð fjármálaráðherra um
þetta efni greiða 86,4% aldraðra engan éða lægri
tekjuskatt en aðrir.
Þjóðviljinn birtir hér i heild
bráðabirgðalaganna og kafla
fjármálaráðuneytisins.
aðalefnisgrein
úr greinargerð
IV. liður 11. greinar laganna
orbist svo:
Tekjuskatt þeirra manna,
sem náð hafa 67 ára aldri á
skattárinu, eða áttu rétt til ör-
orkulifeyris samkvæmt lögum
nr. 67/1971 um almannatrygg-
ingar, skal lækka sem hér seg-
ir:
a. Tekjuskatt 14.000 krónur
eöa lægri hjá einstaklingum
og 22.000 krónur eða lægri hjá
hjónum, skal fella niður.
b. Tekjuskatt einstaklinga á
bilinu frá 14.000 til 56.000 krón-
ur skal lækka um fjárhæð,
sem nemur 14.000 krónum, að
frádregnum þriðjungi þeirrar
fjárhæðar, sem óskertur
tekjuskattur er hærri en 14.000
krónur.
c. Tekjuskatt hjóna á bilinu
frá 22.000 til 88.000 krónur skal
lækka um fjárhæð, sem nemur
22.000 krónum, að frádregnum
þriðjungi þeirrar fjárhæðar,
sem óskertur tekjuskattur er
hærri en 22.000 krónur.
Greinargerð.
Við þá breytingu á al-
mannatryggingakerfinu aö
tryggja þeim tekjulægstu lág-
markstekjur og með þeim
hækkunum, sem oröið hafa
bæði á almennum elli- og ör-
orkulifeyri frá 1. ágúst 1971 og
siðar á fjárhæð lágmarks-
tekjutryggingar, var talið
óframkvæmanlegt að afla fjár
til almannatryggingakerfisins
á sama hátt og áður hafði ver-
iö gert, þar sem persónuskatt-
ar hefðu þá orðið mjög tilfinn-
anlega háir á þeim tekjulágu,
ekki sizt skólafólki og þar með
fjölskyldum þeirra.
Sú ákvörðun var tekin við
endurskoðun skattalaga og
laganna um tekjustofna
sveitarfélaga, að breyta kerf-
inu á þann hátt að fella niður
persónuskatta til almanna-
trygginga og sjúkrasamlaga
og ennfremur að fella niður
framlag sveitar- og bæjar-
félaga til almannatrygginga
og að hálfu framlag þeirra til
sjúkrasamlaga, en tekna til að
mæta þessum auknu útgjöld-
um yrði aflað með tekjuskatti.
Þeir aðilar, er njóta elli- og ör-
orkulifeyris, nutu hins vegar
ekki þeirra hlunninda, er af
niðurfellingu persónuskatt-
anna leiddi, þar sem greiðslu-
skylda þeirra hafði fallið niður
við það að öðlast rétt til élli- og
örorkulifeyris. Hins vegar
hefur þetta fólk notið um 48%
hækkunar á elli- og örorkulif-
eyri sinn frá 31/7 1971 til þessa.
Svo sem verið hefur eru elli-
og örorkulifeyrisþegar skatt-
skyldir til tekjuskatts sam-
kvæmt skattalögunum frá sið-
asta vetri, ef tekjur þeirra ná
skattskyldu marki. baö hefur
komið i ljós við skattlagningu
nú, að af 9.500 einhleypum elli-
lifeyrisþegum höföu 2.600 það
háar tekjur, að þeim var gert
að greiða tekjuskatt, og af
4.500 hjónum, er ellilifeyris
njóta, var tekjuskattur lagður
á 2.800, eða af 14.000 ellilif-
eyrisþegum, er lagður tekju-
skattur á 5.400 eða 38.6%
Engar sambærilegar tölur
eru til fyrir örorkulifeyris-
þega, en þeir eru 3.500 talsins
samkvæmt upplýsingum
ingastofnunar rikisins.
Ákvæði bráðabirgðalagánna
byggist á þvi að útfæra frekar
þá ivilnun, sem þegar er veitt,
þannig að i stað þess að miða
við hámark 5000 króna tekju-
skattsriiðurfellingu hjá
öldruðum, að miða við 22.000
krónur hjá hjónum og 14.000
krónur hjá einhleypum. Þess-
ar tölur eru valdar þannig, að
þær svara nokkurn veginn til
þeirra persónuskatta, sem
lagðir hefðu verið á að
óbreyttu tekjuöfiunarkerfi
trgginganna. En i stað þess að
láta iækkunina réna eins og i
núgildandi reglum þannig, að
hún hverfi alveg þegar
skatturinn nær 10.000 krónum,
teygir þetta kerfi sig með ein-
hverja ivilnun upp i 56.000
króna skatt hjá einhleypum og
88.000 króna skatt hjá hjónum.
bessi ivilnun þýðir, að ein-
hleypir eru tekjuskattsfrjálsir
allt að 200.000 króna nettótekj-
um og greiða ekki óskertan
tekjuskatt, þ.e. sama tekju-
skatt af sömu tekjum og aörir
gjaldendur, fyrr en við 300.000
króna nettótekjur, miðað við
tekjur ársins 1971. Ennfremur
má nefna sem dæmi, aö tekju-
skattur að upphæð 25.000 krón-
ur hjá einhleypum lækkar um
rúmar 10.000 krónur og skatt-
ur að upphæð 35.000 krónur
lækkar um 7.000 kr. Fyrir hjón
yrðu þessar töktr þannig, að
þau eru tekjtfskattsfrjáls allt
að 300.000 króna nettótekjum
og greiða ekki óskertan tekju-
skatt fyrr en við 450.000 krón-
ur. Tekjuskattur hjóna að
upphæð 38.000 krónur lækkar
um 16.700 krónur, skattur að
upphæð 55.000 krónur lækkar
um 11.000 krónur. Fyrir ofan
tekjumörkin 300.000 krónur
hjá einhleypum og 450.000
krónur hjá hjónum er öldruð-
um hins vegar ætlað að leggja
eins og öðrum með sömu tekj-
ur og framfærslubyrði til al-
mannaþarfa og tekjuöflunar,
og taka þátt i þvi sem aörir, að
tryggja þá tekjulægstu i hópi
Farmhald "á 2. siðu.
N-Víetnam;
Ekkert lát á loftárásum
33 bandariskar
sprengiflugvélar af
gerðinni B-52 gerðu loft-
árásir á norður-viet-
namska hafnarborg i
gær og nótt. Var um eitt
þúsund tonnum af
sprengjum varpað á
fimmtiu ferkm. svæði.
Bandarikjamenn gera
nú hverja stórárásina á
fætur annarri i von um
að geta stöðvað birgða-
flutninga, bæði á sjó og
landi. Ekki er þó lát á
stórsókn þjóðfrelsisafl-
anna i S-Vietnam.
Bandariskar
sprengjuflugvélar gerðu
einnig árásir á lið Þjóð-
frelsishreyfingarinnar
skammt fyrir utan
Quang Tri, en borgin er
enn i höndum hennar
eftir sex vikna átök um
svæðið.
Einar
Olgeirsson
70 ára á
morgun
■ t.
•'f í ■
A inorgun, 14 ágúsl, vcröur
Kinar Olgcirsson sjölugur.
bjóðviljinn færir honum inni-
legar hcillaóskir á afniælinu
og i tilefni dagsins birtir bjóö-
viljinn afmælisgreinar eftir
lirynjólf Bjarnason, I.úövik
Jósepsson, Magnús
Kjarlansson, Bagnar Arnalds,
öddu Báru Sigfúsdóttur, llauk
llelgason, Einar I.axness og
Elias Mar. bá er i hlaöinu viö-
tal viö Einar Olgeirsson uin
aödraganda lýðveldis-
slofnunarinnar og
nýsköpunarstjórnarinnar, en
viötaliö cr hluti af grein sein
Svavar Gestsson skrifar i til-
efni afmælisins um einn
þáttinn i stjórninálastarfi
Einars Olgeirssonar.
Einar er staddur erlendis á
Farmhald á 2. siðu.
Waldheim
í Peking
Peking 12/8. Kurt Waid-
heim, framkvæmdastjóri
Sameinuðu Þjóðanna, hóf i
dag viðræður sinar við
ráðamenn i Peking, en
þangað kom hann seint í
gærkveldi.
Búizt er við að framkva>mda-
stjórinn fari þess á leit við Kina-
stjórn, að hún leggi sitt af
mörkum til að greiða úr fjárhags-
örðugleikum Sameinuðu bjóð-
anna, auk þess sem viðr;cðurnar
munu vafalitið fjalla um styrjöld-
ina i Indókina, ástandið fyrir
botni Miðjarðarhafs, sambúð
suður- og norðurhluta Kóreu og
afvopnunarmálin.
Kurt Waldheim mun dvekja i
fimm daga i Kina, en hann hefur
gert viðreist upp á siðkastið á
vegum embættis sins og heim-
sótt þau riki er eiga fastafulltrúa
i öryggisráði Sameinuðu Þjóð-
anna.
Þáttur um skattamál í Sjónvarpinu:
BREIÐU BÖKIN
Þáttur um skattamál
verður í sjónvarpinu á
þriðjudagskvöldið undir
stjórn Olafs Ragnars
Grímssonar.
Þátturinn ber heitið —
Breiðu bökin.—
,,Sex aðilar verða kvaddir
til að ræða saman um þá þætti
skattamálanna, sem mest
hafa verið til umræðu nú i
sumar,” sagði Ólafur Ragnar.
,,1 sjónvarpssal verða þeir
Halldór E. Sigurðsson, núver-
andi fjármálaráðherra og
Magnús Jónsson frá Mel, for-
veri Halldórs. Auk þeirra
verða svo fjórir fulltrúar
blaða, þeir Svavar Gestsson
frá bjóðviljanum, Jónas
Kristjánsson frá Visi, Bjarni
Guðnason frá Nýju landi og
Sighvatur Björgvinsson frá
Alþýðublaöinu.
Inn i umræður þessara
manna, sem verður sjón-
varpað beint, veröur fléttað
sjónvarpsmyndum, meðal
annars með viðtali við skatt-
rannsóknarstjóra og endur-
skoðanda, sem ætlar að segja
fólki frá þvi hvernig hægt er
aö berast mikið á, en greiða
litið i skatta.”
Þátturinn hefst klukkan
21.20. —úþ