Þjóðviljinn - 13.08.1972, Síða 12
'£\ SIDA — ÞJÓÐVILJINNI i Sunnudagur 13. ágúst 1972
KLETTUM VENUSAR
Lendingarhluti sjálfvirku
geimstöðvarinnar Venus-8 settist
mjúklega á yfirborð plánetunnar
22. júli s.I. eftir 117 daga ferð, 300
miljónir km. Upplýsingar þær,
sem undanfarnar fjórar stöðvar
höföu veitt, gerðu það kleift að
smiða lendistöð, sem tókst að
„kafa til botns” i gufuhvolfi
Venusar og senda þaðan mæling-
ar og upplýsingar til jarðar i 50
minútur.
Hér ræðir irína Lúnatsjarskaja
við aðstoðarmann yfirsmiös
Venusarfarsins.
Hingað til hafa öll Venusarför
flogið til hins dimma hluta reiki -
stjörnunnar, en Venus-8 var send
til daghliðarinnar, er að sól snýr,
en það var aðeins tiundi hluti
kringlunnar, sem að farinu sneri.
Miðun þurfti þvi að vera afar ná-
kvæm, þvi að hin minnsta
skekkja á annan veginn gat leitt
til þess að fariö fleytti kerlingar i
yfirborði gufuhvolfsins og
þeyttist aftur út i geiminn, og á
hinn veginn til þess að það lenti á
skuggahliðinni.
hitastigi og þrýstingi dagmegin,
m.ö.o. hvort það er bjart á yfir-
borðinu þar og hver er munur
dags og nætur þar efra.
— Vilduö þér lýsa lendistöðinni
og sérstaklega hitabrynju henn-
ar?
— Þegar lendistöðin skellur á
lofthjúpnum með hraða^ sem er
meiri en 11,6 km á sekúndu
(escape velocity), verður stefni
hennar fyrir skammæjum, en
gifurlegum þrýstingi, sem
minnkar hraðann niður i nokkur
hundruð metra á sekúndu. Þetta
er hið kritíska augnablik ferðar-
innar, álagið er tröllslegt og
brennheitar gufur allt um kring.
Orugg hitabrynja er þvi frumskil-
yrði.
Fyrri'reynsla, þ.á.m. af tungl-
förum, einkum Lúna-16 og Lúna-
20, gerðu okkur kleift að reikna út
nokkuð nákvæmlega allar að-
stæður og taka allt, sem máli
skiptir, með i reikninginn. Hraði
Lúnu-16 og Lúnu-20, þegar þær
sneru aftur inn i gufuhvolf jarðar,
er mjög nálægt þeim hraða, sem
geimför lenda á lofthjúp Venusar
HEITUM
Lendingarstöð Venusarfarsins — tilraunir á jörðu niðri.
Þess vegna voru tvær stefnu-
leiðréttingar áformaðar, en hin
fyrri tókst svo vel að önnur
reyndist óþörf.
Astæðan til þess að visinda-
menn vildu gera rannsóknir á
lýstu hliðinni var, að auk- upp-
lýsinga um hitastig, þrýsting og
efnasamsetningu lofthjúpsins er
mikilvægt að vita, hvort hann er
ljósþéttur og hvaða sveiflur eru á
með. Leifarnar af hitavarnarlagi
þeirra sýndu áverkun gufuhvolfs
og þrýstings. F'yrir áhrif hita-
flæðis og geislaorku gufar
varnarlagið smám saman upp,
bráðnar og „fýkur” loks af.
1 rannsóknarstofu okkar gerð-
um við tilraunir með að blása
yfirmáta heitu plasma á mis-
munandi hitabrynjur og reyndum
að haga aðstæðum svo, að bær
væru sem likastar þvi þegar farið
er inn i gufuhvolf Venusar.
Við bollalögðum lengi um lögun
lendistöðvarinnar. Fleygur, bll-
lukt og strýta hafa ýmsa kosti, en
öll hafa þessi form sama gallann:
ekkert þeirra stillir sér sjálfkrafa
i rétta stöðu, þegar inn i loft-
hjúpinn er haldið. Til að koma i
veg fyrir þetta völdum við hnatt-
lagið, sem kemur sér sjálft i rétta
stellingu, ef þungamiðja þess
fellur ekki saman við
geómetriska miðju. Þótt hnöttur
sé þannig heppilegur, þegar inn i
gufuhvolfið er haldið, er hann
siðri til lendingar á yfirborðinu,
þvi að hann getur oltið til eins og
verkast vill, og gæti þá farið svo,
að jörðin lendi utan kallviddar
loftnetsins. Reyndar er lendi-
stöðin sjálf ekki kúlulaga, heldur
ilöng nokkuð og minnir á egg.
Aðeins tækjaklefinn — rauða
eggsins - er hnattlaga og gerður
úr hitaþolnum málmi.
Einangrunin og hitabrynjan
mynda „hvituna".
Aftast i lendistöðinni, milli
tækjaklefa og „skurnar” er rúm
fyrir útbúnað, sem þarf að geta
starfað „undir beru lofti” á
Venus. Þar á meðal er fallhlif, 2,4
rúmmetrar, tveir Ijósmælar og
þrjú loftnet.
— Hvaða aðferðir voru notaðar
til að rannsaka bergsamsetningu
yfirborðsins?
A lendingarsvæðinu, er rétt að
bæta við. Til þess notuðum við
gamma-litsjá, sem mældi
gammageislun bergsins i
nágrenni iendistöðvarinnar.
Gammageislun stafar af upp-
lausn geislavirkra kjarna, og
gefur hún hugmynd um tegund
bergefnis, basalts, granits, kvarz
o.s.frv. Mælitækin. sem send voru
til Veriusar, voru ekki viðamikil
og þurftu nokkurn tima til að
safna nauðsynlegum upplýsing-
um áður en þau gætu sent þær til
jarðar. Á þeim 50 minútum sem
stöðin sendi út gátu litsjárnar
sent upplýsingar sinar nokkrum
sinnum, en slik endurtekning
tryggir nákvæmni og áreiðan-
leika.
Sagt er, að við lendingu hafi
verið frost i tækjaklefa. Ofsa-
hitinn á yfirborði Venusar
smáhitaði svo lendistöðina og
eftir 50 minútur dóu tækin „hita-
dauða”. Hverju var hinn upphaf--
legi kuldi að þakka?
Til að koma i veg fyrir hitun á
leiðinni frá jörð til Venusar, var
stöðin búin sjálfvirkun út-
geislunartækjum, sem dreifðu
hita út i himingeiminn. 1 lendi-
stöðinni er „stofuhiti”. 1 lofthjúp
Venusar, að ekki sé minnzt á yfir-
borðið, er hins vegar ógerlegt að
losna við hitaaukningu, eina ráðið
er að verjast henni sem bezt.
(Yfirborðshitinn er 500" C). Þvi
má ekki heldur gleyma, að meðan
á hraðaminnkun stendur, geysist
lendistöðin gegnum eldplasma
með hitastigi, sem nemur tug-
þýsundum gráða. Til að halda
visindatækjunum starfhæfum
verður þvi ekki aðeins að vernda
þau gegn hitun á niðurleið.heldur
þurfa þau að geta gripið til
kuldaforða. I þvi skyni eru sjálf-
virku útgeislunartækin látin
starfa óslitið nokkra síðustu dag-
ana fyrir lendingu. Þessi stöðuga
hitaútgeislun átti að sjá um veru-
lega hitalækkun inni i lendi-
stöðinni, og reyndust þeir út-
reikningar réttir. Kulda-
birgðirnar entust til að halda
tækjunum starfandi i 50 mínútur
eftir að niður var komið.
— Hvað finnst yður sem
hönnuði hafa verið erfiðast við
þetta verk?
— Að sætta allar þær kröfur til
geimfarsins, sem komu frá
mönnum, er litu aðeins á það sem
tæki til að flytja tæki til annarrar
reikistjörnu. Margir visindamenn
vildu ,,fá inni”, en rúmið var af
skornum skammti. Okkar verk-
efni var ekki einungis að koma
tækjunum heilu og höldnu á
leiðarenda og tryggja það að þau
ynnu eins og til var ætlast, heldur
urðum við einnig að sjá til þess,að
allar upplýsingar tækjanna
kæmust til skila og að þeirra starf
og okkar færi ekki forgöngum,
þ.e. að tryggja fjarskiptasam-
band.
Sjúkrahúsið á Selfossi
Hjúkrunarkonur
Yiirhjúkrunarkonu vantar nú þegar að
Sjúkrahúsinu á Selfossi, — ennfremur
vantar þrjár hjúkrunarkonur frá 1. sept-
eniber n.k.
Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkona
sjúkrahússins i sima 99-1300.
Sjúkrahúsið á Selfossi
AKRANES - STARF
Umsóknarfrestur til að sækja um stöðu
forstöðukonu, Elliheimilisins Akranesi
rennur út 15. ágúst n.k.
Sjá auglýsingu i dagblöðunum 11. júli
1972. Nánari upplýsingar veitir bæjar-
stjóri eða bæjarritari.
Akranesi 11. ágúst ’72
bæjarstjórinn á Akranesi.
APN
Vélar til sölu
Tilboð óskast i eftirtaldar vélar:
Itennibekkur, Niles 45xl(í0 sm
Itennibekkur, Model ÍA, 95, 70x100 sm
Itennibekkur, Norton 18x100 sm
Horvél (gólf), Holsterbro SB 25
Horvél (gólf), Clou
Járnsög
Itafsuðuvél FH 60 amp. jafnstraums
Itafsuðuvél litil benzíndrifin
Hleðslutæki benzindrifin
Vélarnar eru til sýnis i húsi Vélasjóðs
rikisins, Kársnesbraut 68, miðvikudag og
laugardag n.k.
Að öðru leyti fást upplýsingar hjá yfir-
manni i áhaldahúsi Kópavogsbæjar.
Tilboðsblöð fást hjá honum og á bæjar-
skrifstofunum.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu rekstrar-
stjóra i félagsheimilinu, mánudaginn 21.
ágúst kl. 10,30 fyrir hádegi.
Rekstrarstjóri Kópavogsbæjar.